Alþýðublaðið - 11.06.1997, Síða 1
MÞYÐUBLMS
Miðvikudagur 11. júní 1997 Stofnað 1919_74. tölublað - 78. árgangur
■ Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðufiokksins um afhendingu fiskveiði-
heimilda
Útgerðarmennirnir fá
20 milljarða á silfurfati
Hlutabréfin hækka upp úr öllu valdi. Ætlar þjóðin að horfa upp á að auðlindinni sé ráðstafað með
þessum hætti, - spyr Sighvatur Björgvinsson. Hvað fær fiskverkafólk? Hvað fá sjómenn?
„Það hefði átt að leigja þessar við-
bótarheimildir út. Að halda áfram að
afhenda þessi verðmæti fyrir ná-
kvæmlega ekki neitt gengur ekki.
Þetta er spuming um skiptingu arðs-
ins af auðlindinni. Fiskverkunarfólk
fær ekki neitt, sjómenn mjög tak-
markað og eru að hluta til neyddir til
að greiða fyrir þær tilfærslur sem
verða á þessum aflaheimildum, þeir
sem hafa veiðiheimildir fyrir fá þetta
gefms. Hver eru fyrstu viðbrögðin?
Jú, hlutabréf fyrirtækja, sem fá þess-
ar heimildir, hækka upp úr öllu
valdi,“ sagði Sighvatur Björgvins-
son, formaður Alþýðuflokksins, um
þá ákvörðun Þorsteins Pálssonar, að
■ Alþýðublaðið
Rekstur
blaðsins
á áætlun
„Það hefur enginn beðið um
upplýsingar um hvemig rekst-
ur Alþýðublaðsins hefur geng-
ið frá því nýtt félag hóf útgáfu
þess,“ sagði Hrólfur Ölvisson,
rekstrarstjóri Alþýðublaðsins.
Hann sagðist heldur ekki
vita hvaðan upplýsingar væru
komnar unt að rekstur Alþýðu-
blaðsins gengi mjög illa.
Astæða þess að Alþýðublað-
ið leitaði til Hrólfs voru full-
yrðingar sem fram komu í
ræðu formanns framkvæmda-
stjómar Alþýðuflokksins,
Magnúsar Norðdahl, á sumar-
þingi Alþýðuflokksins á Akra-
nesi um helgina. Alþýðublaðið
birti í gær orðréttan þann kafla
ræðu formanns framkvæmda-
stjómarinnar, sem fjallaði um
Alþýðublaðið.
Meðal ýmissa fullyrðinga
hans um rekstur Alþýðublaðs-
ins var sú staðhæfmg, að enn-
þá vanti mikið upp á að endar
nái saman í rekstri blaðsins.
Hrólfur Ölvisson, rekstrarstjóri
Alþýðublaðsins, segir hinsveg-
ar að upplýsingar í þessa vem
séu ekki frá honum komnar.
Hann segir ennfremur að
rekstur blaðsins sé í ágætu
samræmi við þær áætlanir sem
gerðar voru þegar Alþýðu-
blaðsútgáfan tók við rekstrin-
urn í febrúar. Reksturinn standi
vissulega í járnum ennþá, þró-
unin sé hinsvegar jákvæð, og
það sé ekki í samræmi við
staðreyndir að halda því fram
að það vanti ennþá rnikið upp á
að endar nái saman.
útdeila viðbótaraflaheimildum í
þorski til þeirra sem hafa veiðiheim-
ildimar fyrir.
Sighvatur er þeirra skoðunar að
rétt hafi verið að leigja viðbótina.
“Ég er hissa á ef þjóðin ætlar að
horfa á að verðmætustu auðlind
hennar er ráðstafað með þessum
hætti. Almenningur virðist ekki átta
sig á hvað er verið að afhenta gríðar-
lega mikið íjármagn með þessu.
Besti þjálfari landsins er á lausu og
því getur ekki annað komið til greina
en að menn vilji skipta urn landsliðs-
þjálfara," sagði heimildarmaður Al-
þýðublaðsins innan knattspymu-
hreyfingarinnar, en fátt er um meira
rætt þessa dagana en að Logi Ólafs-
son, landsliðsþjálfari í fótbolta, stýri
landsliðinu jafnvel í síðasta sinn í
kvöld.
Reyndar er varla hægt að segja að
Andstaðan við veiðileyfagjald sprett-
ur ekki upp af neinum öðmm ástæð-
um en að það er verið að takast á um
mikla peninga. Sá sem hefur vanist
við að fá þetta fyrir ekki neitt, hann
vill halda því áfram, það sér hver
sjálfan sig í því,“ sagði Sighvatur
Björgvinsson.
Á sumarþingi Alþýðuflokksins,
sem haldið var á Akranesi, um síð-
ustu helgi var samþykkt ályktun um
Logi stýri landsliðinu á
Laugardalsvelli í kvöld, því heimild-
ir Alþýðublaðsins, segja að Eggert
Magnússon, formaður Knattspymu-
sambands fslands, hafi sett Loga
stólinn fyrir dymar og hann hafi
sjálfur, með aðstoð manna sem hann
treystir, valið þá leikmenn sem hefja
leikinn. Mikið er rætt um að Guðjón
Þórðarson verði næsti þjálfari lands-
liðsins. Það er óumdeilt að enginn ís-
lenskur þjálfari hafi náð betri árangri
þetta mál, þar segir meðal annars:
„Alþýðuflokkurinn vekur athygli ís-
lensku þjóðarinnar á því, að með við-
bótarúthlutun sjávarútvegsráðherra
til útgerðarmanna þorskveiðiskipa
upp á 32 þúsund tonn er verið að af-
henda þessum aðilum endurgjalds-
laus verðmæti, sem á gangverði í
viðskiptum þeirra á milli með varan-
legar aflaheimildir em metin á 18 til
20 þúsund milljónir króna“.
en Guðjón. Þá er sérstaklega horft til
hversu liðum undir hans stjóm hefur
gengið vel í Evrópukeppnum. Þar
minnast menn glæsilegrar frammi-
stöðu Skagamanna gegn Feyenoord
frá Hollandi og KR gegn Everton frá
Englandi.
Innan knattspymuhreyfmgarinnar
var strax deilt á ráðningu Loga. Ekki
hefur dregið þar úr, þar sem árangur
liðsins þykir ekki boðlegur. Samn-
ingur Loga við KSÍ er út þetta ár.
■ Siglufjörður
Bæjar-
stjórinn
hættir
Bjöm Valdimarsson, bæjarstjóri á
Siglufirði, hyggst hætta núverandi
starfi sínu þann fyrsta október í
haust. Bréf hans varðandi starfslok
verður tekið fyrir á fundi bæjarráðs í
dag, miðvikudag, en á morgun,
fimmtudag, verður málið kynnt á
fundi bæjarstjómar. Bjöm hefur
gegnt starfi bæjarstjóra á áttunda ár,
og að allra dómi reynst útsjónarsam-
ur og duglegur bæjarstjóri.
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins er Bjöm þó fráleitt á föram
frá Siglufirði, því ástæða þess að
hann hugsar sér nú til hreyfings úr
stóli bæjarstjóra er nýtt starf á vegum
Þormóðs ramma, hins sterka sigl-
firska útgerðarfyrirtækis, sem mun
einkum eiga að felast í markaðsmál-
um á vegum fyrirtækisins. Hinir dug-
miklu forsvarsmenn Þormóðs ramma
hafa átt mikið og gott samstarf við
bæjarstjómina, þar sem Bjöm bæjar-
stjóri hefur verið í forsvari, og þótt
það mikill slægur í honum að þeir af-
réðu að munstra hann um borð í eig-
in skútu.
Meirihluti bæjarstjómar á Siglu-
firði er settur saman af Alþýðu-
flokknum og F-listanum, en að hon-
um standa Alþýðubandalagsmenn og
óháðir. Bjöm var á lista F-listans við
síðustu kosningar, en á þeim lista
vora einnig áhrifamenn sem tengjast
Þormóði ramma. Þar sem ekki er
búið að kynna bæjarstjóm formlega
starfslok Bjöms Valdimarssonar er
eðlilega ekki heldur búið að ganga
frá því hver verður næsti bæjarstjóri.
Örlátur
ráðherra
Þorsteinn Pálsson er gróf-
lega ósamkvæmur sjálfum
sér, segir í leiðara Alþýðu-
blaðsins í dag. Þó hann kveði
sjálfur nauðsynlegt að fara að
ráðum fiskifræðinga, og skýli
sér jafnan á bak við ráðgjöf
þeirra þegar úthlutun hans á
aflaheimildum í þorski er
gagnrýnd, þá beitir hann
samt geðþótta þegar kemur
að úthlutun á ýsukvóta og
rækjukvóta. Þar úthlutar
hann mun meira en fiski-
fræðingar telja ráðlegt.
Hversvegna, spyr leiðari Al-
þýðublaðsins:
„Óneitanlega er granur
um að hann sé að ganga er-
inda þeirra sömu og hann
gerði þegar hann ákvað að
viðbótarþorskkvótinn yrði
fáum útvöldum til ráðstöfun-
ar. Enn einu sinni birtist sú
staðreynd með nöturlegum
hætti, að stjórnkerfi fiskveiða
er beitt til að auka hagsmuni
hinna fáu - á kostnað fjöld-
ans.“
Sjá bls. 2
■ Logi Ólafsson landsliðsþjálfari verður ekki endurráðinn
Stillir ekki upp liðinu
Guðjón Þórðarson fyrsti kostur í leit að næsta þjálfara
„Árangurinn liðsins er lélegur.