Vísir - 21.08.1976, Blaðsíða 3
VISIR Laugardagur 21. ágúst 1976
3
„Æ ERTU
LÁTINN!"
„Vist slotar veðrinu ögn af og
til á eftir verstu hryðjunni.
Ég brenni kertið I báða enda
og brúka kyndil i miðjunni.
t hvita húsinu hvar er hann
Jón
Kennedy?
Æ, ertu látinn!”
Þetta er siðasta versið og
viðlagið i titillagi væntanlegrar
plötu frá Megasi „Fram og
aftur blindgötuna”. En þó svo
sé mun það ekki koma á plöt-
unni og kemur liklega aldrei út
þó að upphaflega hafi sú verið
hugmyndin, en Megas söng lag
þetta við góðar undirtektir i Há-
skólabiói á listahátiðinni forð-
um.
Megas fór meðfriðu föruneyti
inn í stúdió Hljóðrita i byrjun
júli á vegum útgáfufyrirtækis
Ingibergs Þorkelssonar Hrim
hf. með það i huga að taka upp
breiðskifu með efni sem Megas
átti á lager. Megas valdi með
sér hljómsveitarkjarna sem
saman stóð af Lárusi H. Grims-
syni úr Eik á hljóðborð, Þor-
steini Magnússyni lika úr Eik á
gitar, Pálma Gunnarssyni úr
Celcius á bassagitar og Siguröi
Karlssyni úr Celsius lika á
trommur. Aðrir sem komu við
sögu voru Birgir Guðmundsson
á gitar og Aagot Vigdis Óskars-
dóttir sem lék á pianó i siöasta
laginu „Enn (aö minnsta
kosti)” af frábærri snilld að
sögn Megasar. Voru reyndar
tveir af bestu pianóleikurum
poppsins okkar búnir að spreyta
sig á prófinu en féllu. Upphaf-
lega var ætlunin að láta plötuna
taka 40 tima 1 stúdióvinnu en
þaðvarðað sextiu sem telst nú
samt ágætt, en hún var tekin á
tveimur vikum. Platan er
væntanleg i byrjun september
og er verið að ganga frá
hulstrinu hér heima. En platan
er I pressun i Hollandi. Tony
Cook tók plötuna upp og sagði
Megas að honum hefði tekist
mjög vel að ná röddinni fram
skilanlegri og skýrri.
Megas tjáði Tónhorninu einn-
ig að ef til vill kæmi út ein EP
plata IN oregi i vetur með lögum
sem tekin voru upp I Sigtúni
með Pelican og honum saman
hér um árið er hér um að ræða
rokkaðar „live” útsetningar á
„Ingólfi Arnarsyni”, „Jónasi
Hallgrimssyni” og „Jóni Ara-
syni” auk uppfyllingar sem
Megas kallar „Við viljum
Megas”.
Annars gæti þarfyrir utanvel
farið svo að næsta plata Megas-
ar verði tvöföld plata með 14
lögum þó enn sé allt að sjálf-
sögðu á huldu með það ennþá
hvað úr verður. Yrði sú plata
lokapunktur i þeim hópi gamals
efnis sem Megas hefir legið með
á lager. Er hugmynd hans að
hún verði prógrammeruð
(þ.e.a.s. textar I ákveðnu sam-
hengi) og lofaði hann þvi að
„Smælið” góða yrði á henni.
Annars eru nöfn laganna á
„Fram og aftur blindgötuna”
þessi: hliðeitt: Sút fló i brjóstið
inn (þar sem Megas syngur 3
raddir) /Ekki synd en aðeins
gefin veiðin (sem er lýsing á is-
lenskum fasisma) /Napoleon
Back Vinaminni (endur-
minningar úr skóla) / og Jóla-
nóttburður. A hlið tvö: Gamla
gasstöðinviðHlemm/Skirnin/ I
speglasalinn/ Enn (að minnsta
kosti).
Visuvers birt með leyfi höf-
undar.
HIA
DOMSRANNSOKN
Á ÁVÍSANAMÁL-
INU VART HAFIN
- óar við aðferðum blaðamanna
„Það er út i hött að tala um
birtinguá nöfnum þeirra sem við-
riðnir kunna að vera ávlsanamái-
ið, enginn hefur verið ákærður og
ekki hefur einu sinni verið kvadd-
ur maður til yfírheyrslu vegna
þessa máls. Það væri undarlegur
máti á dómsrannsókn ef menn
læsu nöfn sin i blöðunum áður en
sakadómur ákærði þá eða kallaði
þá til yfirheyrslu’. Þannig fórust
Halldóri Þorbjörnssyni, yfirsaka-
dómara orð i viðtali, sem blaða-
maður Visis átti við hann i gær á
skrifstofu Sakadóms ReykjavlK-
ur.
Dómsrannsókn vart haf-
in
Halldór tjáði blaðamanni VIsis,
að dómsrannsókn ávisanamáls-
ins svonefnda væri tæpast hafin.
Kvað hann þetta gifurlega
umfangsmikið mál og væri að
sjálfsögðu ekkert hægt að segja
um mál sem vart væri farið aö
rannsaka á vegum sakadóms.
Aðspurður sagði Halldór að saka-
Aðalfundur Kvartmiluklúbbs-
ins verður haldinn I húsi Fóst-
bræðrafélagsins og hefst hann
klukkan 13. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfunda rstörf.
dómur ætti við manneklu að
striða og ekki hjálpaði að mikill
timi færi i viðskipti við blaða-
menn. Kvað hann ágengni blaða-
manna I þessu máli hafa tafið
fyrir rannsókn málsins.
Halldór sagðist vonast til að
dómsrannsókn hæfist á vegum
sakadóms næstu daga en hún
myndi ugglaust taka mikinn
tima. Halldór lagði áherslu á, að
sakadómur birti aldrei nöfn af-
brotamanna en léti blöðunum
hins vegar i té upplýsingar um
það þegar játningar manna lægju
fyrir.
Birta ekki nöfn manna
án sannana um sekt
þeirra
Yfirsakadómari kvaðst harma
ef nöfn saklausra manna væru
bendluð við ávisanamálið en
sakadómur gæti hins vegar ekki
staðið i þvi að elta upp alls kyns
kjaftasögur og hrekja þær. Ekki
væri heldur forsvaranlegt að
skýrsla formanns og gjaldkera
og lög félagsins verða birt. Með-
limir Kvartmiluklúbbsins eru
beðnir um að mæta vel og
timanlega.
birta nöfn einhverra manna, sem
hugsanlega gætu verið viðriðnir
málið og úthrópa þá þar með sem
afbrotamenn án þess að nokkrar
sannanir lægju fyrir um sekt
þeirra.
Óar við aðferðum blaða-
manna
Aðspurður um réttmæti tima-
bundinnar frelsissviptingar
blaöamanna Dagblaðsins, er þeir
komu I sakadóm á miðvikudaginn
sagði Halldór, aðfáheyrður dóna-
skapur væri að ráðast inn i stofn-
anir til myndatöku án þess að
biðja yfirmenn stofnunarinnar
um leyfi til sliks. Kvað hann
blaðamenn hafa nokkrum sinnum
beðið um leyfi til myndatöku i
sakadómi og hefði það yfirleitt
verið leyft.
„Ég veit ekki hvert blaða-
mennska á íslandi stefnir”, sagði
Halldór,” þú getur haft eftir mér
að mér ói við þeim aðferöum, sem
þar er farið að beita”. —JOH
Rangt
stöðuheiti
1 heigarblaði Visis sem fylg-
ir blaöinu I dag er Þór Vil-
hjálmsson nefndur hæsta-
réttarlögmaður. Það er rangt.
Hið rétta er, að hann er hæsta-
réttardómari. Er hann beðinn
velvirðingar á þessum mis-
tökum.
AÐALFUNDUR KVART
MÍLUKLÚBBS í DAG
Fengu verðlaun
og viðurkenningar
Fagrabrekka 47. Þar þótti garðurinn einstaklega frumlegur og
skemmtilegur.
Nokkrir kópavogsbúar fengu
um daginn verðlaun og viður-
kenningu fyrir snyrtilega og
fallega garða sina og vel máluö
hús.
Fegrunarnefnd Kópavogs
valdi húsin, en áður hafði hún
sent dreifibréf til ibúanna, þar
sem þeir voru hvattir til að
fegra umhverfi sitt og græða
jarðveginn eftir það rask sem
hann varð fyrir þegar hitaveit-
an var lögð.
Þau hús sem fengu verðlaun
og viðurkenningar i ár fyrir
fallegt umhverfi voru:
Fagrabrekka 47, eig. Hildur
KristinsdóttirogGunnar S. Þor-
leifeson
Borgarholtsbraut 32, eig.
Guðriður Pálsdóttir og Páll
Marteinsson.
Birkihvammur 1, eig. Þórdis
Lúðviksdóttir og Björgvin
Ólafsson.
Rein við Hliðarveg, eig
Agústa Björnsdóttir, en húi
fékk verðlaunin fyrir sérstak
lega snyrtilegan blómasölustal
og viðúrkenningu fyrir þátt sinr
I aukinni ræktunarmenningt
bæjarbúa.
Verðlaun voru skjöldur mei
áletrun frá fegrunarnefndinn:
Borgarholtsbraut 32. Þessi garður hefur hlotið þá umhirðu, sem
best verður á kosið.
Rein við HHðarveg. Hér hefur Ágiista Björnsdóttir verið lengi með
blómasölubúð og með þvi lagt sinn skerf til þess að kópavogsbúar
rækti garða sina. Myndir Jens.
og mynd af persónugervingi
með sigurtákn.
Fjórir aðrir aðilar hlutu
viðurkenningu fyrir fallega
garða ogsnyrtileg hús og tveir
fengu viðurkenningu fyrir lita-
val á ibúðarhúsum sinum.
Loks var i fyrsta sinn veitt
viðurkenning fyrir snyrtilegan
frágang iðnaðarhúss og lóðar og
varð fyrir valinu Smiðjuvegur 6,
— Skcifan.
Formaður fegrunarnefndar-
innar var Einar Ingi Sigurðs-
son.
—RJ