Vísir - 07.02.1976, Blaðsíða 5

Vísir - 07.02.1976, Blaðsíða 5
5 visml Laugardagur 7. febrúar 1976. Þrautalendingin er oft sú fyrir gangandi fólk, að fara út á göturnar i von um að vera ekki ekið niður. Viða eru djúpar hjólrásir á götunum og það dýpri en hér sést. Ef bíllinn er einu sinni lentur ofan í þær, þýðir ekkert annað en að aka götuna á enda þótt maður hafi alls ekki ætlað sér það. Þó að biessuð rigningin leggi fram drjúgan skerf til að greiða götu manna sakar ekki að aðstoða hana og flýta fyrir að klakinn hverfi. Reynt er eftir mætti að hreinsa gatnamót, þar sem viða hafa myndast slysagildrur. orðið miklar á ferðum strætis- vagnanna. Tiltók hann þó eitt dæmi ollum verri. Á föstudag- inn siðasta hafi algert um- ferðaröngþveiti orðið um eftir- miðdaginn. Hafi þar miklu um valdið að margir ösnuðust á bil- um út i umferðina, sem þeir komust ekkert áfram á. Þá var færðin slik mjög viða.aðal- lega i úthverfum, að aðeins önn- ur akreinin af tveim, þar sem sliku til háttaði, var fær. Þetta hefði svo verið sam- verkandi á þann hátt, að allt varð stopp. Hjólrásirnar verstar þegar slaknar Næstan tókum við tali Óskar Ólason, yfirlögregluþjón, og röbbuðum við hann um erfið- leikana i umferðinni. Hann sagði að vandinn væri oft mikill i umferðinni. Umferðarþunginn færi vaxandi. Margir væru nú að koma aftur á götuna, sem lagt hefðu bilum sinum um tima. Umferðin væri þó engan veginn komin i eðlilegt horf, til þess væru umferðar- æðarnar of þröngar sumsstaðar og ógreiðfærar yfirferðar. Þetta væri þó allt i áttina. Þá sagði hann umferðar-^ stjórnun lögreglunnar vera gert" mjög erfitt fyrir. Þeir kæmust viða ekki á hjólum sinum til að greiða úr umferðarhnútum. Reynt væri að hafa göngulög- reglu á verstu stöðunum. Hann hafði einnig orð á þvi, að nú þegar slaknaði yrði erfiðara yfirferðar þar sem hjólrásirnar væru i klakann. Þær dýpkuðu og brúnir þeirra yrðu skarpari svo ómögulegt væri að komast upp úr þeim ef mæta þyrfti bil. Taldi hann nauðsynlegt að reynt væri að mylja þessar brúnir. Hver dropi dýrmætur framlag Fram hjá engum hérna i Réykjavik hefur þaö farið, gangandi og akandi, að mcð ein- dæmum erfitt hefur verið að komast leiðar sinnar undan- farnar vikur. Helst þar margt i hendur'. óvenjumiki! snjó- þyngsli til trafala fyrir sivax- andi umferð. Furöulega margir hafa álpast út i ófæruna á illa húnum og vanbúnum farartækj- um og flækst þar og tafið liver fyrir öðrum. Er reyndar með ólikindum livað margir entust til meðan verst lét að ýta bila- eign sinni á undan sér til vinnu. Þessum mönnum má þó til vorkunnar telja að innflutning- ur á útbúnaði til aksturs við slikar aðstæður er mjög af skornum skammti. Hvergi nærri hrokkið til handa öllum sem þurfa. Samt sem áður eru það fjölda margir, sem virðast aldrei læra. Þá hefur sá hluti skattpening- anna, sem nota átti til að greiða götu borgaranna að þessu leyti hvergi nærri hrokkið til. Árs- skammturinn er þegar farinn. Frá sjónarhóli gangandi er það og ámælisvert, að mestur hluti þessara peninga hefur far- ið i að ryðja bilunum braut á kostnað þeirra. Hugsa þeir með hrolli til þess þegar þeir fara að vaða krapaelginn mishátt upp á fætur á gangstéttunum þegar snjóa leysir. Almenningsvagna- kerfiö úr jafnvægi Strætisvagnarnir hafa ekki farið varhluta af þessum að- stæðum sem skapast hafa. Snjórinn hefur þó ekki verið óþægastur ljár þar i þúfu, held- ur einkabillinn — þeir einkabil- ar, sem sökum vanbúnaðar hafa ekki komist áfram, og setið fastir i slóð þeirra. Áreiðanlega hefur þeim mönnum, sem þessa bila áttu, fæstum orðið hugsað til þess að þeir væru að tefja fyrir fjölda samborgara sinna. Hvað þá að þeir hafi orðið til þess að þeir hafi þurft að hima i misjöfnum veðrum eftir strætisvagninum sinum. oft i óratima. Eftir að snjórinn af götunum var kominn upp á gangstéttarn- ar að mestu, liðkaðist fyrir ak- andi umferð. Engan veginn var þó þrautin unnin. Mikill klaki var undir snjónum og gekk vinnuvélum borgarinnar illa að vinna á honum. Auk þess að vera þröngar urðu akbrautirnar þvi slæmar og hættulegar yfir- ferðar, þar sem hjólför grófust i klakann. Varð af þessu talsvert um árekstra og pústra. Þetta hefur svo orðið þess valdandi, að miklar umferðar- tafir hafi orðið á mestu anna- timum — þó mismiklar. Visir ræddi þessi mál við Ei- rik Ásgeirsson, forstjóra SVR, og spurðum hvort þetta hefði valdið þeim erfiðleikum. Sagði hann að tafir hefðu oft Þessa hugmynd bárum við undir Atla Ágústsson hjá véla- deild borgarinnar. Sagði hann þá enga tilburði hafa i þá átt. Hann sagði að þeir væru að vinna aðallega við að hreinsa gatnamót, þar sem slysagildrur hafa myndast af klakanum. Þá væru þeir að hreinsa niðurföll. Hann sagði aðspurður að ekki væri unnið að þvi að hreinsa klaka álmennt af götunum. Þetta væri spurning um peninga og fjárveitingin væri búin. Ef leggja ætti út i jafn fjárfrekar framkvæmdir, þá þyrfti auknar álögur. Þetta væri þvi mats- atriði. Ef borgarbúar vildu aukna þjónustu að þessu leyti, þá yrðu þeir að borga hærri skatta. — Við fögnum þvi hverjum dropa, sem úr lofti kemur, sagði Atli. Það má þvi með sanni segja að hver dropi sé dýrmætur skattgreiðendum, hvernig svo sem mönnum annars likar rign- ingin. Undanfarna daga hefur hún þvi unnið stóra hluti á göt- um Reykjavikur og hreinlega malað gull fyrir borgarbúa. Pinnþá á hún þó mikið verk fyrir höndum sem er að vinna á klakanum á fáförnum götum og þar sem snjór hefur aldrei verið hreyfður, eins og i gamla bæn- um. Ekki má heldur glevma gangstettunum, þar sem viða eru fjallháir snjó- og klaka- hryggir. Við hljótum þvi að taka undir með Atla Ágústssyni og tökum rigningunni tveim höndum, a.m.k. úr þvi sem komið er. -VS Þegar blessuð rigningin er búin að bræða eitthvaö af klakanum, koma biiarnir og ausa vatninu ydir gangandi vegfarendur tiplandi á gierhálum sveilbunkunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.