Vísir - 25.07.1976, Qupperneq 15

Vísir - 25.07.1976, Qupperneq 15
vism Sunnudagur 25. júll 1976. 15 REGGAE tónlist órsins '76? Bob Marley, söngvari og aöalsprauta hljómsveitarinnar The Wailers. Umsjón: Gisli Sveinn Loftsson Reggae heitir tónlist/ sem á uppruna sinn á eyj- unni Jamaica, segja má að Reggae sé tónlist ey jarskeggja, og hefur verið svo um nokkurt skeið. Reggae er snar þáttur af trúarbrögðum fólks á eyjunni/ sem mikið til snýst um guðinn Rastafari/ og boðskap hans. Fyrir utan Jamaica, þá hefur Reggae-tónlistin einna helst þrifist i Englandi, og viö vax- andi vinsældir undanfarin fimm ár. 1 fyrstu voru það listamenn frá Jamaica sem tóku upp i stúdióum á eyjunni, en sendu siðan árangurinn til hljómplötu- fyrirtækja i Bretlandi, er sér- hæfðu sig i útgáfu Reggae-tón- listar. Markaðurinn var nægi- lega stór i upphafi, til þess að nokkur smáfyrirtæki höfðu lifi- brauð af. Neytendur voru að langmestu leyti innflytjendur er komið höfðu frá sömu slóðum og Reggae-tónlistin kemur frá. Eitt þessarar fyrirtækja var Is- land-hljómplötuútgáfan er á skömmum tima varð, með Reggae að bakhjarli, ein af voldugustu hljómplötuútgáfum Bretlands. Fyrirtækið hefur enn sem fyrr litla eyju i vörumerki sinu. Annað fyrirtæki sem óx með Reggae var Trojan, er sameinaði undir sitt merki mörg hinna smærri plötufyrir- tækja er gáfu út plötur með Reggae-tónlist. bað er þvi engin tilviljun, að þessi tvö fyrirtæki hafa á sinum snærum flestar bestu og vinsæl- ustu Reggae-hljómsveitirnar og listamennina i dag. Reggae hefur alltaf verið að skjótast upp á breska vinsælda- lista siöastliðin tiu ár, ég man eftir Roy C, sem söng „Shotgun Wedding”, en það lag var gefið út af Island,- það var nokkurn tima á listanum þá. bá hefur Jimmy Cliff átt mörg vinsæl lög, John Holt, Rupie Edwards, og svona mætti lengi telja. Arið 1976, virðist samt ætla að verða árið sem Reggae varð vinsælt, þvi að á siðustu mánuð- um hefur tónlistin náð óhemju- vinsældum i Bandarikjunum og Evrópu, og aðallega þá Reggae- tónlist Bob Marley og the Wailers, sem hafa átt mörg vinsælustu reggae-lög er samin hafa verið. Ahugi bandariskra unglinga á Reggae-fyrirbærinu vaknaði, er Eric Clapton hóf að spila reggae i töluvert rokkaðri útgáfu en venja er meðal Jamaica-búa. bað var til dæmist Bob Marley, er átti lagið ,,I shot the sheriff” sem Clapton gerði óhemjuvin- sælt. Astæðan fyrir þvi, að Clapton og fleiri hafa undan- farið rokkað tónlistina meira en gert var i upphafi, er sú sama og þegar hvitir menn hófu að leika blues og soul. Upprýinalega tónlistin höfðaði ekki nægilega til vesturlandabúa, þeir þurftu að „pæla” of mikið i þvi sem var að gerast, og þvi nenna vestur- landabúar yfir höfuð ekki. bá er Reggaetakturinn töluvert frá- brugðinn þvi sem við eigum aö venjast, fólk þarf að leggja aðeins meira á sig en venjulega til að dansa eftir honum. Okkur virðist þó hafa tekist að yfirstiga þessi vandkvæði, þar eð, eins og áður segir, Reggae er tónlist dagsins i dag, hvort sem er i hljómleikahöllum eða diskótekum. Bob Marley og hljómsveit hans eru i farar- broddi, eiga það vel skiliö, enda búin aö vera að spila i fjölda ára. 'Sumir ganga jafnvel svo langt að spá Marley og hljóm- sveitsömu vinsældum og hljóm- sveitum á borð við Rolling Ston- es. Hver veit. Eitt er þó vist, og þaö er að Reggae nýtur orðið mikilla vinsælda hér á landi, þrátt fyrir að illa gangi til að byrja með að fá fólk til þess að dansa við Reggae i diskótekum. Ég veit til þess, aö ein islensk hljómsveit spilar Reggae með mjög góðum árangri, og sæmilegt úrval af Reggae-tónlist er að finna i plötubúðunum. Vel á minnst, nýjasta plata Bob Marley heitir „Rastaman Vibration” og er mjög góð. Föstudagur: Kvöld: Mótssetning. Hljómsveitin Experiment Hljómsveitin Cabarett. Laugardagur: Bátaleiga opin Eftirmiðdagur: frá 10.00-16.00 1. Skipulagðar gönguferðir um ná- grennið. 2. Tivoli og hæfileikakeppni starfrækt. 3. Ýmsar iþróttir: m.a. blak, handbolti, viðavangshlaup. 4. Skemmtidagskrá með Randver og Halla og Ladda. 5. Maraþondanskeppni. Kvöld: 1. Ávarp hátiðargests, Flosa ólafssonar 2. Varðeldur i umsjón Galdrakarla. 3. Paradis leikur fyrir dansi. 4. Galdrakarlar leika fyrir dansi. 5. Diskótekið Áslákur og Halli og Laddi skemmta i pásum. 6. Flugeldasýning. Sunnudagur: Bátaleiga opin Eftirmiðdagur: frá kl. 10.00-16.00. 1. Hugleiðing um landvernd. 2. Skipulagðar gönguferðir um ná- grennið. 3. Tivoli og hæfileikakeppni starfrækt. 4. Skemmtidagskrá með Gisla Báldri Randver og Þokkabót. 5. Uppákoma. 6. Maraþonkossakeppni. Kvöld: 1. Paradis leikur fyrir dansi. 2. Cabarett leikur fyrir dansi. Diskótekið Áslákur og Gisli Rúnar og Baldur skemmta i pásum. 3. Varðeldur i umsjá Þokkabótal. Mónudagur: Bátaleiga kl. 10.00-13.00. Mótsslit. Þá mun Holberg Másson bjóða upp á loftbelgsferð á laugardag og sunnudag. Aðgangur kr. 3.500,- Unglinga- hátíð að úlf Ijótsvatni um verslunar- mannahelgi Glœsilegasta dagskrá sem um getur:

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.