Vísir - 25.07.1976, Blaðsíða 7

Vísir - 25.07.1976, Blaðsíða 7
visra Sunnudagur 25. júli 1976. 7 RÆKTUNIN Ræktun Ginseng er mjög sér- stæö og erfiö. Sem dæmi má nefna, aö þaö tekur plöntuna 6 ár að mynda rót, sem gefur bestu gæöi i vinnslu. Einnig verður ræktarland aö hvila i 10- 40 ár eftir aö Ginseng hefur veriö ræktaö þar, áöur en ræktun þess getur fariö þar fram aftur. Þetta er vegna þess hversu mikið af efnum plantan tekur úr jarðveginum Auk þess er hún mjög viökvæm og gerir nákvæmar kröfur til lifs- skiiyröa. Hún vex best viö svalt loftslag þar sem hitastig fer ekki upp fyrir 18,3 gráöur C, og i hæfilegu skjóli, regni og ljósi. Jarðvegur veröur aö vera næringarrik leirmoid og vatniö sem til plöntunnar kemur veröur aö vera hreint. Þaö skeröir gæöi rótarinnar aö nota áburö — og til aö uppfylla vaxtakröfum plöntunnar fer ræktun fram undir hjölium, sem snúa móti noröri. Auk þess þarf nánast aö annast um hverja plöntu fyrir sig ef vel á aö fara. Bestu ræktunarskiiyröi hvaö veðurlag snertir er i Kóreu og Mansjúríu, en þar vex plantan villt á afskekktum, stööum, undir stórum trjám I skógum til fjalla. Og þegar viö bætist 400 ára reynsla Kóreumanna i ræktunartækninni, veröur Gin- seng þeirra þaö besta sem unnt er aö fá. stæð áhrif. Ginseng getur, eins og segirað ofan, hjálpað likamanum til að losna við streitu. Ráð við sljóleika af völd- um ofþreytu Við renaissance Revitalization Center heilsuhælið á Bahama eyj- um, segir frá sextugum leikara, sem þjáðist af ofþreytu. Var hún svo mikil, að hann óttaðist að hún mundi binda endaá leikferil hans. Hann fór þvi að taka inn Ginseng (i belgformi) einni klukkustund fyrir sýningu, og var sannfærður um, að þetta væri ástæðan fyrir greinilega bættu gengi hans. Til að sannprófa réttmæti þess- arar ályktunar reyndu læknar blindpróf, þar sem leikarinn fékk Ginseng suma sýningardagana en áhrifalausan belg aðra daga. Með þessu prófi sýndi það sig, að undirtektir (mældar með þar til gerðum mæli) voru 17% betri á Ginseng dögum en á öðrum dög- um. Ginseng og ellimörk Hefðbundin notkun Ginseng i Austurlöndum fjær staðfestir að það er sterkt hressingarlyf, varnarmeðal, sem verkar gegn kraftleysi, hryggð og almennu tapi sem á sér stað þegar fólk eld- ist. Um þetta segir dr. Brekh- mann: „Heilbrigt fólk, sem náð hefur 40 ára aldri, ætti að byrja að taka inn Ginseng relgulega”. Þessi staðhæfing fékk stuðning af niðurstöðum tilrauna á músum, sem fengu Ginseng reglulega eftir að þær voru orðnar full- þroska. Afleiðingin varð sú, að æviskeið þeirra varð lengra en músa sem ekki fengu Ginseng, og margar hagstæðar lifefnafræði- legar breytingar komu i ljós”. Um náttúrulækningaað- ferðir Dæmin hér að ofan vitna ljóst um ósérhæfða virkni Ginseng. En þessi jurt er engan veginn eina jurtin sem hefur fjölbreytta virkni. En hvers vegna hafa slik- ar náttúrulækningaraðferðir þessi viðtæku áhrif á manns- likamann? Orsökina má e.t.v. rekja til þess að þeir, sem iðkuðu læknisfræði til forna skildu ekki eðli margra sjúkdóma, og höfðu þvi engar sérhæfðar lækningar- aðferðir til að lækna þá. Þess i stað varð til mikill fjöldi lækningaraðferða sem höfðu ósérhæfð heilsubætandi og lækn- andi áhrif. Þessar aðferðir voru engan veginn bundnar við austur- lönd, en þær vestrænu lögðust að mestu niður með tilkomu „visindalegra”, sérhæfðra lækningaraðferða. En nú verða æ fleiri fyrir vonbrigðum með nútima lækningaraðferðir, og leita þvi til aðferða forfeðranna. Heilsu manna og velliðan verður þó ugglaust best þjónað, þegar læknavisindi austurlanda og vesturlanda sameinast i tilgangi sinum að gefa góða heilsu og varðveita handa öllu mannkyn- inu. Hverjir eru virkir þættir i Ginseng? Ginseng inniheldur marga glycosiða, rokgjarnar oliur, blöndu fitusýru, ginsenin, phytosterin, slimukvoður, ensim, vitamin, sykur, dálitið af alka- loiðum, sem menn vita ekki nán- ari deili á, steinefni, kisilsýru og ekki meira en 13% vatn. Þættirnir eru ótrúlega flóknir. Þótt glycosiðarnir séu taldir virku þættirnir, benda niðurstöð- ur rannsókna til þess að rótin heil sé virkari en nokkur einstakur efnaþáttur hennar. SKA TA BÚÐÍN rlGKin 3T Hjálparsveit skáta Reykjavík SNORRABRAUT 58.SÍM112045 Bakpokar 6 gerðir verð fró kr. 4.750.- til 28.500 Kortapokar kr. 2.280.- Dagsferðapokar kr. 2.900.- Burðarpokar fyrir bðrn kr. 5.150.- Svefnpokar ull og dralon kr. 4.950.— til 6.630.- f Isl. dúnpokar ca. 2 kg. verð kr. 14.000.— - 18.000.- Norskir dúnpokar fró Helsport 1,1 —1,45 kg. kr. 18.800- 32.000 ALLT í ÚTILÍFIÐ Gönguskór 4 gerðir kr. 6.800 - 12.000 Göngutjöld með himni ca. 2,9 kg. kr. 19.850.- Tjöld Kœlitöskur 5 gerðir kr. 1.975 -6.100 Vatnsbrúsar 10 — 20 lítra kr. 675 - 925 Ahaldasett kr. 3.300 - 5.100 Pottasett með diskum o.fl. kr. 8.100 Grill 15 gerðir kr. 1475 - 8.200 Grillkol, Gastœki margar gerðir Hlífðarfatnaður Regnfatnaður á alla fjölskylduna með og ón himins, margar gerðir Póstsendum SOmdœgurS TJTILIF Glœsibœ Sími: 30350

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.