Vísir - 28.02.1977, Qupperneq 2
2
Ertu samþykkur bjór-
frumvarpinu?
I)aviö Gunnarsson, leigubilstjóri:
Já, það ætti að opna bjórkrár og
hafa sama aldurstakmark eins og
i rikinu.
Guðfinnur Halldórsson, bflasali:
Nei, áfengisvandamáliö er orðið
nægilegt og frumvarpið bætir þaö
ekki.
Þórir R. Halldórsson bflasali:
Nei, þá missa miklu fleiri bílpróf-
ið og það veröur miklu minna aö
gera hjá bilasölum, vegna
ölvunar.
Gunnar Arnason, kennari: Nei,
þvl aö auk þess sem mér finnst
bjór vondur, held ég að það myndi
ekki bæta vlnmenningu Is-
lendinga.
Gunnar Arnason sölustj.: Ég er
eindreginn stuðningsmaður
frumvarpsins og vonast til að
komin verði krá á hvert horn áður
en langt um llður.
Mánudagur 28. febrúar 1877
Jóhann Örn Sigurjónsson skýrir
einvígisskákir Spasskys og Horts:
é § m
HvItt:Spasskv
Svart: Hort
Ungversk vörn.
e5
Rc6
1. e4
2. Rf3
3. Bc4
(fKærkomin tilbreyting frá
Skildu jafnir í gœr
gær hófst ein-
vlgi þeirra Spasskýs og Hort að
hótel Loftleiðum. Ahorfendur
voru margir hverjir mættir áð-
ur en skákin hófst. Aö vanda var
Spasský sestur við taflborðið
nokkru fyrir timann, og þegar
byrjaður að einbeita sér.
Skömmu eftir aö Guðmundur
Arnlaugsson, skákdómari setti
klukkuna i gang, gekk Hort i
salinn, með kaffibrúsa I hendi
og bros á vör. Báðum keppend-
um var vel fagnað, og eftir að
blaðaljósmyndarar höfðu
myndaö I grið og erg, hófst tafl-
ið. Spassk Iék kóngspeöi 11. leik,
og kom það lltt á óvart. Hitt
þótti merkilegra, aö Hort lét
uppáhaldsbyrjun sina, Caro-
Can, liggja óhreyfða, og svo og
Sikileyjarieikinn sem hann tefl-
ir gjarnan. i stað þess lék hann
l...e5 og hcfur trúlega ætlaö sér
að hrella Spasský með cin-
hverju leynivopni gegn spánska
leiknum. Spasský gaf þó engan
kost á sliku og hugðist gefa
skákinni suðrænt yfirbragð með
italska leiknum. Hort afþakk-
aði, og valdi i staðinn ungverska
vörn sem þykir traust en nokkuö
þunglamaleg. Spasský fékk öliu
rýmra tafl framan af, þó Hort
héldi öllu slnu með nákvæmri
vörn.
Aöstæöur allar að Loftleiða-
hóteli eru hinar prýðilegustu.
Ahorfendur geta fylgst með
gangi mála, hvort sem er inni I
keppnissalnum, eða þá I hliðar-
sölum, þar sem skákskýringar
eru á boöstólum. Það verk önn-
uðust Ingi R. Jóhannsson, Ingv-
ar Asmundsson og Jón Þor-
steinsson, og fórst sköruglega
úr hendi. Og þá er það skákin.
spánska leiknum sem nær
undantekingarlaustertefldur af
stórmeisturunum I dag, fái þeir
tækifæri til.)
3. ... Be7
Hort vill ekki lenda út I
„heimavinnu” andstæðings
sins, eftir 3. ... Rf6 eða
3. ... Bc5, hvort tveggja mjög
svo tvieggjaðar byrjanir.)
4. d4 d6
5. Rc3 Rf6
6. 0-0 0-0
7. h3 Rxd4
8. Kxd4 exd4
9. Dxd4 c6
10. a4 Rd7
11. Be3
(Eða 11. Bf4 Dc7 12. Ha-dl Re5
ög svartur þarf ekki að kvarta.!
11.......................... b6
(Hort hugsaði sig mjög lengi um
þennan leik. Jón Þorsteinsson
var reyndar búinn að stinga upp
á honum i skákskýringum sin-
um, þó menn væru ekki almennt
trúaðir á að hann kæmi.)
12. Ha-dl Dc7
13. f4 a6
(Hort teflir af hógværð og lætur
sér nægja að færa peðin fram
um einn reit, og Spasský um að
finna áætlun.)
14. Hf3 b5
15. Bb3 Kh8!
(Hort verst af mikilli ná-
kvæmni. Eftir t.d. 15. ,.Bb7 16.
Hg3 Rf6 17. e5 dxe5 18. fxe5 c5,
kom einn af áhorfendum með
skemmtilega tillögu, nefnilega.
19.Hxg74-! Kxg7 20. exf6+ Bxf6
21. Bh6+! og hvitur nær afger-
andi sókn. Margir slikir mögu-
leikar blunda I stöðunni, þó Hort
útiloki þá alla með hinum gerða
leik, svo og þeim næsta.)
16. Hg3 f6!
(Eftir þetta fór Hort sýnilega aö
liða vel, enda kominn út úr öll-
um hættum.)
17. Be6 Rc5
18. Bxc8 Hf-xc8
19. Bf2
(Hugmynd hvits er að leika f5,
og koma riddaranum frá c3-e2-
f4 til e6. Ekki dugði þó strax 19.
f5, vegna d5 og hrókurinn á g3 er
i uppnámi.)
19. ... Hc-b8
20. b3 Bf8
21. Hf3 og hér var samið um
jafntefli.
HH A ®
ii
i ii i
14 i #ii
iö B i
t &&
n <S>
C D E F G
Larsen byrjaði illa gegn Port-
isch, en hann tapaði 1. skákinni
með hvitu. Keppendur urðu fyr-
ir illyrmislegri truflun, er
hljómsveit hóf að spila fyrir ut-
an keppnisstaði meö miklum
látum. Varð að gera hlé á tafl-
mennskunni um hrið, á meðan
þaggað var niður I músiköntun-
um. Trúlega hefur þetta farið
heldur illa i Larsen, þvi hann
tefldi ekki af venjulegri snerpu.
Hvitt : Larsen
Svart: Portisch
1. e4 Sikileyjarvörn. c5
2. Rc3 Rc6
3. g3 g6
4. Bg2 Bg7
5. d3 d6
6. f4 e5
7. Rf3 Rg-e7
8. 0-0 0-0
9. Be3 Rd4
10. Dd2 exf4
11. Bxf4 Rxf3+
12. Hxf3 Db6
13. Hbl Be6
14. Bg5 Rc6
15. Be3 Re5
16. Hfl Rg4
17. Bf4 C4+
18. Khl cxd3
19. cxd3 Bd4
20. h3 Re3
21. Hf-el Rxg2
22. Kxg2 Dc6
23. Be3 Bh8
24.Hb-cl Dd7
25. Kh2 a6
26. Dg2 Ha-c8
27. d4 Dd8
28. d5 Bd7
29. Bf4 De7
30. Dd2 Be5
31. Hfl Hc-e8
32. Hc-el f6
e 33. a3 h5
34. Re2 g5
• 35. Bxe5 Dxe5
36. Rd4 h4
6 37. Hgl Kf7
. 38. Rf3 hxg3+
39. Hxg3 Df4
< 40. Hfl Dxd2
41. Rxd2 Hc8
=• 42. Hxg5 Hh8
43. e5 dxe5
£ 44. Re4 Hc2+
45. Kgl Hh6
1 46. Hg3 f5
47. b4 b6
48. Rg5+ Ke7
49. Rf3 Kf6
50. Hg8 Hxh3
51. Hb8 f4
52. Hxb6+ Kf5
53. Hf2 Hg3+
54. Kfl Bb5+
55. Kel Hxf2
56. Kxf2 Ke4
57. Rd2+ Kxd5
58. a4 Bd3
59. Hf6 He3
60. Rb3 He2+
61. Kgl Hb2
62. Rc5 Be2
63. Hb6 Kd4
64. Rd7 Bf3
65. He6 Ke3
66. Hxe5+ Be4
og hvitur gafst upp.
1 i i n Ai
B
I skák þeirra Polugaevskýs :
Meckings slapp brasiliumaður-
inn fyrir horn. Polugaevský
tefldi markvisst framamaf og
fórnaði manni fyrir samstæö
frípeöá kóngsvæng. Biðskákina
tefldi Polugaevský hins hins-
vegar linlega og missti skákina
niður I jafntefli.
ASÍ SEGIR Á SPILIN
Þá er kjaramálaráðstefnu
ASt lokið og búið að segja á spil-
in, þótt ekki verði slagið út fyrr
en 1. mal næstkomandi.
Aö þessu sinni liggur dæmið
óvenju ljóst fyrir hvað snertir
hina lægst launuöu, en I álykt-
unum kjaramálaráðstefnunnar
er að venju öllu blandað saman I
einn graut, þótt I þetta sinn hafi
fengist fram að nefna ekki jafna
prósentuhækkun á öll laun,
heldur hækkun i krónutöiu
þegar lágiaununum sleppir. ASt
er þvl enn sem fyrr fast I snöru
hátekjufólksins innan samtak-
anna, og enn einu sinni eiga
réttmætar kröfur láglauna-
fólksins að fleyta hinum hálaun-
ubu lengra inn á hátekjusvibib.
Þetta horfði að vlsu eitthvað'
öðruvlsi við væri ekki uppi sú
heillastefna að viðhalda fuiiri
atvinnu I landinu með allri
þeirri yfirborgunarspennu, sem
sllkri stefnu fylgir, einkum hjá
hinum faglærðu, svo að dæmi
eru til þess að margir hópar inn-
an þess sviðs hafifrá fimmtlu til
sjötlu þúsund krónur á vikur og
þykir ekki raikið. En ASt beitir
sér fyrir kjaravagni þessara
manna, af sama krafti og fyrir
kjaravagni hinna lægst launuðu,
með þeim afieiðingum, aö þegar
I upphafi er efnt til andstööu við
væntanlega kjarasamninga,
þótt aliir séu þvl sammála, að
láglaunahóparnir verði að fá
umtalsverða kauphækkun án
samsvarandi verðlagshækkana.
Þannig kýs ASt að ganga halt og
snúið til leiksins, og I stað þess
að finna sér leið út úr vandan-
um, sem fylgir klofnum stéttar-
samtökum, kjaralega séð, hefur
það uppi mikinn vind I seglum
um sparnað handa rlkisstjórn
landsins að samþykkja, item
mikia eyðslu, hvérnig sem það-
fer nú saman um leið og
kjaramálaráðstefnan gerir sig
bera að þvi að ráða ekkert við
sln eigin mál.
Annars er hann ætið forvitni-
iegur sá stórieikur þrætunnar,
sem ASl hefur uppi við rOcis-
stjórnir I pólitisku skyni hvenær
sem samningagerö nálgast. Er
engu likara en það sé yfirlýst
skoöun ASt-forustunnar að hún
sitji einskonar auka-alþing
þjóðarinnar i skrifstofum sln-
um, og sé skylt að tala þaöan af
myndugleik um stefnuna I
landsmálum. Eru þá fleiri
kaliaðir tii þess leiks en kjörnir
hafa veriö, en auðvitað varöar
stórveldi eins og ASl ekkert um
það, enda hefur það verkfalls-
rétt til að knýja á um frangang
tillagna sinna i landsmálum, og
getur I krafti hans gengið yfir
höfuð hinna sextiu kjörnu þing-
manna hvenær sem er. Gjarnan
fer þeim sem lesa alla tillögu-
gerð kjaramálaráðstefnunnar
svo að lestri loknum, aö I raun-
inni sé tillögugerðin ekkert
annað en yfirlýsing um að hin-
um sextlu þingmönnum beri að
fara heim. Svo ljósar eru lausn-
ir hinna margþættu vandamála
efnahagsilfsins, þegar þær hafa
runnið I gegnum mælskuvéiar
forustuliðs ASÍ.
Aúðvitað ber rikisvaldinu að
snúast við þeim vanda sem uppi
veröur I efnahagsihálum að
samningum loknum af einurö og
skynsamlegu viti. Enga kjara-
málaráðstefnu þarf til að benda
á það. En þá einurð og það skyn-
samlega vit verður þvl miður
ekki að sækja til ASt-forustunn-
ar, sem enn einu sinni ætlar að
hækka tekjur stórtekjumanna
fyrir tilstuðlan, baráttu og sam-
stöðu þeirra, sem varla skrimta
af launum slnum i dag. Sú
verkalýðsforusta, sem gleymir
að gera sér ljósar þær staö-
reyndir, að láglaunafólkið á fátt
eitt sameiginlegt með hátekju-
fólkinu innan ASÍ, hvað iauna-
kröfur snertir, er varla fært um
að tala af viti um efnahagsmál-
in I heild eða gefa þar ráð. Von-
andi tekst þó svo til i væntan-
legum samningum, að lág-
launafólkið beri mest úr býtum,
og það án verkfalla. Slðan mun
koma til kasta stjórnvalda aö
tryggja, að bætt kjör lágiauna-
fólksins vérði ekki ódrýgð með
vanhugsuöum hækkunum á
neysluvörum. Þær þurfa varla
að hækka mikið vegna lág-
launafólksins, fyrst ómældar
yfirborgarnir hafa ekki valdið
hækkunum hingað til.
Svarthöfði