Vísir - 02.03.1976, Blaðsíða 5
vism Þriðjudagur 2. mars 1976
5
'í! íB
Hjá Mjólkursamsölunni var rösklega unnið við að hlaða útkeyrslu-bilana, enda biðu þeirra margir
(MyndirBG)
Hjól atvinnulífsins
(og bílanna maður)
eru farin að snúast
lijól atvinnulifsins voru að
byrja að snúast aftur þegar
Visis-menn fóru i smáleiðangur
um bæinn. Dapurlegt merki þar
um var umferðin. Undanfarna
viku eða svo hefur verið ósköp
indælt að aka um bæinn, þ.e.
fyrir þá sem áttu Iitla og
sparneytna bila sem bensinið
entist á.
Það tók tiltölulega skamman
tima að aka endanna á milli i
borginni. 1 gær voru hins vegar
allir búnir að fá bensin enda
upphófst flaut og árakstra-
fargan.
Ekkert afsláttar-
bensin.
En það var skortur á ýmsum
öðrum fljótandi vörum en
bensini. Mjólkurskortur hrjáði
velflesta landsmenn og svo var
vist skrúfað fyrir brennivinið.
Kók og aðrir gosdrykkir voru
einnig þrotnir viðast hvar.
Það var þvi geysimikið keypt
af fljótandi varningi i gær. Yfir-
leitt voru menn hressir og
ánægðir með að verkfallið var
búið. Þeir glettust og gerðu að
gamni sinu. Afgreiðslumenn á
einni bensinstöðinni kváðust
dauðfegnir að vera komnir aftur
til vinnu. Þeir hefðu enda farnir
að vera mjög fyrir heima hjá
sér og frúrnar jafnvel farnar að
grafa upp gamlar málningar-
dósir og annað þvi um likt, með
það fyrir augum að hresst yrði
upp á hibýlin. Þeir töldu þvi
ekki seinna vænna að komast
aftur til vinnu. En þótt þeir
væru kátir, töldu þeir öll tor-
merki á að selja bensinið með
afslætti, vegna þess hve það
væri orðið gamalt.
Mjólkurþamb
En þótt menn væru fegnir að
fá bensin var ekki beðið eftir
neinu með annarri eins eftir-
væntingu og mjólkinni. Margar
mjólkurbúðir fylltust strax um
hádegi og fólk stóð og beið þolin-
mótt þegar við dóluðum
framhjá um tvöleytið.
Sumir eru jafnari en aðrir og
Mest hefur fólk liklega saknað mjólkurinnar. Það var mætt um hádegi
og menn biðu þoiinmóðir.
eina pelsklædda frú sáum við
koma á leigubil. Hún rétt kikti
inn og spurði hvort mjólkin væri
komin þangað, og þegar svarið
var neikvætt hélt hún áfram að
þeirri næstu með sinum prfvat-
sjófför. Kannski var það hún
sem þurfti að hella niður átján
pottum af mjólk, vegna þess að
hún súrnaði. Sú frú hafði
hamstrað svo mikið að ekki
tókst að „geyma” allt saman.
En svo komu blessaðir
mjólkurbilarnir — og þá lifnaði
heldur betur yfir mannskapn-
um. Það verða áreiðanlega
nokkrir mjólkurpottar þambað-
ir á næstu dögum. Það var
semsagt allt á fullu spani i henni
Reykjavik. En kannski gerðum
við okkur best grein fyrir þvi að
nú væri verkfallinu lokið og lifið
og umferðin og komast i samt
lag, þegar það tók okkur tuttugu
og þrjár minútur að komast frá
Helmmi inn i Siðumúla.
—ÓT
Það er nú aftur lif og fjör við höfnina og menn mættir til vinnu.
Það var verið að landa úr einum skutaranum