Vísir - 21.08.1976, Blaðsíða 19
Kanar
eru líka
menn
Sjoppu-
kóngar og
grillskála-
keisarar
Rúnar ferðamaöur hringdi:
Oft hafa ferðamenn og aðrir
þeir, sem stundum þurfa að
leggja okkar fagra land undir
fót kvartað undan þeirri stétt
athafnamanna, sem nefndir
hafa verið sjoppukóngar. Þessir
menn eru eins og smákóngar út
um allt land og stjórna sinum 10
fermetra kóngsrikjum með
hroka og fégræðgi. A slikum
stöðum hefur viðskiptavinurinn
alltaf rangt fyrir sér.
A slðustu árum hafa sprottiö
upp víða um land grillskálar og
eru sumir þeirra ágætir, þó
verðlag sé hátt en tilkostnaður
er lika sjálfsagt mikill. Dæmi
um góða skála er skáli þeirra
bræðra á Stað i Hrútafirði og
skálinn hjá honum Þráni á
Egilsstöðum. A þessum stöðum
er allt hreint og þokkalegt og
viðskiptavininum finnst hann
ekki vera illa séður smælingi
ofurseldur duttlungum eigand-
ans einsoger um margar stofn-
anir af þessu tagi. Þessir skálar
eru stærri en sjoppurnar og
mætti þvi kalla umsjónarmenn
og eigendur sumra þeirra grill-
skálakeisara til samræmis viö
sjoppukóngana.
í sumum þessara skála
minnir þó umhverfiö og um-
gangurinn litiö á keisaradæmi
eins og það hugtak er i hugum
okkar kóngslausu islendinga ab
minnsta kosti, nema þá ef vera
skyldi Rússland fyrir bylting-
una. Nútimalegir straumar
hreinlætisstefnunnar og kurt-
eislegra viðskiptahátta hafa
nefnilega ekki alls staðar knúið
dyra á þessum stofnunum.
Að undanförnu hef ég feröast
nokkuö um landið þvi ég er ekki
einn þeirra sem sæki lifsfyllingu
mina i baðstrandarlegu og
næturklúbbarall suður á Spáni.
í slðustu ferð minni kom ég
ásamt rosknum foreldrum
minum á einn slikan stað en það
var grillskálinn á Blönduósi. Ef
vera kynni að fleiri en ein slik
stofnun fyndistá Blönduósi, bið
ég menn að rugla hinum ekki
saman við þann sem ég á við, en
það er BP skálinn við Blöndu
brú.
Ég er rólyndismaður og sein-
þreyttur til vandræða, ef svo
væri ekki hefði ég haft samband
við heilbrigðisyfirvöld staðarins
eftir þessa heimsókn mina.
Afgreiðslustúlkurnar á stað
þessum voru einstaklega
ósnyrtilega til fara og búningar
þeirra höfðu greinilega ekki átt
langdvalir i sápulegi nýverið.
Hnífapörin voru svo skitug aö
móöir min varð sér út um
serviettur og þurrkaði af þeim
verstu blettina. 011 matreiösla
fór fram meö þeim hætti að lyst
okkar vegamóöra ferðalang-
anna dvinaði mjög og þurfti
mikið til. Eftir aö hafa lokað
huganum fyrir hugsunum um
gerla og veirur, sem við þessar
aðstæður þrifasteins og púkar i
fjósum siblótandi bænda, skófl-
uöum við i okkur nokkru af
kræsingunum og hugðumst
siöan skola niöur bragðinu af
þessum listaverkum mat-
reiðslukúnstarinnar meö ærleg-
um kaffisopa. Kaffinu var hellt
af griðarstórum brúsa yfir á
smærri könnu meira við hæfi
okkar samferðafólksins. Ég leit
útundan mér á stúlkuna en húr
hafði greinilega einhverja hug-
mynd um að kaffið væri ekki vel
heitt og hvaða aðferö skyldi húr
svo hafa haft við að ganga úi
skugga um það? Jú hún dýfpi
bara fingrinum ofani könn
una!!!!
Ég vona að hún hafi skaö
brennt sig.
Keflvikingur hringdi:
Mig langar að koma á fram-
færi þökkum til Visis fyrir
greinar þær sem birst hafa að
undanförnu um varnarliðið.
Kannski fleiri en áður geri sér
ljóst að hermennirnir þarna
suður frá eru hvorki blóö-
þyrstar skepnur né á annan
hátt öðru visi en annað fólk.
Ég hef búið I nánd við varnar-
stööina I fimmtán ár og eign-
ast marga kunningja meðal
hermanna og annarra banda-
rikjamanna á vellinum.
Ég hef kynnst mönnum af
öllu tagi þarna á vellinum en
almennt verð ég að segja að
þeir eru hjálpsamari, kurteis-
ari og reglusamari en gerist
um Islendinga. En þetta eru
fyrst og fremst venjulegir
menn, sem sendir eru hingað
til aö gegna skyldusiörfum
sinum og mér þykir ánægju-
legt að einu dagblaöanna skuli-
hafa dottið i hug að kynna
þjóðinni nábúa okkar þarna
suður frá, sem fram að þessu
hafa verið huldumenn i augum
islendinga, sveipaðir dular-
hjúp rangfærslna, fávisku og
goðsagna.
Laugardagur
21. ágúst 1976
VlSIF
/n. reykjavíkurskAkmótið-alþjóðaskákmót 1976, ReykjavíkurskákinntiA
TAFLFÉLAQ REA(K.IAVÍKUR
miAimnn
BMUT
Jkeifunnill
o - . i
H
FRIMERKJASAFNARAR
■
finm Sérstimpill Reykjavikurskákmótsins á sérútgefnum um-
slögum með merki mótsins og einnig með teiknuðum
Ðmyndum af islensku keppendunum eftir Halldór Péturs-
v son.
Umslögin verða til sölu á keppnisstað I Hagaskóla, opnaö
verður kl. 2þann 24. ágúst, upplag mjög takmarkaö.
Pöntunum veitt móttaka í sima 83540 ki. 10-2 sunnudaginn
22. ágúst.