Vísir - 19.06.1976, Side 8

Vísir - 19.06.1976, Side 8
8 VtSIR Útgefandi: Keykjaprent hf. F'ramkvæindastjóri: Davift Guftmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson. ábm. Ólafur Kagnarsson Kitstjórnarfulltrúi: Kragi GuftmundSson Fréttastj. erl. frétta: Guftmundur Pétursson Blaftainenn: Anders Hansen, Anna Heiftur Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir, Einar K. Guftfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Ólafur Hauksson, óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriftur Egilsdóttir, Sigurveig Jóns- dóttir, Þrúftur G. Haraldsdóttir. íþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. útlitsteiknun: Jón Óskar Hafsteinsson, Þórarinn J. Magnússon. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurösson. Dreifingarstjóri: Sigurftur R. Pétursson. Auglýsingar: 11 verfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiftsla: Hverfisgötu 44. Sirni 86611 Kitstjórn: Siðumúla 14. Simi86611.7 linur Askriftargjald 1000 kr. á inánufti innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Stjórnmálamenn taka upp bónbjargastefnu A5 undanförnu hafa ýmsir aðilar verið að hreyfa þeirri hugmynd að heimta leigu i einu eða öðru formi af bandarikjamönnum vegna varnar- stöðvarinnar i Keflavik. Tillögur af þessu tagi hafa stöku sinnum skotið upp kolli áður, en þær hafa aldrei fengið hljómgrunn meðal fólksins i landinu. Athyglisvert er á hinn bóginn að nú hafa ábyrg- ir stjórnmálamenn i fyrsta sinn gerst merkisber- ar þessarar bónbjargastefnu. Þessi uppgjafar- tónn gefur til kynna að stjórnmálamenn treysti sér ekki lengur til þess að glima við þau efna- hagsvandamál, sem við höfum glimt við undan- farin ár og þurfum fyrirsjáanlega að gera enn un sinn. Sumir eru þeir, sem vilja heimta beinharða peninga frá bandarikjamönnum. Aðrir vilja taka þetta út i vegaframkvæmdum, flugvöllum og hafnarmannvirkjum. Ef fram heldur sem horfir verður þess varla langt að biða að stjórnmála- mennirnir heimti orkuver af bandarikjamönn- um. Þeir hljóta að geta sannfært sjálfa sig um að þau séu ómissandi i striði. Fram til þessa hafa stjórnmálaflokkarnir verið á einu máli um að draga sem mest má vera úr áhrifum varnarliðsins á islenskt efnahagslif. Varnarmál eru ekki verslunarvara og geta þvi ekki verið þáttur i almennum viðskiptum eins og stöku sinnum hefur verið reynt að leiða rök að. Varnarliðið er hér vegna sameiginlegra hags- muna íslands og annarra Atlantshafsbandalags- þjóða. Við höfum af eðlilegum ástæðum kapp- kostað að hafa umsvif þess i lágmarki. Aðstaða sú, sem varnarliðið fær hér er framlag okkar til varnarsamstarfsins. Það liggur i augum uppi að við myndum ekki hafa hér erlent varnarlið, ef þess væri ekki þörf vegna okkar eigin hagsmuna. í meginatriðum hefur þessari grundvallarreglu verið fylgt. Nú hefur það hins vegar gerst að varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur tekið bónbjargastefnuna upp i rikisstjórninni. Formað- ur Alþýðuflokksins hefur auk þess lýst þvi, að hann geti fallist á þessa stefnu að einhverju leyti. Engum blandast hugur um að slæmt efnahags- ástand hefur haft það i för með sér, að bónbjarga- stefnan hefur fengið nokkurn byr að þvi er virð- ist. Það alvarlega við þetta er uppgjöf stjórn- málamannanna. Þegar þeir nú gerast merkis- berar þessarar stefnu ber það vott um að þeir treysti sér ekki lengur til að glima við vandamál- in. Þegar svo er komið málum, má öllum vera ljóst að taflið stendur um fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Afstaðan til varnarsamstarfsins á einvörðungu að byggjast á varnarsjónarmiðum. Það er ekki einungis rangt heldur beinlinis hættu- legt, ef sú staða kemur upp að ákvarðanir um þetta efni verði teknar á grundvelli fjárhags- sjónarmiða. Bónbjargastefnuna þarf að kveða niður. Það er of litilmótlegt fyrir sjálfstæða þjóð að bera hana fram. Efnahagsvandamálin leysum við sjálfir og vegina leggjum við upp á eigin spýtur. ■v Laugardagur 19. júní 1976 VÍSIR Umsjón: Guðmundur Pétursson KAÞÓLSKA KIRKJAN BLANDAR SÉR í KOSN- INGABARÁTTUNA Stuðningur viö kommúnista óþolandi, segir Páll páfi. margra augum hefur flokkurinn misnotað völdin og ekki reynst þess verður aö stjórna landinu áfram. 1 þeirra augum er ekki svo mikill munur á þeim kost- um, sem Fanfani setur þeim: Kjósiö kristilega demókrata eða seljið kommúnistum landið i hendur. Það gengur meira að segja svo langt, að sumir mennta- menn kaþólskra hafa ákveðið að stiga skrefið tilfulls og bjóða sig fram I kosningunum á sunnu- daginn sem óháðir, er styðji þó kommúnista. Þetta hefurkomiö formanni i- talska biskuparáðsins, Antonio Poma, kardinála, til að hafa i hefur gengið, sfðan Pius XII leiddi kirkjuna i baráttu gegn kommúnistum fyrir kosning- arnar 1948. — Þaðvar einmitt i þeim kosningum, sem kristileg- ir demókratar komust fyrst til valda, en siðan hafa þeir veriö óslitið i rikisstjórn i 30 ár. Á meöan kaþólska kirkjan hef- ur þannig skorið upp herör i kosningabaráttunni til að styðja kristilega demókrata, hefur flokkurinn sjálfur ekki sýnt sama baráttukjarkinn. Hefur honum gengið illa að finna sér baráttumál ty að setja á oddinn, er fylkt gæti kjósendum undir merki hans. mest allan timann á s júkrahúsi, meðan starfaö hefur verið að undirbúningi kosninganna. Það hefur þvi komið I hlut Fanfani að bera hitann og þungann af kosningabaráttunni, en rétti við hlutsinnaftur, eftir aðhafatap- að framkvæmdastjórastöðunni, með þvi aö sigra i formanns- kjöri flokksins. Fanfani hefur reynt aö höföa til kjósenda lengst til hægri til að bæta flokknum upp tapið á vinstrisinnaðri kjósendum. Sýn- ist mörgum hann hafa tekið þar upp sömu aðferðina og leiddi til ósigursins i sveitarstjórnar- kosningunum. „Þetta eru forlögin,” sagði AmintoeFanfani, þingmaður og formaður kristiiegra demó- krata, sem nú fara með stjórn á ttaiiu. Hann hafði sloppiðheili á húfi fyrir eitthvert kraftaverk, þeg- ar bifreiö hans fór út af veginum og lenti ofan i stórgrýtisurð. Nokkrum dögum siðar birtist i itölsku blaði skopmynd af þingmanninum akandi eins og galgopi, flokki kristilegra demókrata fram af björgum, meöan Aldo Moro forsætisráð- herra og Benigno Zaccagnini, framkvæmdastjóri flokksins, reyndu að haida vagninum á fastri grund. Mútuhneyksli og ásakanir um dugleysi gagnvart pólitiskum ofbeldismönnum hvllir yfir flokki kristilegra demókrata nú þegar kosningar fara I hönd. Ráðleysi virðist einkenna flest- ar gjörðir forystumanna flokks- ins, meðan i fyrsta skipti I 30 ár horfir alvarlega til þess aö hann muni missa völdin. Fanfani er meðal þeirra, sem gera sér vel ljóst, hversu nærri kommúnistaflokkurinn er þvi að ná völdum. Lætur hann ekkert tækifæri ónotað á mannamót- um til þess að árétta, að flokk- urinn þurfi ekki að bæta við sig nema einu atkvæöi til viðbótar við hver tiu sem hann hlaut i sveitarstjórnarkosningunum i fyrra til þess að vera áfram stærsti stjórnmálaflokkur ítalfu, og vera öruggur um á- framhaldandi setu I rikisstjórn. En margir þeir, sem hingað I til hafa kosið kristilega demó- krata, eru ekki lengur vissir um, hverjum þeir muni greiða atkvæði sitt að þessu sfiini. 1 litt duldum hótunum um að bannfæra sérhvern kaþólikka, sem vinnur I kosningaundirbún- ingnum fyrir kommúnistaflokk- inn. Þessi hótun fékk aukna á- herslu, þegar Páll páfi lýsti þvi yfir, að stuðningur við kommúnista væri „óþolandi”. Þessi yfirlýsing páfans þykir vera eitt það lengsta, sem páfi Eftir sveitarstjórnarkosning- arnar ifyrra, þar sem kommún- istaflokkurinn vann yfirburða- sigur, var Fanfani settur af sem framkvæmdastjóri flokksins. 1 staðinn var valinn Zaccagnini, sem átti að hleypa nýju blóði i flokksstarfiðogleiða flokkinn út úr hrörnunartimabilinu. En Zaccagnini hefur legiö Fanfani formaður kristilegra demókrata sýnist reyna sömu að- feröirnar eins og fyrir sveitarstjórnarkosningarnar i fyrra, sem leiddu til ósigurs flokks hans.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.