Vísir - 29.10.1976, Blaðsíða 5
vism Föstudagur
Umsjón:
Guómundur Pétursson
29. október 1976
Nýir diplómatar
fró N-Kóreu
Þessi hópur diplómata frá
N-Kóreu birtist i fyrradag i Hel-
sinki, en þeir eru þangað komn-
ir til af> fyila skörö sendiráös-
fólksins, sem visaö var á dögun-
um úr Finnlandi fyrir sprútt-
sölu.
Strandaði í ósnum
við Suður-Kóreu
Tongsun Park hefur verið yfir-
heyrður af embættismönnum
dómsmálaráðuneytisins vegna
orðróms um, að s-kóreustjórn
hafi gefið bandariskum þing-
mönnum og öðrum áhrifamönn-
um stórgjafir til þess að vinna þá
til fylgis við málstað stjórnarinn-
ar i Seoul. — Park þessi hefur
verið tiður gestur i samkvæmum i
Washington.
I farangri hans, þegar hann
var að koma með flugvél til
Alaska frá S-Kóreu fannst eitt
sinn listi með nöfnum 90 banda-
riskra stjórnmálamanna. Nixon
var þar á meðal.
1 fyrstu héldu tollþjónarnir að
þetta væri listi yfir menn, sem
öfgaaðilar vildufeiga, og gengu á
Park. Hann sagði þeim, að þetta
væru menn, sem hann ætlaði að
leggja lið i kosningabaráttu
þeirra.
Aftan við hvert nafn stóðu tölur,
og aftan við nafn Nixons talan
500. Park sagði að þær táknuðu
þær þúsundir dollara, sem hann
ætlaði að leggja i kosningasjóði
þeirra.
Kaupsýslumaður frá
Suður-Kóreu mun hafa
skýrt tollyf irvöldum í
Bandarikjunum frá því
fyrir þrem árum, að hann
hafði lagt 500.000 dollara til
kosningasjóðs Richards
Nixon þáverandi forseta —
eftir því sem talsmaður
tollgæslunnar sagði í gær.
Dulklœddir
sem lœknar
myrtu þeir
rúmliggjandi
forvígskonu
Sinn Fein
Þrír ungír hryðju-
verkamenn, dulklæddir
sem læknar, komust inn í
sjúkrahús í Belfast seint i
gærkvöldi og myrtu þar
frú Maire Drumm, rúm-
liggjandi, en til skamms
tima hefur hún verið
varaforseti Sinn Fein,
stjórnmálaarms írska
lýðveldishersins (IRA).
Grunurinn beinist, eins og
vonlegt er, að öfgasamtökum
mótmælenda, og óttast menn,
að hryðjuverkasamtök
kaþólskra gripi til grimmilegra
hefndaraðgerða sem bitnað
gætu á stjórnmálamönnum
mótmælenda.
Hin 56 ára gamla frú Drumm
lá á Mater-sjúkrahúsi i Belfast,
en hún hafði fyrr i þessum mán-
uði sagt af sér varaforsetaemb-
ætti Sinn Fein af heilsufars-
ástæðum.
Sinn Fein i Belfast lýsti morð-
inu á hendur „morðvörgum
mótmælenda” og skoraði á
hryðjuverkamenn kaþólskra að
herða aðgerðir sinar gegn
öryggissveitum breta á Norður-
Irlandi.
Frú Drumm hefur nokkrum
sinnum setið i fengelsi fyrir
starfsemi sina i öfgasamtökum
kaþólskra. Siðast sat hún inni i
ágúst i haust, en var látin laus.
— Nokkrum dögum áður hafði
hún hótað þvi, að skriilinn
mundi, „ef nauðsynlegt reynd-
ist, brenna þessa borg til ösku
og sérhverja aðra — og á það við
um England lika....”
Ýmis ummæli hennar i
æsingaræðum, sem hún hélt,
eins og t.d.: „Sendum bresku
dátana heim i likkistum!” —-
komu Merlyn Rees, Irlandsráð-
herra, til þess að likja frú
Drumm við konurnar, sem i
frönsku byltingu sátu með
prjóna sina við fallöxina og létu
enga aftöku framhjá sér fara.
Maður hennar, Jimmy
Drumm, hefur setið alls 13 ár i
fangelsi, og 19 ára dóttir þeirra
afplánar nú 8 ára fangelsisdóm
fyrir að hafa i fórum sinum
skotvopn. Sonur þeirra hefur af-
plánað 3 ára fangelsi.
Smíðaði þotu
og setti
hroðamet
Atvinnulaus reynslu-
f lugmaður, sem smíðaði
sér sjálfur F-104 Star-
fighter-þotu, og setti
siðan með henni nýtt
hraðamet fyrir þessa
tegund flugvéla, sagði í
gær, að hann ætlaði að
reyna að setja nýtt
hæðarmet með henni.
Darryl Greenmayer
(fertugur) fyrrum reynslu-
flugmaður hjá Lockheed
smiðaði þotuna úr efni, sem
hann hirti af haugum, eða
keypti hjá sölunefndum hers-
ins og hjá Lockheed. Hann
byrjaði verkið i bilskúrnum
sinum og lauk þvi á tiu árum.
3. október flaug hann með
1,770 km hraða á klst (1.100
milur á klst.) staddur yfir téir-
sléttunum i Suður-Nevada i 30
km hæð. — Gamla metið átti
Phantomþota, sem fyrir 15 ár-
'um fór á 903 milur/klst.
Verkfalli í
Perú aflétt
Um 4000 ansjósu-
fiskimenn Perú hafa
samþykkt að hefja
aftur vinnu eftir verk-
fall sem haldið hefur
ansjósufiota Perú I
höfn siðustu ellefu
daga.
Stjórnvöld höföu sagt rúm-
lega 9000 sjómönnum upp störf-
um vegna verkfallsins. Var
þeim gefinn frestur þar til i gær
að mæta til starfa, ella tæki
uppsögnin gíldi. — 5000 létu ekki
sjá sig.
Efnt var til verkfallsins i mót-
mælaskyni við áætlanir stjórn-
arinnar um að hætta rikis-
rekstri ansjósuflotans.
Talsmenn þess opinbera telja,
að þeir 4000, sem mættu til að
munstrasig til veiða, væru næg-
ur fjöldi til að gera þessa 530
ansjósubáta út. 1 rikisrekstrin-
um hefðu bátamir verið of-
mannaðir.
Þaö þurfti sjö dráttarbáta til þess aö ná norska olfuskipinu
„Gimlevang" á flot i Elbufljóti núna I vikunni. Þetta 42 þúsund
smálesta skip haföi strandað á grynningum I ósnum, þar sem þaö
risti of djúpt, fullhlaöiö, til þess aö fara grunnleiöina á fjöru.
Mútaði stjórnmóla-
mönnum til fylgis