Alþýðublaðið - 04.06.1997, Síða 1
■ Sameiginlegt framboð A-flokkanna á ísafirði?
Smákóngarnir eru vissulega vandamál
Enginn leikhópur farið jafn víða
Hópurinn Bandamenn er á leið til Toronto þar sem fyrirhugaðar eru fimm sýningar á Amlóðasögu sem frumsýnt var í fyrra við góðar
undirtektir en þaðan heldur hópurinn til Noregs og því næst til Suður Kóreu þar sem Bandamenn taka þátt í leiklistarhátíðinni Leik-
hús þjóðanna. Tvær sýningar verða í Borgarleikhúsinu þann 5. og 6. Júní og eru það einu sýningarnar sem sýndar verða á íslandi
■ Tryggingabætur
Undanþága til
hentifána
Tryggingastofnun hefur ákveðið að
greiða greiða bætur vegna mannanna
tveggja sem fórust sem með Dísarfelli,
þrátt fyrir að sjómenn sem starfa sem á
hentifánaskipum geti ekki talist slysa-
tryggðir.
Hjá Tryggingastofnun hefur komið í
ljós að bætur hafa verið greiddar til
sjómanna á hentifánaskipum þrátt fyrir
að bótakylda hafi ekki verið.
Stofnunin hefur ákveðið að til
bráðabirgða verði sjómenn á hentifána-
skipum áfram taldir slysatryggðir til
næstu áramóta. í tilkynningu frá
Tryggingastofnun segir: „Fyrir þann
tíma er því nauðsynlegt að málum
þessum verði fundinn annar farvegur".
■ Ekkert í sjónmáli sem getur leyst kjaradeiluna á Vestfjörðum
- segir Pétur Sigurösson. Búiö aö boöa verkbann hjá Básafelli
“Mér sýnist ekki neitt. Málið er á
ábyrgð sáttasemjara og við getum
ekker sagt, bara hvað við teljum að
eigi að gera. Það var sagt að ég hefði
sagt að ég vonaðist eftir sáttatillögu,
en ég sagði að það gæti verið von.
Það er svolítið annað. Ég veit að ég á
eftir að deyja, en ég vonast ekki eftir
því,“ sagði Pétur Sigurðsson, for-
maður Alþýðusambands Vestfjarða,
um þá stöðu sem nú er uppi í sex
vikna gömlu verkfalli verkafólks á
Vestfjörðum.
Deiluaðilar hittust síðast í Karp-
húsinu á mánudag.
“Þessi fundur var til að fara með
sáttasemjara yfir 'þessi mál. Hann
virðist ekki geta lært þau utan af,“
sagði Pétur.
Það hefur vakið athygli að sjó-
menn á Vestfjörðum, sem víða eru í
sömu verkalýðsfélögum og verka-
fólkið, hafa ekki boðað samúðar-
verkfall eða tekið þátt í aðgerðum
verkafólksins, nema þá til að landa úr
skipunum gegn vilja verkafólksins.
Sigurður Ólafsson, formaður Sjó-
mannafélags ísafjarðar, segir að í
þeim félögum sem sjómanna eiga að-
ild að ásamt landverkafólki sé verk-
fall einungis hjá þeim starfa í landi
en það hafi ekki verið boðað sjó-
mannaverkfall. En hvers vegna hafa
sjómenn ekki tekið virkari þátt í
átökum félaga sinna í landi?
“Ferlið hjá okkur er það langt. Við
getum ekki boðað samúðarverkfall.
Stjómir félaganna ráða orðið engu,
það verður að bera alla vinnustöðvun
undir samninganefnd, sem telur 23
menn hjá okkur. Nefndin getur tekið
ákvörðun um atkvæðagreiðslu allra
félagsmanna og það getur tekið allt
að fimm vikur eigi allir að fá mögu-
leika að vera með,“ sagði Sigurður.
Hann sagði ekki hægt að kjósa um
borð í skipunum, það væri brot á
kosningalögunum ef allir eru sam-
mála, þar sem allir vita hverjir eru á
hverju skipi, falli öll atkvæði á sama
veg er ljóst hvað hver kaus og því
gengur sú leið ekki, þá er atkvæða-
greiðslan ekki lengur leynileg. Eftir
atkvæðagreiðslu þarf að líða 21 dag-
ur áður en vinnustöðvun verður.
Vinnumálasambandið hefur boðað
vinnubann hjá Básafelli og tekur það
til alls landverkafólks sem ekki er í
verkfalli, það er félagsfólks í Verka-
lýðsfélaginu Baldri, Verkstjórafélagi
ísafjarðar, Vélstjórafélagi íslands og
Sveinafélagi byggingamanna á ísa-
firði.
Ekki náðist í Þóri Einarsson ríkis-
sáttasemjara í gær, þar sem hann var
á fundum alla daginn.
■ Halldór
Hermannsson
Sviptir menn
mannhelgi
“Ég efast stórlega um að
kvótakerfið standist alþjóða-
lög. Það er brot á mannrétt-
indum. Það sviptir menn
mannhelgi. Þetta er stað-
reynd, sama hvað hver segir.
Til forna voru þeir sem stálu
mat dæmdir skógarmenn. Og
þá sem hafa eignað sér auð-
lindina, sameign þjóðarinnar,
á að kalla seka skógarmenn."
Þetta segir Halldór Her-
mannsson, á ísafirði, meðal
annars í einstöku viðtali sem
birtist á baksíðu blaðsins í
dag.
Er á ábyrgð sáttasemjara
- segir Ari Sigurjónsson. Þarf aö vinna aö sameiginlegum framboöi aö
heilindum, segir Gísli Hjartarson
Sameining félagshyggjuaflanna er
nauðsyn sögðu Gísli Hjartarson rit-
stjóri Skutuls og Ari Siguijónsson
verkamaður í forystusveit Alþýðu-
bandalagsmanna á ísafirði þegar
blaðamaður Alþýðublaðsins hitti þá á
Isafirði á dögunum.
Ari segir rétt sé að huga að sam-
eiginlegu framboði A-flokkanna á
ísafirði fyrir næstu sveitarstjómar-
kosningar. Gísli tekur í sama streng.
“Það þarf að vinna að því af heil-
indum. Fyrir síðustu sveitarstjómar-
kosningar var rætt um sameiginlegt
framboð, en þeir sem stýrðu viðræð-
unum klúðmðu þeim,“ segir Gísli.
„Það gengur ekki lengur að íslenskir
jafnaðarmenn séu sundraðir í smá-
flokkum. Við þurfum einn stóran
jafnaðarmannaflokk sem jafnvægi
gegn íhaldinu. Dragbíturinn er smá-
kóngamir sem óttast að missa völd
sín í smáflokkunum. Þeir vilja heldur
vera kóngar í litlum flokki en þegnar
í stóm bandalagi."
“Smákóngarnir em vissulega
vandamál,“ segir Ari, „og til að ná
fram sameiningu þarf að beijast við
þá, en við fömm þá bara í þann slag.
Gísli telur að sameiginlegt fram-
boð A-flokkanna í komandi sveitar-
stjórnarkosningum geti orðið próf-
steinn á það hvort af sameiginlegu
framboði félagshyggjuafla verði í
næstu alþingiskosningum. „Ef R-list-
inn tapaði Reykjavflc gæti það orðið
rothögg á samvinnu," segir hann.
Ari sagðist ekki vera viss um að
ósigur R-listans hefði svo mikil
áhrif. „Það yrði bakslag, en baráttan
væri alls ekki töpuð. Það er eins og
vinstri bylgja sé að fara í gang í hin-
unt vestræna heimi. Það er spuming
hvort það sé ekki sitthvað lfkt með
pólitíkinni og fatatískunni, allavega
virðist það nú að verða tískufyrir-
brigði að vera vinstri maður. Það hef-
ur stundum verið erfitt að vera vinstri
maður á Isafirði, en nú bregður svo
við að maður getur haldið haus.“
Sameiningarsinnar á ísafirði, Gísli Hjartarson og Ari Sigurjóns-
son. „Það hefur stundum verið erfitt að vera vinstri maður á ísa
firði, en nú bregður svo við að maður getur haldið haus,“ segir
Ari.