Vísir - 02.03.1976, Síða 6

Vísir - 02.03.1976, Síða 6
I V.'s/ Þriöjudagur 2. mars 1976. VISIR Umsjón: Guðmundur Ók á Austur- landahrað- lestina Átta manns fórust þeg- ar þessi langferðabifreið ók á hraðlest í Tyrklandi í gær. Bílstjórinn virðist ekki hafa séð lestina því að hann kom akandi að henni á all-nokkurri ferð. Fyrir einhverja mildi fór lestin ekki út af sporinu þegar farartækin skullu saman. Árekstur bifreið- arinnar og Simplon Austurlandahraðlestar- innar varð við Tekirdag, um 200 km suðvestur af Istanbul. Tuttugu og tveir aðrir sem í bifreiðinni voru slösuðust, en enginn slasaðist í hraðlestinni. Lýtur vestrœnt lýð- rœði í lœgra haldi fyrir sovézka stjórnarfarinu? Solzhenitsyn kvíðir því að svo fari Sovéski útlaginn, Alex- ander Solzhenitsyn, sagði i útvarpsviðtali í London í gær, að æðsta ráðið í Sovétríkjunum mundi ekki geta aftrað Sovét- ríkjunum frá því að hef ja nýja heimstyr jöld. — Jafnvel ekki einu sinni þótt allir meðlimir æðsta ráðsins væru samhijóða á móti slíku. t þessu sama viötali, sem BBC birtir i tilefni þess að tvö ár eru siðan rithöfundinum var visað úr Sovétrikjunum, veitist Solzhenitsyn aö Vesturlöndum fyrir að stuðla að þvi með van- mætti sinum að harðstjórnin sitji áfram að völdum i föður- landi hans. Rithöfundurinn kom nokkuö á óvart meö tilsvörum sinum. M.a. var hann spurður að þvi, hvort hann mundi láta sér koma á óvart breyting núna á stjórn- inni i Sovétrikjunum, en flokks- þing þeirra stendur einmitt yfir þessa dagana. Solzhenitsyn kvaðst mundu láta sér koma minna á óvart ef Vesturlönd féllu skyndilega. „Ástandið er þannig núna að allt efnahagslif Sovétrikjanna er stillt inn á slikan striðsrekst- ur að jafnvel þótt æðsta ráðið væri einróma á móti heim- styrjöld, mundi það ekki vera á valdi þess að sporna gegn henni,” sagöi rithöfundurinn. Solzhenitsyn hefur dvalið i Sviss siðan hann var sendur með flugvél úr landi i Sovét- rikjunum i febrúar 1974. Aöur höfðu sovéskir fjölmiðlar haldið uppi hatrammri herferð gegn honum, vegna birtingar bókar hans um „Eyjaklasann”, þar sem hann lýsir átakanlegu lifi i þrælafangabúðum i Rússlandi. BBC flutti 45 minútna viðtals- þátt við höfundinn, þar sem Michael Charlton fréttamaður spurði hann m.a., hvort hann sæi fyrir nokkrar breytingar i Sovétrikjunum á næstu árum. „Um slikt þarf ekki að ræða i Sovétrikjunum i dag, sagði Solzhenitsyn. „Vestrið hefur gert svo mikið til að efla harð- stjórnina i landi minu. — Sið- ustu tiu árin hafa hinir hræði- legustu hlutir verið að gerast. Lýðræðið i vestri hefur ekki að- eins gefið austrinu eftir fjögur, fimm eða sex lönd. Það hefur gefiö eftir aðstöðu sina alls stað- ar i heiminum.” . „Spurningin er ekki lengur um það hvort Sovétrikjunum tekst að hrista af sér alræðis- stjórnarfyrirkomulagið. Heldur hvort Vesturlöndum tekst að komast hjá þvi að hljóta sömu örlög. Vestræna lýðræðið ramb- ar á barmi hruns af eigin völd- um,” sagði soveski útlaginn. Efnahagsmál í mið- depli á flokksþinginu Efnahagsmál verða efst á baugi það sem eftir er flokks- þings kommúnistaflokks Sovét- rikjanna. Þinginu lýkur i lok vikunnar með kosningum. Alexei Kosygin forsætisráð- herra hélt þriggja klukkutima ræðu i gær um efnahagsáætlun landsins fram til 1980. Hann fullvissaði hina fimm þúsund þátttakendur i flokksþinginu um að hagvöxtur yrði jafn og öruggur næstu fimm árin meðan mikil óvissa ri"kti i efna- hagsmálum Vesturlanda. Kosygin tók ekki undir þá gagnrýni sem kom fram i ræðu Brézhnevs flokksleiðtoga á mis- tök i efnahagsmálum Sovétrikj- anna. Aðallega hefur verið deilt á landbúnaðinn, sérstaklega vegna lélegrar kornuppskeru á siðasta ári,sem var sú lélegasta i tiu ár. Brézhnev virðist við hina bestu heilsu, og hefur að mestu þaggað niður sögusagnir um að hann gengi ekki heill til skógar. Hann hefur komið fram af miklu öryggi á flokksþinginu, og verið miðdepill umræðna. Þeir sem hafa tekið til máls á þing- inu hafa flestir ausið hann lofs- yrðum. Brézhnev sá ástæðu til að ávita ræðumenn fyrir þetta oflof, og benti á að góður árang- ur væri sameiginlegu átaki að þakka. „Ég vann! Ég vann!" Utanrikisráöherra Spánar, Jose Maria de Areilza, mun i dag skýra fyrir brestum ráöherrum ástæður rikisstjórnar hans til þess aö vilja ganga i Efnahagsbandalag Evrópu. Spánn hefur um hrið alið á von- um um að fá inngöngu i Efnahags- bandalagið. Ætlar hann að sækja um aðild og stefna að þvi að hafa fengið hana fyrir 1980. Það mál hefur ekki veriö of auð- sótt vegna stjórnmálaástandsins á Spáni, en utanrikisráðherrann mun gera bresku ráðherrunum grein fyrir áæltunum spænskra ráöa- manna um aukiö lýðræöi. Bílbelti í Bretlandi Noktun bilbelta verður lögleidd i Bretlandi ef að likum lætur, þvi aö fyrir neðri málstofunni liggur nú stjórnarfrumvarp sem flestir ætla að hljóti samþykki. John Gilbert samgöngumálaráö- herra sagði aö notkun bilbelta, ef að lögum yrði, ætti eftir aö bjarga um 1,000 mannslifum árlega, og af- stýra um 11,000 meiöslum. — Taldi hann það mundi spara i sjúkra- kostnaði um sextiu milljónir sterlingspunda árlega. Pan Am lítur erlendu flugfélögin hornauga Pan American flugfélagið sækist eftir þvi að hið opinbera setji á stofmsérstakt ráð til að verja hags- muni bandariskra flugfélaga i samkeppni við erlend flugfélög. Sagði talsmaður flugfélagsins við þingmenn aö Bandarikjastjórn dreifði umsjón flugmála á hendur

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.