Vísir - 30.06.1976, Side 1

Vísir - 30.06.1976, Side 1
Stunda sovétmenn „ryksuguveiðar" ó laxinum okkar? „Við vitum að fjöldi rússneskra verksmiðju- togara stundar ryksugu- veiðar i nánd við ísland og þessi skip veiða allt, sem kvikt er. Þvi höfum við vaxandi áhyggjur af, að skip þessi veiði um- talsvert magn af islandslaxi”, sagði Björn böndi á Laxamýri i Þingeyjarsýslu, i samtali við blaðið. „Laxinn gekk mjög seint i ár norðanlands isumar, en við sáum fyrstu stóru gönguna rétt fyrir helgina. Við erum enn bjartsýnir á gott laxveiðisumar, en þess verður að gæta, aðgifurleg aukn- ing hefur verið á ræktun laxa- seiða og ef það skilar sér ekki i mjög aukinni veiði gefast menn upp á þessu, bætti Björn við”. Björn lagði áherslu á, að hér væri mikið i húfi og, væri brýn nauðsyn á eftirliti með veiðum út- lendinga á islandslaxi i sjö. „Það er of snemmt að spá um hvort hin aukna ræktun skilar sér eðlilega en ef rétt reynist, að rússar stundi þessar veiðar er hér um stóralvarlegt mál að ræða”, sagði Björn að lokum. _J0H— „Ekkert gert nema kjaftað u - segir Haukur Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður í Keflavík „öll aðstaða til að rannsakaf þessi hassmál er hin ömurleg- asta,” sagði Haukur Guð- mundsson rannsóknarlög- reglumaður i Keflavik i sam- tali við Visi i morgun. „Á timabili var ég með fanga i gæsluvarðhaldi á fjórum stöð- um, og mestur timinn fer i að þeytast á milli staða,” sagði hann ennfremur. „En það er sama hvað oft er beðið um úr- bætur, það gerist ekkert. Þeir sem þessu stjórna gera ekkert nema að kjafta.” Haukur sagði að rannsókn siðasta hassmálsins væri langt komið, en enn situr einn maður inni vegna málsins. Er talið að þarna hafi verið um að ræða smygl á svonefndri hass- oliu, en efni það sem gert var upptækt er nú i rannsókn. —AH Þjóð- erni dufla óþekkt — segir utanríkisráðherra „Við vitum enn ekki fyrir vist hvert þjóðerni hiustunarduflanna er. Málið er i rannsókn og ég grennslaðist eftir því siðast i morgun, hvernig henni miðaði,” sagði Einar Ágústsson, utanrikis- ráðherra, i samtali við blaðið i gær. Visir hefur birt þau ummæli Harðar Frimannssonar, yfir- verkfræðings sjónvarpsins, að hann teldi duflin bandarisk að uppruna, en sem kunnugt er hefur eitt dagblaðanna þrásinnis haldið þvi fram að duflin séu rússnesk að uppruna. Utanrikisráðuneytið er enn i vafa um uppruna þeirra og biða margir efalaust spenntir eftir úrskurði þess, eftir allar þær umræður, sem farið hafa fram um mál þetta. —JOH Cleo Laine og eiginmaður hennar Johnny Dankwort héldu tónleika f Laugardalshöll i gærkvöldi við fögnuð þrjú þúsund áheyrenda. Hér gefur Cleo ungum aðdáendum eiginhandaráritun sina skömmu eftir að tónleikarnir hefjast. Ljósm. Visis: Jens. __ bdksíðll Átta manns horfið fró 70 — sjá baksíðu Stúdíótœki sjónvarpsins eru úrelt — baksíða______ Bátar með sláttuvélar — sjá bls. 11 Erlendar fréttir eru á bls. 6-7 og 8 Mennirnir fjórir frjálsir a ny — Svartsýnni en áður um lausn Geirfinnsmálsins, segir Örn Höskuldsson Sakadómur Reykja- víkur hefur nú tilkynnt fjór m enningunum, sem sátu i gæsluvarð- haldi vegna rannsókn- ar Geirfinnsmálsins, að þeir séu frjálsir ferða sinna og þurfi ekki lengur að sæta eft- irliti. Mennirnir fjórir, þeir Einar Bollason, Magnús Leopoldsson, Sigurbjörn Eiriksson og Valdimar Olsen, voru látnir lausir úr gæsluvarðhaldi 10. mai siðastliðinn, og höfðu þá verið I varðhaldi á fjórða mánuð. Að ákvörðun rannsóknardómara „var þeim gert að sæta eftirliti lögreglu og takmörkunum á ferðafrelsi i þágu rannsóknar málsins”, eins og það var orðað i tilkynningu sakadóms á sinum tima. Eftirlit þetta hefur verið mjög óformlegt og að þvi er VIsi er kunnugt, hafa mennirnir ein- ungis látið vita af sér öðru hverju og engar athugasemdir verið gerðar við ferðalög þeirra innan lands. Visir innti örn Höskuldsson, dómara, eftir þvi i gær, hver væri ástæðan fyrir þvi að „eftir- litið” hefði verið fellt niður. Hann kvaðst ekki vilja greina frá þvi, en sagði að lítið nýtt hefði komið fram i rannsókn málsins undanfarnar vikur. „Við einbeitum okkur nú að þvi að ganga frá gögnum vegna morðsins á Guðmundi Einars- syni og málum, sem þeirri rannsókn eru tengd”, sagði örn „en Geirfinnsmáliö svonefnda er jafnframt áfram til meðferð- ar hjá okkur”. örn tjáði Visi, aö geðrannsókn væri lokið á einum þeirra aöila, sem nú sitja i gæsluvarðhaldi vegna þessara mála, en geð- rannsókn hinna væri langt kom- in. Er örn Höskuldsson var að þvi spurður, hvort hann væri nú bjartsýnni en fyrr á að hægt yrði að upplýsa hvarf Geirfinns Ein- arssonar og ástæöurnar fyrir þvi til fulls, svaraði hann þvi til að hann væri nú svartsýnni en áður I þvi efni, en að sjálfsögðu myndu menn ekki leggja árar i bát, heldur halda sinu striki og vinna áfram að rannsókninni. —ÓH i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.