Alþýðublaðið - 12.03.1997, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
f r é t t i r
■ Skattapakki ríkisstjórnarinnar vekur blendin viöbrögö hjá mörgum
Hátekjumenn fengu lottóvinning
- án þess aö þurfa aö kaupa sér miða, segir Sighvatur Björginsson um skattapakka ríkisstjórnarinnar. Hann skýtur föstum skotum aö út-
færslu skattalækkana, og gagnrýnir aö ekki hafi fengist svör við brýnum spurningum verkalýöshreyfingarinnar.
“Svör ríkisstjómarinnar við óskum
verkalýðshreyfingarinnar, einsog þau
birtast í textanum sem forsætisráð-
herra fór með í öllum fjölmiðlum á
mánudag, eru alls ekki nægilega skýr.
Einu svörin sem ríkisstjómin gaf
vörðuðu skattamál og málefni lífeyr-
isþega. Það vom hinsvegar fjölmörg
önnur atriði, sem ASI hafði óskað eft-
ir skýmm svörum við, svo hægt væri
að ljúka kjarasamningum.” Þetta
sagði Sighvatur Björgvinsson, for-
maður Alþýðuflokksins, þegar Al-
þýðublaðið innti hann eftir viðbrögð-
um hans við þeim pakka, sem ríkis-
stjómin kynnti sem sinn þátt í yfir-
standandi kjarasamningum.
Engin rauð strik
“Ég bendi á það, að í sameiginlegri
kjarastefnu landssambanda ASÍ, sem
var kynnt ríkisstjóminni, var lögð
höfuðáhersla á tryggingu kaupmáttar.
Óneitanlega er það því athyglisvert,
að í yftrlýsingu forsætisráðherra er
nákvæmlega ekkert að finna um það.
Það em engin „rauð strik”, engar
verðlagsforsendur af neinu tagi. Ekki
vottur af vilja til að tryggja varðveislu
kaupmáttar. Ætlar ríkisstjómin að láta
þar við sitja?”
Sighvatur rifjaði upp að í kjara-
stefnu ASI hefði verið lögð mikil
áhersla á lækkun innflutningstolla og
að markmiðum GATT- samningsins
yrði fýlgt fram í raun. „Þar gefur hins-
vegar ríkisstjómin engin svör, og við
það er engan veginn hægt að sætta
sig. ASÍ lagði líka mikla áherslu á að
fá í gang viðræður um jöfnun lífeyris-
réttar, en ríkisstjómin svarar þeim til-
mælum alls ekkert. Sama gildir um
þunga áherslu ASÍ á lækkun þjón-
ustugjalda, til dæmis á heilbrigðis-
sviðinu, þar sem Ingibjörg Pálmadótt-
ir hefur aukið gjöld vemlega, þrátt
fyrir stríðar tölur um hið gagnstæða
meðan hún var í stjómarandstöðu.
Um þetta em einfaldlega engin svör
frá ríkisstjóminni.”
Farsakennd vinnu-
brögö
Sighvatur sagði að það væri skond-
ið að fylgjast með ákvörðun ríkis-
stjómarinnar í málefnum lífeyrisþega.
Þar væri verið að taka upp tillögur,
sem flokkar stjómarandstöðunnar
hefðu flutt á Alþingi. „Út af fyrir sig
er það gott og blessað. Batnandi
mönnum er alltaf best að lifa, og við
teljum það ekkert eftir okkur að búa
til góðar tillögur fyrir ríkisstjómina.
En það sem er skondið í málinu er
þetta: Hér er um að ræða nákvæmlega
sömu tillögur og ríkisstjómin lét sitt
lið á Alþingi fella í atkvæðagreiðslu
við fjárlögin. Em þetta nú ekki farsa-
kennd vinnubrögð?”
Sighvatur sagði, að jafnvel góð-
gjömustu menn hlytu að setja spurn-
ingamerki við rausn ríkisstjómarinnar
þegar kæmi að aðgerðum hennar í
skattamálum. „Hvað felst í þeim?
Hafa menn skoðað það? Þeir sem
leggja það á sig munu komast að því,
að ríkisstjómin lýsir því nú yfir að
hún sé reiðubúin til að skila launþeg-
um til baka þeim skattahækkunum
“Er ríkisstjórnin reiöu-
búin að gefa tryggingu
fyrir því, að hún muni
ekki sækja sér þær
tekjur, sem hún er
reiðubúin að afsala
sér með lækkun tekju-
skatta, með hækkun-
um á öðrum sköttum
eða með enn frekari
niðurskurði...”
sem hún hefur af þeim tekið á síðustu
fimmtán mánuðum! Sér er nú hver
rausnin! „
Hátekjumenn hrósa
happi
Það er líka athyglisvert að skoða
það hvemig ríkisstjómin ætlar að út-
færa þennan glaðning sinn, sagði Sig-
hvatur.: „Eftir því sem gengur fram af
munni forsætisráðherra, þá á fram-
kvæmdin að verða sú, að stómm hluta
þessarar fjárhæðar, eða allt að 2/5
hlutum, er varið til þess að létta á
sköttum þeirra, sem hæstar hafa tekj-
umar, eða til einstaklinga, sem hafa
175 þúsund krónur á mánuði eða
meira, og til fjölskyldna sem em með
Sighvatur Björgvinsson: Fólk
vantar tryggingu fyrir því að
skattalækkanir verbi ekki teknar til
baka með annars konar álögum og
niðurskurði.
yfir 350 þúsund á mánuði. Þannig fær
fjölskylda, sem er með 525 þúsund
króna tekjur á mánuði um 16 þúsund
krónur í skattalækkun í sinn hlut frá
ríkisstjóminni, en fjögra manna fjöl-
skylda með 125 þúsund krónur á
mánuði aðeins tvö þúsund króna
lækkun til sín. Ég segi nú bara and-
spænis þessu: Ef þetta er þeirra rétt-
læti, - hvemig er þeirra ranglæti?”
sagði Sighvatur, og bætti því við að
hátekjumenn gætu hrósað happi yfir
lottóvinningnum sem þeir fengju án
þess einu sinni að þurfa að kaupa
miða.
Hann benti ennfremur á, að það
væri beinlínis blekkjandi af hálfu rík-
isstjómarinnar að halda því fram að
hátekjuskattur hefði verið hækkaður,
“Með því að innleiða
tekjutengingar í öllu
barnabótakerfinu er
verið að auka jaðar-
skattaáhrifin, sem er í
hreinni mótsögn við
yfirlýst stefnumið rík-
isstjórnarinnar.”
■ Fulltrúi ITF beinir spurningum til Eimskipa og Flugleiöa
Saknað við sjóprófin
Rannsóknarnefnd sjóslysa gerði athugasemd við fjarveru filipseysku skipverj-
anna við upphaf sjóprófa.
Borgþór Kæmested, fulltrúi ITF,
samtaka alþjóðlegra flutningaverka-
manna, hefur beint þeim spumingum
til Rannsóknamefndar sjóslysa hvort
að einhver hafi haft samband við þá
og beðið leyfis til að flytja áhöfn Vik-
artinds úr landi áður en sjópróf hefðu
farið fram. Hann spyr einnig hvort að
það hafi ekki verið nauðsynlegt að
skipverjamir yrðu viðstaddir sjópróf-
in.
Að sögn Jóns Finnbjömssonar
rannsóknardómara í málinu, en blaðið
ræddi við hann í fyrradag, gerði
nefndin athugasemd við fjarvem skip-
verjanna við upphaf sjóprófa. En
Hjörleifur Jakobsson framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Eimskipafélagsins
segir að umræddra manna hafi ekki
verið óskað við sjóprófin en fjórir
áhafnarmeðlimir vom viðstaddir.
Borgþór hefur einnig beint spum-
ingum til Eimskips, til dæmis hvort
mennimir hafi fengið áfallahjálp, og
hver þáttur Eimskips hafi verið í þeirri
ákvörðun að flytja mennina úr landi.
Líkt og kom fram í blaðinu í gær
kvaðst Hjörleifur Jakobsson fram-
kvæmdastjóri Rekstrarsviðs Eim-
skipafélagsins hafa ráðfært sig við
lækni sem taldi ekki þörf á áfallahjálp
á þessu stigi málsins. Fulltrúi Eim-
skipafélagsins, Dagþór Haraldsson
hafði samband við Útlendingaeftirlit-
ið, að morgni sjöunda mars, og spurði
um möguleika þess að flytja skipverj-
ana úr landi án þess að þeir hefðu til-
skilda pappíra. Mennimir flugu síðan
út samdægurs.
Borgþór spyr einnig afhverju það
hafi ekki verið haft samband við full-
trúa ITF, á íslandi, en mennimir em
meðlimir þess félags, en eins og við
sögðum frá í gær, fór hann ásamt
tveimur kaþólskum prestum til Sel-
foss til að ræða við mennina, sam-
kvæmt þeirra beiðni, en þeir vom þá
famir.
Eimskip hefur gert grein fyrir mál-
inu og að mennirnir hafi verið sendir
út að ósk útgerðarinnar.
einsog forsvarsmenn hennar hefðu
gert með því að benda á að hann
breyttist úr 5 % í 7 %. „Menn verða
að huga að því, að áður hafa þeir
lækkað hinn almenna grunn um 4 %,
eða niður í 38 %. Það þýðir, að það
sem ríkisstjómin kallar hækkun há-
tekjuskattsins er í rauninni umtals-
verð lækkun.”
Jaðarskattar auknir
“Ríkisstjómin hefur haldið margar
góðar ræður um að það þurfi að lækka
jaðarskatta. Ég og mitt fólk getur svo
sannarlega tekið undir það. Með því
að innleiða tekjutengingar í öllu
bamabótakerfinu er verið að auka
jaðarskattaáhrifin, sem er í hreinni
mótsögn við yfirlýst stefnumið ríkis-
stjómarinnar. Með því að tekjutengja
Davíð Oddsson: Gaf hátekjumönn-
um lottóvinning með skattapakka
sínum.
allar bamabætur er ríkisstjómin jafn-
framt að auka mismuninn á greiðslu-
byrði bamafjölskyldna og bamlausra
fjölskyldna með sömu fjölskyldutekj-
ur.”
Sighvatur skaut einnig föstum skot-
um að útfærslu stjómarinnar á breytt-
um vaxtabótum. „Gera menn sér ekki
grein fyrir því, að með þeirri aðferð
sem ríkisstjórin velur til að eigna-
tengja vaxtabætur, þ.e. með því að
miða skerðinguna við hlutfall af fast-
eignamati íbúðarhúsnæðis einvörð-
ungu í stað heildareignar, þá er hún í
senn að auka mismunun í skattlagn-
ingu milli fólks eftir búsetu og bæta
vemlega hag eignafólks, sem á eignir
sínar að vemlegum hluta í öðmm
verðmætum en íbúðarhúsnæði?”
Hann benti jafnframt á, að það væri
rangt, frá sjónahóli lágtekjufólks, að
hækka ekki skattleysismörk í takt við
launahækkanir: „Þegar ríkisstjómin
ákveður að gera það ekki, þá er ljóst,
að fjölskyldur með lágar tekjur, sem
nú em við skattleysismörk og borga
litla eða enga skatta, munu eftir þær
takmörkuðu kauphækkanir sem
samið er um fyrir þær, greiða umtals-
verðar upphæðir á sinn mælikvarða, í
skatta.”
Vantar tryggingu
“Þegar allt er skoðað, þá er það mín
niðurstaða, að framkvæmd ríkis-
stjómarinnar á skattalækkununum
sem hún boðaði í fyrradag, orkar
mjög tvímælis. Hún er langmest þeim
í hag, sem hafa háar tekjur og búa að
miklum eignum. Þessvegna tók ég
málið upp á þinginu í gærdag, og
skoraði á ríkisstjómina að ganga til
samninga við verkalýðshreyftnguna
um aðrar og skynsamlegri útfærslur á
lækkun skatta.”
Sighvatur sagði að lokum, að það
væri mjög brýnt, að ríkisstjómin gæfi
yfirlýsingu um að hún myndi ekki
bæta sér um þá 4,5 milljarða sem rík-
issjóður tapar vegna aðgerða hennar í
skattamálum, með nýjum álögum.
„Spumingin sem brennur á vörum
okkar, og verkalýðshreyfingin verður
að fá svar við er þetta: Er ríkisstjóm-
in reiðubúin að gefa tryggingu fyrir
því, að hún muni ekki sækja sér þær
tekjur, sem hún er reiðubúin að afsala
sér með lækkun tekjuskatta, með
hækkunum á öðmm sköttum eða með
enn frekari niðurskurði til viðbótar
þeim, sem hún hefur þegar staðið fyr-
ir í viðkvæmum málaflokkum einsog
heilbrigðismálum, menntamálum og
félagsmálum?”
Jafnaðarkonur
Þriöji kvöldveröarfundur ársins verður haldinn fimmtu-
dagskvöldiö 13. mars kl. 19-21 á Litlu Brekku í Banka-
stræti.
Aö súpumáltíð lokinni mun Björn Friðfinnsson flytja
fræösluerindi undir yfirskriftinni íslenskar konur og Evr-
ópumálin.
Allar konur velkomnar!
Stjórn Sambands Alþýðuflokkskvenna
FUJR
Stjórn félagsins fundar á sunnudaginn 16.3. í Alþýöuhús-
inu Reykjavík, Hverfisgötu 8-10. Fundurinn hefst stund-
víslega kl. 13.00 og er opinn öllum félagsmönnum.
Stjórnin
Flokksstjórnarfundur
Opinn fundur flokksstjórnar Alþýöuflokksins um málefni
líöandi stundar verður haldin miövikudaginn 19. mars kl.
17 -19 aö Grand Hotel.