Alþýðublaðið - 03.07.1997, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ1997
Athugasemd
Alþýðublaðið og DV hafa að undanfömu ítrekað fjallað um þá ætlun
félagsmálaráðherra að fela bönkum og spaiisjóðum að veita viðtöku
og fullvinna umsóknir um húsbréfalán í stað þess að Húsnæðisstofnun
ríkisins annist þetta verkefni. Er fullyrt að þetta fyrirkomulag verði dýr-
ara fyrir lántakendur og þjónustan síst betri en hjá Húsnæðisstofnun. Hef-
ur í þessu sambandi meðal annars verið vitnað til skýrslu frá VSO ráðgjöf
sem unnin var fyrir Húsnæðismálastjóm, það er þann aðila sem ætlunin
er að flytja verkefnið frá. Fyrir þá sem ekki hafa lesið skýrsluna skal bent
á að í henni koma ekki fram talnarök heldur eru niðurstöðurnar settar
fram með orðalaginu „líklegt er“. Jafnframt hefur því verið haldið fram
að ráðherrann hafi gert “leynisamkomulag" við banka og sparisjóði um
aukna gjaldtöku í húsbréfakerfmu.
Fyrrgreind dagblöð láta sig engu varða þótt félagsmálaráðherra og að-
stoðarmaður hans hafi greint skilmerkilega frá staðreyndum málsins,
enda virðist tilgangurinn fyrst og fremst vera sá að koma höggi á ráðherr-
ann með ómaklegum hætti. Að mati banka og sparisjóða era þetta mikil-
vægustu staðreyndir málsins:
Bönkum og sparisjóðum verður falið tiltekið verk gegn greiðslu frá
Húsnæðisstofnun. Þeir munu ekki ákveða gjaldskrána í húsbréfakerfinu.
Félagsmálaráðherra hefur lagt mikla áherslu á að tilflutningur verkefna
til banka og sparisjóða leiði ekki til aukins kostnaðar í húsbréfakerfinu og
að þjónusta við lántakendur batni. Það gefur auga leið að hann gengi ekki
til samninga ef hann teldi að niðurstaðan yrði önnur.
Félagsmálaráðuneytið hefur um skeið kannað þann möguleika að við
yfirtöku húsbréfaláns verði innheimt sérstakt gjald vegna þeirrar vinnu
sem í henni felst og að samtímis verði 1 prósent lántökugjaldið lækkað.
Bankar og sparisjóðir hafa fyrir sitt leyti lagt áherslu á það að breyting-
um á gjaldskrá verði hrint í framkvæmd áður en þeir yfirtaka verkefnið
frá Húsnæðisstofnun þannig að þessu tvennu verði ekki blandað saman í
opinberri umræðu, enda um tvö aðskilin mál að ræða.
Bankar og sparisjóðir veita landsmönnum fjölbreytta fjármálaþjónustu,
meðal annars lánafyrirgreiðslu. Þeir leggja sig fram um að veita við-
skiptavinum sínum góða þjónustu, vera sveigjanlegir og ná niður kostn-
aði með aukinni hagræðingu. Þeir telja sig því vera ágætlega í stakk búna
til að taka við verkefnum frá Húsnæðisstofnun og að slík skref muni
verða til hagbóta fyrir almenning í landinu.
Virðingarfyllst
Finnur Sveinbjörnsson
framkvœmdastjóri
MINNING
Ásgerður Bjarnadóttir
Þeir sem þekktu Ásgerði
Bjamadóttur sjá nú á bak góð-
um vini. Lát hennar snart okk-
ur í Alþýðuflokknum djúpt.
Hún var tryggur félagi og
dyggur liðsmaður en fyrst og
fremst var hún heilsteypt og
vönduð manneskja.
Ég hef þekkt Ásgerði írá því
ég man eftir mér. Hún var
einkabarn foreldra sinna Unn-
ar Guðmundsdóttur og Bjarna
Ásgeirssonar sem ég minnist
með mikilli virðingu. Unnur
sem var fínleg og lágvaxin
kona er mér mjög minnisstæð
meðal annars af því að hún
gekk ávallt til starfa sinna utan
heimilis á íslenskum búning
og það var yfir henni mikil
reisn. Ásgerður var besta vin-
kona Margrétar næstelstu syst-
ur minnar og hún var heima-
gangur á bammörgu heimili
okkar vestur á Isafirði sem var svo
gjörólíkt hennar heimili. Við kölluð-
um hana Ágú eins og fjölskylda
hennar og vinir og hún var svo sann-
arlega vinur allrar fjölskyldunnar.
Hún var góð og eftirlát við okkur
yngri systkini Möggu, við gerðum
okkur dælt við hana og fannst hún
hluti af tilveranni á æskuheimilinu.
Það var kært með henni og mömmu
og hún lét það oft verða sitt fyrsta
verk að heimsækja mömmu þegar
Er spilling innan
Tryggingastofnunar
Aö gefnu tilefni vilja samtökin Lífsvog auglýsa eftir fólki sem farið hefur í læknisskoð-
un vegna örorkumats hjá læknum innan veggja Tryggingastofnunar ríkisins og þurft
að greiða fyrir matið.
Upprætum spillingu innan heilbrigðiskerfisins.
Stjórn Lífsvogar.
Ásdís Frímannsdóttlr, sími 566 6898.
Guðrún M. Óskarsdóttir, sími 561 1587.
hún kom vestur eftir að Magga flutti
suður. Einn fallegasti hlutur sem
mamma átti var fimmtugs afmælis-
gjöfin frá Ágú, gjöf sem var henni
afar dýrmæt. Þegar mamma féll frá í
blóma lífsins syrgði hún hana með
okkur. Við systkinin ræddum þetta
elskulega samband Ágúar við æsku-
heimili okkar eitt sinn eftir að við öll
vorum orðin fullorðin og sjálf komin
með fjölskyldur og kom þá vel í ljós
hve öllum var það kært. Fjölskyldan
þakkar hlýhug og góðar samveru-
stundir á liðnum áram.
Um sinn skildu leiðir en seinna
störfuðum við saman í Alþýðu-
flokknum hér fyrir sunnan. Ágú var
af sterkri Alþýðuflokksætt og henni
var jafnaðarstefnan í blóð borin.
Móðurbróðir hennar var Haraldur
Guðmundsson fyrrverandi ráðherra
og annar móðurbróðir, Sigurður, lét
líka til sín taka í Alþýðuflokknum
fyrir vestan en sonur hans Jón varð
seinna ráðherra flokksins. Ágú var
mjög pólitísk og bar hag forystu-
manna sinna mjög fyrir bijósti. Hún
var metnaðarfull fyrir hönd flokks og
félaga, var alltaf tilbúin að leggja lið
og sýna stuðning án þess að ætl-
ast til nokkurs fyrir sjálfa sig.
Það var henni fullkomlega eðlis-
lægt að veita stuðning því holl-
usta var henni í blóð borin.
Aldrei minnist ég þess að hún
hafi hallað orði að þeim sem
sinntu trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn, hinsvegar heyrði ég
hana oft draga fram jákvæðar
hliðar máls ef deilt var á forystu-
menn í hennar eyru. Þingmenn
Alþýðuflokksins þakka Ásgerði
allt sem hún veitti og þátt henn-
ar til framgangs jafnaðarstefn-
unar.
Það var gaman að kynnast Ágú á
ný og þar með honum Steina.
Þau voru þannig hjón að annað
var ekki nefnt án hins. Það var
Ágú og Steini eða öfugt. Þau
vora samhent og hress. Alltaf
komu þau saman á fundi og
samkomur og þau tóku þátt í
sjálfboðaliðsstarfi hvort sem það var
að mála, pússa eða dúkleggja í
flokkshúsnæðinu með góðum vinum
eða taka þátt í kosningastarfi.
Við konumar í flokknum kynnt-
umst Ásgerði Bjamadóttur vel í
gegnum kvennapólitíska starfið sem
oft verður öðruvísi og á sinn hátt
nánara en hefðbundið flokksstarf og
kvennahreyfingin sér nú á bak góðri
vinkonu.
Við munum öll sakna og minnast
hennar þegar við komum saman til
starfa eða á góðri stund.
Ég kveð Ásgerði Bjarnadóttur í
aðdáun og þökk. Hún var alltaf sterk.
Líka þessar síðustu vikur sem við
fylgdumst með hinstu baráttunni úr
fjarlægð. Trúmennska hennar birtist
mér í samstarfinu í flokknum og ekki
síður í vinarsambandinu við fjöl-
skylduna forðum, slík kynni gera
okkur ríkari.
Kæri Steini. Við Sverrir flytjum
fjölskyldu þinni innilegar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning mætrar konu.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Alþýðuflokkurinn
Alþingismenn í kjördæmum
Alþingismenn Alþýðuflokksins eru í kjördæmum sínum um þessar mundir. Þeir sem vilja ná tali
af þeim geta haft samband við Alþingi í síma 563-0500, þar sem nánari upplýsingar um ferðir þing-
mennina fást. Eins er hægt að hafa samband við þingmenn flokksins með tölvupósti,
en póstfang þeirra er eftirfarandi:
Gísli Einarsson: Guðmundur Árni Jón Baldvin Lúðvfk Rannveig Sighvatur Björgvinsson; Össur Skarphéðinsson:
Stefánsson: Hannibalsson: Bergvinsson: Guðmundsdóttir:
gisli@lthingi.is I garni@althingi.is I jbh@althingi.is
ludvik@althingi.is I rannveig@althingi.is B sighv@althingi.is
Magnús Norðsdhal, formaður framkvæmdastjórnar, er á ferðalagi á Austurlandi til 4. júlí. Þeir sem vilja ná tali af Magnúsi er bent á farsíma,
en númerið er; 898-2754.