Vísir - 24.10.1976, Side 9

Vísir - 24.10.1976, Side 9
rÍSER Sunnudagur 24. október 1976 RÖDDIN er i senn hrjúf og hlý, glettin og ofurlitiö raunmædd. 1 henni eins og i manninum sjálf- um, mætast húmor og húmanismi á alveg sérstakan máta. Fáir hafa beitt þvi hárbeitta vopni, kimninni betur viö aö sýna okkur i hinni grátbroslegu glimu okkar viö gæöi og glys velferöarþjóö- félagsins, sýna stimbrak litla karlsins viö öll sin stóru stööu- tákn heldur en Gisli J. Astþórs- son. Röddina þekkja þeir fjöl- mörgu sem létu uppvaskiö biöa og lögöust á meltu sunnudags- steikarinnar meö eyraö viö út- varpstækiö á sumarsiðdögum til aö heyra Gisla J. skopast að sjálf- um sér og okkur öllum við vort daglegt basl. Sama er að segja um pistlana og sögurnar i blööum og bókum, og um langlifustu og islenskustu teiknimyndafígúru is- lenskrar blaðamennsku Siggu Viggu. Og sá spéspegill islensks mannfélags sem Gisli J. hefur stillt þjóöinni fyrir framan gegn- um árin er ekki sist settur saman úr brotum þeirrar reynslu er hann hefurhlotiö sem einn af okk- ar mikilhæfustu blaöamönnum undanfarna þrjá áratugi. Þaö er gott aö vera í návist Gisla J. Astþórssonar. Þaö vita þeir ekki sist sem unnið hafa meö honum i svartaskóla blaöa- mennskunnar. Viö drukkum kaffi i lítravis og reyktum kynstrin öll af pipum eitt siödegiö fyrir skömmu hjá Gisla J. i Márlu- gerði. Þaö er hús við Fifu- hvammsveg i Kópavogi, þar sem Gisli er einn af frumbyggjunum. „Máriugeröi er uppáhaldsgeröi Guðnýjar konunnar minnar og er Strandferðaskip miili lands og eyja. Þegar Gisli var strákur segist hann hafa þótt svona heldur óar- tugur táningur og háöiö og kimni- gáfan kom fljótt i ljós. En þótt hann og félagar hans heföu reynt aö hlaupa af sér hornin eins og þeir gátu, þá hafi á þeim tíma verið allt of þröngur vettvangur til aö fremja syndimar á. Og þegar hann var áö vaxa Ur grasi I Vestmannaeyjum þá drukku táningar bara kaffi og sitrón og þóttust góðir ef þeir gátu veriö á balli þar sem dansaö var til hálf tólf. „En þaö sem setti kannski hvaö mestan svipá min uppvaxtarár”, segir hann, „var að ég ólst upp viö þau ósköp aö vera eins konar strandferöaskip milli lands og Eyja. Ég dvaldist kannski aö þriðjungi til hjá foreldrum min- um iEyjum.enafganginn af árinu hjá afa og ömmu I Reykjavik. Maður var alltaf kominn á spen- ann þegar maöur var slitinn laus aftur.Og égman svo vel eftir þvi þegar maöur I lok ágústmánaöar var búinn aö vera meö krökkun- um I Eyjum yfir sumariö, hvaö þaö var fyrirkviöanlegt aö biöa eftirskipinu sem flytja átti mann aftur til meginlandsins. En svo hálfum mánuöi seinna var maöur kominn inn i afa- og ömmu- perióduna. Ég held aö svona flakk sé afskapiega vont fyrir bam. En þvi fór fjarri aö þetta væri svona vegna einhvers ótkuktarskapar i aöstandendum minum. Þetta var bara svona, — og t.d. spilaöi skól- inn þarna inn i. Aö sumu leyti var þetta gæfa lika. I Eyjum kynntist maöur vinnu og handtökum i hitaveitunni. Eftir alls kyns puö vakna ég svo aftur til lifsins svona ári seinna og fannst ég þurfa aö afla mér frekari mennt- unar, fyrst mér bauöst þaö.” „Lifiö er meira og minna til- viljun, og i samræmi viö þaö fer égtilnáms i Noröur-Karólinu há- skóla I Bandarikjunum, — meö- fram vegna þeirrar tilviljunar aö ég fór aö vinna fyrir bandariska sendiráðið og fékk þar ráðlegg- ingar hjá kunningja. Ég er kom- inn af verslunar- og bissnissfólki. Afi var verslunarmaður og heild- sali, og þó fyrst og fremst út- geröarmaöur meö meiru úti i Eyjum framan af ævinni. Stórút- geröarmaöur. Einn af jörlunum eins og þeir voru stundum kallaöir: tugir báta og betur, bryggjur og frystihús og verk- smiðjur. Já, og konsúll aö sjálf- sögöu, breskur konsúll. Og pabbi var lögfræðingur sem aldrei kom nálægt lögfræöi en var meö fiski- mjölsverksmiðju, — gúanó— og i útgeröarbransanum og þvl öllu saman. Þaö var alveg gengið út frá þvi i minni fjölskyldu að ég væri sjálfstæðismaöur og yrði verslunarmaöur. Þess vegna fór ég út til Bandarikjanna til að læra verslunarfræði. Og ef ég hefði ekki gengiö meö áhuga fyrir þvi aö skrifa, heföi ég vafalaust flotiö sjálfkrafa inn i verslunarbrans- ann. En af þvi aö ég hafði lesið mikiö og fiktað við aö skrifa var ég eftir árið kominn i blaða- mennskunám”. „Americans are vitlaus- Gisli er 19 ára þegar hann heldur út til Bandarikianna. Arið Að gefa veröldinni selbita Afmælisgjöfin — Þegar Gísli J. varö fertugur og „var á slöasta snúningi á Alþýðublaðinu”, eins og hann orðar það sjálfur, fékk hann þessa afmælisgjöf frá samstarfsmönnum sinum þar. Þeir helguðu afmæli Glsia forslðu dagsins I nokkrum eintökum, og I skjóli náttmyrkurs var farið meö blaðið á Flfuhvammsveginn og þetta óvenjulega blað sett á hún útidyrahurðarinnar eins og venja er með dagblöö. Gísli hrökk ekki lltið við þegar hann fór að lesa blaðið sitt á afmælisdaginn. ,,En mér þótti vitaskuld ógurlega vænt um þetta”, segir hann. - rœtt við Gísla J. Ástþórsson, rithðfund og blaðamann austur i Mýrdal,” segir hann. „Hún haföi beðiö mig um aö koma upp skilti meö þessu nafni viö húsiö okkar fyrir svona tlu ár- um. I fyrra var hún oröin svo skuggaleg á svipinn aö ég skammaöist min loksins og kom þvl i verk”. Annars fékk Gisli þetta hús fyrir slikk — lóöina á þrjú þúsund kall og teikninguna af húsinu á tvö hundruð geröa beint upp úr auglýsingu I Satur- day Evening Post. Það var fyrir tveimur áratugum og Saturday Evening Post er ekki lengur til. En enn þá stendur húsiö hans Gisla J. á sinum stað — and- spænis væntanlegum upphituöum knattspyrnuvelli og skemmti- göröum. ,,Þetta verður helvíti gott þegar maöur er dauöur”, segir Gisli. „Ætli þeir veröi ekki búnir aö byggja þetta eftir svona 200 ár eöa svo”. Snælduvitlaus ráðherra- dóttir. Eins og alþjóð ætti aö vera kunnugt eftir formlegar nótur frá kerfinu sem birst hafa I fjölmiðl- um hefur Gisli komist á rikisjöt- una og fengiö einn af þeim opin- beru styrkjum sem almættiö út- hlutar til ritstarfa. „Já, ég læst vera að búa til bók”, segir GIsli. „Þetta ætti meira aö segja aö veröa alllöng bók. Og satt aö segja ér viðfangs- efnið dálitiö skrýtiö. Aöalgæinn er auglýsingamaöur og aöalskvisan er snælduvitlaus ráöherradóttir. En þetta segir likast til ekkert út af fyrir sig. Jú, ég vona að þetta sé svolitil samtimakrufning. Og ef þetta gengur i sama takti og slöustu 3-4 mánuöina þá ætti ég aö geta kláraö krógann um áramót- inn. En þaö veltur auövitað á ýmsu sérstaklega á þvi hvort ég get skrifað á morgnana eöa ekki. Ég má ekki missa morgnana. Fyrir nú utan þaö aö þegar maður er kominn á minn aldur er maöur bara búinn á kvöldin. Svo skrifar maöur allt ööru visi á kvöldin. A kvöldin skrifar maöur rautt, en blátt á morgnana.” sjávarplássi. Þaö er ómetan- legt”. Wodehouse og aðrir skriffinnar. Hann segist hafa lesiö reiðinnar ósköp þegar hann var strákur. Nánast allt sem hann náöi til af islenskum höfundum, og siðar enskum og skandinaviskum. „Þetta var fjandi snar þáttur af manns interessu. Þegar maöur fór svo aö smáeldast eignaðist maður kunningja sem voru á svipaöri llnu, og bækur uröu aö umræöugrundvelli okkar fyrir utan böllin og aö stelast á fylliri, þú veist. Kornimgur, 13-14 ára, hafði ég dottið oná P.G. Wode- house hinn breska I danskri þýö- ingu. Og fyrir utan áhugann á þessum klassisku höfundum einkanlega þeim bandarisku eins og Hemingway og Ring Lardner, þá fékk ég Wodehousedellu. Ég er aö visu oröinn afvanur honum fyrir 30 árum eöa svo. En kannski' að Wodehouse hafi meö slnum vitlausu aöalsmönnum ýtt mér i fyrsta lagi út I aö bögglast viö aö skrifa sjálfur og I ööru lagi i þá átt aö vera ekki alltof alvar- legur. Þaö er alveg nóg af sénium hér á lslandi sem eru öll upp á hátiðleikann”. Grafið fyrir hitaveitu. Gisli tók gagnfræöapróf i Reykjavik áriö 1939. Honum fannst gaman i gaggó. Siðan fór hann I Menntaskólann I Reykja- vik. Honum fannst ekki gaman i menntó. „Ég satt aö segja hataöi menntaskólann. Ég var þar ein- hvern veginn utangátta og féll ekki i kramið. Mér leið illa og hætti I skólanum einn góöan veðurdag og fór að grafa fyrir 1942. Fáum árum áöur hafði hann byrjað að skrifa sögur. „A þessum árum var enginn vandi aö skrifa. Þá skrifaöi maöur eina smásögu á einni nóttu. Afskaplega lélega að visu. en maöur var sjálfur engu aö siður i sjöunda himni. Þvi meira og lengur sem menn skrifa, þvi erfiðara verður það, — þó ekki væri nema vegna þess eins að menn fá æ meira af oröum i safn sittog oröin fara aö flækjast fyrir. Þegar maður er ungur er þetta ekki nokkur minnsti vandi. Þá er þaö orö sem fyrst kemur upp i hugann það besta.” „En þaö var á'minum námsár- um i Bandarikjunum sem ég birti fyrsteftirmig sögur. Þær voru aö sjálfsögöu á ensku og birtust i magasini skólans. Þetta voru ógurlega dramatiskar sögur. Nei. mér gekk furöu vel aö skrifa á enskunni. Ég var þarna eini is- lendingurinn og ég var eiginlega alveg hlessa hversu fljótt ég náði þokkalegum tökurn á enskunni. Undirlokin var ég meira aö segja farinn aö skrifa i lókalvikublaö þarna,sem einnafprófessorunum minum gaf út. Ég skrifaði jafnvel leiðarastúfa i þetta vikublað. Svo haföi ég v.ikulegan dálk sem nefrtdist þvi undarlega nafni „Americans are vitlausir”. Ég botna ekki i því enn þann dag i dag aí hverju vinur minn, prófessorinn lét mig komast upp með þetta islenska orö I titlinum, en honum þótti þetta ægilega sniðugt. Þessi skrif áttu vist aö vera um kana frá sjónarmiöi út- lendings.” Skóli i skugga striðsins. I Noröur-Karólinuháskóla klárarGisli nám sitt á þremur ár- um meö þvi aö taka sumarskól- ann lika. VIÐTAL: ÁRNl ÞÓRARINSSON MYNDIR: JENS ALEXANDERSSON

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.