Vísir - 25.07.1976, Side 8
8
LEIKUR
ÞROSKAR
BARNIÐ
Leikir gegna afar
miklu hlutverki i lifi
barna, og uppeldis-
fræðingar sem hafa
rannsakað barnaleiki,
telja að þeir örvi and-
legan og likamlegan
þroska barnsins.
Barnið hefur meðfædda þörf
fyriraðleika sérogþessi þörf er
sterkur þáttur.
Börn hafa einnig mikla þörf
fyrir að hreyfa sig og geta helst
ekki verið kyrr. Þau geta fengið
útrás fyrir þessa þörf i alls kyns
leikjum, svo sem boltaleikjum,
hlaupum og fleiri.
í leikjum við önnur börn eykst
félagsþroski barnsins og I leik
fær hugmyndaflug og athafna-
semi barnsins útrás.
Fyrstu leikföngin eiga
að vera einföld.
Hjá ungbörnum koma skyn-
færa- og hreyfileikir snemma i
ljós. Börn byrja að hjala nokk-
urra mánaða gömul og hjala
yfirleitt þegar þeim liður vel.
Ungbörn hafa i fyrstu ekki
vald á augunum, en smátt og
smátt fara þau aö hafa gaman
af aö horfa á litrika hluti, svo
sem hringlur.sem oft eru hengd-
ar fyrir ofan rúm þeirra.
Flestir sem hafa haft einhver
samskipti við ungbörn hafa ef-
laust tekið eftir, að barnið byrj-
ar ungt að leika sér við að skoða
■■■■■
tærogfinguroghefur gaman af.
Litil börn hafa lika tilhneig-
ingu til aðstingaölluupp isig og
þurfa þvi fyrstu leikföngin að
veraeinföld ogauðveld að þrifa.
Þegar börn eru á fyrsia og
ööru árinu leika þau sér ein og
hafa yíirleitt ekki þroska tíl að
leika viö önnur börn. Hins vegar
finnstþeim gaman aðhafa önn-
ur börn i kringum sig. Á þessum
aldri leika börnin sér yfirleitt
hlið við hlið, en ekki saman, þau
eru enn ekki orðin nógu þroskuö
til að leika sér saman.
Foreldrar og aðrir þeir sem
annastböm ættu að syngja sem
oftastmeðbörnunum. Lftil börn
hafa ótrúlega gaman af að
syngja og læra fljótt einfaldar
vísur,. þótt þau skilji kannski
ekki textann.
Barni, sem raular við leik
liður vel, og börn hafa mikla
ánægju af einföldum söngva-
leikjum svo sem „Fyrst á rétt-
unni” og fleirum.
ímyndunaraflið óspart
notað.
Þegar barnið nær þriggja ára
aldri, verða leikir þess marg-
breytilegri. Það notar
imyndunaraflið óspart og jafn-
vel dauðir hlutir veröa lifandi.
Hugarflug barna er mjög
auðugt á þessum árum og þau
lifa sig gjarnan inn i leik sinn og
eignast jafnvel imyndaðan
leikfélaga. Þessi ósýnilegi vinur
heitir eitthvaö og barnið talar
um hann eins og hann sé lifandi
félagi.
Leikir þessir, sem hafa verið
nefndir imyndunarleikir eru
fjölbreytilegir og endurspegla
oft reynslu barnanna, það sem
þau hafa séð og reynt, aö við-
bættu eigin imyndunarafli.
Fjölskyldulifið er vinsælt við-
fangsefni til leiks, svo sem
mömmuleikur, en það er senni-
lega sá leikur sem er hvað vin-
sælastur meðal barna á vissu
aldurskeiði.
I þessum hugarflugsleikjum
tekur málþroski barna örum
■■■■■■■■■■iHKHBBBB
Sunnudagur 25. juli 1976. VTSIR
mmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmammmmm
Börn hafa mikla þörf fyrir félagsskap annarra á þessum aldri.
framförum, þvf þeim fylgja oft-
ast nær samtöl.
Tilbúin leikföng skipta ekki
meginmáli, hinir ýmsu hlutir
eru látnir vera hitt og þetta i
„þykjustunni”.
Rik þörf fyrir félags-
skap.
Vinsæll leikur meöal barna er
að klæða sig I gömul föt af
pabba eða mömmu og leika full-
orðið fólk.
Leikir sem þessir gegna
mikilvægu hlutverki hvaö
varðar andlegt heilbrigði barns-
ins. Þar fá sterkar tilfinningar
útrás, til dæmis hræðsla, af-
brýðisemiog reiði og leysa innri
spennu.
Þegar bamiö leikur fulloröið
fólk fær þaö tækifæri til að vera
sá sem yfirráðin hefur. 1 veru-
leikanum er barnið minni mátt-
ar gagnvart þeim fullorðnu.
í sumum leikjum hræða börn
stundum hvort annað, til dæmis
með bola, ljóninu eða einhverju
dýri. Sálfræðingar telja að með
þessum leikjum séu börn að
uppræta ótta sinn og ekki sé rétt
að koma i veg fyrir þá.
Aö sjálfsögöu geta leikir sem
þessir gengið út I öfgar, til
dæmis ef stærri börn hræða eða
hrekkja yngri börn vísvitandi.
Börn gera litinn greinarmun á
Imyndun og veruleika þegar
þau eru ung. Þeim finnst ekkert
athugavert við þaö, að dýr eða
dauðir hlutir hafi mál.
Imyndunarleikirnir þróast frá
þvi að vera einleikir eða sam-
leikur tveggja barna i þaö að
vera félagsleikir. Félagsþroski
barnsins eykst i leik með öðrum
börnum.
Leikurinn eykur skilning og
eflir eftirtekt á þvi sem er að
gerast i kringum barnið, til
dæmis leikir sem endurspegla
störf fullorðna fólksins.
Leikir þessir efla málþroska
barnsins ogorðaforða. Þau læra
að tjá hugsun slna I máli og búa
sig þannig, án þess að gera sér
grein fyrir þvi, undir fullorðins-
árin.
íkringum fimm ára aldurinn
standa imyndunarleikir i mest-
um blóma og á þessum aldri er
þörf barnsins fýrir félagsskap
annarra mjög mikil.
Það barn sem engan leik-
félaga á, fer á mis við þann
þroska og ánægju sem sam-
skipti við önnur börn bjóöa upp
á.
Leikrými nauðsynlegt
Eins og áðurkomfram er þörf
barna fyrir félagsskap mikil,
foreldrar ættu þvi að stuðla að
þvl að barnið eignist leikfélaga.
Það er hægt meðal annars með
þvl að skapa góðar aðstæður á
heimilinu og leyfa því að hafa
leikfélaga sina hjá sér.
Barn nýtur sin ekki i leik
nema það hafi leikrými, leik-
föng og leikfélaga. Litið og
þröngt leikrými veldur árekstr-
um við umhverfið.
Hvað varðar leikrými er mik-
ill aðstöðumunur milli sveita-
barna og borgarbarna. Börn i
sveit lifa i nánari tengslum við
náttúruna sem býður upp á ótal
viðfangsefni.
I bæjum er þessu hins vegar á
annan veg háttað, þar tak-
markastleiksvæði barnanna úti
af götunni, húsaröðum og görð-
um, sem oft á tiðum má ekki
leika sér i.
Oft er kvartað yfir ólátum
barna á götum úti. Þessi börn fá
þá ekki heilbrigða útrás fyrir
athafnasemi sina.
Leikrými á heimilinum sjálf-
um er ekki siður nauðsynlegt,
en þar vill oft verða misbrestur
á.
Stundum stafar það af
þrengslum og litlu húsnæði en
lika allt of oft vegna þess, að
mikill hluti Ibúðarinnar er
notaður sem sparistofa. Börnin
hafa þá langminnstu herbergin
til afnota.
Æskilegast væri að ibúðin
væri þannig úr garði gerð að
börnin heföu gottleikrými i her-
bergi sinu og aðstöðu fyrir aö fá
félaga slna með sér heim, sem
er þeim svo mikils virði.
Uppalendur ættu aö vera þess
minnugir að leikurinn er undir-
búningur að áreynslu i starfi og
námi og stuðlar að félagsþroska
barnsins. SE
nHBHHHHBHHHnBBSnHBBBBBS
TEITUR TÖFRAMAÐUR
Ég varö þreyttur á aö reyna
Va, hvilikur bill
Ertu að grínast? Sá á
Vonandi
verður
hann
frægur.
Áreiðan
lega. ,
að seljasöfnum listaverkin min
Ég ákvað að fara út undir /
bert loft. A
Hvar er
eigandinn?
f und sem f innur.