Vísir - 28.01.1977, Page 3
3
vism Föstudagur 28. janúar 1977
Margir eiga inni
orlofsfé frá 1975
„Það eru um 20 aðilar, sem
hafa kært og eiga inni orlofsfé
vegna starfa sinna hjá verktak-
anum við Grundartanga orlofs-
árið 1975-1976, en við erum von-
góðir um að ná þvi inn”, sagði
Birgir Hermannsson, forstöðu-
maður Póstgiróstofu Land-
slmans, i viötali við Vfsi.
Blaðið haföi fregnað, að sumir
þeir, sem unnu hjá umræddum
verktaka við Grundartanga árið
1975 hefðu ekki enn fengið or-
lofsfé sitt greitt. Birgir stað-
festi, að þetta væri rétt. Hins
vegar heföi þegar tekist aö fá
hluta af þessu orlofsfé greiddan
og góðar vonir væru um, að
eftirstöðvarnar fengjust einnig.
Það kom fram hjá Birgi, að i
lok siðasta orlofsárs hafi um
0.5% af orlofsfé veriö óinnheimt
hjá Póstgiróstofunni, og mætti
þvi segja, að innheimtan gengi
vel.
- ESJ
—--» ; ;
— J
Böllin á Hvoli eru oft hressileg eins og þessi mynd Lofts ljósmyndara Vfsis ber meö sér. Nú er aöeins
leyft að halda árshátíðir, þorrablót og aörar innbyrðisskemmtanir á Hvoli og öðrum skemmtistöðum f
Rangárvallasýslu.
Ljósmynd Vfsis Loftur
í Rángórvallasýslu
öll opinber böll I Rangárvalla-
sýslu eru nú bönnuð. Hafa hér-
aðsbúar orðið að leita út fyrir
sýslumörk til þess aö fá sér snún-
ing siðan i janúarbyrjun og mun
þetta ástand vara fram i mars.
Sveinn ísleifsson yfirlögreglu-
þjónn á Hellu sagði er Visir innti
hann eftir ástæðum skemmtana-
bannsins, að svona bann hefði
lika verið i fyrra og þótt gefast
vel. Þvi hefði verið gripið til þess
að nýju.
Á þessum árstima fara fram
þorrablót og fleiri innbyröis-
skemmtanir. Vildu yfirvöldkoma
i veg fyrir að þau rækjust á opin-
bera dansleiki svo þau bönnuðu
þá bara.
Einnig sagði Sveinn að á
þessum árstima séu veður viðsjál
og dansgestir koma yfirleitt langt
að. Þvi hefði þótt ástæða til að
banna böllin. Einnig gat Sveinn
þess aö skólar stæðu yfir og væri
bannið að hluta til tilkomiö vegna
þeirra.
Ekki sagði Sveinn yfirvöld
verða var viö mikla óánægju
meðal sýslubúa. Enda væri það
svo á þessum árstima að margir
leituðu út fyrir til aö vinna, færu á
vertið og þess háttar.
Óþægindi og
fjárhagstjón
Fólk sem Visir ræddi við úr
Rangárvallasýslu lýsti hins vegar
megnustu óánægju sinni með
þetta. Sagði að fjárhagstjón sam-
komuhúsa I sýslunni vera tímælt.
Þess má geta að i Rangárvalla-
sýslu eru hinir frægu ballstaðir,
Hellubió og Hvoll. Ennfremur
sagði fólkið að samkomubanniö
neyddi fólk til að leita út fyrir
sýsluna eftir skemmtunum. Þaö
yki kostnaðinn og skapaöi óþæg-
indi. Benti þaö á aö röksemdir
yfirvalda um viðsjál veður vera
haldlaus þar sem fólk leitaöi nú
út fyrir sýslumörkin eftir böllum
og gæti þá eins lent i vondum
veðrum.
— EKG
FIMM VtRÐA SINDIRAÐUNAUT
AR ílNN HLÝTUR SíNDIHíRRA
TIGN
Ýmsar breytingar hafa veriö
gerðar hjá utanríkisþjónustunni
að undanförnu. Þær stærstu
eru, að fimm manns hafa
hækkað i tign og veriö skipaðir
sendiráðsráðunautar og einn
maður hefur fengið nafnbótina
sendiherra.
Páli Asgeiri Tryggvasyni,
sendifulltrúa og deildarstjóra i
varnarmáladeild utanrikis-
málaráðuneytisins, hefur nú
veriö veitt nafnbótin sendiherra
— ambassador.
Að Páli meðtöldum eru nú hér
heimafimm menn meðnafnbót-
ina sendiherra. Eru það auk
hans þeir Pétur Thorsteinsson,
Pétur Eggerz, Hörður Helgason
og Hinrik Sv. Björnsson.
Eftirtaldir fimm aöilar hafa
verið skipaðirsendiráöunautar i
utanrikisþjónustunni.
Tómas Karlsson, settur sendi-
fulltrúifastanefndar Islands hjá
SÞ I New York.
Halla Bergs, sendiráösritari
við sendiráöiö i Stokkhólmi.
Sveinn Björnsson, sendiráðs-
ritari við sendiráðið i Bonn.
Hannes Guömundsson,
fullt.-Ui I vamamáladeild utan-
rikií ra'öuneytisins.
Helgi Agústsson, sendiráðs-
ritari viö sendiráðið i London.
Halla Bergs, er fyrsta konan,
sem er skipaður sendiráðunaut-
ur i utanrikisþjónustu Islands.
Hún hefur starfaö við sendiráðiö
i Stokkhólmi siðan 1974, en i
utanrikisþjónustunni, hefur hún
veriö starfandi siöan 1944.
— klp —
Þrír
kvikmynda
skriffinnar
Erlendur Svcinsson skrifar
„Kvikmyndaspjall” um þrjá
þjóðkunna listamenn sem
fengist hafa viö kvikmvnda-
umfjöllun, — Jóhannes Kjar-
val, Halldór Laxness og Thor
Vilhjálmsson.
Guöjón Arngrímsson/
blaöamaöur segir frá
heimsókn í Hljóðrita i
Hafnarfirði og starf-
seminni þar. M.a.
kemur fram að
hugsanlegt er að er-
lendar hljómsveitir
komi hingað til lands
til upptöku í Hljóðrita.
Þeirra á meðal er hin
kunna hljómsveit
Genesis.
VISIEt.fi
Meðal efnis í Helgarblaðinu sem fylgir
laugardagsblaði Vísis á morgun er:
Maðurmn
á bak við
„Daglegt
mál"
Sigurveig Jónsdóttir, blaða-
maður ræðir viö llelga J.
llalldórsson, cand. mag.,
sein þjóðkunnur hefur oröið
fyrir umsjón ineð útvarps-
þáttunum „Daglegt mál”,
þar sem hann hefur sagt
landsmönnum öllum, ekki
sist blaðamönnum, til synd-
anna er varöar ineðferð á
ástkæra, ylhýra málinu.
Helgi segir in.a. frá ferli sin-
um við kennslu og sjó-
mennsku, og auövitaö frá
viöhorfum sinum til is-
lenskrar tungu I dag.