Alþýðublaðið - 03.07.1997, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 03.07.1997, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1997 mennin Ungmennafélög íslands í Borgarnesi: Frítt á Landsmót í fyrsta sinn Almenningi gefst nú í fyrsta skipti kostur á að fylgj- ast með keppni á Landsmóti ungmennafélaganna án þess að greiða aðgangseyri. Keppni hófst í morgun, fimmtudag, en formleg setningarathöfn þessa 22. Landsmóts ungmennafélaga íslands sem haldið er af UMSB í Borgamesi, á Hvanneyri og á Akranesi, fer fram á Skallagrímsvelli í Borgamesi föstudagskvöldið 4. júlí klukkan átta. Viðstödd verða forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og frú, Guðrún Katrín Þor- bergsdóttir. Kristmar Ólafsson framkvæmdastjóri Landsmótsins sagði eftirfarandi um þá nýjung að hafa ókeypis aðgang að mótinu: „Það hefur verið erfitt að treysta á áhorfendafjöldann á landsmótum og tekjur af aðganseyri því verið ótryggar. Það þýddi að alltaf var gat í fjárhagsætluninni sem aðgangseyrinum hafði ver- ið ætlað að brúa.“ Tapið af tveimur síðustu Landsmót- um neyddi menn til að leita tryggari fjáröflunarleiða og var einfaldlega ákveðið að hækka þátttökugjaldið. Krist- mar telur ungmennafélögin sátt við þessa breytingu og vonar einfaldlega að hún eigi eftir að hafa jákvæð áhrif á að- sóknina. Hvemig sem veðrið verður í Borgarfirðinum um helgina verður nóg um að vera. 1750 íþróttamenn af öllu landinu keppa í sextán íþróttagreinum en von er á öðmm eins fjölda fylgdarmanna, þjálfara, að- stoðarmanna og stuðnings- manna, á mótið. Allur þessi skari mun búa í sannkallaðri tjaldborg í Borgamesi á með- an Landsmótið stendur yfir frá 3. til 6 júlí. Af hefðbundnum keppnis- greinum er yfrileitt beðið með mestri óþreyju eftir úrslitum í sundinu og fijálsum íþróttum. Tugþrautarmaðurinn Jón Amar Magnússon keppir á mótinu en af sterkum sundmönnum má nefna Eydís Konráðsdóttur. Þá fer fram keppni í blaki, körfubolta, handknattleik, knatt- spymu, brigde, glímu, skák og ökuleikni á reiðhjóli. Golf og hestaíþróttir sem hingað til hafa aðeins verið sýningargreinar á landsmótum, verða nú í fyrsta skipti með í heildarstigakeppni mótsins. Óvenjulegar keppn- isgreinar á landsmótum ungmennafélaganna em svo- kallaðar starfsíþróttir sem um leið em sannkölluð skemmtiatriði. Þær eru dráttavélarakstur (ökuleikni á traktor), hestadómar - þar sem keppt er við dómarann- , jurtagreining, lagt á borð (fyrir fjóra), línubeiting (magn á tíma), starfshlaup (ekkert látið uppi um þraut- ir þær er lagt er fyrir keppendur fyrr en á úrslitastund) og loks hinn geysispennandi og jafnframt vinsæli pönnukökubakstur. Fatlaðir taka þátt í þremur greinum frjálsra íþrótta og í sundi. Stærstur hluti keppninnar fer fram í Borgamesi, í iþróttahúsinu, í splunkunýrri sund- laug og á Skallagrímsvelli. Keppni í golfi fer fram á Hamarsvelli, hestaíþróttir em í Vindási og skákin í Fé- lagsmiðstöðinni Óðali. Keppt er í tveimur boltaíþrótt- um á Akranesi, körfu og blaki og í þremur greinum á Hvanneyri, brigde, fótbolta og dráttavélarakstri. Úr- slitaleikir fara flestir fram í Borgamesi fyrripart sunnu- dags en þar verða verðlaun veitt á Skallagrímsvelli við slit mótsins klukkan hálf þrjú þann sama eftirmiðdag. Fyrir þá sem ekki hafa áhuga á að fylgjast með öll- um keppnisgreinum mótsins er meira nóg við að vera. Svokallað Skógarhlaup hefst á laugardaginn klukkan 18 í Hafnarskógi við Borgarfjarðarbrúnna. Þeir sem vilja taka þátt geta skráð sig í hlaupið á staðnum. Allir þátttak- endur fá verðlaunapening, hvort sem þeir koma hlaupandi eða skríðandi í mark. Vilji menn hins vegar aðeins vera í hlutverki áhorf- andans er hægt að skreppa á Hvanneyri. Þar verður ekki aðeins hægt að fylgjast með keppni í brig- de og knattspymu heldur einnig starfsíþróttum, „lagt á borð“, dráttavélarakstri og jurtagreiningu. Á milli keppna er hægt að kíkja á landbúnaðarsýningu sem haldin verður á Hvanneyri um helgina. Gestum á henni stendur til boða að líta á búfé á beit og í stíum eða skoða vélar og kynna sér starfsemi stofnana lanbúnaðarins. í tengslum við landbúnaðarsýninguna fer jafnframt fram all sérstök pijóna- keppni þar sem þátttakendur byija á því að rýja rollu, spinna síðan band úr ullinni og pijóna að lokum úr henni peysu. Ef ekkert af þessu freistar er alltaf hægt að skreppa á hest- bak. Að sjálfsögðu ekki hægt að halda Landsmót án þess að gera sér glaðan dag, fagna sigmm, gleyma tapi eða hitta keppendur utan vallar. Því verður efnt til dans- leikja í Flugskýlinu í Borgamesi bæði föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitimar Draumaland og Stuðbandalagið úr Borgarnesi leika fyrir dansi sem hefst klukkan ellefu bæði kvöldin. Á laugardagskvöld- inu verður reyndar fleira um að vera því haldin verður fjölskyldu kvöldvaka á Skallagrímsvelli klukkan átta og klukkan tíu hefst unglingadansleikur í íþróttahús- inu. Tapið af tveimur síðustu Landsmótum neyddi ungmennafélagsmenn til að leyta tryggra fjáröflunarleiða. Lausnin er ókeypis aðgangur að mótinu fyrir almenning og hækkun á þátttökugjaldi. , Aðspurðar um viðbrögð á sýninguna líta þær hver á aðra, hluta af sýningum ■ Frelsi, frítími og fegurð í Listamiðstöðinr Þetta sem við hafa og að alli - Segja tveir félagar í Gjörningaklúbbsins, þær Jóní Jóns ins er að dreifa ást, hjartahlýju og góðum straumum. „Sýningin fjallar um frelsi, frítíma og fegurð, það er þetta sem er svo skemmtilegt við lífið,“ segja lista- konumar Dóra Isleifsdóttir og Jóní Jónsdóttir. „Það er það sem við vilj- um sjálfar hafa og það sem við vilj- um að allir hafi.“ Þær em félagar í Gemingaklúbbn- um ásamt Eirúnu Sigurðardóttur og Sigrúnu Hrólfsdóttur, en klúbburinn hefur starfað í eitt ár en þrátt fyrir það hefur starf hans staðið í miklum blóma. Fyrsti gemingurinn var framinn í Dagsljósi, þar sem listakonumar kysstust mjög innilega og vildu þannig undirstrika þann kærleik sem byggi í þeim öllum. „Annars emm við þeirrar skoðun- ar að allir hafi frelsi, frítíma og feg- urð. Það er bara spuming um hvem- ig fólk kýs að líta á hlutina,“ segir Dóra. Eruð þið þá að ögra einhverjum rikjandi hugmyndum? „Við emm fyrst og fremst að ögra okkur sjálfum og öðmm til að hafa það gaman,“ segir Jóní. “Þetta em myndskreyttar vanga- veltur sem við viljum deila með öðr- um,“ segir Dóra. „Við erum kannski að sýna femínismann á öðmm nót- um.“ „Á skemmtilegum nótum, þetta eiga ekki að þurfa að vera nein leið- indi,“ segir Jóní. „Konur em ekki fómarlömb neinna tískukónga, reyndar ekki eins eða eins.“ „Okkur finnst gervidótið, snyrti- vömr og slíkt ákaflega skemmtilegt," segir Dóra. „ „Það er gaman að geta breytt um gervi,“ segir Jóní. „Það er afar sorg- legt að fólk skuli líta á það sem veik- „Til að undirstrika leikinn þá höfðum við hátíðastemningu á opnun sýningarinnar. Þar var sannkallað ís- lenskt veisluþema þar sem við fengum skáta- stelpur til að hífa gern- ingarfánann okkar upp og niður og allir gest- irnir fengu litlar veifur. Og svo buðum við auð- vitað uppá djús og kökur. Við erum líka með gerningavídeó á sýn- ingunni þar sem við búum til allskyns kökur úr okkur fjórum, jarða- berja, súkkulaði og allskonar tertur, og göngum ansi langt í að skreyta okkur."

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.