Vísir - 17.02.1977, Blaðsíða 16

Vísir - 17.02.1977, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 17. febrúar 1977 16 lönabíó »3-11-82 Enginn er fullkominn Some like it hot . ' Ein besta gamanmynd sem Tónabló hefur haft til sýn- inga. Myndin hefur verið endursýnd viöa erlendis viö mikla aösókn. Leikstjóri: Billy Wilder. Aöalhlutverk: Marilyn Mon- roe, Jack Lemmon, Tony Curtis. Bönnuö börnum innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7,15 og 9,30. Carambola Hörkuspennandi nýr Italskur vestri meö ..tviburabræör- um” Trinity bræöra. Aöalhlutverk: Paul Smith og Michaei Coby. Sýnd kl. 5-7 og 9, ísl texti. Karate-bræöurnir Hörkuspennandi Karate- mynd Bönnuö börnum innan 16 ára. Endursýnd kl. 11. LalkMlag Köpavegs Glataðir snillingar eftir William Heinesen og Caspar Koch . Sýning sunnu- dag kl. 20.30. Miöasala opin frá kl. 17.00 Slmi 4-19-85 Siðasta sinn i Wl.l Z.AA FRENCH CONNECTION II ISLENSKUR TBXTI Aöalhlutverk : Gene Hackman, Fernando Rey. »3önnuö innan 16 ára. Súnd kl. 5, 7.15 og 9.30. Hækkaö verö. »2-21-40 Árásin á Entebbe-f lug- völlinn Þessa mynd þarf naumast aö auglýsa — svo fræg er hún og atburöirnir, sem hún lýsir vöktu heimsathygli á sinum tlma þegar Israelsmenn björguöu gislunum á En- tebbeflugvelli I Uganda Myndin er I litum meö isl. texta. Aöalhlutverk: Charles Bronson Peter Finch Yaphet Kottó Bönnuö innan 12 ára Sýnd kl. 5, 745 og 9,30 1 Hækkaö verð Allra slöasta sinn. hafnarbíó .»16-444 Litli risinn Hin spennandi og vinsæla Panavision litmynd meö Dustin Hoffman og Fay Dunaway. ísl. texti. Endursýnd kl. 8,30 og 11,15. Samfelld sýning kl. 1.30 til 8.30 Hrædda brúðurin Og Sheba Baby meö Pam Grier, endursýnd. Bönnuð börnum innan 16 ára. Samfelld sýning kl. 1.30 til 8.30. Setjari óskast á filmusetningavél Comp/Set 550 og pappírsumbrot Prentari óskast á Heidelberg Digul. Uppl. ekki i sima Svansprent hf. Auðbrekku 55, Kópavogi Iðnaðarhúsnœði Til leigu er hentugt iðnaðarhúsnæði ca. 100 ferm ásamt herbergi og eldhúsaðstöðu. Einnig ágætis geymsluhúsnæði. Uppl. hjá Bilakaup, Höfðatúni 4, simar 10280-10356 Arnarsveitin Hörkuspennandi, ný ensk- amerlsk strlöskvikmynd I litum. Sannsöguleg mjínd um átökin um Dunkirk og njósnir þjóöverja I Englandi. Aöalhlutverk: Frederick Stafford. Bönnuö innan 14 ára íslenskur texti Sýnd kl. 6, 8 og 10. Islenskur texti Skjóttu fyrst — spurðu svo Æsispennandi og viöburöar- rlk mynd úr villta vestrinu. lsl. texti. Sýnd kl. 9. Bönnuö börnum. »1-13-84 ISLENSKUR TEXTI. Þjófar og villtar meyjar The Great Scout and Cathouse Thursday Vlöfræg, sprengihlægileg og vel leikin, ný bandarísk gamanmynd I litum. Aöal- hlutverk: Lee Marvin, Oli- ver Reed, Elizabeth Ashley. Bönnuö innan 14 ára. Hækkaö verö Sýnd kl. 5, 7 og 9. Tónabió Some Like It Hot (Enginn er fullkominn) Bandarisk, 1959. Þaö er verulega ánægjulegt aö bfó skuli taka til endursýn- ingarkvikmynd, sem ekki hefur sést á tjaldinu I fimmtán ár, klassiska gamanmynd sem alltaf heldur gildi sinu, mynd þar sem þekktir og vinsælir leikarar fara meö aöalhlutverk- in. Tónabió veröur fimmtán ára um þessar mundir og er kvik- myndin Some Like It Hot fyrsta myndin sem bióiö sýndi, og fer þvl vel á þvl aö halda upp á af- mæliö meö endursýningunni. Leikararnir, sem fara meö aöalhlutverkin eru þarna á slnu besta skeiöi, þótt segja megi e.t.v. aö Jack Lemmon hafi far- iö batnandi meö aldrinum. Þeir eru llka allir viöurkenndir gamanleikarar og kunna aö skemmta sér og áhorfendum meö leik sinum. Þaö er varla vert aö lýsa söguþræöi myndarinnar, þvi látbragöiö og textinn er þaö sem blivur. Þó er vert aö geta þess að barátta tvlmenninga (Tony Curtis og Jack Lemmon) til aö útvega sér vinnuá bannárunum i Bandarlkjunum er ansi kátleg og óheppni þeirra, sem felst I því aö vera vitni aö moröum, grátleg. Marilyn Monroe var kyntákn sins tima og heföi efa- laust veriö enn, ef hún hefði lif- aö. Fyrir þá, sem ekki hafa ald- urtil þessað muna þá tima þeg- ar veröldin stóö á öndinni yfir henni, geta fariö I Tónabíó og kynnst þvi nú. Þótt þessi kvikmynd sé komin á „sjónvarpsaldurinn” er veru- lega skemmtilegt aö sjá hana i blói og efalaust aö margir geti rifjaö upp skemmtilegar minn- ingar frá þeim tlma er þeir sáu hana fyrst og þeir sem yngri eru geta fengiö aö sjá ósvikna gamanmynd, eins og þær gerö- ust bestar á sjötta áratugnum. Aöalleikarar auk Curtis, Lemmon og Monroe eru George Raft, Pat O’Brian, Joan Shaw- lee, Billy Gray og Davy Barry. Leikstjóri er Billy Wilder. Marilyn Monroe syngur meö kvennahljómsveitlnni með sinnl seiðandl rödd, sem fékk menn tll að gleyma tilverunni smástund. Ef grannt er skoöað má sjá Jack Lemmon leika á kontrabassa og Tony Curtis á saxafón.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.