Vísir - 21.08.1976, Page 2
fí REYKJAVÍK)
Finnst þér dýrt
að lifa á
íslandi í dag?
Siguröur Sophusson, lagerstjóri:
— Þaó er sennilega miklu dýrara
en aöur.
Alda Jónsdóttir.húsmóöir. — Já,
þaö er þaö, og dýrara en oftast
áöur.
Guörún ólafsdóttir, verkakona:
— Já, þaö þykir mér nú dýrt, sér-
staklega fyrir verkamanninn sem
ekkert hefur til brunns aö bera.
Jón Freyr Þórarinsson, skóla-
stjóri. — Jú, aö visu, en þó er þaö
vafalaustekkidýrara aö búa á Is-
landi en annars staöar.
Friöa Gunnarsdóttir, vinnur viö
húshjálp aldraöra: — Já, mér
finnst þaö mjög dýrt aö búa hér!
Á TÓLFTA HUNDRAÐ LAX-
AR KOMNIR ÚR GRÍMSÁ
„Þetta hefur verio svona
sæmilegur reytingur hérna aö
undanförnu, og þaö eru komnir
eitthvaöá millillog 12hundruö
laxar á land i sumar”, sagöi
Siguröur Fjeldsted veiöivöröur
viö Grimsá er Visir náöi tali af
honuin i gær.
Sagði hann að þetta væri mun
minni veiði en i fyrra, en þá
veiddust alls um 2200 laxar. Tiu
stengur hafa verið i ánni i allt
sumar, að undanskildum nokkr-
um fyrstu dögunum, þá voru
færri. Rigning var við Grimsá i
gær, og áin heldur vatnsmikil,
að sögn Sigurðar.
Leyfilegt agn i Grimsá er
fluga og maökur, en bannaö er
aö nota spún. Veiðitimabilinu i
Grimsá lýkur þann 15. septem-
ber.
Talsvert hefur veiðst af stór-
löxum i Grimsá að undanförnu,
t.d. fékk Konráð hótelstjóri á
Hótel Sögu einn 21. punda fyrr i
vikunni. Veiddist hann i
Strengjunum, en rétt áður en
Konráð fékk hann hafði veiðst
þar einn 19 punda. Þá hafa að
undanförnu veiðst nokkrir 17 og
18punda fiskar, svo ekki viröist
þá skorta stórlaxa stórlaxana
sem veiða við Grimsá!
Þaö er fleira fiskur en lax, og stúlkan hér á myndinni er hæstánægö
ineö veiöina sina, þótt ekki sé þar um aö ræöa neinn stórlax. Hún
heitir Steinunn Þóröardóttir, og myndin er tekin viö Hftarvatn.
Þessa mynd tók Karl ljósmyndari Visis viö ölfusá nú fyrr i þessari
viku. Sá sem þarna rennir fyrir „þann stóra” heitir Eyjólfur
Sigurösson, og er úr Reykjavik.
290 laxor hafa veiðst
í Gljúfurá
„Þaö hafa veiðst hér um 290
laxar I sumar, en það er mun
minna en komið var á sama
tima i fyrra”, sagði Sigurður
Tómasson í Sólheimatungu i
samtali við Visi i gær.
Sagði hann að vatnið I ánni
hefði verið gott i sumar ef undan
væru skildir nokkrir daga i
vatnavöxtunum fyrr i þessum
mánuði. Lax er um alla ána, og
einnig er talsvert farið að bera á
sjóbirtingi.
Laxar úr Gljúfurá eru yfirleitt
ekki mjög stórir, en stærsti lax-
inn sem veiðst hefur i sumar vó
15 pund.
Veitt er á þrjár stengur i
Gljúfurá, og lýkur veiðitimabil-
inu þar hinn 20. september.
POPPHLJÓMLEIKAR í LAUGARDALSHÖLL
„Toppurinn í
rokkinu spila
„Þetta verður sami viöburöur
hvaö snertir gæöi og popphljóm-
leikarnir áriö 1969 þegar Björgvin
Halldórsson var kjörinn popp-
stjarna”, sagöi Óttar F. Hauks-
son viö Visi. En hann hefur skipu-
lagt popphljómleika, sem hann
nefnir „Rock’n roll festival” i
Laugardalshöllinni 1. september
næst komandi.
„Það er toppurinn i rokkinu
sem kemur fram”, sagði hann.
Hljómsveitirnar Paradis,
Celsius, Cabarett, Eik og Fresh
koma fram og spila eingöngu
frumsamiö efni.
”Ég ásamt Evald Sæmundsen
höfum unnið i þessu stanslaust i
þrjár eöa fjórar vikur. En hug-
myndin að þessu kviknaði i vor. —
Nú erbara að vona aö aðsóknin
veröi góð”.
Forsala aðgöngumiða á þessa
hljómleika er þegar hafin. Fer
hún fram á eftirtöldum stöðum. I
Reykjavik i Myndiöjunni Astþór i
Bankastræti, Hafnarstræti og i
Breiðholti, i Hljómdeild Faco við
Laugaveg og Austurstræti. I
Keflavik verður aðgöngumiðasal-
an i hljómdeild Vikurbæjar, á
Akranesi I versluninni Eplinu og
á Selfossi i Radio- og sjónvarps-
stofunni. Verð aðgöngumiða er
tvö þúsund krónur.
„Menn ættu að bregða skjótt
viö”, sagði Evald „þvi upplag
miðanna verður takmarkaö.
Hámark að 4500 manns verði selt
inn i höllina.” —EKG
BÍLAINNFLUTNINGUR I JAN. - JÚNl:
404 fleiri bílar fluttir
inn i ór en í fyrra
1 ársfjórðungslegri skýrslu Hagstofu islands um bilainnflutning á
þessu ári kemur fram, aö á timabiiinu janúar til júni á þessu ári
hefur biiainnflutningur aukist talsvert miðaö viö sama tima I fyrra.
A timabilinu voru fiuttar inn 2097 bifreiöar meö bensinhreyfli, og
157 bifreiðar meö Ðieselhreyfli, eöa samtals 2254 bifreiöar. t fyrra
voru fluttar inn tii iandsins á sama tima 1850 bifreiöar.
í þessum tölum eru bæöi nýjar bifreiðar og notaöar, fólksbilar,
vörubilar og aörir bilar.
—AH