Vísir - 03.09.1976, Side 2
f í REYKJAVÍK )
Hefurðu farið i sólbað
siðan sólin fór að skina á
ný?
Vilborg SigurOardóttir, vinnur i
banka: — Nei, ég hef ekkert fariö
i sólbaö. baö er varla hægt aö
segja aö þaö hafi veriö neitt sum-
ar þvl sólin hefur aldrei sést.
Agústa Siguröardóttir, rakara-
nemi: — Nei, þaö hefur aldrei
veriö timi til aö fara I sólbaö. Ég
er alltaf aö vinna. Ég myndi fara
ef timi gæfist og sólin skini.
Sigurgeir Kristjánsson, verslun-
artnaöur: — Flestir fara I sólbaö
þegar þeir hafa tækifæri til. Ég
hef veriö svo heppinn að þeir dag-
ar sem ég hef veriö I frii hafa ein-
mitt veriö einmuna sólrikir.
Sigriöur Lóa Jónsdóttir, nem-
andi. — Ég var að koma frá út-
löndum.ogmérfinnstþetta veöur
ekki sérstaklega gott. Úti hef ég
verið i sól og hita.
Hekia Smith, vinnur sem minnst:
— Nei, ég hef þó brugöið mér ein-
stöku sinnum i sólbað I sumar.
Gervi-badmintonvellir
fyrir norðurlandameist-
aramót í badminton
Noröurlandameistaramót i
badminton veröur haldiö I
Laugardalshöll i nóvember
næstkomandi og veröur þar
margt um manninn. 1 tiiefni af
þvi hefur Badmintonsambandiö
keypt gervi-badmintonvöll, sem
settur veröur upp i höllinni, en
hann er mjög handhægur þvi
þaö er hægt aö rúlia honum
saman eins og teppi.
Badmintonsambandiö á einn
slikan völl fyrir, en talið er
nauösynlegt aö bæta öörum, og
veröa þeir notaöir í úrslita-
keppninni. i LaugardalshöUinni
eru nokkrir badminton vellir, en
þeir snúa endunum aö áhrof-
endum, þannig aö verra er aö
fylgjast meö keppendum.
—RJ
Melskurður
í Þorlókshðfn
Fólki verður gefinn kostur á að
skera mel i landgræöslugirðingu i
Þorlákshöfn á morgun, laugar-
dag. Eins og undanfarin ár eru
það Landgræösla rikisins og
Landvernd sem standa aö þessu
sjálfboðastarfi og hefur þátttaka i
þvi fariö vaxandi meö hverju ári.
Þeim, sem ekki fara á eigin bil-
um, veröur séö fyrir fari frá Um-
ferðamiöstöðinni kl. 12 á hádegi
og heim aftur að dagsverki loknu,
og er öllum sem ekki hafa unnið
við melskurö bent á að það er
mjög skemmtilegt starf.
Landgræöslan og Landvernd
vilja hvetja alla sem tök hafa á að
koma til meðskurðar nk. laugar-
dag og leggja góöu málefni lið og
hressa andann eftir rigningar-
samt sumar. Samtökin biðja fólk
að taka vasahnifameð sér i mel-
skurðinn.
VORUFLUTNINGAR AUKAST ENN HJÁ
CARGOLUX
Á fyrstu sex mánuöum ársins
jukust flutningar Cargolux um
34% miðað við sama tima i
fyrra. Vöruflutningar námu
samtals 17,25 milljón kilóum.
Tekjur af fluginu jukust um
25% miðað við timabilið frá jan-
uar til loka júni 1975 og námu nú
samtals 750 lúxemborgarfrönk-
um, sem er jafnvirði 3,4
milljarða króna miöað við nú-
verandi gengi.
Þrjár DC-8 þotur eru nú i
flutningum hjá Cargolux og
flugtimar þeirra fyrstu sex
mánuði 1976 samtals 4,743, en
flugtimar þriggja CL-44j
skrúfuþota félagsins voru sam-
tals 2,896 klst. Auk reglubund-
ins vöruflutningaflugs til fjar-
lægra austurlanda og þá aðal-
lega Hong Kong, voru farin
fleiri leiguflug til Afriku og Ind-
lands en fyrr og að auki nokkur
til Vietnam.
—RJ
Föstudagur 3. se£ternber 1976 vism
Mikill skortur ó heimilis-
lœknum í Reykiovík
ENN OVIST HVERNIG GENGUR AÐ FA
LÆKNA OG HJÚKRUNARFÖLK AÐ
NÝJU HEILSUGÆSLUSTÖÐINNI
„Þaö hefur staöiö á leyfi heil-
brigðismálaráöuneytisins til
þess aö viö gætum hafið ráön-
ingar að nýju heiisugæslustöö-
inni i Arbæjarhverfi”, sagöi
Skúli Johnsen borgarlæknir i
samtali viö Visi i gær.
Sagöi borgarlæknir aö það
hefði tekið nokkuð langan tima
að fá svar frá ráðuneytinu, en
það væri nú loks komið, og yrði
tekið fyrir á fundi i dag.
Sagði Skúli, að i bréfi ráðu-
neytisins væru ýmis skilyrði,
einkum hvað varðaði alls-
herjarskipulag heilbrigöis-
þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Sagði Skúli ennfremur að þessi
skilyrði ættu ekki að vera
óyíirstiganleg, og þvi væri von-
ast til að unnt reyndist aö opna-
heilsugæslustöðina eftir um það
bil einh mánuð.
Hvort hann byggist við að
unntyrði að ráöa nóg af læknum
og hjúkrunarkonum að heilsu-
gæslustöðinni, sagði borgar-
læknir, að vonast til að svo yrði,
en erfitt væri þó að segja fyrir
um það með neinni vissu fyrr en
auglýst hefði verið. Þvi væri
heins vegar ekki að leyna sagði
hann, að mikill skortur væri á
heimilislæknum i Reykjavfk.
En þar sem læknar hefðu oft
sagt, að þeir vildu gjarnan
stunda heimilislækningar við
fullkomnar aðstæður, þá væri
hann bjartsýnn. Ætti þá að vera
hægt að fá góða starfskrafta, og
helst fólk sem byggi i hverfinu.
Þess má geta, að svo mikill
skortur er nú á heimilislæknum
i borginni, að þeir sem nú ætla
að fá sér lækni, geta það ekki,
þvi enginn af heimilislæknunum
tekur fleiri sjúklinga.
Þeir sem ekki fá sinn lækni,
verða þvi eingöngu að treysta á
neyðarþjónustu. —AH
Skúli Johnsen, borgarlæknir sýnir borgarstjóra og biaöamönnum nýju heilsugæslustööina i Arbæjar-
hverfi. Mynd: Loftur.