Vísir - 24.05.1976, Blaðsíða 7
VISIR
Mánudagur 24. mai 1976
Enginn frambjóðandi fœr
nógu marga kjörmenn
— spáir Newsweek um forkosningarnar
Enginn forsetafram-
bjóðandi fær nógu marga
kjörmenn til að tryggja sér
útnefningu til framboðs á
vegum flokks síns spáir
bandarfska fréttaritið
Newsweek í dag.
Newsweek birtir mjög ná-
kvæma spá um hvernig fari i for-
kosningunum. Blaðiö segir að
Ford forseti fái 1.118 kjörmenn,
en til að hljóta útnefningu þarf
hann 1.130. Reagan verður með
aðeins tfu kjörmönnum minna,
segir Newsweek.
Blaðið spáir að Jimmy Carter
veröi með þrefalt fleiri kjörmenn
en sterkasti keppinautur hans um
útnefninguna hjá demókrötum.
Samt mun hann skorta um 400
kjörmenn til að fá þá 1.505 sem
þarf til að hljóta útnefningu.
Newsweek spáir Carter 1.108
kjörmönnum, Morris Udall 347,
Jerry Brown 191, Frank Church
44, George Wallace 152, og að af-
gangurinn skiptist á milli minni
spámanna.
Skotnir úr leyni
Tveir lögregluþjónar voru
skotnir úr launsátri i London-
derry á Norður-lrlandi um helg-
ina. Lögreglumaður og 19 ára
gömul lögreglukona voru á
gangi að nóttu, þegar menn
þustu út úr dimmu sundi og hófu
skothrfð á þau.
Lögreglukonan særðist alvar-
lega á höfði, og lögreglumaður-
inn i öxl og mjöðm.
Lögreglukonan var úr vara-,
liði lögreglunnar. Fyrir tveimur
árum var faðir hennar drepinn
skammt frá staðnum þar sem
árásin nú var gerð. Faðir henn-
ar var einnig i varaliði lögregl-
unnar.
Sex lögregluþjónar hafa verið
drepnir á Norður-lrlandi á einni
viku. trski lýðveldisherinn hef-
ur hótað lögreglunni „löngu og
heitu sumri”. .
Kennedy
gefur
alls
ekki
kost
á sér
Fréttaritið Time hefur
það eftir Edward
Kennedy öldunga-
deiidarþingmanni i dag
að hann mundi vilja
verða forseti Banda-
rikjanna, en „það mun
ekki gerast á þessu
timabili ævi minnar”,
sagði þessi eini eftir-
lifandi Kennedy-bróðir.
1 viðtali við Time segir Kenne-
dy að fjölskylduástæður hamli
honum að sækjast eftir forseta-
embættinu.
,,Ég veit að ég get ekki boðið
migfram til forsetakosninga, eða
orðið forseti núna, og ég hef fellt
mig við það. Það er bara ekki
hægt eins og fjölskylduástæður
minar eru”, sagði Kennedy.
Talsmaður Time upplýsti aö
viötalið hefði verið tekið áður en
frétt birtist i New York Daily
News um að Kennedy mundi fara
i forsetaframboð, ef hann yrði
beðinn um það á flokksþingi
demókrata i i New York i júli
næstkomandi.
Kennedy neitaði þeirri frétt, og
talsmaður Time sagði aö þing-
maðurinn hefði skýrt blaðinu frá
þvi að afstaða sin væri óbreytt frá
þvi viðtaliö var tekið.
CONCORDE BYRJAR ÁÆTLUNINA EVRÓPA - BANDARÍKIN
Fyrstu tvær Concorde
þotur i áætlunarflugi
milli Evrópu og Banda-
rikjanna lenda i
Washington i dag, og
marka þar meö timamót
i sögu flugsins.
Þoturnar tvær, önnur frá Brit-
ish Airways og hin frá Air
France, lenda með þriggja mi-
útna millibili á Dulles flugvelli i
Washington, og stoppa með „nef-
in” saman fýrir framan flug-
stöðvarbygginguna.
Þar með er hafinn sextán mán-
aða reynslutimi áætlunarflugs
Concorde til Bandarikjanna frá
London og Paris.
William Coleman, samgöngu-
ráðherra Bandarikjanna tók þá
ákvörðun fyrir nokkrum mánuð-
um að leyfa flugið til reynslu, eft-
ir að umhverfisverndarmenn
höfðu þrýst fast á móti þvi. And-
stæðingar Concorde verða með
mótmæli á Dulles flugvelli þegar
Concorde lendir þar i dag.
Concorde má lenda i New York
og Washington, en a.m.k. sex
mánaða bið verður á þvi að flug
geti hafist til New' York. Með
málarekstri hafa umhverfis-
verndarmenn og yfirvöld
Kennedyflugvallar fengið þvi
frestað að lendingarleyfi fáist
þar.
En þrátt fyrir að flugleyfi fáist
ekki til New York, hefur verið
reiknað út að Concorde sýni
rekstrarhagnað, og að á 13 árum,
með 2,750 flugtima á ári, verði
kaupverð vélarinnar greitt upp.
Flug Air France milli Parisar
og Rio de Janeiro hefur gengið
vel, og hefur náðst 70.9 prósent
sætanýting.
FarmeðConcórde miUi Evrópu
og Bandarikjanna kostar 150 þús-
und krónur — aðra leiðina. Hafa
þá sparast rúmir fjórir timar á
flugleiðinni, sem erum átta timar
með venjulegum farþegaþotum.
TRESMIÐJAN
VÍÐIR H.F.
AUGLÝSIR:
Hinar marg-eftirspurðu
komnar aftur,
4,6,8, skúffu — tekk — birki — palesander.
,.„»„ .. TRÍSMIDJAN VÍÐIR
GOTT VERÐ — GOÐIR GREIÐSLUSKILMALAR. ueumuf.
- SIMI 22229.