Vísir - 25.07.1976, Síða 2

Vísir - 25.07.1976, Síða 2
2 Sunnudagur 25. júli 1976. vism Texti: ANDERS HANSEN Myndir: MAGNÚS MAGNÚSSON Undanfarin sumur hefur verið unniðað rannsókn á varpi teistu i Flatey á Breiðafirði. Rann- sóknina hefur annast Ævar Pet- ersen dýrafræðingur, en hann er nú að nema fuglafræði sem sér- grein við háskólann i Oxford í Englandi. Hyggst hann skrifa doktorsritgerð byggða á rann- sóknum sinum á iifnaðarháttum teistunnar. Ævar sagði i samtali við Visi, að hann hefði byrjað athuganir sinar sumarið 1974, en fyrst haf- ið starfið fyrir alvöru i fyrra- sumar, og siðan aftur tekið upp þráðinn i vor. Rannsóknir af þessu tagi taka langan tima, og er mikil þolinmæðisvinna, ekki sist þar sem aðeins er athuguð ein fuglategund. Rannsóknin beinist að lifnaðarháttum teist- unnar almennt, varpi hennar og hegðun um varptimann, fæðu þeirra er fuglinn neytir, bæði ungar og fullorðinn fugl og fleiru er viðkemur lifnaðarhátt- um teistunnar. Ævar sagði að i Flatey yrpu nú um 350 pör af teistu, og hefði henni fjölgað mikið þar allra siðustu ár. Fyrir tiu árum var alls ekkert teistuvarp i eynni, og væri þessi mikla fjölgun hennar verðugt rannsóknarefni. Ekki er til nein óhyggjandi skýring á þessu fyrirbrigði, en helst sagð- ist Ævar hallast að þvi að rottur og kettir hefðu hrakið fuglinn á brott. Teistuvarp var i Flatey fyrir nokkrum áratugum, eða þar til rottum fór að fjölga þar. Var á timabili svo mikið af rottu i eynni, að með ólikingum má telja. Fyrir um það bil áratug var svo hafin eiturherferð gegn þessum ófögnuði, og tókst al- gjörlega að útrýma rottum úr Flatey. Strax árið eftir hófst þar teistuyarp að nýju. Þá kann það einnig hafa ýtt undir teistuvarp- ið i eynni, að Flateyjarhreppur er eini hreppurinn á landinu þar sem ekki er nú minkur. Aðeins einu sinni hefur veiðst minkur i Flateyjarhreppi: gerð- ist það iSkáleyjum fyrir nokkr- um.árum. Siðan þá hefur minks ekki orðið vart i hreppnum. Teistan er staðfugl, og hefur lengi verið talin einn af okkar mestu staðfuglum. Eftir að Ævar hóf að rannsaka teistu- varpið i Flatey, hefur þó fundist einn fugl á Grænlandi sem hann hafði merkt. Það breytir þvi ekki að teistan er staðfugl, þvi alltaf er eitthvað um að ein- staklingar innan tegundarinnar flakki á milli, þó stofninn sem slikur haldi sig á sömu slóðum. Um tuttugu manns búa nú i Flatey allt árið, en eru talsvert fleiri yfir sumarmánuðina. Þá er einnig alltaf mikill straumur ferðamanna út i eynna, en ekki kvað Ævar það trufla neitt rannsóknir sinar. Teistan væri gæfur fugl, auk þess sem varp- stöðvarnar væru einkum i urð- um neðan fjörukambsins, og þangað færu ferðamenn yfirleitt ekki. —AH TEISTAN UNIR SÉR MJÖG VEL I FLATEY Ævar Petersen, dýrafrœðingur, vinnur að umfangsmikilli rannsókn ó lifnaðarhóttum teistunnar í eynni VÍSIR Úlgefandi: Iteykjaprcnt hf. Framkvæmdastjóri: Davið Guftmundsson Kitstjórar: Þorsteinn Pálsson, ábm.i ólafur Itagnarsson Kitstjórnarfulltrúi: Bragi Guftmundsson Fréttastj. erl. frétta: Guftmundur Pétursson Áskriftargjald 1000 kr. á mánufti innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakift. Blaftaprent hf. Blafta menn: Anders Hansen, Anna Heiftur Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir, Einar K. Guftfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, ólafur Hauksson, Oli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriftur Egilsdóttir, Sigurveig Jóns- dóttir, Þrúftur G. Haraldsdóttir. tþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. útlitsteiknun: Jón Öskar Hafsteinsson, Þórarinn J. Magnússon. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurftsson. Dreifingarstjóri: Sigurftur R. Pétursson. Auglýsingar: Hvcrfisgötu 44. Slmar 11600 80011 Afgreiftsla: Hverfísgötu 44. Sími 86611 Kitstjórn: Siftumúla 14. Simi8G011.7 Unur - Áskriftarsími Vísis er 86611 Hringið strax og tryggið ykkur eintak af Vísi til lesturs hvern dag vikunnar fyrir aðeins 1000 krónur ó mónuði

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.