Vísir - 06.05.1977, Blaðsíða 4

Vísir - 06.05.1977, Blaðsíða 4
Föstudagur 6. mal 1977 VISIR Verkamannaflokk urinn tapaði Tapaði 15-16% fylgi til ihaldsflokksins í bœjar- og sveitarstjórnarkosnmgum í Englandi og Wales Stjórnarandstæðingar á Bretlandi, ihaldsflokk- urinn, sópaði að sér fylgi i sveitar- og bæjar- stjórnarkosningum á Englandi og i Wales i gær. Eins og i aukaþing- kosningum að undan- förnu tapaði verka- mannaflokkurinn miklu fyigi- Flestar stærri borgir og sveitarstjórnarráö féllu i skaut i- haldsflokknum, þar á meöal London. Hefur verkamannaflokk- urinn ml einungis meirihluta i iöna&arbæjum, þar sem iön- verkafólk er I meirihluta. - Ósigrarnir I gær og á þriöjudag i sveitarstjórnarkosningunum I Skotlandi þar sem þjóöernissinn- ar og ihaldsmenn hrifsuöu meiri- Moon hand- tekinn Sun Myung Moon, evangelistinn frá Suð- ur-Kóreu og 10 félagar úr trúarhreyfingu hans voru handteknir í gær við menntaskóla i Barrytown, skammt ut- an við New York. Þeir höfðu farið i óleyfi inn á lóð skólans. Moon, sem er milljónamæring- ur, er sagöur hafa „heilaþvegiö” þúsundir ungmenna, flest I Bandaríkjunum, en einnig i öör- um löndum (á m.a. áhangendur á íslandi), sagöist hafa veriö aö skoöa sig um og ekki gert sér grein fyrir, aö hann væri kominn inn á einkalóö. Moon-hreyfingin hefur mælst misjafnlega fyrir, en hún krefst þess aö áhangendur hennar helgi sig algjörlega henni, og hefur þaö oröiö til þess aö fjöldi ungmenna hefur yfirgefiö heimili sín og lent á hálfgeröum flækingi. hluta i fjölda bæjar- og sveitar- stjórnum úr höndum verka- mannaflokksins þykja glögg vis- bending um, aö verkamanna- flokkurinn mundi biöa afhroö ef ef.nt yröi nú til þingkosninga. óánægöum flokksbræörum James Callaghans forsætisráö- herra ernú ljóst hversu skynsam- legt þaö var þegar hann bægöi þingrofi frá dyrum í vetur meö þvi aö taka upp samstarf viö frjálslynda flokkinn til þess aö hindra vantrauststillögu 1 ihaldsmanna”á stjórnina. Þarf ekki aö fara I neinar graf- götur meö þaö, aö Callaghan mun nú enn tregari en nokkru sinni aö ganga til þingkosninga. Samstarfiö viö verkamanna- flokkinn kom frjálslynda flokkn- um i koll i kosningunum aö undanförnu. Hefur hann tapaö viöa fylgi um leiö og verka- mannaflokkurinn. Alls kusu um 15 milljónir breta. Fyrstu tölur bentu til þess, aö I- haldsflokkurinn tæki um 15 eöa 16% fylgi frá verkamannaflokkn- um. Þetta var þó mjög breytilegt eftir kjörsvæöum. „Þetta er orösending þjóöar- innar til verkamannaflokksins um aö hann megi nú hætta,” sagöi Margaret Tatcher, formaö- ur ihaldsflokksins. Stilllr blaðamönnum upp til sýningar diplómötum Þrátt fyrir andmæli vestrænna sendiherra i Zaire ætla yfirvöld i blaðamenn af Vestur- Kinshasa að leiða sjö löndum fram fyrir þá i dag eins og sýnisgripi. Zaire-útvarpiö sagöi i gær- kvöldi aö blaöamennirnir sjö, sem handteknir voru I siöustu viku i Shabahéraöi, yröu látnir ganga fram fyrir erlenda dipló- mata og fréttamenn til þess aö fá úr þvi skoriö hvort þeir væru I raun og sann njósnarar, eins og þeim hefur veriö gefiö aö sök. Sendiherrar Bretlands, Frakk- lands, Vestur-Þýskalands og Spánar knúöu allir dyra hjá utan- rikisráöuneyti Zaire i gær til þess aö vara stjórnina viö þvl, aö þessi skrfpasýning mundi spilla áliti hennar út á viö. — Var þeim enda ekkert tilhlökkunarefni aö veröa áhorfendur aö þvi, aö landar þeirra blaöamennirnir, yröu út- hrópa&ir á almannafæri. Blaöamönnunum er gefiö aö sök, aö hafa meö leynd haft sam- band viö uppreisnarmenn I Shaba-héraöi og stofnaö meö þvi þjóöaröryggi I hættu. Þessir sjö eru fjórir spænskir sjónvarpsfréttamenn, einn þjóö- verji og einn frakki, báöir á veg- um Stern, og einn breti frá Ob- server. — Þeir láta sæmilega af fangavistinni. I hermannaleik Vopnuð trésveröum erta börn kaþólskra i Belfast bresku ör- yggisveröina, sem settir hafa verið til friöargæslu á N-triandi. — En þaö fylgir þung alvara á bak viö þennan „hermanna- leik”, því aö eftir tvö eöa þrjú ár eru þessi börn oröin liösmenn i irska lýöveldishernum, sem hikar ekki við að beita börnum á fermingaraldri i baráttu sinni. Síðasti eftirlif- andi farþeginn Edwina MacKenzie, 92 ára, er siöasti eftirlifandi farþeginn úr skip- inu Titanic. Hún man þaðeins og þaö hafi gerst igær, en þó eru 65 ár slöan sjóborgin mikla, sem sögö var geta ekki sokkið, rakst á isjaka og fórst. — A myndinni hér sést hún skoöa likan af Titanic i Los Angeies. Edwina hefur lifaö af þrjá eiginmenn, ekur enn bifreiö og er ekki sjóhræddari en svo, að hún býr við strönd og hefur siglt tiu sinnum y fir Atlantshafið frá þvi að hún lenti í Titanicslysinu. Hóar sektir fyrir landhelgisbrot Sovéski togarinn, Taeas Shev- chenko, hélt úr Bostonhöfn i gær eftir aö útgeröin haföi greitt fjór&ung milljónar dollara i sektir fyrir landhelgisbrot. Skipstjórinn var einnig dæmdur i 10 þúsund dollara sekt og 9 mán- ' aöa skilorðsbundiö fangelsi. Þetta var fyrsti togarinn, sem tekinn var innan hinnar nýju fisk- veiðilögsögu Bandarlkjanna, sem færö var út i 200 milur i mars. BRETAR VILJA SLEPPA HESS Bretland hefur ítrekað stuðning sinn við hug- myndina um að sleppa Rudolf Hess úr Spand- au-fangelsinu eftir þvi sem Franz-Josef Strauss, leiðtogi stjórn- arandstöðuhnar i V-Þýskalandi, sagði i gær. Hann sagöist hafa fengiö bréf frá James Callaghan, forsætis- ráöherra, þar sem skýrt væri, aö Bretland vildi skilyröislaust sleppa Hess af mannúöarástæö- um. Strauss sendi stjórnum þriggja fjórveldanna, Bretlands, Frakk- lands og V-Þýskalands, bænar- bréf þar sem fariö var þess á leit, aö Hess yröi látinn laus. — Hess, sem var hægri hönd Adolfs Hitl- ers, er nú 82 ára og á viö alvarleg veikindi aö striöa. Sovétstjórnin, sem ásamt hin- um þremur, rekur fangelsiöí þar sem Hess er nú eini fanginn) hef- ur aftekið aö Hess veröi sleppt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.