Vísir - 01.05.1977, Page 13

Vísir - 01.05.1977, Page 13
Sunnudagur 1. mal 1977 13 ,Núna erégaft vlnna aö heinuldarmynd um Stokkhólmsraggarana”. — Vísir heimsœkir Lárus Ými Óskarsson sem er við nám á Dramatiska Institutet i Stokkhólmi „Um skólann: Þeir vilja fólk sem hafi bakpoka til aö taka upp ór þegar þaö fer aö gcra hlutina". Þetta er hin glæsilegasta skólabygging, veröur manni á að hugsa við aö aka framhjá hiísi Dramatiska Institutet I Stokkhóimi i Sviþjóð. Þeir sem láta sér það nægja komast þvi miður ekki að þvi aö þessi bygg- ing og sú starfsemi sem hún hýsir er allt annað cn venjuleg. Eða er það i nokkrum venju- legum skóla sem þú finnur full- komin upptökustúdió, svo full- komin að islenskir sjónvarps- menn yrðu grænir af öfund. Og i þessum skóla, sem utan frá séð viröist svo ósköp venjulegur, eru framleiddir fleiri kilómetr- ar af kvikmyndum ár hvert. Já, Dramatiska Institutet er vissulega óvenjulegur skóii. Þarna eru þrir islendingar við nám. Hallmar Sigurðsson við leikhúsleikst jórn, bráinn Bertelsson og Lárus Ýmir Óskarsson sem er við leikstjórn og pródúksjón. Þegar við tveir visismenn vorum á ferö i Stokkhólmi fyrir skömmu litum við inn á þá merkilegu stofnun Dramatiske „Þaö er fáránlegt aö ætla sér aö gera kvikmynd og kunna aöeins að tala viö leikarana". Institutet, nánast eingöngu fyrir forvitni sakir. Þar sem við gengum eftir einum ganginum og spurðumst fyrir um eitthvað sem viö höfðum hug á að sjá leit maður út úr einu herberginu og kallaði til okkar. Þarna var þá kominn Lárus Ýmir Óskarsson. Þó hann hefði ' án efa fullt að gera gaf hann sér tima til aö leiðsegja okkur um stofnunina og segja okkur frá sér og sinum högum, þó að hann áminnti okkur margsinnis um að mikla ekkert og að vera sem hlutlægasta i allri frásögn. Kennsla og verkefni sam- einuö „Ég er hérna við nám i leik- stjórn og pródúksjón fyrir kvik- mynd og sjónvarp”, sagði Lárus þegar við spurðum hann um námið. Þetta fer mest fram á þann hátt aö kennsla og verkefni eru sameinuö. Það væri aldrei haus né sporöur á þessu ef við lærð- um aðeins staöreyndir sem við siðan kynnum ekkert aö nota. bannig lærir maður að gera verkefni og fjalla um vandamál sem koma upp með kennttrun- um. Þaö sem ég hef gert i vetur eru tvær stuttar, leiknar mynd- ir. fimm minútna °8 fimmtán minútna. önnur myndanna er eftir handriti sem Jökull Jakobsson rithöfundur hefur gert, en hann dvelst hér núna. Þá hef ég gert stuttar myndir um ballett og hálftima leikrit. Núna er ég að vinna að heim- ildarmynd um „Stokhólms- raggarana”. Raggarar nefnast ungir menn sem keyra um á stórum ameriskum bilum og stunda slagsmál og fylleri. Ég er núna að undirbúa gerð á leikinni mynd sem taka mun hálftima i sýningu. A öðru ári gerum við viöameiri myndir. Allir læri allt Við vinnum i þriggja manna hópum. Grundvallaratriði viö kennslutæknina er aö allir læri allt. Til að mynda kann ég á myndavél, segulbönd, mixbönd og þess háttar. Samstarfsmenn minir þekkja einnig inn á mitt sviö. Þannig geta þeir rætt handritið sem jafnokar minir. Það er fáránlegt aö ætla sér aö gera kvikmynd og kunna að- eins að tala við leikarana. Það er enginn leikstjóri sem ekki kann tæknina iíka. — Það er eins og rithöfundur sem vill skrifa en kann ekki skil á málfræöinni. Menn verða að kunna skil á tæknilegum mögu- leikum. Þessi skóli er i þróun kennslu- fræðilega séð Aður var það þannig að hver starfsgrein var i sinu horni. Leikstjórinn með sina smávindla i einu horninu, á öðrum staö var myndatöku- maöurinn með sinar vélar og hljóöupptökumaðurinn með sin tæki. Þaö gekk ekki. Eftir að breytt var til hefur þetta gengið ágætlega.” Gildi hópvinnu Lárus leggur mikla áherslu á það i spjalli okkar hve hópvinn- an hafi mikið gildi. — „Við spjöllum saman um myndir og ræöum hvernig til hafi tekist”, segir hann. — Hann segir að menn eigi að gera hluti sem þeir séu á nippinu með að kunna? þannig læri þeir. „Það er gaman aö stúdera myndir sem aðrir gera. Það vekur samkeppni og við hjálp- um hver öðrum,” bætir hann við. Um skólann segir Láus Ýmir. „Þeir vilja fólk með einhverja lifsreynslu. Vilja að þaö hafi bakpoka til að taka upp úr þeg- ar það fer að gera hlutina. Skólinn hefur gott álit’á sér á alþjóðlegum vettvangi. Fyrstu starfsárin ræddu nemendur meira um þjóðfélagsvandamál en nú er. Þá fékk hann það orð á sig að þetta væri pólitiskur klúbbur. Þetta var idjótiskt! Það er fáránlegt aö eyða tima sinum þannig þegar tækifæri er ti! þess i tvö ár aö hafa nóg af tækjum sem hægt ^r aö nota. Þaö er nær að kanna þessi mál eftir ár. Þessi skóli er vel búinn. Rikið greiðir allan kostnað. Það er alltaf hægt að segja að það vanti filmur og auövitað höfum viö ekki ótakmarkaö af þeim. Okk- ur finnst það ósköp dapurlegt, en aörir segja að við séum spiilt af eftirlæti! En þaö er staðreynd að mikiöer filmaö hér miðað við aðra skóla. Tækjákostur er hér afar góð ur. Hér höfum við sjónvarps- stúdió, litastúdió, sem er mörg- um kiössum fyrir ofan islenska sjónvarpsstúdióið. Hér er útvarpsdeild, kvik- myndadeild, leikhúsdeild, maskdeild, það er föröun og grimugerð, almenn pródúksjón, fyrir'fólk úr atvinnulifinu. Hér eru lika styttri námskeið fyrir fólk úr atvinnulifinu. Þetta eru námskeið sem taka allt frá þremur upp i tólf daga. Flestir nemendanna eru svi- ar, en svo eru lika útlendingar innan um.” Heimsfrægir kennarar Lárus fer miklum viðurkenn- ingaroröum um kennarana sem hann segir vera afar góða. Auk hinna föstu kennara koma til Dramatiska Institutet gesta- kennarar. — „Til dæmis Jona; Cornell, sem er talinn vera einn af fimm bestu leikstjórum svia. Roy Anderson, sem þykir einn hinna efnilegri meöal yngri svia og hefur ti) að mynda gert K3rlikhetshistorie. Svo fáum viö lika stundum erienda leik- stjóra. Til dæmis Truffaut og Milos Forman". —EKG Lárus sýnir blaðamanni Vlsis hið fulllunvia stúdló þar sem hægt er að taka upp i lit.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.