Vísir - 07.02.1976, Blaðsíða 15
vxsm Laugardagur 7. febrúar 1!I7«
15
Sœnski verkalýðsieiðtoginn sem hvað harðast barðist gegn Spónarferðum:
Wgr MARGiTí X
/ JAG HAREN
:/ motstSmosmam p&
1 TRÍOEM. HAH HETEP. / '
4 buenos OtAS
/r ' ...... .5
Oíl’.
wclúíf
Gieteáti
OBS'
PUtA DE TCfeOS
GRAN CAMAKiA
Et COPPÓPSS Uv.
Wl* U i YU V- iA
‘Wít:pí&£
®mmm |||
v, {%í. ?£• v í
, ii Vvíjí'.íiijíjJ
/'/M.-T
Sænski verkalýðsleiötogini
Hans Ericsson nýtur Spán
arsólarinnar um áramótin
— Svona var hann klæddui
allan timann sem ham
dvaldi á Kanarieyjum, segji
sænskir blaðamenn. — Þai
er rétt, segir Ericsson, é{
notaði sundskýluna sem dui
búning. Tilgangur ferðarinn
ar var jú að ræða vii
spænska andspyrnumenn
sjálfa
fyrir bannfæringu á Spánar-
ferðum, væri nú sjálfur i frii á
Spáni. Eitt spænsku blaöanna
tók viðtal við Ericsson, þar sem
hann sagði að bannfæring sam-
taka flutningaverkamannanna
þýddi ekki hans persónulegu
skoðun, bannfæringin hefði ver-
ið mótmæli vegna ákveðinna at-
burða, dauðadómunum yfir
böskunum.
1 viðtölum við sænsk blöð, á
meðan Ericsson var á Kanari-
eyjum, sagðist hann ekki vera
staddur þar i frii, hann hefði
fariðsuðureftirá vegum sænska
flutningaverkamannasam-
bandsins til að ná samböndum
við menn innan spænsku and-
spyrnuhreyfinganna. Heima i
Þegar Ericsson kom frá Kanariéyjum, tóku sænsku blöðin á móti
honum með spurningahrið og stórum fyrirsögnum.
Sviþjóð kannaðist enginn sam-
starfsmanna hans innan flutn-
ingaverkamannasambandsins
við Spánarferð Ericsson, og
ekki sakar að geta þess, að
sennilega eru hvergi á Spáni
eins litlar likur fyrir þvi að
komast í samband við spænskar
andspyrnuhreyfingar en á
Kanarieyjum, andspyrnumenn
eru þar svo fáir.
A blaðamannafundinum sem
Ericsson lofaði fréttamönnum
við heimkomuna, hélt hann við
fyrri yfirlýsingu sina um íilgang
Spánarferðarinnar, hins vegar
hefði ekkert orðið úr þvi að hann
næði sambandi og ræddi við
andstæðinga yfirvalda Spánar.
vegna þess að sænskir blaða-
menn og ljósmyndarar, hefðu
verið á hælum hans alian tim-
ann sem hann hefði dvalið á
Kanarieyjum. Mönnum hlyti að
vera ljóst, að andspyrnumenn á
Spáni væru ekkert hrifnir af þvi,
að myndir af þeim birtust i blöð-
um. begar blaðamenn spurðu
hann hvers vegna hann hefði
dvalið i einum af bústað sænska
atvinnurekendasambandsins.
sagðist hann ekki hafa fengið
inni annars staðar, öll hótel
heföu verið full.
Pablo Castellano, ritari hins
ólöglega spænska verkalýðs-
sambands UGT, segir i viðtali
við sænskt dagblað 9. janúar sl.
að hann vilji að sem flestir inn-
an erlendra verkalýðssam-
banda ferðist til Spánar til að
komastisambandviðfólk innan
andspyrnuhreufinganna þar og
kynnast málefnum þeirra.
Casteilano kveðst hafa frétt af
ferð Hans Ericssons til Spánar
um jólin, en hann viti hins vegar
ekki til þess aö Ericsson hafi
reynt að ná sambandi við fólk
innan andspyrnuhreyfinganna.
Þykir Spánarferð þessa
sænska verkalýðsleiðtoga hin
mesta hneisa fyrir hann hér i
Sviþjóð. —ebé — Malmö.
í Spánarsol
um áramótin
Sænski verkalýðsforinginn
Hans Ericsson ber það utan á
sér að hann býr i velferðarsam-
félagi — þar sem hægt er að láta
eftir sér margt sem telst til
munaðar — enda lætur herra
Ericsson munaðarlifið ekki
fram hjá sér fara, a.m.k. nú um
áramótin, en þá baðaði hann sig
i sólinni suður á Spáni, með
maka sínum. Hins vegar naut
herra Ericsson ekki sólbaðanna
sem skyldi — og hafa menn
sjaldan séð fýldari Spánarfara
en Ericsson, er hann steig Ut Ur
flugvélinni, sem flutti hann frá
Spáni heim til Sviþjóðar aftur.
Blaðamenn og ljósmyndarar
umkringdu þennan holduga
sænska verkalýðsleiðtoga um
leið og hann sté niður á flugvöll-
inn. Það var likast þvi sem
súperpopp- eða kvikmynda-
stjama væri þarna á ferðinni.
— Hefur þú veriði frii á Spáni
herra Ericsson? hrópuðu blaða-
mennimir.
— Nei, svaraði Ericsson, og
dökkt andlit hans af Spánarsól-
inni var afmyndað af fýlu.
— Er það satt að þú hafir ver-
ið að skapa sambönd við bask-
iska andspyrnumenn? hrópaði
einn blaðamannanna. Spurning
hans vakti almennan hlátur.
— Nei, svaraði Ericsson lágt
um leið og hann reyndi að
ryðja sér og konu sinni braut i
gegnum blaðamannaþvöguna.
En honum gekk illa og hverri
spurningunni á fætur annarri
var beint að honum. En það kom
ekkert annað en nei og aftur nei
frá Ericsson. Hann lofaði blaða-
mönnum þvi þó að lokum, að
halda fund meö þeim um Spán-
arferð sina eftir tvo daga. Þá
tókst honum loksins að komast
leiðar sinnar.
Hans Ericsson, er formaður
sambands flutningaverka-
manna i Sviþjóð og um leið er
hann sterkur maður innan al-
þjóðasambands flutningaverka-
manna. Ems og kunnugt er voru
nokkrirbaskarliflátnir sl. haust
af spænskum yfirvöldum. Mikil
mótmælaalda reis upp i Vest-
ur-Evrópu og viðar vegna
dauðadómanna yfir böskunum
oghvað háværastar voru þessar
mótmælaraddir i Sviþjóð, enda
fór sjálfur forsætisráðherra
landsins, Olof Palme, út á götu i
Stokkhólmi til að safna pening-
um til stuðnings andspyrnu-
hreyfingum á Spáni. Um leið
beittu ýmis samtök sér fyrir
þvi, að fólk hætti að eyða frium
sinum á Spáni til að mótmæla
fasiskum yfirvöldum landsins.
Hans Ericsson beitti sér fyrir
þvi, sem formaður sænska
flutningaverkamannasam-
bandsins, að sambandið bann-
færði Spánarferðirnar, sem það
og gerði, — og það var einnig
Hans Ericsson, sem hvað mest
vann að þvi innan alþjóðasam-
bands flutningaverkamanna-
sambandsins, að sambandið
bannfærði Spánarreisurnar.
Nú um áramótin fréttist það
hins vegar til Sviþjóðar, að sami
Hans Ericsson, dveldi i jólafrli
sinu, I sól og sælu á Kanarieyj-
um, með maka sinum, og byggi
i einum af bústöðum sænska at-
vinnurekendasambandsins þar
suðurfrá. Þetta varð mikill
fréttamatur sænskra blaða, og
birtu þau myndir af verkalýðs-
foringjanum i sundskýlu og
sældarlegum i Spánarsólinni.
Spænskum blöðum þótti þetta
ekki siðri fréttamatur og birtu
frétt þess efnis, að sænski
verkalýðsleiðtoginn, sem svo
mjög hefði sl. haust beitt sér
Skopmyndateiknarar sænskra blaða hafa ekki látið Spánarreisu Ericssons fram hjá sér fara. Hér er m.a. verið að gera grin á
spænskukunnáttu verkalýðsleiðtogans. Hann kallar á konu sina og kveðst hafa náð sambandi viö andspyrnumann er heiti Bue-
nos Dias, en buenos dias er spænska og þýðir góðan daginn. Hringið og þakkið Giesecke, stendur á miðanum yfir simanum,
en Giesecke er formaður atvinnurekendasambands Sviþjóðar.
-Hans Ericsson hemma efter "semester
TIGER
SOM EN
MUSSLA
STOCKHOLM (KvP) Transports törbundsordfönindí
Hans Erlcsson végrar att töndara sln resa tlll Spanlen.
Aldrlg har den annars sá talföre Transportbasen varlt
si fortegen aom I natt, dá han áterkom frán Las
Palmaa med chartorftyg.