Vísir


Vísir - 02.03.1976, Qupperneq 7

Vísir - 02.03.1976, Qupperneq 7
VISIR Þriðjudagur 2. mars 1976. Hœttur að taka sér þíðu í munn Ford forseti segir að alþjóðlegar staðreyndir séu þœr, að „detente" sé ekki lengur orð, sem eigi við Ford Bandaríkjaforseti segist ekki lengur taka sér í munn orðið ./detente" (þíðu) til að lýsa samskiptum Bandaríkjanna og Sovét- rikjanna eða Kína. Hann kallar það nú frið i krafti hernaðarmáttar. sagði hann í sjónvarps- viðtali. ..Alþjóðlegar stað- reyndir liggja að baki þessarar breyttu af- stöðu." sagði Ford for- seti. Þessi orðaskipti fylgja i kjöl- far gagnrýni keppinautar hans, Ronalds Reagans, fyrrum ríkis- stjóra Kaliforniu, sem stefnir að þvi að hljóta útnefningu repú- blikanaflokksins til forseta- kosninganna í ár — rétt eins og Ford. Reagan heldur þvi nefnilega fram að „þiðan” milli austurs og vesturs, eða „detente” eins og hún hefur verið kölluð, komi Sovétrikjun- um einungis til góðs en ekki Bandarikjunum. „Ég nota ekki orðið „detente” lengur,” sagði Ford. „Ég tel að við ættum heldur að segja, að Bandarikin séu reiðubúin til að ganga til móts við risaveldin, Sovétrikin, Kina eða önnur, til að draga úr spennu, svo að við getum viðhaldið stefnu friðar i krafti hernaðarmáttar.” „Ef við erum öflugir hernaðarlega, sem við erum, og ef við höldum þvi afli okkar, getum við samið við Sovétrikin, við Kina og við aðra til þess að viðhalda friði.” „Detente var aðeins heiti á fyrirbæri. Ég held ekki að það eigi við lengur.” „Ég held að við ættum að ræða um staðreyndir og semja um að draga úr framleiðslu kjarnorkuhlaðinna eldflauga. Við ættum að ræða um verslun, við ættum að ræða um visindi og slika hluti i þvi andrúmslofti sem aflið skapar. Og við skiljum að aðrir búa lika yfir slikum mætti.” Þarna er greinilega orðin nokkur breyting á hugarfari Bandarikjaforseta frá þvi 3. janúar. I viðtali þá sagði Ford: „Ég held að það væri mjög óskynsamlegt af forsetanum, mér eða einhverjum öðrum, að gefa detente upp á bátinn. Ég held að detente þjóni hagsmun- um þessa lands vel.” Flokksbróðir hans en keppi- nautur um leið, Ronald Regan, hefur ekki verið á sama máli. Hann sagði, að detente væri einstefna til ágóða fyrir Sovét- rikin. „Eini akkurinn sem Bandarikjunum hefur verið að detente var aö fá réttinn til þess að selja Pepsi Cola i Siberiu”, sagði Regan. Aðrir forsetaframbjóðendur i Bandarikjunum hafa að undan- förnu veist að detente þegar utanrikismál hefur borið á góma á kosningafundum. Ford Bandarikjaforseti hlustar við Kinamúrinn...kannski eftir nýju orði sem komið geti i staðinn fyr-ir „detente”. Segir Castro hafa staðið fyrír á Kennedy Voru sönnunar gögnin falin? Verjandi Patty Hearst reyndi i gær að fá ákærur á hendur henni felldar niður vegna þess að ákæruvaldið hefði falið sönnunar- gögn. En það tókst ekki, og réttarhöld halda áfram. Verjandinn hélt þvi fram að myndir af Patty við ránið i Hibernia bankanum hefðu verið skomar þannig að ekki hafi sést að byssu var beint að henni. Hann sagði að 1 félaga Symbiónes- iska frelsishersins, Camilla Hall, hefði beint byssunni að Patty. Verjandinn hefur haldið þvi fram allan timann að Patty hafi verið neydd til þátttöku i ráninu. Ljósmyndasérfræðingur frá FBI sagði við réttarhöldin að andlit Camillu Hall og mestur hluti likama hennar hefði fallið óviljandi út af myndunum við stækkun þeirra. Sérfræðingurinn var beðinn um að li'ta á myndirn- ar, og sagðisthann álita að byssu Hall væri beint að tveimur banka- starfsmönnum. Carter dömari hefur fyrirskip- að að nýjar stækkanir af myndun- um verði gerðar fyrir réttinn. John F. Kennedy heitinn, fyrr- um forseti Bandarikjanna. — Varð hann fyrir barðinu á hefndarhug Castros? Blaðaútgefandi í Las Vegas helt því fram i blaði sinu í gær, að Fidel Castro hefði fyrirskipað morðið á Kennedy forseta í hefndarskyni fyrir morð- tiíraunir við sig. Útgefandinn, Herman Green- spun að nafni, 66 ára gamall, seg- ir i blaði sinu „Las Vegas Sun” að hann ha'fi áreiðanlegar heimildir fyrir þvi að kúbanski leiðtoginn hafi einnig átt þátt i morðinu á Robert Kennedy, -bróður forset- ans. Greenspun segir að Castro hafi á fundi leiðtoga Suður-Ameriku- rikja hótað að dreþa Kennedy- bræöurna. „Kennedybræður hafa reynt að drepa mig. Ég mun gera gagnkvæmar ráðstafanir,” segir Greenspun heimildir sinar greina um hótanir Castros. Greenspun segir að fimm morðtilraunir hafi verið geröar á Castro. Þrisvar sinnum hafi verið reynt að skjóta hann, og tvisvar eitrað fyrir hann. Blaðaútgefandinn byggir niður- stöður sinar á sönnunum sem morði hann segir að marki skýra linu rökréttra niðurstaðna um það hvers vegna Kennedybræðurnir hafi verið myrtir. Hann segir að linan liggi að dvrum hins hefndarþyrsta Castros. Frank Church, formaður þing- nefndarinnar sem fer með mál- efni leyniþjónustunnar, sagði að starfsfólk sitt mundi kanna mál- ið. En hann benti einnig á að það sem Greenspun sagði gæti allt eins verið ályktanir bvggðar á upplýsingum sem þegar hafa komið fram. Church sagði að 20. nóvember hefðu upplýsingar ver- ið gerðar opinberar, sem skýrðu frá þvi að Castro mundi hefna allra morðtilrauna við sig. Church sagði að starfsfólk sitt mundi kanna hvort Greenspun hefði einhverjar nýjar upplýsing- ar. of mörgum embættum. Taldi hann rétt aö ein stofnun ætti að hafa með hendi veitingu undaþága og leyfa fyrir erlend flugfélög til að fljúga á bandariskum flugleiðum. Benti hann á aö mörg erlendu flugfélaganna nytu rikisstyrkja á krepputimum meðan bandarisk flugfélög væru einkaframtak og stæðu á eigin fótum i frjálsri sam- keppni sem svo ætti að heita. Óstundvísi hjá Sameinuðu þjóðunum Niu af hverjum tiu fundum hjá Sameinuðu þjóöunum hefjast of seint, sagði einn af sendifulltrúum Póllands i gær, og er litt hrifinn af óstundvisinni hjá þeirri mætu stofnun. Henryk Sokalski var aö tala á fundi einnar nefndar S.Þ., þar sem rætt var um leiðir til að auka áhrif samtakanna. Sá fundur hófst fjöru- tiu minútum of seint. Hann sagöi að 1974 og ’75 hefðu 2,208 fundartimar af 10,717’farið til spillis vegna þess hve seint hefði verið byrjað. — Hann viil meta hvern fundartima til 2,789 dollara. Brúarsmíði t júni i sumar á að hefja smiði nýrrar brúar yfir Dóná i Júgóslaviu og á hún að verða 1.300 metra löng. Hún verður um 75 km norðvestur af Belgrade. — Þaö er ætlað aö smiðinni ljúki við árslok 1980. Sprengja í Sapporo Tvennt lét lifið i sprengingu sem varð i Sapporo i Japan i morgun. Tuttugu slösuðust. — Sprengingin varö 1 stjórnarskrifstofum. Lögreglan telur að sprengju hafi verið komið fyrir i skrifstofu- byggingunni, en hún sprakk þá um það leyti, sem fólk var að koma til vinnu i morgun. Eigandinn var nœrsýnn Sjötugur einkabiistjóri i London hefur verið ákærður fyrir að skipta á tveim verðmætum málverkum eftir Canaletto og eftirlikingum. Málverkin voru i eigu aldraös og nærsýns vinnuveitanda hans. Málverkin munu siðan hafa verið seld á uppboði hjá Sothebys fyrir um 80,000 sterlingspund, en eftir- likingarnar héngu á veggjum svefnherbergis laföi Portarlington i tvö ár án þess aö nokkur uppgötv- aði skiptin. Bilstjórinn starfaði i fjögur ár hjá hefðarfrúnni, en sagði upp starfi 1973. Hann neitar að hafa stolið málverkunum, en segir að konan hafi gefiö sér þau fyrir trúa og dygga þjónustu. Hjá uppboðshöldurunum hafði maöurinn hinsvegar haldið þvi fram aö hann væri aö selja mál- verkin fyrir fjölskyldu sina, og að þau kæmu úr irskum kastala. Reykingar jukust Bandarikjamenn settu nýtt met i sigarettureykingum á siðasta ári, og það þrátt fyrir viðvaranir um skaðsemi þeirra. — Reyktu þeir 607,000 milljónir vindlinga. Skýrslur þess opinbera sýna aö þetta er 7000 milljónum vindlinga meira en árið 1974. Tölur liggja ekki enn fyrir um hver aukning hafi verið i notkun munn- og neftóbaks, en hún mun vera einhver. Hinsvegar hafa vindlareykingar minnkað.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.