Vísir - 14.04.1976, Side 10

Vísir - 14.04.1976, Side 10
argus IYIiðvikudagur 14. aprll 1976. vism . .. visra 'IVIiðvikudagur 14. apríl 1976. -----------r Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal Komi leötil Þeir, sem hafa dvalið á Ibiza eiga varla nokkur orð til að lýsa ánægju sinni, enda hefur Ibiza oft verið nefnd Paradís Miðjarðarhaf: Nú býður ferðaskrifstofan Ui sannkallaða úrvalsf til Ibiza. Eyjan er vinaleg, falleg og gróðursæl; — þar vaxa barrtré og möndlutré hlið við hlið. Ibiza er sólarstaður fjölskyldunnar. Tilvalinn staður til hvíldar og skemmtunar, jafnt fyrir einstaklinga sem fjölskyldur. Fáið eintak af Ibiza-bæklingi okkar, og kynnið ykkur Ibiza ferðirnar. Pantið Mallorcaferðina strax! Mallorcaferðir okkar eru oft á tíðum uppseldar langt fram í tímann. Þess vegna er ráðlegt að hafa samband við Úrval hið fyrsta, þannig að hægt sé að velja Mallorcaferð á þeim tíma, sem hentar best. Urval veitir fúslega allar upplýsingar Mallorca. Tryggið ykkur ei af nýja Mallorca bæklingnum okkar. FERÐASKRIFSTOFAN OASKR/FSTOFAN fSSL* URVAL Eimskipafélagshúsinu simi 26900 FH með bóða bikar- ana í Hafnarfjörð Sigraði Val í úrslitaleik bikarkeppni HSI og eru því bœði íslands- og bikarmeistarar karla 1976 Birgir Finnvogason átti stjörnuleiki marki FH þegar liðiö vann Val I gærkvöldi með 19 mörkum gegn 17 I úrslitaleik bikarkeppni Handknattleikssam- bands tslands. Hann varði mjög vel allan leikinn og á siðustu ininútum leiksins háðu Valsmenn við hann harða keppni, sem hann vann — varöi m.a. viti frá Þor- birni Guðmundssyni. Þá varstað- an orðin 19:17 og Birgir gull- tryggði þvi sigur FH með þvi að verja. Fyrr I leiknum hafði hann variö tvö viti frá Jóni Karlssyni. Valur byrjaði leikinn af miklum krafti og gerði harða hrið að Imarki FH. Skoruðu þeir á skömmum tima fjögur mörk án þess að FH-ingum tækist að svara fyrir sig. Vissu þeir varla hvaðan á þá stóð veðrið. Heldur tóku þeir þó að rétta úr kútnum og taka fastar á valsmönnum i vörninni. Breyttu þeir stöðunni fljótlega i 5:3 fyrir Val. Valsmenn fengu víti en Birgir varði frá Jóni Karlssyni og FH skorar sitt fjórða mark: Þegar staðan var 8:7 lét Jón aftur verja hjá sér viti. Urðu þá nokkur þáttaskil i leiknum — og næstu þrjú mörk voru FH-inga. Leiddu þeir siðan hálfleik 10:9. FH-ingar komu mjög ákveðnir til leiks i siðari hálfleik og komust i þriggja marka forustu mjög fljótlega. Valsmenn ná að jafna 15:15, en FH nær aftur tveggja marka forustu.. Enn jafna vals- menn, en FH nær aftur að komast tvö mörk yfir. Þá var það sem skotin fóru að dynja á Birgi, en alltkom fyrir ekki. FH vann með tveimur mörkum, 19:17. Bikarmeistarar Ármanns I handknattleik kvenna ásamt þjálfara sinum, Framaranum Arnari Guðlaugssyni, eftir sigurinn I gærkvöldi. Ljósmynd Einar Markvorðurinn tók qf skarið r - þegar Armann varð bikarmeistari í handknatt- leik kvenna. Sigraði Fram á vítakastskeppni Islandsmeistarar Fram og Ar- mann i meistaraflokki kvenna i handknattleik háðu haröa baráttu I úrslitaleik bikarkeppni HSt i Laugardalshöllinni I gærkvöldi. Það var ekki fyrr en eftir fram- lcngingu og vitakastskeppni að úr þvi fékkst skorið að Ármann er bikarmeistari. Bæði liö voru sýnilega tauga- óstyrk og illa gekk að finna leið- ina i markið. Leikurinn varð lika heldur tilþrifalitill, litil ógnun i spilinu og linuspil sama og ekk- ert. Þegar liðin virtust ekki geta komiðsérsaman um hvort ætti að sigra, tók Magnea Magnúsdóttir I marki Armanns af skarið og varði m jög vel tvö viti i vitakasts- keppninni: Armann sigraði þvi 16:14. Að venjulegum leiktima loknum stóð 11:11. 1 framleng- ingu skoruöu liðin sitt úr hvoru viti. Forráöamenn Armanns hafa sennilega ekki búist við sigri liös sins, þvi að enginn var mættur til að samfagna ármannsstúlkunum eða vera við myndatökuna. -VS. 1 liði FH voru þeir bestir Geir og Viðar — auk Birgis, sem áður er getið. Geir er nú aftur kominn með töluna 10 á bakið og hvort sem það er þvi að þakka, þá er hann i mjög góðu formi um þess- ar mundir. Fyrir FH skoruðu Geir og Viðar 6, þar af Viðar úr einu viti, Guðmundur Sveinsson 4, tvö viti, Guðmundur Arni, Gils Stefánsson og Sæmundur Stefáns- son eitt hver. Jón Karlsson og Guðjón Magnússon sýndu bestan leik valsmanna. Einnig Þorbjörn Guðmundsson, stór og sterkur leikmaður. Fyrir Val skoruðu Jón Karlsson 6, þar af fyrsta markið úr viti, Þorbjörn Guömundsson 5, Víkingar 6 skíðum Skiðadeild Vlkings gengst fyrir innanfélagsmóti við skiðaskála félagsins dagana 15. til 19. april. Keppt verður I svigi og stórsvigi i öllum aldursflokkum. Innritun og upplýsingar verða veittar i simum 23269 og 82409 fyrir miðvikudagskvöld eða i skiðaskála félagsins. Þeir , sem hafa áhuga á að dvelja um páskan i skiöaskála félagsins, tilkynni sig i áðurnefnd sima- númer. eitt viti, Guðjón Magnússon 3, Steindór Gunnarsson, Gunnsteinn Skúlason og Agúst ögmundsson eitt hver. Leikinn dæmdu þeir Karl Jó- hannsson og Hannes Þ. Sigurðs- son og gerðu það vel að vanda þótt ekki væru allir sammála sumum dómum þeirra. — VS Leikmenn FH voru ánægðir eftir sigurinn yfir Val i úrslita- leik bikarkeppninnar i hand- knattleik karla. Hér faðmar Birgir Finnbogason markvörður „lukkutröll” liðsins, Mugg, en hann var manna ánægðastur i Höllinni i gærkvöldi. Ljósmynd Einar AKUREYRINGAR EINRÁÐIR Á UL-MÓTINU Fengu sex íslandsmeistara af sjö ó unglingameistara mótinu í lyftingum Akureyringar voru svo gott sem einráöir á unglingameistara- mótinu ilyftingum.sem háðvar á Akureyri um helgina. Var varla við öðru að búast þvi að þeir áttu nær alla keppendur sem tóku þátt i mótinu. I keppnina voru skráðir tólf utanbæjarmenn, en þegar til kom sýndi aðeins einn þeirra Akur- eyringunum — og mótinu — þá virðingu að mæta. Hinir ellefu létu ekki sjá sig. Þessi eini var Birgir Borgþórsson KR, og hreppti hann einn af sjö Islands- meistaratitlunum sem keppt var um — hinir sex fóru til heima- manna. Sigurvegarar i einstaka þyngdarflokkum á mótinu uröu þessir, piltar Fluguvigt: Magnús Loftsson IBA, snaraði 42,5 kg og jafnhattaði 60 kg — Samtals 102,5 kg. Dvergvigt: Gunnar Torfason IBA, snaraöi 47,5 kg og jafnhatt- aði 67,5 kg — samtals 115 kg. Magnea Magnúsdóttir mark- vörður hjá Ármanni var hetja dagsins þegar Armann vann góðan sigur á Fram i úrslitaleik bikarkeppninnar i handknatt- leik. Hún varði glæsilega tvö viti I vitakastskeppninni, sem háð var eftir framlengdan leik i gærkvöldi. Þetta kunnu þær vel að meta stöllur hennar i Ár- manni og „tolleruðu” hana að leik loknum. Reyndar voru allar Armannsstúlkurnar uppi i skýjunum eftir sigurinn og eru tæplega komnar niður ennþá. VS/Ljósmynd Einar. Fjaröurvigt: Heimir Magnússon ÍBA, snaraði 47,5 kg og jafnhatt- aði 67,5 kg — samtals 115 kg. Léttvigt: Birgir Borgþórsson KR, snaraði 55 kg og jafnhattaði 90 kg — samtals 145 kg. Millivigt: Freyr Aðalsteinsson IBA, snaraði 80 kg og jafnhattaði 105 kg — samtals 185 kg. Léttþungavigt: Kristján Falsson IBA, snaraði 92,5 kg og jafnhatt- aði 112,5 kg — samtals 205 kg. Milliþungavigt: Jakob Bjarnason IBA, snaraði 72,5 kg og jafnhatt- aði 90 kg — samtals 162,5 kg. Ekki var keppt i þungavigt eða yfirþungavigt á mótinu. — klp Júdósambandið sendir júdókappanum tóninn! Vegna ummæla Gunnars Guðmunds- sonar á iþróttasiðu Visis i gær, vill stjórn Júdó- sambands íslands taka fram eftirfarandi: 1. Val islenska landsliðsins og skipan landsliðsmanna i keppni er að sjálfsögðu i höndum landsliðsþjálfarans. Þetta veit Gunnar Guðmundsson eins og aðrir júdómenn, og dylgjur hans um annað eru bein móðgun við landsliðs- þjálfarann sem hefur unniö starf sitt af stakri prýði. Stjórn JSl gripur ekki fram fyrir hendurnar á þeim manni sem hún hefur falið landsliðsþjálfun né heldur neinir aðrir ábyrgir aðilar innan júdóhreyfingar- innar. Stjórn JSI ber .fyllsta traust til landsliösþjálfarans og ákvarðana hans um tilhögun keppninnar á Norðurlanda- mótinu. 2. Fyrirkomulag á NM er þannig að tveir menn frá hverju landi mega keppa i hverjum þyngdarflokki. Keppendur íslands I léttmillivigt voru skráðir þeir Halldór Guöbjörnsson og Gunnar Guömundsson. Gunnar hafði þarna nákvæmlegá sömu möguleika og Halldór. Þetta vildi Gunnar hins vegar ekki láta sér nægja og krafðist þess meö mótmælum sinum að fá aö keppa i sveitakeppni lika og keppa alls ekki að öðrum kosti. j. Gunnar hefur búið sér þá reglu sjáifur að landsliðsþjálfari sé i ákvöröunum sinum um Norðurlandamótið bundinn af úrslitum i Islandsmótinu einu saman. Þetta er einkaskoðun Gunnars og I engu samræmi við skynsamlegar ályktanir. Margt fleira þarf að taka með i reikninginn, m.a. frammistöðu á öðrum mótuni, kunnáttu, reynslu og öryggi. Annars virðist Gunnar ekki muna rétt vel úrslitin á Islandsmótinu. Hann hamrar á þvi að Ömar Sigurðsson hafi unnið Halldór Guðbjörnsson i léttmillivigt 20. mars, en sannleikurinn er sá að Ómar tapaði siðan fyrir Halldóri á islandsmótinu i opn- um flokki 27. mars. Þá varö Halldór þriöji, en bæði Gunnar og ómar féllu úr forkeppninni. Hvorici Gunnar né Ómar tóku svo þátt I Tropicana-keppninni 5. aprll. 4 Við hörmum að Gunnar Guðmundsson skuli gera svo litið úr sjálfum sér að auglýsa andúð sina á öðrum keppanda sem meginástæöu þess að hann neitar að keppa á NM. Slik framkoma er ódrengileg og engum iþróttamanni sæmandi. Ef Gunnar Guömundsson hugs- aði rökrétt, ættihann að vita að hvorki honum né Ómari Sigurössyni nægir aö sigra Halldór Guðbjörnsson einu sinni til að sanna að þeir séu betri en hann sem oft hefur unnið þá báða. Auk þess ber á það að lita að Halldór hefur miklu meiri reynslu á stórmót- um og hefur staöið sig miklu betur i keppni við erlenda júdó- menn en þeir félagar. Ef Gunnar Guömundsson vill vera málefnalegur eins og hann lætur i veðri vaka, þá hlýtur hann að gera sér þetta ljóst. 5.Fullyröing Gunnars Guðmundssonar um að hann nafi neitað aö taka við Islands- meistarabikamum er aö okkar mati enn alvarlegri en það sem hér hefur verið rætt um. Gunnar tók formlega við bikarnum meö þökkum hinn 20. mars s.l. eins og vera bar, svo aö það er of seint að neita aö taka við honum núna. Eftir landsliðsæfingu s.l. laugardag var Gunnar að ota bikarnum að stjórnarmönnum JSl meö orðunum: „Hana, það er best að þiö takiö viö þessu, þiö getiö látið Halldór hafa þetta”. Aö sjálfsögöu sinnti þvi enginn, en ekki er ástæða að þegja yfir þessu núna þegar Gunnar hefur opinberlega óvirt bikarinn sem er hluti af íslandsmótinu. Bæði þessi framkoma hans og eins orö hans um að verið sé að dæma af honum tslands- meistaratitilinn eru alvarlegri en svo að hann geti losnaö undan ábyrgð. A það skal lögö áhersla að þetta mál er allsendis óskylt neitun hans um að keppa á NM. Þaö skal tekiö fram að JSt á ekki i neinni deilu við Gunnar Guðmundsson. En vegna þess aö hann hefur hlaupið i blööin með viökvæm einkamál sin, teljum viö nauðsynlegt aö skýra frá stað- reyndum i málinu. Stjórn JSt hafði vonað aö Gunnar sæi aö hann hafði rasað um ráð fram og vildi gefa honum tækifæri til aö sjá að sér. Hann kaus hins vegar að gera þetta að blaöamáli. Það hljótum við að harma, þótt enginn herbrestur veröi við brotthlaup þeirra félaga úr landsliöinu. Stjóm JSI 11 Útlitjð svart hjá Úlfunum Útlitið dökknaði enn frekar hjá Wolves eft- ir tap gegn Arsenal I 1. deildinni ensku i gær- kvöldi. Þeir eru nú i þriðja sæti að neðan, næst á eftir Birmingham, sem lagaði stöðu sina og skipti um sæti við Wolves með góðum sigri yfir Ipswich 3:0. Staðan i leik W’olves og Arsenal var 1:1 þegar Terry Mancini, varnarmaður hjá Arsenal, skallaði i netið hjá Wolves. 2:1. urðu úrslit lciksins. Var þetta fyrsta mark Man- cinis fyrir Arsenal yfir tvö keppnistimabil. Úrslit leikja i ensku deildakeppninni urðu annars þessi:: I. deild. Arsenal — Wolves 2:1 Birmingham City — Ipswich 3:0 Coventry City — AstonVilla 1:1 Íþróttahótíð ó Akranesi! íþróttabandalag Akraness er 30 ára um þessar mundir. Af þvi tilefni gengst Í.A. fyrir miklu iþróttamóti um páskana. Mótið hefst á miðvikudagskvöld i Bjarnarlaug. Þar fer fram frjálsiþróttamót innanhúss með þátt- töku iþróttafólks úr U.M.S.K. og Í.A. og bikarmeistara Í.B.K. Á laugardag verður opið golfmót á golfvellinum, en á iþróttavellinum fer fram bæjarkeppni i knattspyrnu i öllum yngri flokkum milli Akraness og Kópavogs. A sunnudag verður leikið til úrslita i badmintonmeistaramóti Akraness og hrað- mót vcrður i körfuknattleik. Meðal þátttak- enda þar verða islandsmeistarar Ármanns. A mánudag verður borðtennismót Akraness og hraðmót i blaki. i því taka þátt nokkur af bestu liðum landsins. Einnig verður hraðmót i handknattleik og þar eru meðal þátttakenda lið F.H., Vals og Vikings. Þá fara fram mótslit, en fyrirhugað er að afmælishóf verðir sunnudaginn 24. aprfl. • Risinn komst ekki í úrslit Úrslitakeppnin í mestu körfuknattleiks- keppni heims, keppni bandarisku atvinnu- mannanna, hófst i gærkvöldi. t úrslitakeppn- inni taka þátt tiu lið — fimm af austurströnd- inni og fimm af vesturströndinni, og leika þau i tveim riðlum. Liðin sem komust i úrslit af austurströnd- inni voru Boston Celtic, Washington Bullets, Clevcland Buffalo og Philadelphia. Að vestan komust I úrslit Milwaukce, Deatroti, Phoe- nix, Seattle og Golden Stade, sem sigraði I þcssari keppni i fyrra. Boston Celtic og Golden Stade sitja vfir í fyrstu umferð, en koma inn þegar þrjú lið eru eftir. Úrslit i leikjunum i gærkvöldi urðu þessi: Washington sigraði Cleveland 100:95, Milwaukee sigraði Detroit 110:107 og Seattle sigraði Phoenix 102:99. i sambandi við atvinnumannakeppnina i vetur vekur mikla athygli, að Los Angeles Lakers, með risann Kareem Abdul-Jabbar, sem áður hét Lou Alcindor, er talinn besti og dýrasti kröfuknattleiksmaöur i heimi — met- inn á um 800 milljónir islenskra króna — komst ekki i úrslitakeppnina. — klp — • Cruyff ófram fyrir 63 milliónir „Ég er ánægður með aö veröa hér áfram og feginn að vandamál okkar hafa verið sett niöur” sagði Johan Cruyff, hollenski knatt- spyrnusnillingurinn, sem hefur nú skrifað undir viðbótarsamning til eins árs við spánska liðiö Barcelona. Að þessum orðum sögðum þaut hann upp i flugvélina, sem flutti spánska liðið til Englands, þar sem þeir mæta Liverpool i kvöld i siðari leik liðanna i undanúrslitum EUFA-keppninnar i knatt- spyrnu. En i kvöld fæst úr þvi skorið hvaða lið komast i úrslit i Evrópumótunum þremur. Viö undirskrift samningsins fær Cruyff „litlar” 63 milljónir króna, sem er aöeins þóknun fyrir að vilja vera áfram. Kaupiö sitt fær hann svo að auki og alls kyns bónusa og aukagreiöslur aðrar, svo aö varla þarf hann að herða sultarólina á næstunni. —VS

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.