Vísir - 29.10.1976, Blaðsíða 23

Vísir - 29.10.1976, Blaðsíða 23
íslendingar verði leiðandi þjóð í nýtingu auðœfa hafsins Það er alls ekki nóg að islensk dagblöð flytji okkur fréttir af erlendum knattspyrnuköppum, oft upp á margar blaðsiður, eða gæði okkur á itarlegum upplýs- ingum um ástarlif brjósta- og rassprúðra hefðarpika og kvik- myndastjarna. Fólk er starfar við sjósókn eða i frystihúsum vill lika fá fréttir af þvi marga og merki- lega sem skeður i sjávarútvegi heimsins, en um það efni virðast islensku dagblöðin kæra sig kollótt , og eru þær fréttir þó oft bæði skemmtilegar, menntandi og jafnvel gróðavænlegar. Af nógu efni er að taka, svo ekki er ástæða til að blöðin flytji okkur aðallega fregnir af gerðum stjórnmálamanna eða glæpa- manna! Þvi skulum við bregða okkur til Mexikó, samt ekki til að huga aö þokkadisum á sólar- ströndum þess lands, heldur að hinni merkilegu lifveru i sjón- um, igulkerinu. Það er ótrúleg mergð af þeim undan ströndum Mexikó. Engum datt i hug að það væri gulls igildi þar til 1973 að japanir fengu fregnir af þess- um igulkersmiðum og tókust heldurbeturá loft, þvi þetta var nú matur sem þeir kunnu að meta, og vildu endilega verða sér út um. HROGN, HROGN... Hrogn, hrogn, hrogn, hrópuðu þeir. A vissum árstimum fyllast hin stóru igulker af hrognum og þá er nú heldur betur matur i þeim. Og auðvitað héldu þeir beint til Mexikóborgar og gerðu samning um að mega nýta þessi miklu igulkerjamið, og flytja hin lostætu hrogn út flugleiðis, svo þau kæmust i sem allra bestu ástandi á markað i Tókió. Hver 200 gramma diskur með igulkerjahrognum, selst i heild- sölu fyrir minnst 500 krónur, og fá færri en vilja. Já, eru þetta ekki merkileg tiðindi, engu siður en það hvað breskar prinsessur taka sér fyrir hendur og fætur með elsku hippunum sinum? LJÚFFENGUR SMOKKFISKUR Þrátt fyrir allt talið um fæðu- skort I heiminum vantar mikið á það að margar tegundir bestu ætisfiska, séu veiddar nægilega mikið og nýttar sómasamlega. Tökum til dæmis smokkfiskinn sem við islendingar notum aðal- lega i beitu, eins og kúffiskinn forðum. Hann er viða vinsæll til átu, t.d. i Austurlöndum, og i Miöjaröarhafslöndum, þar sem hann er eins vinsæll og rækja, og krabbi, enda er hann ljúf- fengur með afbrigðum ef hann er matreiddur á réttan hátt. Vfsindamenn sem helgaö hafa sig sérstaklega rannsóknum á smokkfisknum, segja hann mjög útbreiddan i flestum lönd- um og telja hann frábæran próteingjafa. Hann vex mjög hratt og frjóssemi hans er með ólikindum. Þeim reiknast svo til að hægt væri að veiða um 90 til 280 mill- jón tonn af smokkfisk, án þess að um ofveiði verði að ræða og vissulega mundi muna um minna i heimi þar sem milljónir manna þjást af sjúkdómum vegna eggjahvituskorts. Aðeins sex hundruð þúsund tonn eru veidd i heiminum af smokkfisk- um, og mikið af þvi er notað i beitu i stað þess að nota það til manneldis. RÆKTUM SKELFISK Islendingar ættu að gerast leiðandi þjóð i baráttunni fyrir þvi að hafið verði betur nýtt sem matarforðabúr heimsins. Til þess eru margar leiðir sem duga i rauninni fyllilega til að sjá helmingi fleira fólki fyrir nægu próteini en nú er gert. Það er hægt að kyn- bæta fisk engu siður en landdýr og jurtir, skapa ný afbrigði með svokallaðri erfðaeindaverk- fræði. Ég tel mestu möguleika tengda við þá aðferð, en þvi miður þá er flest ógert á þvi sviði. Það er mjög auðvelt að auka gildi hafsins sem matarforöa- búrs heimsins án ofveiðihættu, með þvi að rækta i stórum stil heppilegar skelfisktegundir. Það er hægt að skapa fiskveiðar þar sem þær eru ekki núna með þvi að hjálpa náttúrunni, t.d. með þvi að skapa uppstreymi næringarefna, með nýtingu okk- ar ágætu véltækni. Það ætti i rauninni að vera gerlegt að búa til þorsktegund sem gæti lifað i heitum höfum, ef visindamenn heimsins legðust á eitt og sóma- samlegt skipulag og mikið fjár- magn væri á bak við þá starf- semi. Auk þess er vel huganlegt að innleiða t.d. islenska þorsk- stofninn i höfum þar sem hann er ekki núna ef staðhættir eru þannig, að ætla mætti að hann gæti samiö sig að þeim, t.d. við Alaska og svæðinu suður af þvi, Sú tegund þorsks sem þar er, er engan veginn sambærileg við is- lenska þorskinn. Annað svæöi þar sem ætla mætti að hægt væri að innleiða þorsk er á Pantagóniusvæðinu, það er að segja, svæðinu við suður Argen- tinu er snýr að Suðurpólnum. Bretareiga þar Falklandseyjar, og svæði þetta er allauðugt af hákarli og öörum fiski sambæri- legum við þorsk. i-eir ættu þvi aðgetafengiðþarveiöileyfi, þar eð þetta svæði er að mestu ó- nýtt. Pólverjar hafa verið að bera sig eftir þvl en argentinu- stjórn ekki viljað verða við bón þeirra. Vera má að vandræða- grannar okkar bretar hlytu náö fyrir augum argentinustjórnar, enda eru þeir gamlir viðskipta- vinir þeirra með kjöt og fleira. Fari þeir eitthvað að rella i is- lensku rikisstjórninni meö á- framhaldandF fískveiöar hér, þarf hún endilega að visa þeim á miðin við Patagoniu. 200 MILLJ. TONN 1 Kaliforniu var gerð merki- leg tilraun til aö venja innfædda á aö éta smokkfisk, en það er mjög mikið af honum undan vesturströnd Bandarikjanna, rétt eins og ónýttri sild. Mörg veitingahús stóðu að henni og það tókst furðuvel' að kenna gestum þeirra smokkfisksátið, enda var fiskurinn matreiddur á ljuffengan hátt. Nú er farið aö sjóða niöur allmikið magn af þessu góðgæti. Japanir nýta smokkfisk til manneldis og úr- gangurinn er lika nýttur til lim- gerðar og fleira. Við höfum Matvælaátofnun Sameinuðu þjóðanna, eittmikið og ekki allt of gagnlegt alþjóð- legt skrifstofubákn. Og óhemju osköpum af orðum er úthelt I blöðum heimsins um fæöu- vandamálheimsins.en skipulag vilja og fjármagn vantar til að* gera eitthvað raunhæft, og á meðan biða meðal annars um 200 milljón tonn af ónýttum smokkfisk i sjónum. Það veitir vissulega ekki af þvi að islend- ingar gerist forvigismenn fyrir nýrri og breyttri stefnu i þess- um málum og leggi til við' Bandarikin og Sovétrikin að þau bindist samtökum um að leysa fæðuvandamál heimsins. Bæði þessi lönd hafa þegar komiðsér upp álitlegum hópi fiskifræð- inga, og hafa i rauninni nú orðið brúklega tækni til að byggja á. Skipulagið er að visu I molum og það sem vantar eru nýjar hug- myndir, og ef islensku rikis- stjórninni skyldi vanta þær lika þá vill svo vel til að ég hef nóg af þeim. Það eru margir áratugir frá þvi ég fór að hugsa um það i mikilh alvöru, hvað hægt væri að gera á alþjóöavettvangi til aö leysa fæðuvandamál heimsins. Hvernig hægt væri að gera fiski- fræðina að raunverulegri fræði- grein, sambærUega við land- búnaðarvisindi. Hún hefur lengst af, og er enn aö miklu leyti, litið annáð en partur af náttúrufræðinni eins og sjá má t.d. af þvi að þrátt fyrir alla okkar góðu rey nslu af kynbótum jurta og dýra, er alltógert á þvi sviði að kynbæta fisk og búa til nýafbrigðiaf honum, og einmitt þess vegna skulúm við byrja með að hvetja bandarikjamenn og sovétmenn til átaka. EGGJA- HVÍTUFÆÐA Ekki verður það sagt meö sanni að þróun I nýtingu eggja- hvitufæðu úr sjó, hafi verið sem skyldi og á ég þá ekki hvað sist við eðlilega fjölbreytni i fram- leiðsluaðferðum. Á sinum tima geröi breska „Fish and chips”-aðferðin kraftaverk fyrir fisksölu i Bandarikjunum, en hún var auglýst upp i lok siðustu heims- styrjaldar, og sniðin eftir henti- semi handariskra húsmæðra — sem fiskistautar. Þetta jók og margfaldaði fisksöluna, sem allir óttuðust að mundi hrapa niður úr öllu valdi eftir að strið- inu lyki. Vissulega var hægt að gera margt fleira til að ýta undir fisk- söluna vestra, en það var látið ógert. Alls konar möguleikar voru fyrir hendi en þeim var ekki sinnt. Vandkvæði viö fisksölu stafa meðal annars af þvi að fólk bitur i sig aö éta aöeins örfáar ákveðnar fisktegundir, og litur ekki við öðrum, sem eru fullt eins góðar og mikið er til af viö strendur Bandarikjanna og við- ar. Ég fékk snemma áhuga á þvi að finna leiðir til að komast fram hjá þessari bábilju neyt- enda. FISKBORGARI A háskólaárum minum i Bandarikjunum um og eftir lok heimsstyrjaldarinnar siðari, þóttist ég eygja möguleika á þvi þarna i nýtingu hakkaðs fisks. Bandarikjamenn voru gráðugir i hamborgara sem gerðir eru úr hökkuðu kjöti, og jafnvel drýgð- irmeð kindakjöti, sem þeirhafa rótgróna fordóma á, þótt undar- legt megi virðast. Það lá þvi beinast viö að gera tilraunir með fiskborgara, gerða úr blöndu af margvlslegum fisk- tegundum sem þeir litu ekki við að nota ella. Fyrst gat ég komið þvi i kring að gera tilraunir með þetta á skólabræðrum minum og beið spenntur eftir árangrin- um. Og viti menn, þeir voru fullt eins gráðugir i þetta og steiktan þorsk eða jafnvel sverðfisk. Hins vegar var hinn hluti til- raunarinnar neikvæður, og var hann þó erfiðari og jafnvel kostnaðarsamari. Það var gamla hugmyndin hans Görings með fiskipylsur, og það reyktar. Satt að segja tengdi ég meiri vonir við þær en það var aug- ljóst að þær féllu ekki 1 smekk- inn. Þvi miður tókst ekki að vekja áhuga réttra aðiia á við- tækri neytendakönnun á þessu tvennu. Ég hélt samt ótrauður áfram og við erfið skilyrði tókst mér aö fá Ambassadorhótelið i Los Angeles og fleiri veitinga- hús, sum fin, og önnur sem sótt voru af verkafólki, til að gera athugun á þessu án þess aö fá borgun fyrir það. Það var ekki vandalaust að kjafta þau út i þetta en samt tókst það. Og und- antekningarlaust var árangur- inn sá að margvislegar blöndur af fiskborgara, venjulegum eða með þunnri ostsneið ofan á, gerði mikla lukku en fiskpyls- urnár ekki, eins og mér fannst þær þó sjálfum góðar. Sum þessara veitingahúsa héldu lengi á eftir áfram að hafa fisk- borgara á matseðlisinum vegna undirtektanna. Þetta sýndi eins og reyndar viðtækar athuganir sem fiskiðnaðurinn i Bandarikj- unum hefur staðið fyrir nú, nokkrum áratugum siöar, að lang besta aðferðin til að kom- ast fram hjá fordómum neyt- enda á óvanalegum fisktegund- um er fiskborgari, enda er nú talið að hann muni valda álika byltingu i fiskneyslu banda- rikjamanna, eins og fish sticks, á sinum tima — og hefði fyrr getað orðið! JAPANIR LÍKA Nú vildi svo vel til aö ein þjóð, japanir, fóru einmitt út á þessa braut, skömmu eftir að ég var að vesenast i þessu, enda leitað- ist ég viö að vekja áhuga þeirra á þessu, og þaö sem betra var, skynsamir bandarikjamenn voru um þetta leyti i góöri að- stöðu til að hafa áhrif á japana. Það sem skipti mestu máli var það, aö neytendaviðhökur fyrir bæði fiskpylsum og fiskhakki þar i landi voru stórkostlegar, eins og sjá má af þvi að nú oröiö ér framleiðslan komin yfir mill- jón tonn. Svo fóru japanir að flytja sitt „pollok” fiskhakk til Bandarikjanna i allstórum stil, og i austurlandahverfunum og viðar urðu vinsældir þess brátt miklar og það öllu öðru frekar hefur orðið til þess að fiskiðnaö- urinn i Nýja-Englandi hefur nú fengið brennandi áhuga á þess- ari vöru, enda skortur á vana- legri tegundum ýtt undir áhugai þeirra. í Japan spila fiskpylsur og fiskhakk nú sömu rullu og ham- borgarinn i Bandarikjunum og kalla þeir rétti úr hökkuðum fiski, Kamaboka. Stiklum á stóru i reynslu jap- ana af þessari vöru, sem hefur alia möguleika á að gera állka kraftaverk fyrir Bandarikja- markað og Evrópumarkaö. Arið 1967 er framleiðsla þessarar vöru (unninni vöru, ekki hráefn- um) komin upp i um milljón tonn. Arið 1972 nálægt ein mill- jón og tvö hundruð þúsund tonn, 164.000 tonn af henni er jöfn blanda af fiski og kjöti, oftast svinakjöti. Um 300.000 tonn er djúpsteiktir fiskborgarar, likt og við steikjum kleinur, og afgangurinn gufusoðinn. Þetta er dýr vara og eftirsótt. Fisk- iðnaðurinn i Nýja-Englandi er nú sem óðast að setja punds- pakkningar af blönduðu fisk- hakki á markað og lætur fylgja uppskriftir af hinum margvis- leg réttum sem nota má það i. Innan Markaðsbandalagsland- anna væri eflaust hægt að koma á fót keðjum af sölustööum fyrir þessa heppilegu vöru sem öllu öðru frekar getur opnað mögu- leikan á að nota betur hinar f jöl- mörgu vanræktu fisktegundir. „HEITUR K0SS#/ Það veitir þvi sannarlega ekki af þvi að islendingar gefi vand- lega gaum að þróuninni hvað fiskhakk snertir, Hvað smávax- inn fisk eins og kolmunna snert- ir væri heppilegt að reyna að venja fólk á að borða hann heil- steiktan, li'kt og silung. Þetta er bragðgóður fiskur allvinsæll i Miðjarðarhafsiöndum. Hann er lika heppilegur i tilbúning i uppáhaldsrétti suðurlandabúa, sem þeir kalla „Heitan koss” og er með eindæmum bragðgóö fisksúpa úr margvislegum „ruslfisktegundum”. Vinsældir hans meðal erlendra ferða- manna t.d. bandarikjamanna gæti bent til að það væri ómaks- ins vert að fá uppskriftina, og reyna að selja Builla Baisse eða heitan koss hraðfrystann, á markað i Bandarikjunum. En fisksúpa þessierafar vinsæl þar meðal hinna fjölmörgu þar i landi, sem eru ættaðir frá Suð- ur-Evrópu. Það þarf lika að huga að möguleikum tengdum við hrogn kolmunnans. Oll hrogn eru bæði dýr og eftirsótt vara i Japan, og ég býst við aö kolmunni og spærlingur hafi hrogn eins og aðrir fiskar. Ég held að það sé kunnáttuleysi á vissu sviði, sem stendur nýtingu nýrra fiskteg- unda fyrir þrifum, ekki það að ekki sé hægt að koma þeim i gott verð. T.d. eru frakkar eina þjóð- insemlikjast japönum hvaðþað snertir, að éta allt sem úr sjó kemur. Einhverjir sölumögu- leikar ættu að vera við það tengdir. Ef til vill gæti sendi- herra vor i Frakklandi eða fyrirrennari hans, gefið ein- hverjar gagnlegar upplýsingar um það, eða hvað? Að minnsta kosti ætlast aðrar þjóöir til þess að sendiherrar sinir geti komiö að gagni á þessu sviði. Þórður Valdimarsson, stjórnmálafræðingur. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.