Alþýðublaðið - 03.07.1997, Side 1
t
MMIllHLfmÐ
Fimmtudagur 3. júlí 1997 Stofnað 1919
■ Sumarlokanir sjúkrahúsa
Ráðherra hefur náð í meira fé
- segir landlæknir og fagnar því.
„Ástandið hefur verið slæmt en Ólafur Ólafsson landlæknir en sum- var greint frá því að neyðarástand eftir sér um málið að svo stöddu. „Ég
ráðherra hefur tjáð mér að náðst hafi arlokanir sjúkrahúsa hafa verið í hefði skapast víða. vil ekki segja meira um þetta mál í
í meira fé og því ber að fagna,“ segir brennidepli. f Alþýðublaðinu í gær Ólafur vildi ekki láta hafa meira bili,“ sagði hann.
■ Haneshjónin
Nú fyrst er
málinu lokið í
héraðsdómi
- segir Connie Hanes.
„Ég hef núna fyrst á tilfinningunni
að við höfum lokið þessu máli í hér-
aðsdómi og við bíðum eftir dómi
hans,“ segir Connie Hanes. „Fólk er
að setja sig í samband okkur og segja
að það voni að við verðum áfram í
landinu og það er hughreystandi. Ég
veit ekki afhverju og á hvaða forsend-
um dómsmálaráðherra myndi fara
með þetta fyrir Hæstarétt ef dómur
fellur okkur í vil. Hann hefur engin
mótrök gegn ómannúðalegum að-
stæðum í fangelsinu í Arizona. Við
erum á leiðinni þangað og það liggur
ljóst fyrir að við getum ekki lagt fram
tryggingu og komum til með að vera
sett í þetta fangelsi.
Ég ætla ekki að fara að geta mér til
um hvemig þetta verður en Ragnar
Tómas Ámason hefur unnið frábært
starf, þegar dómarinn spurði sækjand-
ann hvort hann hefði einhverju við
greinargerð hans að bæta svaraði hann
neitandi. Það er gott merki. Saksókn-
ari tók síðan í höndina á mér á eftir og
útskýrði að hann vildi ekki að ég tæki
þetta persónulega."
Myndlistinni stolið í Gerðubergi
MMDUBLMIll) - þök
„Ef þetta eru unglingar ættu þeir bara að skammast sín og njóta vel,“ segja tvær ungar listakonur sem sýna ásamt
Gjörningaklúbbnum í Gerðubergi en urðu fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að stolið var af sýningunni.
Fyrr í vetur gerðist það að unglingar létu greipar sópa um hljóðverkasýningu Finnboga Péturssonar en fram til þess
höfðu verk á sýningum ævinlega fengið að standa óáreitt í Gerðubergi. “Þama voru tveir stólar með mjúku leðri og
göddum en það er búið að stela af leðrinu, segja listakonumar. „Auk þess sem það er búið að taka hluti úr innsetningu,
til dæmis stórar snyrtivömr." Sjá viðtal í miðopnu.
86. tölublað - 78. árgangur
■ Breskir fornleifa-
fræöingar geta loksins
hlegiö
Fundu elsta
brandara í heimi
Elsti brandari í heimi er fund-
inn en í lauslegri þýðingu hljóm-
ar brandarinn sem er reyndar sett-
ur upp sem gáta svona: „Hvemig
hefurðu ofan af fyrir Faraó sem
leiðist. Þú siglir bátsfylli af ung-
um konum, klæddum engu nema
fiskinetum, niður Níl og hvetur
hann til að fara að veiða.“
Egyptar vissu ekkert fyndnara
en bera konu, en fyllerí gat einnig
kitlað hláturstaugar þeirra.
Það er Egyptadeildin á British
Museum, sem uppgötvaði
brandarann og fletti ofan af hon-
um í Mag, tímaritinu en Carol
Andrews, aðstoðarmaður á deild-
inni birtir þar grein um rannsókn-
ir sínar á fomri kímnigáfu.
Niðurlæging
eldri borgara
„Eldri borgarar hérlendis em um
27.000 og staða þeirra er misjöfn.
Þeir eiga þó sammerkt að hafa verið
niðurlægðir af ríkisstjóm Davíðs
Oddssonar. Þessi ríkisstjóm mun
ekki bæta stöðu eldri borgara,“ segir
í leiðara Alþýðublaðsins í dag. Þar
segir ennfremur: „Það er enginn
vandi að fylgja sérhagsmunum sín-
um og skipa sér þannig £ fylkingar
eins og Framsóknarmenn gera. Það
er hins vegar erfitt og krefst hugrekk-
is að fylkja sér um almannahagsmuni
og vera reiðubúinn að gefa en ekki
þiggja.“
Sjá leiðara
FJOLSKYLDUR
SPENNUFIKLAR
SKtlRf AU/LOAGA VIKUNNAR
1 .8 1 1 3 T
( 1 i 1 1 i