Vísir - 29.10.1976, Blaðsíða 24

Vísir - 29.10.1976, Blaðsíða 24
KRAFIST UTBURÐAR A MANNI BORGFIRÐINGA Eigandi húsnæöis þess i Borgarnesi sem hýsir skrif- stofur sýslumanns hefur þing- fest mál fyrir dómi þar sem hann krefst rýmingar á húsnæö- inu. Frestur var tekinn i málinu til 5. nóvember og mun Asgeir Pétursson sýslumaöur þá vikja sæti, veröi máliö ekki leyst fyrir þann tima. Astæðan fyrir kröfu húseig- anda er sú, aö hann vill hækka húsaleiguna, en embættið telur sig ekki geta orðið við þeirri ósk vegna verðstöðvunarlaganna. Hliðstætt mál er i gangi i Kópa- vogi, en þar hefur verið krafist útburðar bæjarfógetaembættis- íns. Þá hefur verið visað til Hæstaréttar máli sem upp kom á Selfossi, en þar var þess krafist að vegagerðin rýmdi hús sitt þar sem leiga fékkst ekki hækkuð. Fallist var á þá kröfu i heraði en rikið áfrýjaði. Einstök rikisfyrirtæki telja Þriggja bila árekstur varö 1 Lækjargötu viö gamla Miöbæjarskóiann I gærkvöldi. Þar var bifreiö ekiö frá heimkeyrslunni aö skólanum og inn I hliöina á bifreiö, sem ekiö var suöur Lækjargötu. Höggiö var þaö mikiö aö hún snérist á veginum og lenti á þriöju bifreiöinni, sem kom á móti. Ekki uröu nein meiösli á fólki, en aftur á móti miklar skemmdir á ökutækjunum, eins og sjá má á þessari mynd, LANDHELGISSTEFNA BRETA ER /# — segir í leiðara breska blaðsins Financial Times í morgun VISIB Föstudagur 29. október 1976 i... ...... v ' Hjúkrunar- frœðingar óánœgðir Hjúkrunarfræöingar viö Heilsuverndarstöö Reykjavik- ur hafa lýst megnri óánægju sinni vegna úrskuröar kjara- nefndar um sérsamninga Reykjavikurborgar og Hjúkr- unarfélags islands, sem staö- festur var á dögunum. 1 samþykkt, sem gerð var á fundi hjúkrunarfræðinganna segir meöal annars: 1 úrskuröi kjaranefndar eru störf hjúkrunarfræðinga al- mennt mjög vanmetin og eng- ar sérkröfur hjúkrunarfræð- inga Heilsuverndarstöðv- arinnar voru teknar til greina. Crskurður kjaranefndar um hækkun um einn launaflokk, sem allar aðrar starfsstéttir fá, breytir engu um það van- mat, sem hjúkrunarfræðingar hafa sætt i launum miðað við marga þá starfshópa, er gegna ábyrgðarminni störfum hjá Reykjavikurborg, eða störfum, sem krefjast minni menntunar.” Staurinn brotnaði Umferöaróhapp varö á Reykjanesbraut i Njarövikum í gærkvöldi. Þar rann nýleg bifreiö af geröinni Ford Pinto til meö þeim afleiöingum aö hún stöövaöist ekki fyrr en á rafmagnsstaur viö vegabrún- ina. Staurinn brotnaöi og lágu rafmagsnlinurnar á veginum þegar vegfarendur komu aö. Bifreiöin skemmdist mikiö, en ökumaöurinn, sem var einn i bflnum, slapp ómeiddur. -klp „Stefna breta i landhelgis- málum er alröng”, segir f leiöara breska blaösins Financial Times i morgun. t leiöaranum er varaö viö þessari stefnu og bent á aö hún kunni aö leiöa til nýrra árekstra viö is- lendinga vegna landhelgismál- ins. „Timinn er að hlaupa frá okk- ur”, segir jafnframt i leiðaran- um. Siðan er minnt á fund utan- rikisráðherra Efnahagsbanda- lags Evrópu sem mun hefjast i Hollandi um helgina þar sem fiskveiðimál verða ofarlega á baugi. ,,Ef ekki næst samkomulag innan bandalagsins á þeim fundi, mun það vart takast fyrr en á fundi Efnahagsbandalagsins i lok nóvember. Það er daginn áður en samkomulag Islands og Bretlands rennur út”, segir Financial Times. „Það sýnir hve stefna bresku stjórnarinnar er röng að nú er farið aó ræða um gagnkvæma samninga við islendinga eins og um hótun væri að ræða”. Þá segir Financial Times. „Staðreyndin er sem sagt sú að breska stjórnin geturekki knúið fram 200 milna landhelgi fyrir breta, frekar en að hún gat ekki ráðið ein við islendinga”.-EKG Mqnnshvarfið í Þýskalandi:_______________ SAGÐIST ÆTLA AÐ KAUPA BYGGINGAR- KRANA YTRA FYRIR MENN Á AKRANESI Gunnar Elisson, sem hvarf í Frankfurt á dögunum, lét svo ummælt viö mann einn áöur en hann fór utan.aö erindiö væri aö kaupa byggingakrana fyrir menn á Akranesi. Hins vegar nefndi hann ekki hvaöa menn þetta væru og enginn vill kann- ast viö máliö á Akranesi. 1 samtali við Visi i morgun sagöi Njörður Snæhólm, rann- sóknarlögreglumaður, að Gunn- ar hefði farið áður út til Þýska- lands, og þá séð um að koma byggingakrana i skip i Ham- borg fyrir aðila hér. Þau við- skipti lægju ljós fyrir. Samkvæmt fréttum frá Þýskalandi er talið að Gunnar hafi verið með um 20 þúsund mörk i reiðufé er hann hvarf. Hann tók þó aðeins venjulegan ferðamannagjaldeyri hér áður enhann fórog ekki vitað hvaðan hitt er komið. Alþjóðalögreglan Interpol rannsakar nú hvarf Gunnars Elissonar, en sú rannsókn hefur ekki borið árangur enn sem komið er. — SG sig eölilega ekki hafa heimild til að ganga i berhögg við verð- stöðvunarlögin vegna fordæmis. Þarf þvi bersýmlega að leysa þessi mál i heild á einhvern hátt. —SG ÞAÐ TÓKST! Dansinn mun duna á ný I veitingahúsinu Óðali I kvöld. Ekki er nema rúm vika liöin siöan efri hæöin var talin ónýt eftir eldsvoöa sem kom upp aðfaranótt fimmtudags. Óðalsmenn hófu þó sam- stundis viðgerðir og endurnýj- un á hæðinni og þar hafa tugir manna lagt nótt við dag að undanförnu. Siðastliðinn mánudag lét Jón Hjaltason, „óðalsbóndi”, svo ummælt við Visi, að opnað yrði á slaginu sjö á föstudag. Ýmsir tóku þessari fullyrðingumeðvarúð, en nú er ljóst að allt verður til- búið fyrir kvöldið og opnað verður klukkan sjö. —SG Vilja ekki Karlsefni „Þaö var ákveöiö i út- geröarráöi i gær aö hafna þvi aö kaupa Karlsefni”, sagöi Ragnar Júlfusson formaöur Útgerðarráös Reykjavikur- borgar er Vfsir ræddi viö hann. Ragnar sagði að það sem aðallega hefði valdið hefði verið stærð skipsins sem hefði þótt óhentug i dag. Karlsefni er 730 tonn að stærð. Eins og kunnugt er eru samkvæmt samningum mun fleiri skip- verjar á skuttogurunum yfir 500 tonn að stærð. Ennfremur sagöi Ragnar að skipið væri orðið það gamalt að 12 ára klössunin væri skammt framundan. Karls- efni er smiðað I Þýskalandi árið 1966 og var keypt hingað notað. Tilboö eigenda Karlsefnis um að selja skipið var send Borgarráði á sinum tima. Til- boðið var siðan sent útgeröar- ráði til umfjöllunar. Borgar- ráð mun á næstunni taka mál- ið fyrir. Rætt hefur verið um að breyta Þormóði Goða, einum togara Bæjarútgerðarinnar. i djúprækjuskip. Ef af þessu yrði myndi rækjan verða unn- in að öllu leyti um borð. Ragn- ar Júliusson sagði að unniö væri au þessu máli af fullum krafti. — EKG Alþýðubankinn Vantryggð lón námu 100 millj. króna Alþýöubankinn var búinn aö lána út nær 10 milljónir króna I fyrra án þess aö fulinægjandi tryggingar væru fyrir hendi þegar blaöran sprakk. Þegar hafa þrjátiu milljónir verið af- skrifaöar, og búiö er aö ganga frá fullnægjandi tryggingum fyrir verulegum hluta af eftir- stöðvunum. Hér var um aö ræöa um 44% af heildarútlánum bankans. Þessar upplýsingar komu fram á fundi forráðamanna bankans með fréttamönnum i gærdag. Jafnframt kom fram að eftir að bankastjórar höfðu látið af störfum lagöi bankaráö fram 1,584.000 kr. til að unnt yrði að kaupa þriðju flugvél Air Viking. Vélin var upphaflega fengin á kaupleigusamningi og búið að greiða um 85% af kaupverði i leigu. Alþýðubanki, Samvinnubanki og Oliufélagið tóku þá höndum saman um að gengið yrði frá formlegum kaupum þvi annars hefðu tapast milljónatugir. Alþýðubankinn tók samtima veð fyrir sinu framlagi. Fyrrverandi bankaráð Alþýðubankans óskaði eftir þvi að fram færi opinber rannsókn á viðskiptum Air Viking, Sunnu og Guðna Þórðarsonar við bankann. Saksóknari ákvað siðan að rannsóknin skyldi taka til átta aðila i viðbót og stendur sú rannsókn yfir. Niðurstöðu er vart að vænta fyrr en meö vori. Forráðamenn Alþýðubankans lögðu áherslu á að ekkert væri undan dregið og ekkert væri að fela f sambandi við þessa rannsókn. Nú væri brýnasta verkefnið að efla traust fólks á bankanum og almenningur skipti nú i vaxandi mæli við bankann þótt ekki væri um stór- viðskipti að ræða. — SG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.