Vísir - 14.04.1976, Side 15
##
Útvarp, páskadag, kl. 13.15:
„Hann var aldrei neinn
venjulegur faðir...
„Pabbi var aldrei neinn venju-
legur faðir. Hann skammaðist
aldrei og leit frekar á mig sem
jafningja sinn en óreynt barn. Ég
man eftir þvi að eitt sinn þegar ég
var smástrákur fórum við saman
út að sigla. Ég byrjaði að geispa
einhver ósköp, en pabbi sagði
bara: „Sjómaður heldur alltaf
fyrir munninn þegar hann geisp-
ar.” Það var gott að tala við
hann, en þegar ég var 9 eða 10 ára
gamall og fannst ég eiga við
heimsins mesta vandamál að
striða, rakti ég föður minum
raunirnar. Hann hlustaði og þagði
lengi, en sagði svo: „Þú verður að
muna að maður verður að leysa
sin vandamál sjálfur, það getur
enginn annar.”
Sven Bertil Taube heitir sá sem
þetta segir en hann er sonur þess
fjölhæfa sænska listamanns
Evert Taube. 1 útvarpinu á
páskadag er þáttur um Evert
Taube sem nú er nýlátinn. Þar
segir Sveinn Ásgeirsson hag-
fræðingur frá listamanninum og
leikur lög eftir hann.
Nöfn feðganna eru ekki óþekkt
hér, en sjálfsagt eru margir sem
ekki hafa heyrt lög Everts, eða þá
Svens Bertils, en hann gerir ekki
litið að þvi að syngja sjálfur.
En þeir sem ekki hafa heyrt i
Evert fá tækifærið klukkan 13.15 á
páskadag.
— EA
Evert Taube fyrir 16 árum, þegar
hann varð 70 ára, þá var hann
heiðraður i Stokkhólmi.
fDagbók Önnu Frank,f í útvarpi, skirdag kl. 20.05:
Leyndust ú þröngu hóa
loftinu í rúm tvö ór...
Við heyrum leikritið „ Dag-
bók Önnu Frank” i útvarpinu
annað kvöld. Margir muna cftir
leikritinu, en það er samið eftir
„Dagbók ungrar stúlku” eftir
önnu Frank. Bókin kom út i
enskri þýðingu i Bandarikjun-
um árið 1952.
Anna var yngst i hópi átta
gyðinga, sem i rúm tvö ár
leyndust fyrir Gestapómönnum
á þröngu háalofti vörugeymslu-
húss i Amsterdam. í hópnum
voru auk önnu, faðir hennar,
móðir og systir, önnur hjón til
og sonur þeirra, þremur árum
eldri en Anna. Siðan bættist
miðaldra tannlæknir I hópinn.
Anna byrjaði að færa dag-
bókina á 13. afmælisdaginn
sinn, áður en raunir fjölskyld-
unnar hófust, og hélt þvi áfram
þar til nasistar fluttu hana i
fangabúðir i Bergen-Belsen, þar
sem nún lést i mars 1945, aðeins
15 ára gömul.
Mörg verðlaun og
margvislegar viður-
kenningar
Dagbók önnu Frank er ann-
að og meira en skráning at-
burða. Hún er frábær spegil-
mynd af mannveru sem stendur
á þröskuldi lifsins, skapheit og
örlynd, ihugul, ástrik og fram-
gjörn. Siðast i dagbók hennar er
setning, sem segja má aö sé inn-
tak leikritsins: „Ég trúi þvi, að
þrátt fyrir allt séu mennirnir i
innsta eðli sinu góðir.”
„Dagbók önnu Frank” var
frumsýnd á Broadway haustið
1955 og hlaut mörg verðlaun og
margvislega viðurkenningu. En
framar öllu gaf það leikritinu
gildi, að höfundum tókst með af-
brigðum vel að varðveita anda
gyðingastúlkunnar ungu og láta
hreinan æskuhuga hennar tala
til samvisku alls heimsins.
Sýnt i Þjóðleikhúsinu
Leikritið er eftir bandarisku
hjónin Frances Goodrich og Al-
bert Hackett. Þýðingin er eftir
séra Svein Viking, en Baldvin
Halldórsson er leikstjóri. Með
hlutverkin fara: Jón Sigur-
björnsson, Jóhanna Norðfjörð,
Vilhelmina Haraldsdóttir,
Helga Stephensen. Erlingur
Gislason, Bryndis Pétursdóttir,
Randver Þorláksson,
Guðmundur Pálsson, Hákon
Waage og Sunna Borg.
Leikritið var sýnt i Þióðleik-
húsinu árið 1958. — EA
HVAÐ GERIR UTVARPK) FYRIR BORNIN?
Við byrjum á dagskrá
fimmtudagsins.
Þar er morgunstund barn-
anna að venju á dagskrá.
Barnatimi i umsjá Agústu
Björnsdóttur er þennan dag og
er þar fjallað um Vestmanna-
eyjar. Árni Gunnarsson les
sögulegt ágrip, sem Magnús
Magnússon fyrrverandi bæjar-
stjóri tók saman. Rætt verður
við Friðrik Jensson forstöðu-
mann náttúrugripasafnsins i
Eyjum og farið verður i báts-
ferð um Eyjarnar i fylgd Asa i
Bæ. Loks verða svo leikin og
sungin nokkur þekkt Eyjalög.
Útvarpssaga barnanna er á
dagskrá á föstudaginn langa kl.
17.10. Helga Hjörvar les siðari
hluta sögunnar „Blýanturinn”.
Á laugardaginn er morgun-
stund barnanna á dagskrá og
lýkur þá sögunni um Safnarana.
Á páskadag er barnaleikritið
„Dreki á heimilinu” á dagskrá,
og á annan i páskum er barna-
timi i umsjá Guðrúnar Birnu
Hannesdóttur. Verður þar sam-
felld dagskrá um H.C. Ander-
sen. Danski drengjakórinn
syngur og Unnur Björk Lárus-
dóttir, 9 ára og Guðjón Sigurðs-
son 16 ára lesa.
— EA
ar (19)
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Messa i
li-moll eftir Johann Sebastian
Bach: siðari hluti Hljóðritun
frá tónleikum Pólyfónkórsins i
Háskólabiói siðdegis sama dag.
Stjórnandi: Ingólfur Guð-
brandsson. Auk kórsins og
kammerhljómsveitar koma
fram einsöngvararnir Guð-
finna ólafsdóttir, Rut L.
Magnússon, Ásta Thorstensen,
Jón Þorsteinsson, Ingimar
Sigurðsson og Halldór Vil-
helmsson.
13.10 Fréttir. Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
17, april
7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir
kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgun-
leikfimikl. 7.15 og 9.05. Fréttir
kl. 7.30, 8.15, 9.00 og 10.00
Morgunbæn kl. 7.55: Morgun-
stund barnanna kl. 8.45:
Eyvindur Eiriksson lýkur lestri
þýðingar sinnar á „Söfnurun-
um” eftir Mary Norton (21).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Úskalög sjúklinga
kl. 10.25: Kristín Sveinbjörns-
dóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
,, kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 iþróttir. Umsjón: Jón As-
geirsson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan Björn
Baldursson kynnir dagskrá út-
varps og sjónvarps.
16.00 Fréttir.
16.15. Veðurfregnir. tslenzkt mál
Asgeir Blöndal Magnússon
cand mag. flytur þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi.
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Tveir á tali Valgeir Sigurðs-
son ræðir við Björn Bjarnason
fyrrum formann Iðju, félags
verksmiðjufólks i Reykjavik.
20.00 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
20.45 Standrað við i Þorlákshöfn
— annar þátturJónas Jónasson
litast um og spjallar við fólk.
21.45 Visnalög eftir Sigfús Einars-
sonHljómsveit Rikisútvarpsins
leikur: Bohdan Wodiczko stj.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestri Passiu-
sálma lýkur Þorsteinn ö.
ZStejáiensen les 50. sálm.
22.25 Afangar Tónlistarþáttur i
umsjá Asmundar Jónssonar og
Guðna Rúnars Agnarssonar.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
18, aprflPáskadagur
7.45 Litla lúðrasveitin leikur
sálmalög.
8.00 Messa I Akureyrarkirkju.
Prestur: Séra Pétur Sigur-
geirsson vigslubiskup. Organ-
leikari: Jakob Tryggvason.
9.00 Morguntónleikar. (10.10
Veðufregnir). a. Konsert i
D-dúr fyrir trompet, tv óbó, og
fagott eftir Telemann. Maurice
André, Pierre Pierlot, Jaques
Chambon og Paul Hongne
leika. b. Páksaóratoria eftir
Bach. Laurence Dutoit, Maria
Nussbaumer, Franz Gruber,
Ottó Wiener, Kammerkórinn
og Pro Musica kammersveitin
i Vin flytja. Stjórnandi: Ferdi-
nand Grossmann. c. Pianókon-
sert nr. 17 i G-dúr (K453) eftir
Mozart. Maria Joao Pires og
kammersveit Gulben-
kian-stofnunarinnar i Lissabon
leika, Theodore Guschlbauer
stjórnar.
11.00 Messa i Dómkirkjunni.
Prestur:Séra Óskar J.
Þorláksson. Organleikari:
Ragnar Björnsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tónleikar.
13.15 Evert Taube. Sveinn As-
geirsson hagfræðingur segir
frá hinum fjölhæfa sænska
listamanni og leikur lög eftir
hann.
14.15 Miðdegistónleikar: Tvær
sónötur eftir Beethoven. Alfred
Brendel leikur Pianósónötu nr.
14 i cis-moll op. 27 nr. 2
, ,Tunglsskinssónötuna ”.
Joseph Szigeti og Béla Bartók
leika Sónötu i A-dúr fyrir fiðlu
og pianó op. 47, „Kreutzer-
sónötuna”.
15.00 Endurtekið efni. a.
Vertiöarpáskar til forna. Séra
Jón Thorarensen flytur erindi.
(Aður útv. 1967). b. Hvernig
tekur fólk þvi aö missa sjón?
Gisli Helgason ræðir við
Halldór Rafnar lögfræðing, og
Elinborg Lárusdóttir blindra-
ráðgjafi segir frá starfi sfnu
(Aður útv. 13. jan. i vetur).\
16.00 Létt lög frá Kanada. (16.15
veðurfregnir).
17.00 „Dreki á heimilinu” barna-
leikrit samið upp úr sögu Mary
Catheart Borer. Birgitta
Boham bjó til útvarpsflutnings.
• Þýðandi: Ingibjörg Jónsdóttir.
Leikstjóri: Stefán Baldursson.
Persónur og leikendur: Frú
Pergelli: Þóra Friðriksdóttir,
Peter: Þórhallur Sigurðsson,
Judy: Sólveig Hauksdóttir,
Paddy ogdrekinn: Guömundur
Pálsson, Bobby: Stefán Jóns-
son, Frú Ferber: Kristbjörg
Kjeld, James: Randver
Þorláksson,Morgan: Valdimar
Helgason.
17.50 Stundarkorn meö italska
fiðiuleikaranum Ruggiero
Ricci.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.25 „Hjónakornin Steini og
Stina”, gamanleikþáttur eftir
Svavar Gests. Persónur og
leikendur i tiunda og siöasta
þætti: Steini: Bessi Bjarnason,
Stina: Þóra Friðriksdóttir,
Maddý: Valgerður Dan.
19.45 Gestir i útvarpssal. Eric
Wilsonog Thelma Guttormsson
leika á selló og pianó Elegy op.
24 eftir Gabriel Fauré, Fanta-
siestucke op. 73 eftir Robert
Schumann og Spænska dansa
eftir Manuel de Falla.
20.15 „Þegar lýsti af degi” Elias
Mar tekur saman dagskrá um
páska með ivafi úr bókmennt-
um og tónlist. Lesarar með
honum: Kristin Anna Þórarins-
dóttir og Gunnar Stefánsson.
21015 Fantasiur fyrir pfanó og
hljómsveit eftir Debussy og
Fauré Pierre Barbizet og
Sinfóniuhljómsveit útvarpsins i
Strassborg leika, Roger Albin
stjórnar.
21.55 Kaflar út „Eiðnum” ljóöa-
flokki Þorsteins Erlingssonar
Gils Guðmundsson og Sigriður
Eyþórsdóttir lesa.
22.15 Veðurfregpir. „Requiem” —
Sálumessa eftir Giuseppe
Verdi.Hljóðritun frá tónleikum
f Háskólabiói 8. þ.m. Flytjend-
ur: Söngsveitin Filharmonfa og
Sinfóniuhljómsveit Islands.
Einsöngvarar: Fröydis Klaus-
berger, Rut Magnússon,
Magnús Jónssonuog Guð-
mundur Jónsson. Stjórnandi:
Karsten Andersen. Baldur
Pálmason kynnir.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR
19. april
Annar páskadagur
8.00 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir og veðurfregnir.
9.05 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Minningar-
tónleikar um Franz Liszt frá
útvarpinu i Búdapest. István
Lántos organleikari, ImreRoh-
mann pianóleikari, István Gati
baritón og kammerkór Tón-
listarskóians I Búdapest flytja
verk eftir Liszt. Stjórnandi:
István Párkai. b. Andleg lög
eftir AntonBruckner, Hans Leo
Hassler o.fl. Hollenzki útvarps-
kórinn syngur. Stjórnandi:
Carel Laout.
11.00 Messa I Selfosskirkju
Prestur: Séra Sigurður
Sigurðsson. Organleikari:
Glúmur Gylfason.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.15 Þættir úr nýlendusögu Jón
Þ. Þór cand. mag. flytur fjóröa
hádegiserindi sítt: nýlendu
kapphlaup og heimsvalda-
stefna á 19. öld.
14.00 Dagskrárstjóri I eina
klukkustund Hannes Pétursson
skáld ræður dagskránni.
15.00 Fyrsta danslagakeppni á is-
landi. Svavar Gests dregur
fram i tali og tónum ýmiss
konar fróðleik frá danslaga-
keppni á Hótel Islandi 1939.
16.15 Veöurfregnir. Fréttir.
16.25 Framhaldsleikritiö: „Upp á
kant við kerfið”.011e Lansberg
bjó til flutnings eftir sögu Leifs
Pandurœ. Þýðandi: Hólmfriö-
ur Gunnarsdóttir. Leikstjóri:
Gisli Alfreðsson. Persónur og
leikendur i áttunda og siðasta
þætti: Daviö: Hjalti Rögn-
valdsson, Lisa: Ragnheiður
Steindórsdóttir, Schmidt, lækn-
ir: Ævar R. Kvaran,
Marianna: Helga Stephensen,
Traubert: Helgi Skúlason,
Mamma: Herdis Þorvaldsdótt-
ir, Kamma: Sigrún Björnsdótt-
ir, Hugo: Bjarni Stein-
grimsson.
17.05 Barnatimi: Guðrún Birna
Hannesdóttir stjórnarSamfelld
dagskrá um H.C. Andersen.
Danski drengjakórinn syngur.
Unnur Björk Lárusdóttir (9
ára) og Guðjón Sigurðsson (16
ára) lesa.
18.00 Lúðrasveit Kópavogs leikur
Stjórnandi: Björn Guðjónsson.
Kynnir: Jón Múli Arnason. Til-
kynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Frá Hallgrimi Scheving Dr.
Finnbogi Guðmundsson flytur
erindi.
20.00 Einsöngur i útvarpssal:
Hreinn Lindal syngur lög eftir
Grieg, Schubert, Donaudy,
Tostiog Respighi. Ölafur Vign-
ir Albertsson leikur á pianó.
20.20 Að vera húmoristi Björn
Vignir Sigurpálsson og Arni
Þórarinsson sjá um þáttinn.
21.05 Kvöldtónleikar Flytjendur:
Sinfóniuhljómsveit útvarpsins i
Hamborg og Gerhard Puchelt
pianóleikari. Stjórnandi: Her-
bert Esser a. „Egmont” — for-
leikur eftir Beethoven b. Pianó-
konsert nr. 1 i C-dúr op. 11 eftir
Weber. c. Sinfónia f D-dúr eftir
Schubert.
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir Danslög (23.55
Fréttir)
01.00 Dagskrárlok.