Vísir - 07.11.1976, Side 2
2 Sunnudagur 7. nóvember 1976 vism
ALLTAF á fúllspítti i menningunni. Sumum þyk-
ir vist nóg um. Það er einsog gneisti af litt- eða
óbeislaðri hugmyndaorku og gosvirkni i kringum
Hrafn Gunnlaugsson. Hann er hálfgert Kröflu-
svæði i islenskri menningu. Er á þeytingi út um
allt i ýmissa kvikinda liki. Stundum tregafull
ástarljóð. Hrollvekjur, Bölmóðugur súrrealismi.
Hasar. Geggjaður absúrdhúmor. Kvikmynd þar.
Sjónvarpsmynd hér. Ljóðabók, útvarpsleikrit,
skáldsaga. Og likast til sitthvað fleira. Allt i ein
um og sama manninum á sama tima. Já, sumum
þykir nóg um og sitt sýnist hverjum. Svo var
maðurinn iika framkvæmdastjóri þess apparats
sem heitir Listahátið. Hvernig i ósköpunum er
þetta hægt, án þess að verða áberandi bilaður á
geðsmunum?
,,Ég vil nú taka það fram að þetta kemur ekki
til af tómri vinnumaniu hjá mér”, segir hann.
Maður er bara að berjast fyrir lifi sinu. Máiið er
það, að þegar maður hefur hvergi fasta vinnu
með fastri afhendingu launaumslags, þá neyðist
maður hreinlega til að berjast á mörgum front-
um, hafa mörg járn i eldinum til þess að hafa i sig
og á. Þetta er einfaldlega hlutskipti þeirra sem
fást „free lance” við svokölluð menningarmál.
En hvernig þetta er hægt? í rauninni er þetta
enginn vandi ef maður planleggur dagana, reynir
að nýta þessi dauðu augnarblik. sem koma inn á
milii, — meðan maður býður eftir matnum, situr
á tannlæknastofu og svo framvegis. Maður lætur
ekki eyður myndast að óþörfu, en hvílir sig þeim
mun betur þegar maður hvilir sig, — gefur þá
allt frá sér. Að vera sjálfs sin herra hefur lika
þann kost að maður getur unnið að sinum verkum
þegar maður er best upplagður og hefur mesta
orku.”
Um þessar mundir er Hrafn nýbúinn að senda
frá sér ljóðabókina, „Grafarinn með fæðingar-
tengurnar”. Hann er að klippa saman sjónvarps-
kvikmyndina „Blóðrautt sólarlag”, ljúka siðustu
upptökunum á litkvikmyndinni „Lilju” eftir sögu
Halldórs Laxness, og gera upp Listahátiðina end-
anlega. Svo nokkuð sé nefnt.
Ýmsum mun hafa óað við þvi
að framkvæmdasstjóri Lista-
hátiðar yrði við kvikmyndatöku
„Blóörauðs sólarlags” tveimur
dögum áður en hátiðin hófst.
„Jú,jú,það var búið að spá þvi að
þetta væri óhugsandi”, segir
hann, ,,og allt myndi fara i hræri-
graut. En meðgöngutimi þess-
arar kvikmyndar er nú orðinn tvö
ár og ég var búinn að skipuleggja
mitt starf það vel að ég held að
þetta hafitekistán stærri skakka-
falla fyrir hátiðina. Þetta var
vissulega mjög jákvæð reynsla.
Enalveg geysileg törn. Það skipti
lika miklu máli að ég hafði ein-
stakan mann til að vinna með,
Knút Hallsson, formann fram-
kvæmdastjórnar sem bjó að
reynslu af hátiðinni ’72. Það er
kannski fyrst og fremst þvi að
þakka að við vitum nú að hátiðin
kemurvelút fjárhagslega. Það er
ljóst að af henni verður ekki tap.”
Kvikmyndir i kjafti
pappirstigrisdýra.
„Það er lika alveg á hreinu”,
heldur Hrafn áfram”, að gerð
„Blóðrauðs sólarlags” í sumar,
t.d. Djúpuvikurferðin, hefði ekki
tekist ef ég heföi ekki haft jafn
traustan og listrænan mann og
Egil Eðvarðsson, upptökustjóra,
með mér til að axla verkefnið.
,,Ég tók þetta starf fram-
kvæmdastjóra hátiðarinnar að
mér aðallega af tveimur ástæð-
um”, segir Hrafn. „í fyrsta lagi
var ég blankur og varð hrein-
lega að fá fastar tekjur. 1 öðru
lagi langaði mig til að kynnast af
eigin raun hvernig svona
skemmtun er framkvæmd og
hvernig samningar við listamenn
gerðust, og kannski ekki sist eiga
persónuleg samskipti við islenska
listamenn. Staðreyndin er sú að
listamenn hér eru allt of ein-
angraðir innan hverrar listgrein-
ar”.
„Grunar aö niargir af stærstu
hugsunum mannsandans hafi
fæðst í móral eftir drykkju”.
remst
— segir Hrafn
Guúnlaugsson í
stjórniausu viðtali
við Vísi
Hann er alveg furðulegur maður.
Hann stressast aldrei. Og það er
alveg makalaust hvað öll lætin i
kringum mig harmónera vel
við róna yfir honum. Reyndar
veltur gerð kvikmyndar á öllum
þeim hóp sem að- henni vinnur.
Maður skapar ekki kvikmynd
með þvi að vita allt best sjálfur.”
„Blóðrautt sólarlag” er annars
fjármálaleg móðir kvikmyndar-
innar um „Lilju”, svo dálitið
skringilega sé að orði komist. En i
frumskógum islenska embættis-
kerfisins gerast einatt skritnir
hlut'ir. Upphaflega var „Blóð-
rautt sólarlag” lokaprófsverkefni
Hrafns við Dramatiska Institutet
i Stokkhólmi. Það hafði komið til
athugunar að skólinn tæki þátt i
gerð myndarinnar, auk þess sem
Hrafn sótti um styrk hjá Mennta-
málaráði. M.a. hafði Sven
Nykvist, kvikmyndatökumeistari
Ingmar Bergmans lýst áhuga á
að vinna við verkið. En styrk-
urinn fékkst ekki þá, — þjóð-
hátiðarárið. Hrafn fékk hins
vegar styrkinn árið eftir en þá
kom islenska sjómvarpið inn i þá
samvinnu sem fyrirhuguð var við
Dramatiska Institutet. Þegar
þeir samningar eru svo tilbúnir er
Hrafni bent á aö þessi milljón
myndi vegna samvinnu við sjón-
varpið kosta það að hann yrði að
greiða sem svarar hálfum starfs-
launum úr eigin vasa i skatt, þar
sem milljónin yrði færð inn sem
tekjur af fjármálaráðuneytinu.
Hrafn skilaði þvi styrknum með
kærri kveðju eftir hálfs árs
baráttu við kerfið. En þá var
honum af hálfu Menntamálaráðs
bent á að hjá þessu yrði
hugsanlega komist með þvi að
verja þessum aurum til
sjálfstæðs fyrirtækis, og þvi var
hugmyndin um framleiðslu
„Lilju” samþykkt einró.a i
ráðinu, að höfðu samráði við
Halldór Laxness. Sjónvarpið
kostar hins vegar „Sólarlagið”.
„Þráhyggja i fjármála-
ráðuneytinu er að drepa
þessa mynd”.
En ekki var málið i höfn.
það er alveg ótrúlegt hvað mik-
ið er af pappirstigrisdýrum i
þessu andskotalega kerfi”, segir
Hrafn og dæsir. „Ég á nú mjög
auðvelt með að skilja barlóm
kvikmyndagerðarmanna frá
fyrri tið. Skilningur stjómvalda
er enginn. Ég veit óteljandi dæmi
þess að erlendir kvikmyndahópar
sem hingað koma hafa fengið að
flytja sinar filmur inn án þess að
greiða tolla af þeim. Þráhyggja
vissra manna i fjármálaráðu-
neytinu er að drepa þessa mynd,
— og það jafnvel þótt tollstjóri
sjálfur hafi hvatt þá til þess aö
láta eitt yfir alla ganga.”
Sjálfboðavinna og
rotnandi fóstur.
„Það er svona 25% af „Liliu”
I
V,
VÍSIR
C'tgeíandi: Reykjaprent hf.
Framkvemdastjóri: Davíð Guðmundston.
Ritstjórar: Þorsteinn Pállsson. ábm.
ólafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúl: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guömundur Pétursson. Um-
sjón með helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guðfinnsson,
Guðjón Arngrimsson, Kjartan L. Pálsson, óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigurveig Jónsdóttir. Akur-
eyrarritstjórn: Anders Hansen. tþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Útlitsteiknun: Jón ósk-
ar Hafsteinsson, Þórarinn J. Magnússon. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson.
Auglýsingastjóri: Þorsteinu Fr. Sigurðsson. Dreiflngarstjóri: Siguröur R. Pétursson.
Auglýsingar: HverfisgaU 44. Slmar 11660,86611
Afgreiðsla: Hverfisgata 44. Slmi 86611
RiUtjórn : Slðumúla 14. Slmi 86611, 7Hnur
Akureyri. Slmi 66-19806
Askriftargjald kr. 1196 á mánuði innanlands.
Verð I lausasölu kr. 60 einUkið.
Prentun: Blaðaprent hf.
Áskriftarsími Vísis er 86611
Hringið strax og tryggið ykkur eintak
af Vísi til lesturs hvern dag vikunnar
fyrir aðeins 1100 krónur ó mónuði