Vísir


Vísir - 03.09.1976, Qupperneq 23

Vísir - 03.09.1976, Qupperneq 23
visib Föstudagur 3. september 1976 Nauðungaruppboð sem auglýst var i 5., 8. og 11. tölublaði Lögbirtingabiaðsins 1975 á eigninni Dalshrauni 4, Hafnarfirði, þinglesin eign Jóns V. Jónssonar, fer fram eftir kröfu Árna Grétars Finnssonar, hrl., Einars Viðar, hrl., Hauks Jónssonar, hrl., Gjaldheimtunnar I Reykjavfk. Páls S. Pálssonar, hrl., Iðnaðarbanka tslands h.f., Stefáns Sigurðssonar, hdl., Innheimtu rikissjóðs i Hafnarfirði, Brunabótafélags isiands og Theódórs S. Georgssonar, hdl., á eigninni sjálfri mánudaginn 6. september 1976 kl. 14.00. Bæjarfógetinn I Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var 125., 26. og 27. tölublaði Lögbirtingablaðs- ins 1976 á eigninni Fagrakinn 2,1. h., Hafnarfirði, þingles- in eign Sæbergs Guölaugssonar, fer fram eftir kröfu Inn- heimtu Hafnarfjarðarbæjar og Finns Torfa Stefánssonar, hdi., á eigninni sjálfri mánudaginn 6. september 1976 kl. 14.30. Bæjarfógetinn I Hafnarfirði. Nouðungaruppboð sem auglýst var I 57., 58. og 59. tbl. Lögbirtingablaös 1975 á hluta i Huidulandi 7, talinni eign Guðmundar A. Jónsáon- ar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sæmundssonar hdl. á eigninni sjáifri mánudag 6. september 1976 kl. 13.30. Borgarfógetaembættiö i Reykjavlk. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 25., 26. og 27. tölublaði Lögbirtingabiaös- ins 1976 á eigninni Arnarhraun 41, Hafnarfirði, þingiesin eign Kristjáns Jónssonar, fer fram eftir kröfu Innheimtu rikissjóðs í Hafnarfirði, á eigninni sjálfri þriðjudaginn 7. september 1976 kl. 17.00. Bæjarfógetinn i Hafnarfiröi. Nauðungaruppboð sem auglýst var 143., 45. og 47. töiublaði Lögbirtingablaðs- ins 1976 á eigninni Hraunás 4 við Kaplakrika, Hafnarfirði, þingiesin eign Hólmars Finnbogasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik, á eigninni sjálfri mánudaginn 6. september 1976 kl. 16.30. Bæjarfógetinn I Hafnarfiröi. Nauðungaruppboð sem auglýst var 16., 9. og 11. tölublaði Lögbirtingabiaðsins 1976 á eigninni Tjaldanes 13, Garðakaupstað, þinglesin eign Hilmars Vilhjálmssonar, fer fram eftir kröfu Inn- heimtu rikissjóðs, Hafnarfirði, á eigninni sjálfri miðviku- . daginn 8. september 1976 kl. 11.30. Bæjarfógetinn i Garöakaupstað. Nauðungaruppboð annaö og siðasta á Grýtubakka 12, talinni eign húsfélags- ins, fer fram á eigninni sjálfri mánudag 6. september 1976 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Atvinna Bifreiðastjóri með meiroprófi óskast. SANITAS H.F. Sölumaður sem er á ferð um land allt, allan ársins hring, óskar eftir góðri söluvöru. Atvinnu- rekendur athugið, hér er um gullið tæki- færi að ræða til að koma vörum ykkar á framfæri. Nánari upplýsingar i sima 22452. OHEILLASKRIF I MOGGANUM Lyfin eru orðin pyngju hinna sjúku sú blóðtaka að engu tali tekur. Sumar orsakir sem til þessa leiðir eru miður geð- felldar. Nefna má að lyfsalarnir erueintekjuhæsta stétt landsins. Einnig að erlendir framleíð- endur lyfja eyða svo óhugnan- legum upphæöum i aö auglýsa framleiðslu sina læknum að engu tali tekur. Furðuleg eru skrif leiðarahöf- undar Morgunblaðsins hinn 25. ágúst s.l. Að visu gætir þar ókunnugleika hvað lyfjasölu viðvikur, en það er lika eina málsbót höfundar. Mannúðinni er þar ekki fyrir að fara og leyfi ég mér aö fullyrða að téður leiðari eigi sér enga hliðstæðu I Isl. blaðamennsku þegar um- búðum sleppir, skrif þessi eru skoðuð niður i kjölinn og kjarni málsins afhjúpaður:,, — skyndilega byrjað að afgreiða — lyf ókeypis”, skattgreiðendurn- ir eru látnir borga þau öll fyrir hina sjúku. — . Illa þekki ég Isl. blaðamenn ef þessi málflutningur fellur i góðan jafnvel hjá þeim. Andi þess hluta leiðarans sem veit að hinum sjúku I þjóðfélaginu er blaðinu til vansæmdar og mun vissulega verða öllum sóma- kærum góðum blaðamönnum til varnaöar. — Einhver vildi kannski ganga svo langt aö segja að blaðið sýndi hinum dauðu þá meiri nærgætni með hinum mikla fjölda viröulegra og málskrúöugra eftirmæla sem oft á tlðum er uppistaðan i les- efni blaðsins. — Rétt er að geta þess að það er öðru nær en að sá sem þetta ritar eigi I neinum útistöðum við Mbl. þótt hann finni hvöt hjá sér til að láta ekki slikan ósóma fara fram hjá seróátalinn, sem einkennir þenn an aðal leiðara þessa útbreidda og að mörgu leyti sómakæra blaös i Sannleikurinn er sá að lyfin eru óumræðilega dýr. Um það mál mætti margt og mikið rita og um miður heillavænlegar or- sakir sem til þessa má rekja i þjóðfélaginu öllu. Og þessi mál þyrfti að kryfja til mergjar, llka frá sjónarhóli skattgreiöand- ans. Magnús Kjartansson vildi á sinum tima ganga svo frá þessum málum aö til stórfelldra hagsældar mætti verða hinum sjúku. Hin nauðsynlegustu lyf komust niður i það á timabili að kosta aðeins brot af meðala- okrinu fyrr og siðar, þvi sann- leikurinn er sá að meðulin hafa hækkað upp úr öllu valdi upp á siðkastið, hvað svo sem fávis leiðari Mbl. túlkar. — En Magnúsi entist ekki ráðherra- aldur til að koma þessum málum viðhlitandi i höfn. Meðölin eru aftur orðin stór hluti örorku- og elli-lifeyris svo allt of margra bótaþega. öryrki 8373-9800 HVAÐA DRYKKJUSIÐI VILJA ÞEIR? Vignir Sveinsson skrifar: Ég fór i veitingarhúsið Sigtún á laugardaginn, en þar eins og i flestum öðrum veitingarhúsum er reiknað með að gestirnir drekki eins mikið og þeir geta I sig látið. Ég keypti mér þvi glas þrátt fyrir gifurlegan troðning, drakk úrþvinokkrasopa enlangaði þá að fara að dansa. Er ég var á leið út á dansgólf- ið gripur i mig gamall og reynd- ur dyravörður og meinar mér að halda áfram með glasið i hendinni. Ég benti honum kurteislega á, að þar sem troðn- ingurinn i húsinu væri svo gifur- legur finndist þar ekki nokkur staður tii að leggja glasið frá sér. Dyravöröurinn sagði þá, mér til mikillar furðu, að ég yrði að hella innihaldinu i mig áður en ég færi að dansa. Mér er spurn, hvers konar drykkjusiði eru for- ráöamenn Sigtúns að ala upp i fólki? Ég hélt, að ég hefði fundið ágæta lausn á þessum vanda með þvi aö dansa alveg upp viö hljómsveitina og leggja glasiö frá mér á senuna. En þvi var ekki aö heilsa. Eftir augnablik var vörðurinn kominnn aftur. Hann tók glasið og gekk með það i burtu. Ég fór á eftir honum og benti honum á að hann væri með mitt glas i höndunum. Hann neitaði að afhenda mér glasið, en ég hótaði þá að ég skyldi kæra hann fyrir þjófnað ef hann skil- aði þvi ekki aftur. Það hafði ekki önnur áhrif á vörðinn en þau, að hann lét fleygja mér og vinkonu minn umsvifalaust út. Svar frá Sigmari i Sigtúni — Við höfum verið aö reyna að koma i veg fýrir að fólk fari með glös sin út á dansgólfiö. Astæðan er sú að gestirnir áttu það til að brjóta glös sin úti á dansgólfinu, sem skapar bæði slysahættu og leiðindi fyrir aðra, sem vilja dansa. Þetta átti sér stað jafnt þótt húsið væri hálftómt snemma kvölds. Ég vil þvi mótmæla þvi, aðekki séunægirstaöir i húsinu þar sem hægt er að leggja frá sér glösin. Senan telst vinnu- staður hljómsveitarinnar og þvi reynum við aö koma i veg fyrir, að glösin séu lögö þar, enda er sama hætta þar á að þau falli á dansgólfið og ef gestirnir væru dansandi með þau i höndunum. Ég tel meiri ómenningu i þvi, aö gestunum sé boðið upp á að dansa á glerbrotum en að einum strákræfli sé fleygt út vegna þess aö hann var með einhvern misheppnaðan kjaft. hana og hann Hún er hýja tœkniundrið fró Agfa 1 sem gerir litino nóttúrulegri eðlilegri en verið hefur ; ; Sl mmm 'Q, ■L-X... ^ftaWi^24 / A

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.