Vísir - 17.02.1977, Blaðsíða 9

Vísir - 17.02.1977, Blaðsíða 9
vism Fimmtudagur 17. febrúar 1977 9 BÆJARSTJÓRN HÚSAVÍKUR: Yill verðlagninqu um Víkurskarð Bæjarstjórn Húsavikur hefur samþykkt áskorun á Vegagerö rlkisins þess efnis, aö hefja þegar á komandi sumri fram- kvæmdir viö fyrirhugaöan veg yfir Vlkurskarö. Þessari fram- tiöartengingu byggöa viö Eyja- fjörö og Skjálfanda veröi aö hraöa sem mest. I greinargerð er bent á, aö Vaðlaheiði er jafnan lokuð fyrir umferö allan veturinn og þar sem leggja á þann veg niöur með tilkomu vegar yfir Vikur- skarð, sé að mestu hætt að halda sem fyrst honum við. Einnig er bent á, að vetrar- leiðin milli Húsavikvjr og Akur- eyrar um Dalsmynni sé 27 km lengri en um Vaölarheiði og lengi þvl leiöina milli þessara staða um 28%. Þingmönnum Norðurlands- kjördæmis eystra er falið aö fylgja þessari áskorun eftir og jafnframterþeim faliö að vekja athygli á, að ekki verði gerður hringvegur um Island nema taka með leiðina milli Akureyr- ar og Egilsstaöa. —SG Ryðvarnarstöð Eimskips tekur til starfa í maí i frétt frá Eimskipafélaginu kemur fram, aö Byðvarnarstöð félagsins muni taka til starfa I mal. Hún veröi ein hin fullkomn- asta sinnar tegundar á noröur- löndum og stórbæta þjónustu viö bifreiöaeigendur. Aætlaö er aö stööin muni kosta um 100 milljón- ir króna. Það kemur fram I fréttinni, að þegar fréttir bárust um það á árinu 1975, aö nokkrir bifreiða- innflytjendur hyggðust kaupa skip, hafi komiö I ljós i viðræöum við viðskiptavini Eimskips, að rlk áhersla væri lögð á að bifreiðar væru ryövarðar strax eftir kom- una til landsins. Hins vegar lægju þær oft lengi ótollafgreiddar og Eimskip treysti sér ekki til að af- henda bifreiðir úr sinni vörslu til ryövarnar. Þvl hafiveriö ákveðið að reisa umrædda ryðvarnastöð á athafnasvæði félagsins. Varðandi bflainnflutninginn er tekið fram, að Eimskip flutti um 3.900 bila áriö 1976, sem er meira en helmings fækkun frá árinu 1974. Þetta sýni best sveiflurnar I Islenskri verslun. 1 frétt Eimskipafélagsins segir, að samkvæmt upplýsingum frá innflytjendum bfla sé það víðs fjarri þeim að hætta að fly tja með skipum Eimskips. — SG RITGERÐARSAMKEPPNI UM IÐNAÐINN: Félag Islenskra iönrekenda hefur I samráöi viö Mentta- málaráöuneytiö ákveöiö aö efna til ritgerðasamkeppni fyrir nemendur I 9 og 10. bekk grunn- skólans og nemendur fram- haldsskóla. Ritgeröaverkefni eru: 1. Hvernig á að tryggja búsetu I landinu og jafnræöi I atvinnu- möguleikum milli lands- hluta? 2. A að leggja áherslu á þróun iðnaðar á næstu árum? 3. Samhengi atvinnulifs á Islandi. Með samhengi er átt viö m.a. hvernig atvinnuvegir þjóöar- innar skipta meö sér hlut- verkum, t.d. I útflutningi, þjónustu og framleiöslu, hvernig þeir styöja hvern annan og gildi þess stuönings, og hvaöa þátt þeir eiga I myndun atvinnutækifæra o.s.frv. Miöa skal viö að ritgerðir séu ekki lengri en 1200-1500 orö. Heimilt er að vinna ritgeröirnar sem hópverkefni tveggja til fjögurra nemenda I samráði við kennara. Skilafrestur er til 15. april 1977. I tilefni af samkeppninni hefur upplýsingariti Félags Islenskra iðnrekenda „Hvert ætlum viö?” veriö dreift til viökomandi skóla. Nemendur eru einnig hvattir til aö kynna sér handbækur og skýrslur um Islenskan iðnað og Islenskt at- vinnulif. Dómnefnd skipa: Bjarni Björnsson, iönrekandi, og Bjarni Bragi Jónsson, hag- fræðingur, tilnefndir af Félagi Islenskra iðnrekenda. Stefán Ólafur Jónsson, deildarstjóri, tilnefndur af Menntamálaráðuneyti. Dómsnefnd mun leggja áherslu á aö nemendur sýni eigið frumkvæði I efnisvali og gerð ritgerðanna og dragi álykt- anir af eigin reynslu, atvinnu- háttum og atvinnumöguleikum I þeirra eigin byggöarlagi i sam- hengi viö atvinnullf annarra landsmanna. Gert er ráð fyrir aö ritgerðum verði skipt I tvo flokka 9. og 10. bekk grunnskólans annars vegar, og framhaldsskóla hins vegar. t hvorum flokki veröi veitt fyrstu verölaun aö upphæö kr. 100.000 og 10 viöurkenningar aö upphæö kr. 10.000,- hver, og veröa þau veitt viö skólaslit hjá verölaunahöfum. þúsund í verðlaun Spurningunni um mikiivægi lönaöar hefur oftar en áöur skotiö upp, vegna Iönkynningar sem veriö hefur. Ljósm. Kr. Ben. „Ætlum, að búa björgunarsveitirnar um allt land sem bestum búnaði" Kvennadeild Slysavarna- féiags tslands I Reykjavlk efnir árlega til merkjasölu og veröur hún aö þessu sinni næsta föstudag 18. febr. Af þvi. tilefni hefur deildin sent borgarbúum svolátandi ávarp, sem hún hefur óskaö birtingar á: Kæru reykvlkingar. A fóstudaginn kemur verður hinn árlegi merkjasöludagur kvennadeildar Slysavarna- félags tslands i Reykjavlk. Það er einlæg ósk kvenna- deildarinnar, að reykvíkingar taki merkjasölunni vel og styðji þannig SVFI I starfi. Allur ágóöi merkjasölunnar rennur til styrktar slysa- varna- og björgunarstarfsins SVFl, og ætlum við öll aö setja metnaö okkar i að leggja okkar skerf fram til þess aö búa björgunarsveitirnar um allt land, sem bestum búnaði. Um leið og þiö kaupiö merki kvennadeildarinnar leggið þið fram ykkar skerf til þess að svo megi verða. Reykvikingar hafa ávallt sýnt kvennadeild SVFI mikla velvild og stuðning og vonast hún eftir aö svo verði enn. Við biöjum foreldra aö hvetja börnin til aö selja merkin og sjá til þess, að þau veröi vel klædd. Merkið kostarkr. 100,- og fá börnin sölulaun auk þess sem 20 söluhæstu börnin verða verðlaunuö sérstaklega. Með fyrirfram þakklæti. Kvennadeild Slysavarna- félags tslands I Reykjavik. fenwood eldavélar Fyrirliggitinai Slmi 21240 Laugaveg' BONNEVILLE 750 cc. Höfum til afgreiðslu strax frá Eng- landi Triumph mótorhjól á mjög hagstæðu verði ef pantað er strax. Ath. nýtt Varahlutir og þjónusta. , heimihsfang Vélhjólaverslun H. Ólafssonar Freyjugata 1 Simi 16900 Ford Econoline Ford í fararbroddi: Ford Econoline sendibílar fyrirliggjandi í ýmsum gerðum bœði með og án hliðarglugga. Burðarþol frá 1100 - 1600 kg. SVEINN EGILSSON HF FORD HUSINU SKEIFUNNI 1 7 Sltöll 85100

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.