Vísir - 20.04.1976, Blaðsíða 13
IpFpttir
JIS
Þriðjudagur 20. april 1976. vism
vism Þriðjudagur 20. april 1976.
Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal
Það sýndi sig glöggt I aipa-
greinunum á skiðalangsmótinu á
Akureyri um páskana, að ungling-
arnir eru að taka þar öll völd. i
svigi karla voru 7 af fyrstu 10 i
keppninni undir 20 ára aldri og i
stórsviginu voru 9 af 10 fyrstu
undir tvitugt. i keppni kvenfólks-
ins var þetta enn meira áberandi.
En þar voru allar stúikurnar
undir tvitugt.
A ýmsu gekk i alpagreinunum
eins og venjulega, og spilaði þar
veðrið stórt hlutverk. Var það
mjög misjafnt keppnisdagana —
og var um tima allt komið úr
skorðum hjá mótanefndinni. En
henni tókst að koma öllu i lag aft-
ur þegar veðrið batnaði, og fór
þvi allt vel að lokum.
Að venju beindust augu flestra
á mótinu að keppninni i svigi og
stórsvigi karla og kvenna og var
þar að vanda ýmislegt skemmti-
legt að sjá enda keppnin hörð og
spennandi.
Steinunn Sæmundsdóttir
Reykjavik varð sigurvegari i
stórsvigi kvenna — fékk saman-
lagðan tima 130,01 sek. önnur
varö Aldis Arnardóttir Akureyri á
133,61 sek., þriðja Margrét Vil-
helmsdóttir Akureyri á 135,35 sek
og Anna Erlingsdóttir Reykjavik
fjórða á 143,08 sek. Alls kepptu 13
stúlkur i stórsviginu og komust 5
alla leið i mark i báðum ferðum.
1 svigi kvenna var hörð keppni
á milli Margrétar Baldvinsdóttur
Akureyri og Steinunnar Sæ-
mundsdóttur, Reykjavik. Þar
tókst Margréti að hafa betur —
fékk samanlagöan tima 88,80 sek.
en Steinunn fékk timann 89,11
sek. Maria Viggósdóttir Reykja-
vik varð þriðja á 91,01 sek. Fjórða
var Aldis Arnardóttir, Akureyri á
91,10 sek og fimmta Katrin Fri-
mannsdóttir Akureyri á 91,53 sek.
1 sviginu féll ólympiufarinn
Jórunn Viggósdóttir, Reykjavik i
siðari umferðinni eins og i stór-
sviginu — og er þvi ekki hægt að
segja að þetta hafi verið hennar
mót.
Það er heldur ekki hægt að
segja um Hauk Jóhannson frá
Akureyri i keppni karlmannana.
Hann varð að hætta keppni i stór-
svigi og gera sér að góðu fjórða
sætið i svigi. Þá fór einnig allt úr
skorðum hjá honum i flokkasvig-
inu, þar sem sveit Akureyrar var
með öruggan sigur.
Morton
sigraði
Þrótt 5:0
i gærkvöldi tapaöi 1.
deildariið Þróttar i knatt-
spyrnu fyrir skoska 1. deildar-
iiöinu Morton meö fimm
mörkum gegn engu.
Þróttararnir eru f æfinga-
búöum og keppnisferðalagi i
Skotlandi, og var þetta fyrsti
ieikur liösins þar. MÞORTON
HÍELT SÆTI S$INU $1 1.
deildinni — næstu deild fyrir
neöan deildina sem Celtic og
önnur stórliö i Skotiandi eru i
— en hefur ekki vegnaö sem
best þar til nú i siöustu
leikjum.
Framkvæmdarstjóri
Morton en Joe Gilroi, sem
þjálfaöi Val s.l. sumar. Hefur
honum gengiö upp og ofan
meö liöiö i vetur, en er nú aö
sögn skosku blaðanna aö ná
þvi saman og gera úr þvi mjög
létt leikandi liö. — klp—
Júgóslavarnir
nóðu jafntefli
Jugoslavia og Ungveijaland
geröu jafntefli »:0 i landsleik i
knattspyrnu. sem báöur var i
Ilanja Luka i Jugóslaviu um
belgina.
Júgósla vneska liðiöolli miklum
vonbrigöum og verður að gera
betur en þetta i 8-Iiða úrslitunum
gegn Wales i Evrópukeppni
landsliöa n.k. laugardag.
Tómas Leifsson og Margrét
Baldvinsdóttir, Akureyri,
ánægö á svipinn eftir sigurinn i
svigi karla og kvenna á skiöa-
landsmótinu á Akureyri, sem
háö var um páskana.
Ljósmynd Jón Einar
spennan. Jóhannes tapaöi sinni viður-
eign, llalldór vann sina á ippon — 10
stigum, Viöar vann á 3 stigum, GIsli
geröi jafntefli, og Svavar tapaöi með 7
stigum. Jafntefli — og þó! Þegar stig-
in voru talin saman, höföu islendingar
13, en finnar 12. En þar meö voru is-
lendingar komnir i annaö sæti sveita-
keppninnar.
„Viö hefðum ekki komist þetta langt
i sveitakeppninni ef Gunnar Guö-
mundsson heföi keppt I staöinn fyrir
llalldór Guðbjörnsson. Sigur Halldórs
með 10 sligum hafði allt aö segja,”
sagöi Þóroddur.
A tveimur árum hefur islensk júdó-
sveit þvi sigrað öll hin Norðurlöndin
a.m.k. einu sinni í sveitakeppni á
Noröurlandamótum.
Eins og fyrr sagöi, vann Gisli Þor-
steinsson aUar sinar viðureignir i ein-
staklingskeppninni. Svo skemmtilega
vildi til, að I úrsUtakeppninni glimdi
GisU viö landa sinn Sigurjón Ingvars-
son. Sem sigurvegari i sinum riðli átti
Gisli aö keppa við annan mann i hinum
riöli léttþungavigtarinnar, og þaö var
Sigurjón. Þeir glimdu af mikilli hörku
i fimm minútur, þar til GIsli sigraði.
Sigurjón varö þvi i þriöja sæti, ásamt
svia.
Halldór Guðbjörnsson náöi i brons-
verölaun i léttmilliviglinni, eftir aö
liafa tapað fyrir mjög sterkum svia.
Viöar Guðjohnsen glimdi um þr-iðja.
sætið i millivigtinni, einnig viö svia, og
var það mjög jöfn viðureign. Hvorugur
lekk stig, en Viðari var dæmdur sigur-
inn.
Kári Jakobsson keppti einnig i milli-
vigtinni, en gekk ekki nógu vel, þótt
liann stæði af þrautseigju i keppendun-
um.
Jóhannes Haraldsson og Sigurður
Pálsson kepptu i léttvigtinni, en fóru
halloka fyrir flestum andstæðingum
sinum. Þó náðu þeir að næla sér i einn
vinning hvor.
Svavar Carlsen kcppti ekki i ein-
staklingskeppninni i þungavigtinni, en
það gerði Hannes Kagnarsson. Þótt
liann kæmist ekki i úrslit, barðist hann
af mikilli hörku, og mátti stundum
varla á milli sjá hvernig gliman færi.
Benedikt Pálsson, sem fór sem ann-
ar inaður i léttþungavigtinni, keppti
ekki i einstaklingskcppninni, lieldur
opna (lokknum, og var liann eini is-
lendingurinn þar. En Benedikt haföi
ekki roö við þungavigtarmönnunum
sem kepptu i opna flokknum.
Þóroddur fararstjóri sagði að sam-
staða hefði verið mjög góö i landslið-
inu og m jög ánægjulegt aö vera i þeim
liópi. Þóroddur var cinn af dómurum
mólsins og haföi nóg að gera keppnis-
dagana tvo. M.a. lenti hann i aö dæma
nokkrar glimur Islendinga.
Unglingarnir að
taka öll völd
ÓLAFSFIRÐINGAR SÓPUÐU
AÐ SÉR VERÐLAUNUNUM
Gísli Þorsteinsson I efsta þrepinnu eftir sigurinn I léttþungavigt á Noröurlandamótinu I júdó. Hægra megin viö
hann er Benny Kleeman, Danmörku, sem varö annar, en vinstra megin Sigurjón Ingvason, tslandi og Roland
Bexander, Sviþjóö sem hlutu bronsverölaunin I þessum flokki.
islenska landsliðið réð sér
varla af kæti þegar heim
kom frá Norðurlandamót-
inu i júdó i gær. Landsliðið
kom með ein gullverðlaun
upp á vasann, ein silfur-
verðlaun og tvö brons.
Arangur Gisla Þorsteinssonar I létt-
þun gavigtinni vakti að sjálfsögöu
mesta ánægju. Gisli varö Norður-
landameistari og það með glæsibrag,
þvi að hann sigraði I úrslitaviðureign-
inni meö kasti sem gaf honum ippon —
10 stig. Landsliöinu gekk‘einnig vel i
sveitakeppninni, lenti i. ööru sæti, en
sviar i fyrsta.
Þóroddur Þórhallsson, sem var far-
arstjóri landsliðsins i förinni til Gauta-
borgar i Sviþjóð, sagöi að sviar heföu
verið áberandi sterkastir á Norður-
landamótinu. Sveit þeirra bakaöi Is-
lcnsku sveitina. Þó stóö Viðar Guö-
johnsen nokkuö vel I sinum keppinaut
og tapaöi ekki nema meö 3 stigum.
tslendingum gekk hins vegar betur
gegn hinum norðurlandaþjóðunum.
Þeir unnu 3 glimur viö norömenn I
sveitakeppninni, töpuöu 2. Sömu úrslit
uröu i keppninni viö dönsku sveitina.
Þegar kom aö finnunum, jókst
Hann gleymdi einu hliöinu i
siöari umferðinni og varö að fara
til baka, svo aö sveit hans yröi
ekki dæmd úr leik. Viö það tapaöi
hann það miklum tima, aö sveit
ísafjaröar skaust upp i fyrsta
sætið — fékk samanlagðan tima
394,7 sekúndur. Akureyrarsveitin
fékk aftur á móti timann 404,09
sek. Munaði þar öllu um „göngu-
ferð” Hauks aftur úpp brekkuna.
Sveit Reykjavikur varð i þriðja
sæti i flokkasvigi karla á 451,49
sek. Akureyrarsveitin sigraði
aftur á móti auðveldlega i flokka-
svigi kvenna þvi þar var sveit
Reykjavikur — eini andstæðing-
urinn, dæmd úr leik.
Stórsvig karla varð að fara
fram á tveim dögum vegna
veðurs. Eftir fyrri daginn — og
fyrri umferðina — var Sigurður
Jónsson Isafirði með forystu og
hélt sinu striki daginn eftir. Fékk
hann samanlagðan tima 132,5)
sek. Tómas Leifsson Akureyri
varð annar á 134,02 sek og Karl
Frimannsson Akureyri þriðji á
134,63 sek. 1 fjórða sæti kom svo
Björn Vikingsson Akureyri en
fimmti varð Bjarni Sigurðsson,
Húsavik.
Alls logðu 31 af stað i stórsvig-
inu en aðeins 13 komust alla leið.
Féllu margar stjörnur úr — þar á
meðal Haukur Jóhannsson og
Arni Óðinsson.
I sviginu voru keppendur álika
margir en 17 komust þá alla leið,.
Þar á meðal voru þeir Arni og
Haukur, en aftur á móti féllu
kappar eins og isfirðingarnir Sig-
urður Jónsson og Hafþór Július-
son.
Tómas Leifsson varð sigurveg-
ari i svigkeppninni — hlaut
timann 98,07sek. Karl Frimanns-
son varð annar á 99,01 sek. Árni
Óðinsson þriðji á 99,28 sek, og
Haukur Jóhannsson fjórði á 100,53
sek— .ar.ureyringar sem sé i fjór-
um fyrs u sætunum.
Tómas Leifsson varð sigurveg-
ari i alpatvikeppni karla, og
bjuggust ekki margir við þvi
fyrirfram. Þvi siður að hinn bráð-
efnilegi Akureyringur, Karl Fri-
mannsson, sem er aðeins 16 ára
gamall yrði þar i öðru sæti — en
hann varð annar i svigi pg þriðji i
stórsvigi. Húsvikingar áttu þriðja
mann i alpatvikeppninni, Bjarna
Sigurðsson, og kom hann i veg
fyrir þrefaldan sigur Akureyrar
þar, þvi Björn Vikingsson Akur-
eyri varð i fjórða sæti.
I alpatvikeppni kvenna sigraði
Steinunn Sæm u ndsd ót t i r
Reykjavik. Aldis Arnardóttir
Akureyri varð önnur, Margrét
Vilhelmsdóttir, Akureyri þriðja
og Anna Erlingsdóttir, Reykjavik
fjórða. —klp—
— Fljótamaöurinn Magnús
Eiriksson sem nú keppir fyrir
Siglufjörö kom skemmtilega á
óvart i göngukeppninni á skiöa-
landsmóti islands á Akureyri.
Magnús sem ekki komst i
olympiuliö islands i vetur, sigraöi
i 15 og 30 km göngu og skaut þar
aftur fyrir sig þeim Halldóri
Matthiassyni og Trausta Sveins-
syni, sem valdir voru í liðið eftir
haröar deilur.
Magnús var nær 3 minútum á
undan Halldóri i 15 km göngunni
og nær 4 minútum á undan næsta
manni í 30 km. I 15 km fékk hann
timann 53,54 min. Halldór 56,20
min, Trausti 57,31 min en
Kristján R. Guðmundsson ísa-
firði, sem varð fjórði , fékk tim-
ann 58,23 min.
1 30 km fékk Magnús timann
92,10 min, Reynir Sveinss., Fljót-
um 96,55 min, Halldór Matthias-
son, Akureyri 98,05 og Kristján
103,38 min. Þar hætti Trausti
keppni.
Haukur Sigurðsson, Ólafsfirði
varð einnig tvöfaldur sigurvegari
i göngu eins og Magnús, en hann
keppti i flokki pilta 17 til 19 ára.
Hann fékk timann 41,02 i 10 km
göngu, Þorsteinn Þorvaldsson
Ólafsfirði varð annar á 42,36 min
og Jónas Gunnlaugsson, tsafirði
þriðji á 44,57 mih. I 15 km göngu
fékk Haukur timann 51,39 min.
Bjöm Asgrimsson, Siglufirði varð
annar á 52,30 micmin og
Þorsteinn Þorvaldsson, Ólafsfiröi
þriðji á 53,13 min.
Haukur sigraði i tvikeppni i
göngu 17 - 19 ára, Þorsteinn varð
annar og Jónas þriðji. 1 tvikeppni
fullorðinna sigraði Magnús Eir-
iksson, Halldór Matthiasson varð
annar og Reynir Sveinsson þriðji.
í 3x10 km boðgöngu sigraði
sveit Ólafsfjarðar — i henni vom
Jón Konráðsson, Haukur Sigurðs-
son og Björn Þór Ólafsson. Fékk
Ólafsfjarðarsveitin timann 114,14
minútur — 43 sekúndum betri
tima en sveit Siglufjarðar sem
var á 114,57 min. Fljótamenn
urðu þriðju á 115,20 min, en
tsfirðingar timann 115,27 min.
Var þetta mikil og hörð keppni
eins og sjá má á timunum.
ólafsfirðingar komu mjög
glæsilega frá mótinu — hlutu alls
átta gullverðlaun. Er það mikili
sigur fyrir ekki stærri kaupstað
en ólafsfjörður er. Geta
ólafsfirðingarmikið þakkað þann
sigur Birni Þór Ólafssyni, sem
ekki aðeins flutti fyrir Múlann
mörg góð verðlaun, sem hann
hafði unnið sjálfur, heldur hefur
hann einnig lagt grundvöllinn að
árangri hinna meö því að kenna
þeim og aðstoða á allan hátt
undanfarin ár.
Björn varð sigurvegari i skiða-
stökki — átti þar lengsta stökkið
48 metra — og fékk 243 stig.
Marteinn Kristjánsson Siglufirði
varð annar með 214,3 stig og
Viðar Konráðsson þriðji með
193,5 stig. Björn gerði enn betur i
stökki i norrænni tvikeppni —
stökk þá 51 metra ogsigraði, enda
einnig með besta timann i göngu.
Fékk hann þar samtals 541,53
stig. Orn Jónsson, ólafsfirði varð
annar i norænni tvikeppni með
453,74 stig og Sigurjón Erlends-
son, Siglufirði þriðji með 386,74
stig. t norrænni tvikeppni 17-19
ára sigraðiaftur á móti Þorsteinn
Þorvaldsson, ólafsfirði, sem
hlaut 284,27 stig.
Þorsteinnsigraði einnig i stökki
17-19 ára, Jóhann Sigurðsson,
Ólafsfirði varð annar og
Hallgrimur Sverrisson Ólafsfirði
varð þriðji.
-klp-
Gunnar með til-
boð fró
Sænska handknattleiksliðið
Ilelsingborg, sem er i 2. deild,
bauð í siðustu viku Islendingunum
Gunnari Einarssyni, sem leikur
með þýska liðinu Göppingen að
koma til Sviþjóðar til umræðna
um að leika með liðinu næsta vet-
ur.
,,Eg þáði boðið, enda buðu þeir
Oskum Óskari Þórarinssyni, skipstjóra, á
mb. FRA og áhöfn hans, innilega til ham-
ingju meó sinn stórglæsilega afla, sem
þeir lönduóu nú fyrir skömmu — fullfermi
íeinum róóri.
Gæfa og gengi fylgi þeim í framtíóinni og megi
bátur og búnaóur allur reynast þeim sem best.
Mb. FRÁR VE 208 er búinn nýrri
CATERPILLAR D 353 aflvél, sem
er 425 hö v/1225 sn/mín.
CATERPILLAR
BATAVÉLAR
HEKLA hf
Laugavegi 170-172, — Sími 21240
Caterpillar, Cat, og CB eru skrásett vörumerki
Svíþjóð
ágæta aðstöðu til náms og ýmis-
legt annað” sagði Gunnar er við
höfðum tal af honum i Þýskalandi
i gærkvöldi.
,,t þessu sænska liði er einn
dani — Lars Bock — og er þetta
ágætis liö að sjá. Ég held samt að
ég sleppi þessu boði, enda hef ég
ágætis boð héðan frá Þýskalandi
sem ég er að kanna, en það er þó
ekki ákveðið.
Um næstu helgi leikum við
aukaleik um sæti i 1. deildinni i
handknattleik hér i Þýskalandi —
mætum þá Bad Schwartau hér i
Göppingen, og er löngu uppselt á
þann leik. Ólafur leikur þá sinn
fyrsta leik meö Göppingen. Um
þar næstu helgi mætum við svo
Bad Schwartau á þeirra heima-
velli, en það liðið sem hefur betur
út úr þessum tveim leikjum
verður áfram i 1. deildinni næsta
ár, en hitt fellur i 2. deild.
Úm næstu helgi hefst einnig úr-
slitakeppnin um þýska meistara-
titilinn. Þá mætir Dankersen með
þá Ólaf H. Júnsson og Axel Axels-
son Dietzenbach á útivelli og
Gummersbach leikur við Rint-
heim. Þau lið sem sigra i þessum
leikjum leika svo um meistaratit-
ilinn, og verður það i byrjun
mai”..
—klp—
Golfmenn
byrjaðir
að slá!
Fyrsta opna golfmótið á þessu
ári var lialdið á llornaliröi á
laugardaginn. Þar mættu allir
kyllingar Irá Höfn, en aftur á
móti fáir frá öðrum klúbbum.
Völlurinn var auður — örlitið
frosinn, en það létu keppendur
engin álirif hafa á sig — a.m.k.
ekki Kjartan Árnason læknir,
sem sigraði bæði með og án for-
gjafar. Ilerdis Sigurðardóttir GR
sigraöi i keppni kvenfólksins, og
Rósa Þorsteinsdóttir, Hornafirði
varð önnur.
Fyrsta opna golfmótiö á
Stór-Reykjavikursvæöinu verður
á laugardaginn kemur. Er það
„Uniroial—keppnin”,hjá GK i
Hafnarfirði. Er það 18 holu
keppni, sem hefst kl. 9 á laugar-
dagsmorguninn.
Fyrst við crum á annað borö að
minnast á golf, er rétt að geta
þess fyrir þá sem hafa áhuga á aö
læra Iþróttina, að siðasta innan-
bússnámskeið Þorvalds Ásgcirs-
sonar í vetur hefst i þessari viku,
en allar nánari upplýsingar um
það eru veittar i sima 14310. klp
íslensku keppendurnir á Norðurlandamótinu í júdó
komu heim með gull-, silfur- og bronsverðlaun
Skíðalandsmótið á Akureyri:
Skíðalandsmótið á Akureyri:
Heim til íslands
hlaðnir góðmálmi