Vísir - 02.03.1976, Side 3
vism
r
..v-i
'í
3
Torfi Hjartarson ríkissáttasemjari:
„Langt frá því að
vera lengsta deilan"
„Þetta er langt frá því að vera
sú lengsta „törn” sem ég hef
tckið þátt i — en þetta er með
víðtækustu stéttadeilunum ”
sagði Torfi Hjartarson, ríkis-
sáttasemjari, þegar Visir hitti
hann að máli að lokinni undir-
ritun samninga vinnuveitenda
og ASÍ.
Torfi hefur sem kunnugt er
verið i fjölda ára sáttasemjari i
vinnudeilúm og þekkir því betur
en flestir aðrir gang samninga-
viðræðna.
„Þetta eru varla erfiðir
samningar. Það hefur ríkt
góður vilji hjá báðum aðilum að
leysa deiluna og það er mikill
munur.
Samþykkt beggja aðila,
vinnuveitenda og launþega, um
lifeyrissjóðina er einn merkasti
áfangi i verkalýðsmálasög-
unni.” —EKG
„Óeðlilegt að sumir
bátar geti veitt meðan
aðrir eru í verkfalli"
„Það má segja að verkfalli
hafi verið aflýst að öðru leyti en
þvi að ekki verður tekið á móti
loðnu meðan mestallur bátaflot-
inn er i verkfalli. Við teljum ó-
eðlilegt að sumir bátar geti veitt
meðan aðrir eru i verkfalli”
sagði Karl Steinar Guðnason,
formaður Verkaiýðs- og sjó-
mannafélags Keflavikur, i sam-
tali við Visi.
Eins og kunnugt er komu
nokkrir sjómenn á Suðurnesjum
i veg fyrir að bátar, sem ekki
eru i verkfalli og hafa verið að
loðnuveiðum i verkfallinu, gætu
landað afla sinum á Suðurnesj-
um.
Karl sagði að samþykkt hafi
verið gerð á fundi i sjómanna-
deild Verkalýðs- og sjómanna-
félagsins um að óeðlilegt væri
að nokkrir bátar gætu haldið á-
fram að veiða meðan megin-
þorri báta væri bundinn við
bryggju vegna verkfalls. Þvi
hefðu 20 til 30 manns komið i veg
fyrir að hægt væri að landa úr
þessum bátum.
—EKG
„Ástandið lagast mík-
íð með samningunum"
Verkamannasambands tslands,
i samtali við Visi i gær, en
innan Verkamannasambands-
ins eru einmitt margir lægst
launuðu hóparnir.
„í það heila tekið er fjarri þvi
að ég sé ánægður,” sagði Guð-
mundur. „En ég tel að það hafi
tekist að bæta kjör launþega og
tryggja með rauðu strikunum
að þau verði ekki skert á næsta
ári.” — EKG
„Það er fjarri þvi að ranglæt-
ið i launamálunum hafi verið
leiðrétt með þessum samning-
um. Ég tel að láglaunafólkið búi
enn við skertan hlut. En þetta er
ekki að byrja i dag. Þetta er
þróun ár frá ári. En ástandið
hefur mikið lagast riieð þessum
samningum.”
Þetta sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður
rThis eir.lusivo arncle descrlbes.
milhout political bias tha davalopment
ol lceland s Coast Guard Air Division and
the aircraft that have been used 'Whilst llying
on a typical lom-level patrol in one ol their
F 27 Friendshipe Aviation Nems correspondents
Ragnar Ragnarsson and Baldur Sveinsson
meie the only journalists mith cameras to see the
incident on Oecember 11 involving threa British
ships and the lcelandic lishery protection vessel
'Thor' in mhich shots mere lired The morld s
Press and TV used the photographs. but
|L nom. Aviation Nems is tha only journal
to give the lutl eye witness story.
Flugdeild Landhelg-
isgœslunnar kynnt í
bresku flugtímariti
Breska flugtimaritið Aviation
News birtir i febrúarhefti sinu
griðarmikinn forsiðuuppslátt
um þriðja þorskastriðið. A þrem
siðum inni i blaðinu er svo fjall-
að um flugdeild islensku
landhelgisgæslunnar.
Það eru fréttamenn blaðsins á
fslandi, Ragnar J. Ragnarsson
og Baldur Sveinsson sem tóku
að sér það verkefni að skrifa um
flugdeildina. Þeir voru svo
heppnir að vera i gæsluflugi
með TF-SÝR þegar dráttarbát-
arnir þrir réöust á Þór i Seyðis-
firði i desember siðastliðnum.
Með greininni fylgja þvi
myndir af þeim atburði og frá-
sögn. Fjölmargar myndir eru af
þeim flugvélum sem Gæslan nú
á eða hefur haft i þjónustu sinni.
Einnig fylgja greininni mjög
nákvæmar teikningar sem
Baldur Sveinsson gerði af helstu
flugvélategundum Gæslunnar.
—ÓT.
ÁTVR varð
af stórum
upphœðum
vegna lok-
unarinnar
Áfengis- og tóbaksverslun
rikisins varð af 68,5 milljónum
króna vegna lokunar dómsmála-
ráðherra á áfengisútsölum og
stöðvunar vinveitinga á stöðum
sem þær voru heimilar.
Hér er um áætlaða tölu aö ræða
sem fengin er meö þvi að reikna
saman söluna i janúarmánuði og
finna siðan meðalsöluna á dag.
I janúar var áfengi selt fyrir
rúmar 287 milljónir króna. Með-
alsalan þann 21 dag sem útsölurn-
ar voru opnar var fyrir tæplega
13,7milljónir á dag. Það þýðir þá
á fimm dögum um 68,5 milljónir
króna. Við þá upphæð má svo
bæta þeirri upphæð sem selt hefði
verið fyrir þann hálfa föstudag
sem lokað var til viðbótar og þá
er díki ósennilegt aö upphæðin
hefði verið mun hærri.
Ekki er hægt að segja með
neinni öruggri vissu hvort selt
hefði verið fyrir þessar upphæðir
ef útsölurnar hefðu ekki verið lok-
aðar, en samanburðurinn getur
þó brugðið upp nokkurri mynd af
þvi sem hugsanlega hefði verið
selt fyrir ef rikið hefði ekki verið
lokað.
Þótt Afengis- og tóbaksverslun
rikisins hafi oröið þessum mill-
jónum fátækari við lokunina er
ekki vist að allir vilji samþykkja
að hér sé um hreint tap að ræða
fyrir rikissjóð.
Benda má á að samkvæmt um-
sögn lögreglunnar hafði lokun á-
fengisútsölu róandi áhrif, minna
varð um slys og svo framvegis.
Þennan ávinning af lokuninni
verður vart hægt að meta til fjár,
og því er þeirri spurningu ósvar-
að hvort Lýðveldið tsland hafi
tapað á lokuninni. —EKG
Því miður - rangt
Mjög slæm prentvilla var á for-
siðunni i gær. Þar stóð í fyrirsögn.
Launahækkunin á dag þýðir, en
átti auðvitað að vera Launahækk-
unin i dag þýðir, sem lika sést
þegar fréttin er lesin.
Dómsmálaráðherra
stefnt fyrir meiðyrði
Stefnendur krefjast ómerkingar á til-
teknum ummœlum Ólafs Jóhannessonar
ólaf i Jóhannessyni hef ur nú verið stefnt vegna um-
mæla sinna í útvarpsþættinum Bein lína 1. febrúar sl.
Ritstjóri Vísis og þrír stjórnarmanna í Reykjaprenti
hf. hafa krafist ómerkingar á tilteknum ummælum
dómsmálaráðherra F nefndum útvarpsþætti.
Málið verður þingfest í bæjarþingi Reykjavíkur á
fimmtudag. i stefnu eru gerðar þær dómskröfur að
ummæli ráðherrans verði dæmd dauð og ómerk.
Hvorki erkrafist refsingar né skaðabóta eins og hegn-
' ingarlög leyfa. Stefnan er birt hér í heild:
Nr. 1. Lagt fram i bæjarþingi
Reykjavikur 4/3 1976.
JON STEINAR
GUNNLAUGSSON hdl.,
Vesturgötu 17, Reykjavik
Gerir kunnugt: að hann þurfi
f.h. Þorsteins Páls&gnar, rit-
stjóra, Háaleitisbraut 43, Rvik,
Guðmundar Guðmundssonar,
forstjóra, ViðivöIIum, Rvik,
Ingimundar Sigfússonar, for-
stjóra, Grenimel 45, Rvik og
Þóris Jónssonar, framkvæmda-
stjóra, Blikanesi 25, Garða-
hreppiaðhöfða mál fyrir bæjar-
þingi Reykjavikur á hendur
ólafi Jóhannessyni, ráðherra,
Aragötu 13, Reykjavik til ó-
merkingar á eftirtöidum um-
mælum, sem ólafur Jóhannes-
son viðhafði i útvarpsþættinum
„Bein lina” þ. 1. febrúar 1976:
1.....heldur auðvitað sú
Mafia, sem stendur á bak við
þessi skrif....”
2. „Það er Visis Mafian”
3. „Já, þaðhorfir þannig við frá
minu sjónarmiði, að það sé
glæpahringur, sem æ ofan í æ
kemur með aðdróttanir,
rangar, i minn garð.”
Þá er cinnig krafizt málskostn-
aðar að skaölausu.
Málavextir eru þeir,' að
menntaskólakennari nokkur í
Reykjavik, Vilmundur Gylfa-
son, hefur á undanförnum mán-
uðum, skrifað vikulegar greinar
i dagblaöið Visi um margvisle^
málefni. Hafa greinar þessar
birst i blaðinu á föstudögum og
ævinlega undir fullu nafni höf-
undar. Föstudaginn 30. jan. 1976
ritaði Vilmundur grein i blaðið,
þar sem hann setti fram ásak-
anir á hendur ólafi Jó-
hannessyni dómsmálaráðherra
vegna embættisfærslu hans.
Taldi Vilmundur ráðherrann
hafa haft óréttmæt afskipti af
rannsókn tiltekinna afbrota-
mála.
Ólafur Jóhannesson ráðherra,
sem jafnframt er formaður
Framsóknarflokksins, kom
fram i útvarpsþættinum „Bein
lina” sunnudagskvöldið 1.
febrúar 1976. Þáttur þessi er
þannig upp byggður, að ákveð-
inn aðili er fenginn til að sitja
fyrirsvörum. Gefsthlustendum
siðan færi á, að hringja í sima
rikisútvarpsins og leggja fyrir
gest þáttarins spurningar, sem
hann svarar jafnharðan. Er
þættinum útvarpað beint.
Nokkrir hlustenda báru upp
við ólaf Jóhannesson spurning-
ar vegna ofangreindra skrifa
Vilmundar Gylfasonar. Attu þá
m.a. eftirfarandi orðaskipti sér
staö:
Ólafur Jóhannesson:
...Annars er það ekki Vil-
mundur, sem þarna er við að
eiga, heldur auðvitað sú
Malia, sem stendur á bak við
þcssi skrif, og henni mun ég
svara siðar.”
Stjórnandi þáttarins: „Hvaða
Mafia er það?”
Ólafur Jóhannesson: „Það er
Visis Mafian.”
Og siðar i þættinum:
Hlustandi: „Gott kvöld ráð-
herra, þú ert búinn að segja
tvisvar í kvöld að Visismenn
séu i Mafiunni. Áttu þá við
þann alheims glæpahring,
sem vaðið hefur uppi i Banda-
rikjunum og á ftaliu, eða hvað
áttu við með þessu?”
Ólafur Jóhannesson: „Ætli
þaö séu ekki ýmiss konar teg-
undir til.”
Hlustandi: „Nei, ég vil fá svar
við þessu sko. Þetta er svolit-
ill ábyrgðarhlutur að segja,
að menn séu i Mafiunni þvi
allir vita, að Mafian er ein-
hver mesti glæpahringur,
sem um getur i sögu heims-
ins.”
Ólafur Jóhannesson: „Já, það
horfir þannig við frá minu
sjónarmiöi, að það sé glæpa-
hringur, sem æ ofan i æ kem-
ur með aödróttanir, rangar, i
ininn garð.”
Hér hafa ummæli þau, sem
krafist er ómerkingar á verið
auðkennd.
Af öðrum orðum Ólafs Jó-
hannessonar i útvarpsþætti
þessum kemur fram, að hann
beinir ofangreindum Mafiu- og
glæpahringsummælum sinum
að ritstjóra dagblaðsins Vísis,
sem er Þorsteinn Pálsson og að
meirihluta stjórnar útgáfufé-
lags dagblaðsins Visis, Reykja-
prents hf., en þann meirihluta
mynda þeir Guðmundur Guð-
mundsson, Ingimundur Sigfús-
son og Þórir Jónsson.
Strax 2. febrúar 1976 ritaði
Þorsteinn Pálsson ritstjóri
grein, sem birtist á forsiöu
Visis, þar sem Ólafi Jóhannes-
syni var gefinn kostur á að
draga ummæli sin til baka, ella
yrði ekki um annað að ræða en
að fá ummælin ómerkt með
dómi. Við þessu brást ráðherr-
ann þannig, að i þingræðu siðar
sama dag endurtók hann um-
mæli sin, efnislega að mestu ó-
breytt. Er þannig fullreynt, að
hann mun ekki sjálfviljugur
draga ummæli sin til baka. Er
málssókn þessi þvi óumfiýjan-
leg.
Fyrir þvi stefnist hér með
Ólafi Jóhannessyni með vinnu-
stað i dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, Arnarhvoli, Reykjavik,
til að mæta á bæjarþingi
Reykjavikur, sem haldið verður
i bæjarþingsstofunni að Túngötu
14 fimmtudaginn 4. mars 1976
ki. 10 fyrir hádegi, til þess þar
og þá, ef ekki verður sátt i mál-
inu, aö sjá skjöl og skilriki i rétt
lögð, á sókn sakar og dómkröfur
að hlýða, til sakar að svara og
dóm að þola i ofangreinda átt.
Stefnufrestur skal vera 1 sól-
arhringur.
Reykjavik, 26. febrúar 1976.
Jón Stcinar Guunlaugsson hdl.