Vísir - 24.05.1976, Síða 3
vism Mánudagur 24. mai 1976
3
Aldrei
selt
meira
lagmeti
í einu
Sölustofnun lagmetis hefur gert
samning um sölu á 5 milljónum
dósa af gaffaibitum til Sovétrikj-
anna. Er hér um að ræöa stærsta
sölusamning sem Sölustofnunin
hefur gert, bæði hvað snertir
magn og verðmæti. En útflutn-
ingsverðmæti er áætlað vera um
400 milljónir islenskra króna.
„Það hefur orðið gjörbreyting
hjá lagmetisiðnaðinum siðan
hægt var að fá nægjanlegt is-
lenskt hráefni”, sagði Gylfi Þór
Magnússon, framkvæmdastjóri
Sölastofnunar lagmetis er Visir
hafði samband við hann.
„Vandamál tveggja siðustu ára
hefur verið það að verksmiðjurn-
ar hafa ekki getað unnið úr inn-
lendu hráefni. Þess i stað hafa
þær orðið að láta sér nægja mun
minna og lélegra hráefni að utan.
Eftir að leyft var að veiða sild
hér við land að nýju sköpuðust
verkefni fyrir verksmiðjurnar,
sem munu duga þeim fram i
nóvember.
Sterkari staða
— Nú getum við sýnt fram á
hæfni okkar að framleiða góða
vöru. Það gefur okkur sterkari
stöðu en áður”, hélt Gylfi áfram.
„Verðið á þessum gaffalbitum
sem við seljum nú til Sovétrikj-
anna er sæmilegt. Að visu hefur
það ekki hækkað frá þvi i fyrra.
En framleiðendur geta sætt sig
við það.
Astæðan fyrir þvi er sú, að með
auknu og batnandi hráefni skap-
ast meiri vinnuhagræðing fyrir
verksmiðjurnar.”
Gylfi bent á áð háir tollar i EBE
rikjunum yllu þvi að þessi mark-
aður væri okkur gjörsamlega lok-
aður. Einmitt EBE markaðurinn
hefur verið aðalmarkaðurinn fyr-
ir lagmeti og gekk sala þangað
vel allt fram á árið 1974.
„Vegna þess að bókun sex hefur
ekki tekið gildi er það viðskipta-
leg staðreynd að við erum ekki
með i leiknum á þessu markaðs-
svæði.” —EKG
Nýtt ferðamálaróð fœr
mílljónatugi úr að spila
Nýtt þrettán manna Feröa-
málaráð tslands fær tlu prósent
af árlegu söluverðmæti Fri-
hafnarinnar i Keflavik til að
spila úr. Ráðið tekur við þrem
verkefnum sem Ferðaskrifstofa
rikisins hefur haft með höndum
og hyggur að ýmsum fleiri lið-
um ferðamála.
Frumvarp um hið nýja
Ferðamálaráð tslands var sam-
þykkt skömmu fyrir slit siðasta
þings. Björn Vilmundarson, for-
stjóri Ferðaskrifstofu rikisins,
sagði Visi að framvegis myndi
Ferðaskrifstofa rikisins vinna
sem almenn ferðaskrifstofa,
með þvi að veita upplýsingar
um ferðir, selja farmiða, skipu-
leggja hópferðir innanlands og
fleira þessháttar.
Ferðaskrifstofan á að starf-
rækja sumarhótel i húsnæði
heimavistarskólanna eftir þvi
sem um semst við forráðaaðila
og um miðjan júni verður opnað
tiunda hótelið, á Isafirði.
Engar sólar-
landaferðir
Björn Vilmundarson sagði að
Ferðaskrifstofa rikisins myndi
ekki taka upp samkeppni 'i sól-
arlandaferðum. Hún væri hins
vegar með mikið af hópferðum
um landið. Þær ferðir eru seldar
með gistingu og fararstjórn.
Hið nýja Ferðamálaráð hefur
ýmsum verkefnum að sinna.
Ferðamálaráð hefur að visu
lengi verið til, en verið hljótt um
það. Hið nýja Ferðamálaráð Is-
lands á hinsvegar að fara með
stjórn ferðamála i landinu, und-
ir yfirstjórn samgönguráðu-
neytisins.
Landkynningin stærst
Þeir þrir póstar sem Ferða-
málaráðið tekur af Ferðaskrif-
stofunni eru landkynning, þátt-
taka i fjölþjóðlegu samstarfi um
ferðamál og skipulagning nám-
skeiða og þjálfun leiðsögu-
manna.
Sem fyrr segir fær ráðið til
ráðstöfunar tiu prósent af sölu-
verðmæti Frihafnarinnar. Ekki
leiðir það þó tii tiu prósent
hækkunar á vörum þeirrar á-
gætu verslunar, þvi féð verður
tekið af tekjuafgangi hennar.
Ólafur Thordarsen, forstjóri
Frihafnar, tjáði Visi að tekjuaf-
gangur yrði liklega um sjö-
hundruð milljónir á þessu ári og
fær þvi Ferðamálaráð sjötiu
milljónir til ráðstöfunar.
Ferðaskrif stofu rikisins
var jafnan naumt skammtað fé
til landkynningar. Með þessu
nýja fyrirkomulagi ætti að ræt-
ast nokkuð úr þeim málum.
Unnið að undirbúningi
smábátahöfnina
fyrír
mörkunum notkun smábáta-
hafnarinnar sem fyrirhugað er
að koma upp fremst á Elliöaár-
hólmanum, verði háð. Þó væri
liklegt, að ekki yrði leyfö mikil
umferð um höfnina að nóttu til á
sumrin, sérstaklega i júli, þegar
laxagengdin er i hámarki.
Visir sagði frá undirbúrúúgi
að gerð smábátahafnarinnar i
mars s.l. Þar kom fram, að
borgarverkfræðingur hefur
unnið að þessu máli i samvinnu
við félag smábátaeigenda,
Snarfara. I fyrsta áfanga
verður aðstaða fyrir 2-300 báta i
höfninni og verður byggð þar
skemma fyrir bátana og flot-
bryggja til að binda þá við.
Bygging hafnarinnar mun ekki
eiga að hefjast nú á þessu
sumri, en verið er að ljúka við
uppfyllingu við hólmann. Kvað
Jakob ekki veröa unnið þarna
nema örfáa daga i viðbót, þar
sem lax fer að ganga i Elliða-
árnar um mánaðamótin og
vinna með þungar vinnuvélar
liggur niðri á meðan.
— SJ
„Kannske ættum við að byrja á að undirrita sáttmála um frið milli NATO rikja,” segir i textanum
með þessari mynd úr norska blaðinu Verdens Gang. Og ekki virðist af veita. Þarna slást fulltrúarnir frá
Tyrklandi og Grikklandi, Bretlandi og íslandi og Belgivi og Kanada. Knut Frydenlund, utanrikisráð-
herra Noregs reynir svo að miðla málum.
„Þó ekki sé mikið
vitað um það hvaða
áhrif hávaði hefur á
iaxinn, fara aliir góðir
veiðimenn með mikilli
gát að veiðivatni,”
sagði Jakob Hafstein,
fiskiræktafulltrúi
Reykjavikurborgar i
samtali við Visi.
Jakob sagði að ekki væri enn
ákveðið hvort eða hvaða tak-
Framtíð
aðveitu-
stöðvar
er enn
óráðin
Eins og skýrt var frá i Visi
i gær hefur fyf-irhuguð bygg-
ing aðveitustöðvar fyrir Raf-
magnsveitu Reykjavikur á
lóð Austurbæjarskólans
mætt nokkurri gagnrýni,
m.a. af ibúum i nágrenni
skólans.
Þar sem ekki náðist ein-
róma samstaða um málið i
borgarráði var það tekið til
umræðu i borgarstjórn. Visir
hafði samband við Jón
Tómasson, skrifstofustjóra
borgarstjóra, og upplýsti
hann, að frestað hefði verið
að taka ákvörðun um þetta^
mál þar til næsti fundur
verður i borgarstjórn, eftir
hálfan mánuð. —AHO
i