Vísir - 22.05.1976, Blaðsíða 24

Vísir - 22.05.1976, Blaðsíða 24
VISIR Föstudagur 21. mal 1976 Neyddur tíl að þiggia laun njó Gœslunni „Kerfiö lætur ekki aö sér hæöa” segir I frétt I nýjasta tölublaöi Dags á Akureyri. Þar er skýrt frá sextán ára pilti sem fyrir ári fór aö fá til- kynningar frá Landhelgis- gæsiunni um aö hann ætti hjá henni orloffé. Þar sem pilturinn hefur aldrei á sjó komiö eöa unnið á annan hátt fyrir stofnunina, tilkynnti hann pósthúsinu mis- tökin. Pósthúsiö lét þaö ganga áfram, en aftur fékk pilturinn tilkynningu. Hann röltiaftur á pósthúsiö til aöleiörétta máliö og pdsthúsiö kom þvi áleiöis, en allt kom fyrir ekki.Piltur- inn fékk hverja tilkynning- una á fætur annarri. Loks viröist kerfiö hafa gripiö til örþrifaráös þvi I staö tilkynningar sendi þaö pilt- inum ávisun upp á rúmlega 74 þúsund krónur. Og svo segir Dagur: ,,Og nú er spurningin þessi: A pilturinn peningana eöa getur hann losnaö viö þá?” ___________________—ÓT Ók á steypta girðingu BDI ók á steinsteypta lóöa- girðingu á Kringiumýri á Akureyri i fyrirnótt, rétt eftir klukkan tvö. Þrir voru i bilnum, tveir far- þegar auk ökumanns. Farþegarnir voru fluttir á slysadeild en fengu siðan að fara heim. Okumaöur kenndi sér ekki meins. Billinn er mikið skemmdur. —EA ffp - - ./jL « |S||g9HB ^ ■ ~ jjr^jrjÉ WB yk -’Éf \ Súgfirsku sjómennirnir og eiginkonur þeirra gáfu sér tfma til aö stilla sér upp sem snöggvast þrátt fyrir mikiö annrlki Mennirnir eru á Sigurvoninni og Kristjáni Guömundssyni og fenguþeir bátana lánaöa I einn róöur til aö afla f jár til Reykjavlkurfarar. — Ljósmyndari Jim. „Frúrnar vildu á ball" — Súgfirðingar drekka í sig menninguna fyrir sunnan Þaö var kátur hópur sem Visismenn hittu á Hótel Esju I gær. Þar eru samankomnar áhafnir tveggja báta á Súgandafirði, Sigurvonarinnar og Kristjáns Guömundssonar ásamt eiginkonum þeirra og er ætlunin aö dveljast I höfuö- borginni fram yfir helgi. Sjógörpunum þótti tilvaliö aö lyfta sér dálltið upp eftir vertiöina og ákváöu að bjóöa konum sinum i stutta menningarreisu. Einhverjum hugvitsmanni datt þá þaö snjallræöi I hug aö fá bátana lánaða I einn róöur og afla þannig fjár til feröarinnar. Útgeröarmönnunum, þeim Öskari Krstjánssyni og Páli Friöbertssyni leist vel á hug- myndina og samþykktu ekki aðeins, aö sjómennirnir fengju allan ágóöann til eigin nota, heldur útveguðu þeir einnig allt sem til þurfti I róöurinn. Bátarnir öfluöu til samans 26 tonn og var þá ekkert lengur til vanbúnaðar. Feröalangarnir sögöust vera staöráönir I aö „teyga í sig menninguna I stórum sopum” fara á, söfn og leikhús eftir þvi sem timi gæfist til og renna auk þess til Þingvalla viö fyrsta tækifæri”. Svo gerum við okkur auövitaö dagamun á Naustinu og Sögu, — frúrnar eru ákveðnar I aö fara hvergi, fyrr en þær hafa komist á t^all,” gall striönislega viö i Einari Guöna- syni, skipstjóra á Sigurvonimji, og frúrnar kinkuöu ákaft kolli tií samþukkis. —AHO Dánarixelur hœkkaðar þegar ekki er hœgt að lífa af laununum „Þaö getur varla heitiö, aö okkur séu boönar launa- hækkanir, af hálfu rlkisins,” sagöi örn Sveinsson, sem sæti á I launamálanefnd Starfs- mannafélags sjónvarpsins 1 viötali viö VIsi. „í tilboði fjármála- ráöuneytisins er aftur á móti boöin hækkun á tryggingar- bótum, þaö er örorku- og dánarbætur úr einni milljón króna I 1,4 milljónir.” Orn sagði, aö þeir sjónvarpsmenn legðu þetta út á þann veg, aö viðsemjendur þeirra gerðu sér grein fyrir, aö varla væri hægt aö lifa af laununum, sem greidd væru, og þess vegna væri óhjá- kvæmilegt aö leggja áherslu á dánarbæturnar og hækka þær. Launahækkunin, sem Starfsmannafélagi sjónvarps- ins og öðrum aðildarfélögum BSRB er boðin nemur 1,8 af hundraði og mun iáta nærri aö þaö samsvari um hálfs launa- flokks hækkun að meöaltali hjá sjónvarpsmönnum. —ÓR Betur heima setið islendingum búsettum i Óöinsvéum i Danmörku finnst málstaður islands hafa veriö fyrir borö borinn i fjölmiölum i Danmörku. Þá finnst þeim þau tækifæri, sem stjórnmálamenn hafi haft til þess aö koma fram þar i landi hafi oft vcriö illa notuö og I sumum tilvikum heföi jafnvel betur verið heima setiö. 75 FRAMSÓKNARMENN ÁSAKA RÍKISSTJÓRNINA Stjórn Framsóknarfélags ölfushrepps hefur gert Itarlega ályktun I sex liðum þar sem rikisstjórnin er vitt fyrir linkind og stefnuleysi. 1 þessu félagi eru samtais 75 manns, þar á meöal margir sjómenn. 1 ályktuninni er mótmælt öllum samningum viö erlendar þjóðir i islenskri fiskveiöi- lögsögu. Þá saka framsóknar- menn stjórnvöld um svik viö þjóöina meö þvi aö framfylgja ekki samningum viö vestur- þjóöverja. Rikisstjórnina saka þeir um aðgeröarleysi gagnvart Atlantshafsbandalaginu og telja að við getum aöeins mótmælt ofbeldi breta og framkomu bandarikjamanna meö þvi aö ganga úr NATO og loka varnar- stööinni. Ennfremur ásaka beir stjórn- völd um áhuga og skilningsleysi á vinnslu nýrra fisktegunda, og viröingarleysi fyrir Islenskum iönaöi. Loks lýsa þeir ánægju meö hugarfarsbreytingu forystumanna Framsóknar- flokksins sem kemur fram i leiðara Þórarins Þórarinssonar, 19. mai sl. Athuga úrsögn „Ég verö aö segja þaö skoöun mina aö ef samningar veröa geröir viö breta mun ég taka þaö til gaumgæfilegrar ihug- unar aö segja mig úr Fram- sóknarflokknum,” sagöi Páll Pétursson, formaöur Fram- sóknarfélags ölfushrepps, I samtali viö VIsi i gærkvöldi. „Viö höfum ekki tekið ákvöröun um hvort viö munum styðja rikisstjórnina áfram. Viö vonum aö þaö verði huearfars- breyting hjá forystu Fram- sóknarfokksins. Oljósan grun höfum við um aö gera eigi leynisamninga. Vildum viö meö þessum álykt- unum segja hug okkar I landhelgismálinu. Ég tel aö fullur einhugur sé i félaginu um þessar ályktanir. Eitt er vist að viö erum óhræddir viö aö láta okkar skoöanir i ljosi.” —EKG I s mmmim’ : 'w' wsmoasá m, ^ S.iíSI ®f Æ í :'5WRBJ5 •í'írai-tHÍ B 'w / . V 'mwuHk Jm ,x- \ iíí ÉÉl VTTr ' M MÉ - % % ||1 i liílkix v V,?.y ^Z^TlSlrZÆ.* V i Víðaer baðoð! I gær voru sjöttu bekkingar frá Mennta- skólanum á Akureyri kvaddir, fyrst við heimavistina og síðan við andapollinn þar sem mikil böðun fór fram. Það má með sanni segja að víðar sé baðað en í Húnaþingi þessa dagana. Vísismynd: Jón Einar Akureyri.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.