Vísir - 03.09.1976, Síða 12

Vísir - 03.09.1976, Síða 12
„Ef ekki verður gerð bót á munu íþróttirnar deya út!" — Segir Örn Eiðsson formaður Frjálsíþróttasambands íslands sem telur að hið opinbera eigi að veita meira fjármagni til íþróttahreyfingarinnar Þó að nú sé liðinn um það bil mánuður siðan Ólympiuleikunum lauk i Montreal er enn skrifað og skrafað um þátttöku islendinga i leikunum. Þau skrif eru yfirleitt á einn veg, aö frammistaða land- ans hafi ekki verið til að hrópa húrra fyrir, alltof margir sendir, okkar fólk nærri ávaiit i siðasta sæti o.fl. I þeim dúr. íþróttasíð- unni finnistv rétt að ræöa þessi mál við einn af forystumönnum Iþróttahreyfingarinnar og fyrir valinu varð Örn Eiðsson, for- maður Frjálsiþróttasambandsi islands. örn á aö baki rúmlega tveggja áratuga starf I stjórn frjálsiþrótlasambandsins, þar af siðustu 8 árin sem formaður sam- bandsins. Auk þess hefur hann átt sæti i frammkvæmdastjórn Ólympiunefndarinnar I rúman áratug. Hann er þvi vel kunnugur þessum málum. — örn, ertu ánægður með árangur islenska íþróttafólksins i Montreal? — Það er erfitt aö svara þess- ari spurningu i stuttu máli, en ég skal reyna aö vera eins stuttorður og hægt er. Árangur svipaður og ég bjóst við Þegar á heildina er litið var árangurinn svipaður þvisem ég bjóstviö. Að visu hafði ég gertmér vonir um, að Hreinn Halldórsson kæmist i úrslita- keppnina, en hafa veröur I huga, aö þaö er gerólikt að keppa snemma morguns I steikjandi hita i Montreal meöal bestu kúlu- varpara heims heldur en að kasta á Laugardalsvelli á innanfélags- mótí og bera höfuö og herðar yfir keppinautana. Hreinn náöi 15. sæti, sem er þokkalegtogþess má og geta, að hann vann menn sem kastaðhafa vel yfir 20 metra. Til að reyna að stytta svarið vil ég skýrt frá þvl, að ellefu Islend- ingar kepptu i 20 greinum i Montreal, þar sem met eru sett og 11 islandsmet sáu dagsins ljós. Slikt segir að visu ekki mikið á ólympiuleikum, en sannar þó framfarir hjá iþróttafólkinu. Guðmundur stóð sig vel Guðmundur Sigurðsson stóö sig með ágætum i lyftingunum, varö 9. i sinum flokki. Það dugði til að Island varð 1 46. sæti i stigakeppni þjóðanna af 120 þátttökuþjóðum. — En eiguni viö yfrleitt að vera að taka þátt i ólympluleikum? — Að sjálfsögðu eigum við aö TAKA ÞATT en ekki aöeins að vera meö. Eins og málum er nú háttað hér i keppnisiþróttum, erum við aðeins með. Hvort sem okkur lika betur eða verr, eru afreksiþróttir á alþjóöamæli- kvarða k'omnar á þaö stíg nú, að iþrótt'afólkið, sem kemst á topp- inn, fær næstum allt, sem það þarfnast, aöstöðu, æfingabúðir, þjálfara, visindamenn-og timinn sem feriæfingarogkeppnierþað mikill, að þetta fólk vinnur ekki frekar en þaö vill. Hvernig er hægt að ætlasttil þess, að okkar fólk, sem vantar næstum allt, sem hér var nefnt á undan, sigri, eða veiti toppfólki annarra þjóöa harða keppni? Það er ekki aðeins ósanngirni aö ætlast til þess, það er fáviska. Getum komist á toppinn Mér finnst þau afrek, sem sumt af okkar fókki hefur unnið við núverandi aðstæður, frábær og benda til þess, að is- lensk æska geturkomistá toppinn I afreksiþróttum á alþjóðavett- vangi, ef hún fengi stuðning frá þjóðinni. Viö getum ekki ætlast til þess, að íþróttafólkið fórni öllu, fristundum, tima og peningum. — Ég sá annars i ágætu viðtali viö vin minn Cmar Ragnarsson i þessu blaði nýlega, aðhann vill aö lögð sé niður keppni i þeim iþróttagreinum á ólympiuleikum, sem geysileg vinna er i. Mér er spurn, i hvaða Iþróttagreinum er keppt á ólympiuleikum, sem litil vinna liggur i, ómar minn? — Hver er staða Iþrótta á ls- landi i dag — erum viö á réttri leið? — Fyrsta boðorö iþrótta er að fá sem flesta til að iðka þær. Þaö Lilja Guömundsdóttir var meðal keppenda á ólympiuleikunum og hún setti tslandsmet i báðum þeim greinum sem hún keppti i. Ljósmynd Einar. hafa allir gott af þvi, hvort sem þeir ætla sér að komast i fremstu röðeða ekki. Þetta er grunnurinn, sem byggt er á og þvi fleiri iðkendur, þvi fleiri afreksmenn og konur. Þaö er mikill misskiln- ingur hjá mörgum, sérstaklega þeim, sem þekkja iþróttastarfið aðallega af afspurn, að það sé aöeins fyrir tiltölulega fáa af- reksmenn. Ég leyfi mér t.d. aö benda á grein, sem birtist i Alþýöublaðinu 16. október i' fyrra. Þar segir höfundurinn, Sigurður E. Guðmundsson, I fyrirsögn: „Iþróttir — fyrir hina fáu eða hina mörgu?” Mig langar til að Midurprenta eina setn. úr þess- ari grein, en þar segir: „Megin- áhersla hefur veriö lögð á að gera mjög mikið fyrir tiltölulega fáa — og fýrir bragðið hefur alltof litið verið gertfyrir hina afar mörgu, sem láta svo litið á sér bera^ iþróttasiður blaðanna skrifa aldrei um og iþróttaleið- togarnir minnást aldrei á”. Vinnum í algjöru sjálf- boðastarfi Iþróttahreýfingin er frjáls hreyf- ing og þeir sém bera hana uppi, ef svomá að orðikomast, gera það i algeru sjálfboðastarfi, fórna til þess miklum tima, sem þeir gætu vafalaust nýtt til að sinna auka- vinnu, sem nú telst sennilega orð- in þjóöariþrótt Islendinga. Varla getur Sigurður og fleiri, sem þannig hugsa ætlast til þess, að sjálfboðavinnan veröi aukin, nei,_ trúlega ekki,en i þessu sambandi má benda á, að það vantar til- finnanlega menn til starfa i iþróttahreyfingunni og þar er til- gangslaust að rifast um launa- flokk eða tlmakaup. — Við kom- um ávalltaö hinusama. I þessum umræðum. Iþróttahreyfingin á íslandi, sem i eru milli 50 og 60 'þúsund félagar I dag, er svelt svo mjög peningalega af því opin- bera, að verðiekkertgertí náinni framtið, þá liður hún undir lok sem sterkt og virkt afl I þjóðfé- laginu. Slikt væri afleittá þessum timum upplausnar og rótleysis. Þó að ekki sé allt fyrsta flokks, sem gerist á vettvangi iþrótta — frekar en á öðrum sviðum — er á þvíenginn vafi, að iþróttir þroska bæði likama og sál. Sigurður Sigurðsson, vinur minn, vill láta banna iþróttir. Þess gerist ekki nauðsyn, Sigurður minn. Með áframhaldandi afskiptaleysi hins opinbera munu þær deyja smám saman, þvi að hætt er við, aö fólk ólympluliðið sem keppti á ólympiuleikunum i Montreal. Ekki voru allir á einu máli um frammistööu þess ,, en eigi að siöur sáu 11 ný Is- landsmet dagsins ljós á leikunum. fáistekki endalaust til að leggja fram hina miklu sjálfboðavinnu. Svar mitt við spurningunni er þvi þetta: Staða iþróttanna er afar veik Staöa iþróttanna á Islandi er veik, afar væik. Þegar rætt er við erlenda „kollega” um fram- lög opinberra aöila, vaknar bæði undrun og bros, þegar þeir heyra hve fáar krónur koma til íþrcJtt- anna á íslandi. Þeir spyrja g jarn- an: Hvernig farið þiö að halda þessu gangandi? Svarið er ein- falt: Með betli hjá fyrirtækjum og stuðningsmönnum. Slikt geristnú stöðugt erfiðara og vanþakk- látara. Þegar hér er talað um stuöning hins opinbera, er átt viö framlög til félagslega starfsins, ekki mannvirkja. Markmið iþróttahreyfingarinnar er að hún sjálf afli 40% af kostnaði viö reksturinn, rikið leggi fram 30% og sveitarfélög sama hundraðs- hluta. — Þú hefur ekkert minnst d þjáifun? — Svar mitt við siðustu spurn- ingu þinni var nú alls ekki tæm- andi, en það er gott að þú nefnir þjálfun. Vissulega skortir hér þjálfara og leiðbeinendur i allar greinar iþrótta. En það er ekki nóg aö fá færa og vel menntaða menn til starfa, þegar fé vantar til aö greiða þeim sómasamleg laun. Tvær greinar, knattspyrna og handknattleikur, hafa til þessa ráðið við þetta vandamál, en kvarta þó um fjárskort. Fáir leiðtogar gera mikið fyrir marga — Ekki er nú hægt að segja aö þú sért bjartsýnn? — Jú, það er ég vissulega, ann- ars væri ég ekki búinn að starfa að þessu áhugamáli minu i 30 ár. En stundum getur maöur ekki orða bundist yfir hlutunum. Oft hef ég t.d. undrast hvað tiltölu- lega fáir iþróttaleiðtogar hér- lendis gera mikiö fyrir marga, án þess að hugsa nokkuð um pen- inga. Það er starf þessara manna, sem gerir iþrótta- hreyfinguna að þvi sem hún er i dag. Þurfum að hefjast strax handa fyrir næstu ÓL — Aö lokum örn, hvernig eig- um við að undirbúa þátttöku okk- ar I Ólympiuieikunum i Moskvu 1980? — Fyrst þarf að útvega fjár- magn til undirbúningsins sem þyrfti að hefjast strax og það duga engir smápeningar, helst nokkrirtugir milljóna. Siðan ætti Ölympiunefndin i samráði við sérsamböndin að velja úr nú þeg- ar liklega iþróttamenn og konur sem gætu orðið keppendur 1980 og gera þeim kleift að þjálfa sig og keppa undir leiðsögn færustu manna. Fólkið verður að fara I æfingabúðir erlendis vorog haust og einnig þyrfti að fara i ströng keppnisferðalög, þar sem keppt er á stórmótum, þvi að keppnis- reynslan skiptir gifurlegu máli. Siöast en ekki sist veröur að ráða færa þjálfara til að sjá um topp- fólkiö. Greiða verður vinnutap iþróttafólksins. Þegar þetta er allt oröið að veruleika er hægt að fara aö gera miklar kröfur til iþróttafólksins. VISIR Föstudagur 3. september 1976 Iprórrír r Keppni fyrir „öldunga" í Kópavoginum Frjálsiþróttadeild Breiðabliks I Kópavogi gengst fyrir ,,öldunga”keppni I frjálsum iþróttum I Kópavogsvellinum á morgun kl. 14:00 — og verður keppt I sex greinum. Allir þeir sem eru orðnir 32 ára og eldri hafa rétt til þátttöku I mótinu, en keppt verð- ur I 80 m hlaupi, 1500 m hlaupi, iangstökki, kúluvarpi og kringlukasti. Bikarkeppni FRÍ í fjölþraulum Bikarkeppni Frjálsiþróttasambandsins I fjölþrautum mun fara fram á Laugardals- veliinum helgina 18. og 19. september nk. Keppt verður i tugþraut karla og fimmtar- þraut kvenna og hefur hvert féiag rétt tii að senda þrjá keppendur i hvora grein, en árangur tveggja bestu verður talinn. Fimm kepptu í Kóngsbergi Fimm börn kepptu á Andrésar andar- leikunum sem fram fóru i Kóngsbergi I Noregi 28. og 29. ágúst — og stóðu þau sig með mikilli prýði, en alls voru 462 þátttak- endur frá öllum Norðurlöndunum. Kristján Harðarson frá Stykkishólmi sem keppti I 12 ára flokki varð þriðji I langstökki, stökk 4.84 m, en sigurvegarinn stökk 4.89 m. Kristján keppti lika I 60 m hlaupi sem hann hljóp á 8.6 sek., en komst ekki I úrslit — sigurvegarinn hljóp á 8.4 sek. Thelma Björnsdóttir úr Kópavogi keppti I 800 m hlaupi og var 116. sæti — hljóp á 2:33.5 mín., en timi sigurvegarans var 2:24.6 mln. Ingvar Þórðarson úr Hafnarfirði keppti lika I 800 m hlaupi, hann varð 18. I röðinni — hljóp á 2:27.7 min., en sigurvegarinn hljóp á 2:17.5 min. Ingvar lenti I lélegum riöli — og sigraði með yfirburðum I honum. t flokki 11 ára barna keppti Svava Grön- feldt úr Borgarnesi I langstökki og varð 6. stökk 4.11 m. Þar var hörð keppniþvl að sú er varð önnur stökk 4.18 m. 1 60 m hlaupinu komst Svava I undanúrslit —hljóp á 8.8 sek. Loks keppti Albert Imsland úr Reykjavik I 800 m hlaupi. Hann varð i 7. sæti hljóp á 2:29.7 sek., en sigurvegarinn hljóp á 2:24.4 min. Ron Rico golf ó Hvaleyrinni Ron Rico golfkeppnin fer fram á Hval- eyrarvelli um helgina, og verður keppt I öll- um flokkum karla á laugardag og sunnudag. Keppnin hefst kl. 91 fyrramálið, og þá leika fyrst meistara- og 1. flokkur. Eftir hádegi leika svo 2. og 3. flokkur. A sunnudeginum snýst þetta við. Þá leika 2. og 3. flokkur fyrir hádegi og meistara- og 1. flokkur eftir hádegið. gk — Forsalan í dag Forsala aðgöngumiða á landsleik tslands og Belgiu i undankeppni heimsmeistara- keppninnar I knattspyrnu á sunnudaginn hófst við Útvegsbankann i Austurstræti 1 dag. Miðarnir verða seldir til kl. 18:001 kvöld, en á morgun frá kl. 13:00 til 18:00 i Laugardaln- um. Það veröa islandsmeistarar Vals og islandsmeistararnir frá i fyrra og hittifyrra, akurnesingar, sem leika til úrslita i Bikarkeppni KSt 1976. Valsmenn leku i gær- kvöldi við Breiðablik I annað skipti um rétt til þess að komast i úrslitaleikinn, og Breiðablik var engin hindrun fyrir valsliðið sem sýndi nú sinar bestu hliöar og sigraði með þremur mörkum gegn engu. Áhorfendur á vellinum voru rétt búnir að koma sér fyrir, og leikurinn var ekki nema þriggja minútna gamail, þegar fyrsta markið sá dagsins ljós. Dæmd var aukaspyrna á Breiðablik um 25 metra frá markinu. Hermann Gunnarsson tók spyrnuna og þrumuskot hans hafnaði I markinu algjörlega óverjandi fyrir Ölaf Hákonarson. Þetta var eitt af þessum fallegu mörkum Hermanns sem ávallt ylja áhorfendum. Afram hélt leikurinn og var fremur jafn. Blikarnir sem voru án Vignis Baldurssonar börðust vel, en hinsvegar virtist fjarvera hans koma illa við Hinrik Þór- hallsson sem var ekki eins snjall og maöur hefur séð hann i leikjum Breiðabliks að undan- förnu. Hinsvegar vantaði þá Inga Björn Albertsson og Magnús Bergs hjá Val, og þó að þessir leikmenn hafi verið mjög sterkir með Val I sumar virtist það ekki koma að sök. Valur virðist eiga nægan mannskap til þess að fylla upp i ef einhverjir forfallast. Þótt Breiðablik hafi „staðiö” I valsmönnum i fyrri hálfleiknum, þá var þvi ekki að heilsa I þeim siðari. Valsmenn tóku leikinn algjörlega i sinar hendur og blikarnir voru nánast sem statistar á vellinum. Vals- menn „óöu” I tækifærum og hefðu verðskuldað aö skora fleiri mörk en þau tvö sem þeir gerðu. Guðmundur Þorbjörnsson braust þá upp kantinn og upp með endamörkum. Hann renndi siðan boltanum út til Kristins Björns- sonar sem var i mjög góöu færi, og hann skoraöi af öryggi fram- hjá Ólafi Hákonarsyni, Eftir þetta mark þyngdist sókn valsmanna enn, og það var hægt að merkja uppgjöf I liöi Breiða- bliks. — Valsmenn voru fljótir að ganga á lagið, og strax á næstu minútu kom þriðja markið. Mikil pressa var á mark blik- anna, og upp úr henni átti Krist- inn Björnsson hörkuskot i þver- slá. Boltinn barst til Guðmundar Þorbjörnssonar sem nikkaöi honum áfram til Hermanns, og þaðan kom svo heljarmikið þrumuskot sem var algjörlega óverjandi fyrir Ölaf. Fleiri urðu mörkin ekki i leiknum, og var leikurinn eftir þetta ekki ýkja skemmtilegur á að horfa. Hermann Gunnarsson var hetja Vals i þessum leik og virtist njóta sin mjög vel að þessu sinni. Ekki aðeins að mörkin hans væru bæöi gullfalleg, heldur var Hermann mjög duglegur i leiknum og dreifði spilinu mjög vel. Einn ný- liði, Guðmundur Kjartansson (bróðir Vilhjálms), lék með Val að þessu sinni og stóð sig mjög vel. Breiðabliksliðið olli áhangendum sinum vonbrigðum að þessu sinni. Liðið virtist vanta þá baráttu sem hefur gefist svo vel i sumar, og fjarvera Vignis kom illa við liðiö eins og áður sagði. Besti maður liðsins i þessum leik var Þór Hreiðarsson sem er geysiduglegur leikmaður. Þetta er i fjórða skiptiö sem Valur leikur til úrslita i Bikar- keppni KSÍ. Þeir urðu meistarar 1965 og 1974 — og sigruðu þá skagamenn i bæöi skiptin i úr- slitum. Hinsvegar tapaöi Valur 1966 i úrslitum fyrir KR. Skagamenn eru nú i úrslitum i áttunda skipti, en þeim hefur aldrei tekist að bera sigur úr býtum i bikarkeppninni. Orslita- leikurinn fer fram á Laugardals- velli 12. september. Guðmundur skorar — Guðmundur Þorbjörnsson hinn marksækni miðherji Vals skorar hér I leiknum gegn Breiðablik I gærkvöldi. En markiö var dæmt af, dómarinn taldi að hér heföi verið um háskaleik aö ræöa. Ljósm. Einar. Matthías kemur ekki í leikinn! — Forráðamenn Halmía settu honum stólinn fyrir dyrnar og hótuðu öllu illu ef hann fœri heim „Það var komin mikil harka i þetta mál og forráöamenn Halmia sögöust skyidu sjá til þess aö ég færi stórskuldugur út úr þessu, ef ég stæöi fast á þeirri ákvörðun minni aö fara heim til að leika meö landsliöinu”, sagöi Matthias Haligrimsson knatt- spyrnumaðurinn kunni frá Akranesi, sem nú leikur sem hálf-atvinnumaður meö sænska 2. deiidarliöinu Halmia, þegar viö ræddum viö hann i Haimstad i morgun. Matthias sagöi aö sér þætti þetta mjög miöur að komast ekki heim, þvi aö hann heföi aldrei veriö i jafngóöri æfingu og nú — og hann væri búínn aö hiakka lengi til aö koma heim tii aö leika meö landsiiöinu. „Viö munum ekki toga Matthias meö töngum úr þvi sem komið er,” sagöi Eilert B. Scliram, formaður KSl, þegar viö höföum samband viö hann i morgun vegna þessa máls. Ellert sagöi aö stjórn KSt myndi kæra Halmla, félag Matthiasar, tii Alþjóöaknatt- spyrnusambandsins FIFA og til sænska knattspyrnusambands- ins. „Samkvæmt lögum FIFA þá mega atvinnuliö ekki nálgast eöa hafa samband viö leikmenn áhugaliöa á meöan á keppnis- timabili stendur. Viö gáfum hinsvegar Matthiasi leyfi til aö skrifa undir samning viö félagiö I þeirri trú aö hann fengist laus I þessa leiki eins og forráöamenn félagsins lofuöu. Þetta sama kom upp þegar Marteinn Geirsson ætiaöi aö undirrita samning sinn við beig- iska liöiö Royal Union. Þeir ætluðu ekki að gefa hann lausan i þessa leiki, en þá neituðum við okkar samþykki fyrir samn- ingnum — og þá gáfu þeir okkur Martein eftir”. Eilert sagði ennfremur aö for- ráöamenn Halmia hefðu gefið Matthiasi leyfi til aö leika með gegn hollendingum á miöviku- daginn, en stjórn KSl væri ekki enn búin aðtaka ákvöröun hvort þvi boöi yrði tekiö. —BB Hermann var maðurinn sem „braut" blikana! — Hann skoraði tvö glœsileg mörk þegar Valur sigraði Breiðablik 3:0 í gœrkvöldi — og Valur og Akranes leika til úrslita

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.