Vísir - 29.10.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 29.10.1976, Blaðsíða 4
Flugrán í Tékkó- slóvakfu 26 ára gamall maður sem vopnaður vélbyssu og pistólu rændi tékk- neskri farþegaþotu á flugvellinum i Prag, gaf sig á vald lögreglunni i Munchen eftir að hafa neytt flugstjórann til að fljúga þangað. Um borö i vélinni voru 105 farþegar og sex manna áhöfn. Steig ræninginn um borö í hana, þegar flugstjórinn haföi ræst hreyflana, og um leiö og þeir voru orönir nógu heitir, var f logiö beint til Munchen. Þar gaf ræninginn sig strax á vald lögreglunnar. Hann talaöi ekki annaö en sitt heimamál, en enginn viöstaddur skildi hann, svo aö þaö er ekki ljóst, hvaö fyrir manninum vakir meö flugráninu. Siöasta flugrán Tékkóslóvakiu var framiö i júni 1972, þegar hóp^ ur farþega skaut til bana flug- stjóra Turbolet 410-vél frá Slovair og neyddi aöstoöarflugmanninn til aö fljúga þeim til V-Þýska- lands. Slovair varö einnig fyrir barö- inu á flugræningjum i april þaö ár, þegar tveir vopnaöir náma- menn neyddu flugmenn til aö fljúga þeim til Nurnberg, þar sem þeir leituöu hælis sem pólitiskir flóttamenn. — Flugræningjarnir voru dæmdir af vestur-þýskum dómstólum, en vélar, áhöfn og farþegar send heim til Tékkó- slóvakiu. Ódœðisverk í Ródesíu Annað veifið berast fréttir af hinum verstu hryllingsverkum í Ród- esíu, þar sem þjóðernis- sinna blökkumenn halda uppi skæruhernaði á hendur hvítum íbúum landins. Mest af þessum illvirkjum bitna þó á ættbálkum úti á lands- byggöinni, þar sem öryggisráö- <— -----------—-—m Hryöjuverk skæruliöa biökku- manna i Ródesiu hafa bitnaö haröast á frumbyggjunum og 'ibúum dreifbýlisins, þar sem öryggisráöstöfunum veröur ekki auöveldlega viö komiö. stöfunum veröur ekki komiö eins vel viö i dreifbýlinu. Tvær svertingjastúlkur gáfu sig fram viö yfirvöld I Marandellas i Ródesiu I gær og sögöu ljóta sögu af árás skæruliöa á þorp þeirra. Tveir svertingjanna voru staddir heima hjá þeim, annar lögreglumaöur en hinn embættis- maöur sveitastjórnarinnar, þeg- ar skæruliöar ruddust inn. — Neyddu þeir stúlkurnar til aö af- klæöast og hafa kynmök viö gesti sina, en siöan voru öll fjögur rek- in kviknakin um þorpsgötuna á milli logandi húsanna. Aftur voru þau neydd til kynmaka fyrir augum allra þorpsbúa, en siöan voru lögreglumaöurinn og sveit- arstjórnarmaöurinn skotnir til bana. Ovœntir gestir í sundlauginni Þeir eru aö veröa nokkuö slitnir brandararnir um húseigandann, sem finnur bifreiö i sundlauginni sinni, þar sem einhver slysarokk- urinn hefur endaö ökuferö sina. En Russell Townsend f Anaheim I Kaliforníu fékk hvorki meira né minna en tvær bifreiöir f sundlaugina sfna. — Hann getur aö vfsu sjálfum sér um kennt. Móöir hans haföi lent f óhappi, og Russell fór á lögreglustööina aö tilkynna slysiö. Hann flýtti sér svo mikiö heim aftur, aö hann ók á bil móöur sinnar, ýtti honum út f laug og ók sjálfur á eftir. En þaö er ekki allt fyrr en þrennt er. Hann var siöan sviptur öku- leyfi fyrir ölvun viö akstur. Lockheedmál Frakklands Mirage-herþota, sem Marcei Dassault hannaöi og Dassault-verk- smiöjurnar hafa oröiö auöugar af. Snemma í síðasta mán- uði sagði f lugiðj uhöldur frakka, Marcel Dassault, að þegar stundin væri inni mundi hann segja allan sannleikann um hið dul- arfulla strok bókhaldara síns. Sú stund rann upp í síð- ustu viku. Innihald leyni- skjala, sem Hervé de Vathaire, bókhaldari Dassault-f lugvélaverk- smiðjanna, hafði tekið saman, var birt á prenti. Skyndilega horföi hinn 84 ára gamli flugvélaverkfræöingur, aöaleigandi og stjórnandi Dassault-verksmiöjanna, fram á aö veröa bendlaöur viö eins- konar Lockheedmútuhneyksli frakka. Fyrirtæki hans var sak- aö um skattsvik og um aö hafa mútaö opinberum embættis- mönnum. Nefndar voru fúlgur á borö 1,5 milljaröa franska franka, sem Dassault-verk- smiöjurnar áttu aö hafa svikiö undan skatti. Sjálfsöruggur aö vanda úr- skuröaöi hönnuöur Mirageher- þotunnar sjálfan sig saklausan af öllum ákærum, þegar hann kom fram I sjónvarp til að svara spurningum fréttamanna um máliö. Eins og mörgum öörum auö- kýfingum var Marcel Dassault meinilla viö aö láta draga sig fram i sviösljósið, en hann sá sig tilneyddan, þegar timaritiö Le Point birti inntak leyniskjala de Vathaires. Bókhaldarinn situr sjálfur I fangelsi i Paris, ákæröur fyrir aö hafa dregið sér fé, átta millj- ónir franka, af bankareikning yfirmanns sins. — Eins og fram kom i fréttum, hvarf de Vath- eire úr landi meö þá fjármuni. Slóð hans var rakin I fylgd meö ástkonu hans og vini aö nafni Jean Kay, fyrrum málaliða og dæmdum flugræningja. Þau földu sig i Grikklandi, en fyrir nokkru sneri De Vathaire aftur heim til Frakklands, peninga- laus. Hann gaf þá skýringu á hegöan sinni, aö siðustu árin, sem hann starfaöi viö bókhald flugvélaverksmiöjanna heföi hann dregiö saman upplýsingar um skattsvik, mútur og fleira misjafnt, sem fyrirtækiö heföi haft i frammi. Hann haföi sagt Kay vini sinum frá þessum gögnum, og lánaö honum þau til lestrar. Þegar de Vathaire haföi kallaö eftir plöggunum aftur, vildi Kay ekki skila þeim, og kvaðst de Vathaire hafa tekið út átta milljónirnar til þess að kaupa skjölin aftur af honum. Le Point fullyrðir, að þaö hafi komist yfir þessi skjöl, sem séu skrifuö meö eigin hendi de Vathaire. Byggir fréttaritiö skrif sin á þessum gögnum. Þar er þvi haldið fram, að Dassault-flugvélaverksmiöjan hafi greitt móöurfyrirtæki sinu, Dassault-fyrirtækjasamsteyp- unni risafjárhæðir i tilbúin einkaleyfi. — Aö flugvélaverk- smiöjan hafi komi skattskyld- um hagnaöi undan skattaálagn- ingu meö þvi aö greiöa hrika- legar húsaleigur til móðurfyrir- tækisins. — Aö Dassault for- stjóri hafi i mikilmennskubrjál- æöi notaö fjármuni fyrirtækis- ins til þess aö byggja sér eftir- likingu af glæsihöll Versala (Petit Trianon-höllinni) fyrir sumardvalastað. Marcel Dassault ber af sér allar sakir. 1 blaöagreininni er þvi haldiö fram, aö þessu hafi verið unnt aö koma i kring meö þvi að tveir háttsettir embættismenn fjár- málaráöuneytisins hafi þegiö umbun fyrir að snúa baki i skattaundanfærslur Dassault. — 1 skjölum de Vathaires eru embættismennirnir nafngreind- ir og bankareikningarnir til- teknir, þar sem mútur þeirra voru lagöar inn. — Embættis- mennirnir hafa komið opinber- lega fram og boriö af sér þessar sakir, um leiö og þeir hafa höfö- að meiöyröamál. Dassault hefur hinsvegar sjálfur ekki tekiö þessum áburöi eins óstinnt uppi. Hann hefur meira að segja viöurkennt, aö sumt af þvi, sem getiö er i leyni- plöggum de Vathaires, hafi á sinum tima veriö tekiö til aö- finnslu af hálfu skattayfirvalda. Þar á meöal t.d. ákveðin einka- útgjöld. En allt heföi veriö lag- fært og sæ.st á málið. — „Ég er ekki sekur um eitt eöa neitt,” sagöi hann sjónvarpsáhorf- endum. Birting þessara leyniskjala báru aö á óþægilegum tima fyrir frönsku stjórnina (en Dassault, sem er einnig þing- maöur gaullista, styöur hana). Hinn nýi forsætisráðherra, Ray- mond Barre, er um þessar mundir i óða önn viö aö reyna aö sannfæra frakka um nauösyn veröbólguaögerða sinna, og lof- ar i staðinn aö ganga hart aö skattsvikum, sem hinir auöugu og mikilsmegandi hafa getaö fært sér i nyt. Má þvi vera, að stjórnin neyö- ist til þess aö hrinda af stað opinberri rannsókn á fjármál- um og starfsháttum Dassault- fyrirtækjasamsteypunnar, á meðan beöiö er þess að mál de Vathaires komi fyrir rétt, en það getur oröið nokkurra mán- aða bið á þvi. Fyrir þá sök er almenningur I Frakklandi viðkvæmari fyrir misferli hjá Dassault-verk- smiðjunum, aö fyrirtækið bygg- ir milljarðaársveltu sina aö miklu leyti á herflugvéla- pöntunum franska rikisins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.