Alþýðublaðið - 03.07.1997, Blaðsíða 8
MMMBLMÐ
■ Enginn vill auka völd sýslumanns
Fólk á Sval-
barða vill
meiri völd
heim í hérað
Svalbarði er á góðri leið með að
verða ósköp venjulegt samfélag og
nú vill fólkið á 78 norðlægri breidd-
argráðu hafa meira að segja um eigin
tilveru. Það vill meiri völd heim í
hérað. Það eru sérstakiega kola-
verkamennimir sem vilja meiri áhrif,
það sýnir könnun sem Aftenposten
I dag er sýslumaðurinn allsráðandi
á Svalbarða í umboði stjómvalda í
Noregi en hann gegnir einnig hlut-
verki lögreglustjóra og dómara.
Sýslumanni ber einnig að varðveita
rétt Noregs og skyldur eftir Sval-
barðasamningnum. Svalbarðaráðið
sem samanstendur af fulltrúum
norskra íbúa Svalbarða og er kosið í
beinni kosningu hefur afar takmörk-
uð áhrif og er í raun einungis ráðgef-
andi samkunda fyrir sýslumanninn
og samfélagsþjónustu Svalbarða sem
sér um praktíska hluti, svo sem vegi,
vatnsveitu, bamaheimili og holræsi,
En fólkið sjálft vill ráða ráðum um
eigið hversdagslíf og þar er enginn
merkjanlegur munur á afstöðu
kvenna eða karla eða milli ólíkra ald-
urshópa. Stærri fjölskyldur og þeir
sem vinna að kolaiðnaði em þó fjöl-
mennari í hópi þeirra sem vilja aukið
lýðræði.
Kolaiðnaður er reyndar á undan-
haldi á Svalbarða og hefur dregist
saman á síðasta áratug en á sama
tíma hefur samfélagið þróast mikið,
túrismi hefur aukist til muna svo og
störf að rannsóknum. Næstum því
250 manneskjur starfa að ferðamál-
um á Svalbarða en það eru aðeins
fleiri en þeir sem starfa hjá Spitz-
bergen Kulkompani A/S. Háskólinn
á Svalbarða hóf starfsemi sína haust-
ið 1993 í Longyearbyen en þar em
13 starfsmenn og hundrað stúdentar.
Fyrir ári síðan var byrjað að vinna
að stefnumótun um framtíð Sval-
barða og verður hún sjálfsagt kynnt á
norska þinginu í haust. Þar ber hæst
framtíð kolaiðnaðarins, en í vor varð
ljóst að það er vilji fyrir því að leggja
hann af innan þriggja ára og hefur
það skapað mikið óöryggi í samfé-
lagi.
Meirihluti þeirra sem vilja aukið
lýðræði vilja einskonar takmarkað
heimastjórnarform, þriðjungurinn
vill beinar kosningar til sveitastjóm-
ar. Enginn óskar þess að sýslumaður-
inn fái meira vald í hendurnar, það
sýnir könnunin svo ekki verður um
villst. Meira en helmingur vill að
völd sýslumanns færist yfir á lýðræð-
islegra apparat en 42 prósentum
finnst að hann eigi að halda stöðu
sinni. Hér hafa kolaiðnaðarmenn
einnig sérstöðu, 68 prósent þeirra
vilja að sýslumaður gefi eitthvað af
verkefnum sínum uppá bátinn.
Sýslumaðurinn sjálfur Ruune
Baard Hansen er ekki hissa á þessum
tölum og segist ekki frábitinn því
sjálfur að dreifa valdi yftr á lýðræð-
islega kjöma stjórn.
Velkomin um borð
arferjuna Baldur
Daglegar ferðir með viðkomu í Flatey
Frá Stykkishólmi kl. 10.00 &16.30
Frá Brjánslæk kl. 13.00 & 19.30
Símar: 438-1120 Stykkishólmi
456-2020 Brjánslæk
Fax: 438-1093 Stykkistiólmi
$8$$$ iiite íím&m mmm
Á Saga Class hæð Hótels Esju hafa
verið tekiti í notkun 20 ný,
íef ur einnig veric
opnuð ffáhær aðstaða
til heilsu- og líkamsræktar,
lieilsulindjn Planet Pulse.
■
Saga Class
herbergi
Einkaþjálfun
Spinning
Tækjasalur
Gufubað
Leirbað
Tyrkneskt bað
Nudd
Snyrtistofa
Heitir pottar
HOTFI ESJA
ICELANDAIR HOTELS
Sími 50 50 950 • Fax 50 50 955