Vísir - 14.04.1976, Blaðsíða 13
Sjönvarp, annan í pöskum, kl. 22,00:
Hvernig gengur að fó
vœndiskonu til þess oð
hefja nýtt og betra líf?
„Aldrei á sunntidögum” heitir
inyndin sem sjónvarpið sýnir að
kviildi annars ipáskum. „Never
«n Sunday” heitir hún á frum-
malinu.en myndin er bandarisk
og frá árinu I!)(i0. Sumir kannast
ef til vill við nafnið og minna má
á samnefnt lag, sem er heldur
hetur |iekkt.
Með aðalhlutverkin fara
Melina Mercouri og Jules
Dassin. Melina Mercouri er
mjög kunn hér á landi, og hefur
ekki ósjaldan verið i fréttunum.
Hún hefur lika talsvert látið
pólitikina i Grikklandi til sina
taka, enda er hún grisk.
Myndin segir frá bandarikja-
manninum Hómer sem kemur
til Grikklands. Þar kynnist hann
hinni lifsglöðu vændiskonu Uliu,
og reynir að fá hana til að leggja
niður atvinnu sina og taka upp
nýtt og fegurra lif. —KA
Meliua Mercouri og Jules Dassin i myndinni „Never on Sunday.”
s
Sjónvarp, annan í pöskum, kl. 21,25:
Ekkert atriði
tekið upp aftur,
og mistök fara
bara með...
Nýr þáttur „í kjallaranum" hefur göngu sína
,,Við vorum lengi að
velta þessu fyrir okkur,
og svo fór að kjallaraum-
hverfið skapaðist. Þetta
tókst svo það vel, að
ómögulegt þótti að rífa
umhverfið allt niður og
eyðileggja það. Því var
ákveðið að hafa þættina
fleiri."
Orn Petersen sagði þetta
þegar við röbbuðum við hann en
hann er umsjónarmaður þáttar
sem hefur göngu sina á annan i
páskum. „1 kjallaranum”
heitir þessi fyrsti þáttur af
flokk tónlistarþátta sem verða
liklega vikulega hér eftir.
Örn kemur ckki fram i
þættinum sem umsjóriarmaður,
heldur sem. framkvæ ndastjóri
kjailarans og rabbar viö þá
sem þar eru ao æfa sig þvi það
sem við sjáum, er æfing fyrir
skemmtun. „Ég er þarna eins
og álfur út.úr hól” sagði Orn
sjálfur.
„Það eina sem ég gerði i
þessu var að koma með hug-
myndina og safna saman
hópnum sem kemur fram. í
sameiningu komum við svo
kjallarastemningunni á.”
„Þetta skeður allt á æfingu”
bætir Orn við. „Berglind Árna-
dóttir og Diabolus in musica eru
þarna að æfa sig og á meðan er
sjónvarpstæki i gangi. Á milli
sjáum við svo atriði i sjón-
varpinu. t.d. hljómsveitirnar
Earth Wind and Fire og Edgar
Winter Group.”
Allt fær að fljóta með
Að sögn Arnar var ekkert
atriði tekið upp aftur. Vélarnar
voru aðeins settar i gang og þó
einhver mistök yrðu. verða þau
bara sýnd með. Þarna er hvort
sem er aðeins um æfingu að
ræða.
„Það datt t.d. kontrabassi i
gólfið og var nærri búinn að
velta öllu um koll, en.það fær að
fljóta með þó við þessu hafi ekki
verið búist. Svo er ekkert verið
að súta það þó menn séu með
majones uppi á kinn, — við
borðuðum nefnilega samlokur
áður.”
En sem sagt, þarna er á
ferðinni upphitun fyrir
skemmtikvöld og rétt i þann
mund sem þættinum lýkur fyrir
sjónvarpsáhorfendur, er tón-
listarfólkið komið i finu fötin,
tilbúið til þess að hefja
skemmtunina...— EA
Sjónvarp, í kvöld, kl. 21,45:
Hún syngur fyrir
okkur í kvöld...
Mary Conolly heitir hún
og ætlar að syngja fyrir
sjónvarpsáhorfendur i
kvöld, í þættinum
„Söngvar frá irlandi".
Undirleik annast Guð-
mundur Steingrimsson,
Árni Scheving, Hlynur
Þorsteinsson og Grettir
Björnsson.
— EA
Dagskró
útvarps
og fleiri
umsagnir
á nœstu
opnu...
Sunnudagur
18. april
páskadagur
17.00 Páskamessa Upptaka i
Dómkirkjunni. Prestur sr.
Þórir Stephensen. Dómkór-
inn syngur undir stjórn
Ragnars Björnssónar. Ein-
söngvarar Inga Maria
Eyjólfsdóttir, Ingibjörg
Marteinsdóttir og Jón Vig-
lundsson. Stjórn upptöku
Örn Harðarson.
18.00 Stundin okkar Sýnd
verður mynd um hænuunga,
og Gúrika syngur nokkur
þekkt lög. Baldvin Halldórs-
son segir seinni hluta sög-
unnar um papana þrjá,
sýnd verður danssaga um
undinn Lubba og köttinn
Lóu, og loks verður litið inn
til Pésa, sem er einn heima.
Umsjónarmenn Hermann
Ragnar Stefánsson og Sig-
riður Margrét Guðmunds-
dóttir. Stjórn upptöku
Kristin Pálsdóttir.
Illé
20.00 Fréttir og veður
20.15 BóndiÞorsteinn Jónsson
gerði þessa kvikmynd á ár-
unum 1971-1975 við tsa-
fjarðardjúp. Myndin fjallar
um bóndann að Kleifum i
Seyðisfirði, Guðmund As-
geirsson, sem stundar
búskap án véla og raf-
magns. Þulur Baldvin Hall-
dórsson.
20.45 A Suðurslóð (South Rid-
ing) Breskur framhalds-
myndaflokkur i 13 þáttum
b'yggður á skáldsögu eftir
Winifred Holtby. Aðalhlut-
verk Dorothy Gutin, Nigel
Davenport og Herminoe
Baddeley. 1. þáttur Sagan
gerist i héraðinu Suðurslóð
á kreppuárunum. Sarah
Burton hefur ung farið að
heiman til að afla sér
menntunar og snýr nú aftur
til að veita stúlknaskóla for-
stöðu. Þýðandi óskar Ingi-
marsson.
21.35 Tónleikar Sameinuöu
þjóöanna Upptaka frá tón-
leikumi New York á degi
Sameinuðu þjóðanna 24.
október sl. Sinfóniuhljóm-
sveit Vinarborgar leikur
„An die Nachgeborenen”
eftir Gottfried von Einem,
ásamt The Temple Univer-
sity Choir. Einsöngvarar
Julia Hamari og Dietrich
Fischer-Diskau.
23.10 Dagskrárlok
Mánudagur
19. april
annar páskadagur
18.00 iþróttir Meðal efnis eru
myndir frá skiðalandsmót-
inu á Akureyri. Umsjónar-
maður Bjarni Felixson.
Hlé
20.00 Fréttir og vcður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Keramik Sjónvarpsleik-
rit eftir Jökul Jakobsson.
Frumsýning. Leikstjóri
Hrafn Gunnlaugsson. Per-
sónur og leikendur: Gunnar
Sigurður Karlsson, Gerður
Hrönn Steingrimsdóttir,
Auður Halla Guðmunds-
dóttir, Nonni Björn Gunn-
laugsson. Hljóðupðtaka Jón
Þór Hannesson. Lýsing
Ingvi Hjörleifsson. Mynda-
taka Snorri Þórisson. Leik-
mynd Björn Björnsson.
Tæknistjóri Orn Sveinsson.
Stjórn upptöku Egill Eð-
varðsson. Tónlistin i leikrit-
inu er samin og flutt af Spil-
verki þjóöanna.
21.25 i kjallaranum Flokkur
tónlistarþátta af ýmsu tagi.
1. þáttur. Umsjónarmaður
þessa þáttar er Orn Peter-
sen. I þættinum koma fram
Diabolus in musica: Aagot
Vigdis Oskarsdóttir, Guð-
mundur Thoroddsen, Jó-
hanna Þórhallsdóttir, Jón
Sigurpálsson, Jóna Dóra
Öskarsdóttir og Páll Torfi
önundarson, svo og Berg-
þóra Arnadóttir. Ennfrem-
ur er brugðið upp myndum
af erlendum hljómsveitum,
t.d. „Earth Wind and Fire”
og „Edgar Winter Group”.
Stjórn upptöku Egill
Eðvarðsson.
22.00 Aldrei á sunnudögum
(Never on Sunday) Banda-
risk biómynd frá árinu 1960.
Leikstjóri Jules Dassin.
Aðalhlutverk Melina Mer-
couri og Jules Dassin.
Bandarikjamaðurinn Hóm-
er kemur til Grikklands.
Hann kynnist hinni lifsglöðu
vændiskonu Illiu, og reynir
að fá hana til að leggja niður
atvinnu sina og taka upp
nýtt og fegurra lif. Þýðandi
Ellert Sigurbjörnsson.
23.30 Dagskrárlok