Vísir - 30.06.1976, Side 7

Vísir - 30.06.1976, Side 7
vism Miðvikudagur 30. júni 1976 Óli Tynes nroTguiT Róssar nöguðu gallsúrt ep/í — á ráðstefnu kommúnistaflokkanna í Austur-Þýskalandi Rússar hafa nú orðið að taka stóran bita úr þvi gallsúra epli að geta ekki lengur komið fram sem hugmyndafræðileg- ir leiðtogar kommún- istaflokka i öðrum löndum. Á nýafstaðinni ráðstefnu flokkanna i Austur-Þýskalandi var Eanes heimsœkir de Azevedo Antonio Ramalho Eanes, hershöfðingi, sem kosinn var forseti Portúgals um siðustu helgi, flaug norður til Oporto i gær til að heim- sækja einn aðal- mót- frambjóðanda sinn og keppinaut, Jose Pin- heiro de Azevedo, að- mirál, sem liggur þar á sjúkrahúsi. Eanes hershöfðingi hlaut yfir- burðarsigur, eins og fram hefur komið i fréttum, og fékk 61% at- kvæða. — En margir töldu, að sigurinn hefði ekki verið svo yfir- gnæfandi, ef aðmirállinn hefði verið heill heilsu og getað tekið þátt i kosningabaráttunni siðustu dagana. De Azevedo fékk hjarta- slag fjórum dögum fyrir kosning- ar og lá milli heims og helju fyrst, en er nú sagður á góðum bata- vegi. De Azevedo bauð sig fram til forsetakjörs til þess að það yrði ekki einmenningskeppni. Sagði hann, að flokkarnir þrir, sem studdu framboð Eanes, yrðu með þvi þess valdandi, að forsetinn yrði tilnefndur en ekki kosinn á lýðræðislegan hátt. — Framboð de Azevedo var óháð öllum flokk- um. Aðmirállinn fékk 14% atkvæða, sem var ekki nema þriðja mesta atkvæðamagn. Otelo Saraiva de Carvalho, majór, fékk 16,5%. Eanes hershöfðingi hefur lýst þvi yfir, að hann muni skipa dr. Mario Soares, leiðtoga jafnaðar- manna, forsætisráðherra og fela honum stjórnarmyndun. — Jafn- aðarmenn fengu 35% atkvæða I siðustu þingkosningum i Portúgal og sýndu sig þá að vera stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Að öllu forfallalausu hefði Eanes átt aö sverja embættiseið næsta mánudag, en vegna tafa við endurtalningu atkvæða verð- ur bvi frestað. samþykkt að hver þeirra skyldi ákveða eigin stefnu. Þessi samþykkt kemur i kjölfar margra ára biturrar baráttu. Ýmsir leiðtogar kommúnista- flokka i Evrópu hafa um margra ára skeið barist gegn algerri stjórnun flokka sinna frá Sovét- rikjunum. Þetta leiddi meðal annars til þess að ekki hefur verið haldin svona ráðstefna siðastliðin niu ár. Einn af hörðustu baráttumönnun- um fyrir frelsi hefur verið Josip Tito, forseti Júgóslaviu. Tito hefur alla tið verið mjög sjálfstæður og neitaði um langt skeið að sækja ráðstefnur kommúnistaflokka, vegna þess að þeir lytu um of stjórn Sovét- rikjanná. Rússar gættu þess vel að minn- ast ekkert á Kina i ræðum sinum. Ýmsir leiðtogar höfðu gefið i skyn að ef kinverjar yrðu fyrir árás, myndu þeir verja þá. Leonid Brezhnev, leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, sem hingaö til hefur verið kommúnistaflokkum annarra rikja ieiðarljós. Rússum hefur verið hvað mest áhugamál að halda þessa ráð- stefnu, sem sjá má á þvi að þeir bökkuðu með nær allar kröfur sinar um „stjórnun frá Kreml”. Það eru þó litlar likur til að þeir geti verið ánægðir með niður- stöðu þessarar ráðstefnu. Ýmsir fréttaskýrendur draga jafnvel i efa að þeir muni gangast fyrir annarri slikri um langt skeið. Bernard prins 65 ára Bernhard prins af Hollandi, sem varð 65 ára i gær, hefur ákveð- ið að halda áfram emb ætti sinu, sem yfirhers- höfðingi við her Hol- lands, þótt hann sé kominn á eftirlauna- aldur. Enn stendur yfir rannsókn þriggja manna nefndarinnar, sem stjórn Hollands skipaði i febrúar vegna áburðar um, að prinsinn hefði þegið alls 1,1 milljón dollara i mútur frá bandarisku Lockheed-flugvéla- verksmiðjunum. — Búist er við, að niðurstöður geti legið fyrir upp úr miðjum ágúst. Prinsinn bar á sinum tima af sér allar ásakanir um mútu- þægni og fagnaði rannsókninni, sem hann sagði, að mundi hreinsa nafn hans og mannorð. Tillaga felld um stofn- un nýs Palestínuríkis Þjóðfrelsishreyfing palestinuaraba og stuðningmenn hennar lutu i lægra haldi i ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna i gærkvöldi, þegar Bandarikin felldu með neitunarvaldi sinu tillögu, sem fól i sér viðurkenningu á rétti palestinuaraba ,,til að vera sjálfstæð þjóð i Palestinu”. Fimmtán riki eiga sæti i Örygg- isráðinu og studdu tiu ályktunar- tillöguna, sem Guyana, Pakistan, Panama og Tanzania höfðu borið fram. — Frakkland, Italia, Bret- land og Sviþjóð sátu hjá við at- kvæðagreiðsluna. 9. júni hófust umræður i ráðinu um skýrslu nefndar, sem 20 riki áttu fulltrúa i. 1 þeirri skýrslu var fjallaðum rétt palestinuaraba, og var þar meðal annars lagt til, að israelsmenn skiluðu fyrir júni næsta ár öllum hernumdu svæð- unum frá 1967, að allt flóttafólk palestinuaraba yrði flutt á þau svæði og loks að stofnað yrði sér- stakt riki þeirra. Lauk þessum umræðum loks i gærkvöldi með atkvæðagreiðsl- unni. Albert Sherer, fulltrúi Banda- rikjanna, sagði að tillagan væri með alvarlegum meinbugum, þar sem i henni væru rækilega tiund- aðir hagsmunir og réttindi annars aðilans, en á hinn (Israel) væri ekki minnst, eins og væri hann ekki til. Israelsmenn, sem sögðu, að skýrsla 20 rikja nefndarinnar fæli i sér tillögur er miðuðu að þvi að liða sundur gyðingarikið, véku af fundi, þegar umræðurnar byrjuðu og tóku engan þátt i þeim eftir það. Vilja morðingja fyrir farþegana LEIÐTOGI GYÐINGA í WASHINGTON TEKIN FASTUR Alrikislögreglan bandariska (FBI) handtók i gær leiðtoga varnarsamtaka gyð- inga i Washington. Hann er grunaður um að vera viðriðinn skot- árásir á heimili sov- éskra diplómata i mai- mánuði siðasta. Hinn handtekni, dr. William Perl, sjötugur sálfræðingur, hefur verið ákærður fyrir hlut- deild i samsæri, sem beint heföi verið gegn fulltrúum erlendra rikja. Samkvæmt upplýsingum FBI var skotið á ibúðarhús tveggja starfsmanna sovéska sendi- ráðsins i einu af úthverfum Washington að kvöldi dags 23. maf. — Hefur ekki verið látið uppi, hvaða diplómatar eiga þarna hlut að máli. Né heldur hefur fengist skýrt frá þvi, hvort dr. Perl er sakaður um, að hafa sjálfur hleypt af byssunni. Siðustu árin hefur komiö æ oftar til þess, að félagar úr varnarsamtökum gyðinga, einkanlega þá i New York væru handteknir vegna árása á sov- éska diplðmata i Bandarikjun- um. En samtökin láta til dæmis mjög til sin taka meðferð á gyð- ingum i Sovétrikjunum, og hafa þau margsinnis efnt til mót- mælaaðgerða i Bandarikjunum vegna hennar. Gislarnir 250 úr Air France farþegaþotunni eru enn i haldi á Entebbe flugvelli I Uganda. Þeir biða spenntir eftir að vita hvort fimm rikisstjórnir verði við kröfum um að láta lausa hryðjuverka- menn, i staðinn fyrir þá sjálfa. Sérstaklega hljóta israelsku farþegarnir að vera uggandi um sinn hag, þar sem það hefur verið mjög ákveðin stefna ísraelsku rikisstjórnarinnar að semja ekki við hryðjuverkamenn. Attati'u og þrír israelar eru meðal farþeg- anna. Ræningjarnir hafa krafist þess að fá lausa 53 palestinuaraba. Af þeim eru 40 sagðir I tsrael, sex i Vestur-Þýskalandi, fimm i Kenya, einn i Sviss og einn i Frakklandi. Utanrikisráðherra Frakka hefur lýst þvi yfir að þessar kröf- ur séu óaðgengilegar. Ræningj- arnir hafa gefið frest fram að há- degi á morgun til að flytja hryöju- verkamennina til Uganda. Efstur á lista ræningjanna er japaninn Kozo Okamoto. Hann var einn morðingjanna frá Lod flugvelli, þar sem hann o g félag- ar hans myrtu tuttugu og sjö farþega og særðu áttatíu. Hann var dæmdur i lifstíöarfangelsi i Israel og það eru litlar likur til að Israelsstjórn fáisttil að láta hann lausan. BRUÐHJONIN TIL AFRÍKU Karl Gustaf sviakonungur og brúöur hans, Silvia drottn- ing, kontu til London i gær að aflokinni brúðkaupsferð i llawai. Þau ferðast undir tignar- heitunum hertogi og hertoga- frú af Jampiamad, eins og Karl Gustaf hefur gert, þegar hann feröast i einkaerindunt. — Þar er talið, að brúðhjónin séu á leið til Nairobi i Kenya til að Ijúka brúðkaupsferðinni i „safari”.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.