Vísir


Vísir - 29.10.1976, Qupperneq 15

Vísir - 29.10.1976, Qupperneq 15
15 Listgrein eðo framleiðsla? „Leirkerasmiöir eiga mjög erfitt uppdráttar á tslandi enn sem komið er. Fólk lltur fyrst og fremst á notagildi kerámik- hluta og þvi er ekki hægt að lifa á framieiðslu þeirra nema þvi aðeins að fara þá út i fjölda- framleiðslu,” sagði Kolbrún Björgólfsdóttir i samtali við VIsi. Kolbrún opnar á laugardag- inn sýningu á keramik i sýn- ingarskápum i kaffistofu Kjarv- alsstaða. Hún nam við Mynd- lista- og handiðaskóiann áárun- um 1969-73 og stundaði siðan framhaldsnám i Kunsthand- værker og Kunstindustriskolen i Kaupmannahöfn 1973-1975. Hún kennir nú viö keramikdeild Myndlista- og handiðaskólans. Kolbrún sagðist búa til bæði hreina og beina notahluti. s.s. skálasett, lokkrúsir af mörgum stærðum og einnig skálar og diska sem hafa notagildi en eru þó hugsuð sem sjálfstæð mynd- verk. Þá sagðist hún sýna tilraunir með glerjung og hugmyndir að skreytingum á blautan, þurran og brenndan leir. A sýningunni eru fjórar litlar skálar sem not- uð var japönsk brennslutækni við og ennfremur sýnir Kolbrún diska með lituðum leir, þ.e. postulinsleir sem litaður er með málmoxýö efnablöndu. Koibrún Björgólfsdóttir við nokkur verka sinna. Ljósm. JA GRÆNLANDSMYNDIR Á MOKKA Fyrir skömmu kom út bókin „Grænlandsdægur” eftir Asa i • Bæ. t bók þessari eru margar mjög athyglisverðar myndir, sem gerðar eru af Tryggva Óiafssyni listmálara. Myndir þessar eru nú til sýnis í Mokka- kaffi við Skólavörðustig og verða þar a.m.k. næstu tiu daga. Tryggvi Ólafsson hefur verið búsettur I Danmörku undanfar- in ár og hefur unnið þar að list sinni með góðum árangri. Hann hefur haldið nokkrar einkasýn- ingar á verkum sinum hér heima og erlendis, og auk þess tekið þátt I fjölda samsýninga. Myndirnar sem hann sýnir nú á Mokka-kaffi eru eins og fyrr segir allar i bók Ása i Bæ. Gerði Tryggvi þær að eigin ósk eftir að hafa kynnst efni bókarinnar. Nú gefst listaunnendum gott tæki- færi til að sjá þær i Mokka-kaffi og einnig i bók Asa i Bæ. Myndin hér fyrir ofan er af einni þeirra, en þessi til hliðar af listamann- inum sjálfum, og er hún gerð af Ragnari Lár. —klp— Leikhúsin: Þjóðleikhúsið sýnir Sólarferö föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld kl. 20:00. Litli prinsinn verður sýndur á sunnu- dag kl. 15. Leikfélag Reykjavikur frum- sýnir Æskuvini eftir Svövu Jakobsdóttur i kvöld kl. 20:30. önnur sýning veröur á sunnu- dagskvöld. A laugardag verða Skjaldhamrar sýndir i 100. sinn kl. 20:30. Leikfélag Kópavogs: Glataðir snillingar veröa sýndir á sunnu- dagskvöld kl. 20:30. Leikfélag Akureyrar: sýnir Karlinn ikassanum á föstudags- og sunnudagskvöld kl. 20:30. Sýningar: Kjarvalsstaöir: Magnús Á. Arnason sýnir málverk, kaffi- og blekteikningar og högg- myndir i austursal. I vestursal verða opnaðar sýningar á verk- um Kolbrúnar Björgólfsdóttur, Magnúsar Kjartanssonar og Guðna Hermannssonar á laug- ardag. Listasafn islands: Yfirlitssýn- ing á verkum Finns Jónssonar. Sýningin er opin kl. 1:30-22 dag- lega. Norræna húsið: Sýning á verk- um norska listmálarans Victor Sparre. Opin til 7. nóv. kl. 14:00-22:00, daglega. Loftið: 1 dag, föstudag, lýkur sýningu á vatnslitamyndum og skriftgrafik eftir Torfa Jónsson. Sýningin er opin til kl. 18:00. Mokka: Sýning á teikningum Tryggva Ólafssonar viö bók Asa i Bæ, „Grænlandsdægur”. Stúdentakjallarinn: Rikharður Jóhannsson Valtingojer sýnir teikningar og graflk. Sýningin er opin mánud. til fimmtud. kl. 10:30-22:30, föstud. 10:30-20:00 og laugard. og sunnud. 14:00-23:30. ELDGOS í OLÍU „Þessar myndir eru allar málaðar i Vestmannaeyjum eft- ir að gosinu iauk og standa aliar i sambandi við gosið,” sagði Guðni Hermansen listmálari þegar hann sýndi blaðamanni Visis sýningu þá sem hann opn- ar að Kjarvaisstöðum á iaugar- daginn. Guðni sagðist eingöngu mála oliumyndir, en ekki vildi hann tjá sig um það i hvaða stil þær væru gerðar. Þetta er 15. einka- sýning hans, en áður hefur hann sýnt þrisvar i Reykjavik, auk þess sem hann hefur tekið þátt i tveimur samsyningum. Siðast sýndi Guðni i Norræna húsinu árið 1973. Guðni sagði að myndirnar á sýningunni væru málaðar á sið- ustu þremur árum. Þó er aðeins ein þeirra máluð á fastalandinu og er hún frá Hellu, en þar bjó Guðni á meðan á eldgosinu i Eyjum stóð. Sagðist hann helst hvergi getað málað nema i Eyj- um, en siðan hann fluttist þang- að aftur hefur hann eingöngu starfað við myndlist. Guðni Hcrmansen við nokkur verka sinna. Gamalt vín á nýjum belgjum „Þetta eru mestallt myndir sem ég hef sýnt áður, en nú er ég búinn að mála yfir þær,” sagði Magnús Kjartansson I samtali við Visi. Magnús mun opna á laugar- daginn kl. 15 sýningu á 70 mál- verkum og eru þau öll gerð eftir að hann lauk námi. Þetta er fyrsta einkasýning Magnúsar en hann hefur áður tekið þátt i nokkrum samsýningum. Magnús Kjartansson hefur vakið athygli fyrir SS myndir sinar. Aðspuröur sagöist hann hafa valið þetta merki sem tákn allra auglýsinga og hefði það verið valið vegna þess að það er að hans áliti sterkasta vöru- merkiö. Ekki vildi hann viður- kenna að hann væri með þessu að auglýsa merkið, eða eins og hann sagði: „Merkin snúa öll öfug hjá mér, og enginn auglýs- ir þannig.” Magnús Kjartansson stendur hér hjá mynd sem hann nefnir „Geir finnur fundinn".— Ljósm. JA

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.