Vísir - 06.05.1977, Blaðsíða 11

Vísir - 06.05.1977, Blaðsíða 11
VISIR Föstudagur 6. mat 1977 Af ráðstefnu um neysluvenjur og heilsufar: Ráöstefna um neysluvenjur og heilsufar var haldin i Domus Medica um siöustu helgi. Til hennar var boöiö læknum, manneldisfræöingum og öörum sem áhuga hafa á manneldis- málum, svo og framleiöendum matvæla og fuiitrúum stjórn- valda. A ráðstefnunni var fluttur fjöldi erinda um heilbrigðis- ástand og fæðuval tslendinga og um uppbyggingu heilbrigðis- þjónustunnar og markaðskerfis matvælaframleiðslunnar. Var tilgangur ráðstefnunnar m.a. sá að kanna möguleika á sam- eiginlegri stefnumörkun inn- Lífslíkur fólks eru hœttar að aukast þratt fyrir bœtta heilbrigðisþjónustu Hiutiráöstefnugesta ihúsakynnum Domus Medica. — Myndir LA. lendra sérfræðinga til að stuðla að hollari neysluháttum. t erindum og umræðum kom meðal annars fram að þrátt fyr- ir að kostnaður við heilbrigðis- þjónustu landsmanna hafi auk- ist verulega undanfarin ár, hafa lifslikur miðaldra fólks ekki aukist á timabilinu. Tiðni hjarta- og æðasjúkdóma er sambærileg við það hæsta sem gerist i heiminum. Krabbamein i brjóstum, lungum, blöðruháls- kirtli og ristli fer hækkandi. Tiðni magabólgu og magasárs er mun hærri meðal islendinga en annarra þjóða. Og hér eru tannáta og tannskemmdir ekki siður algengir menningarsjúk- dómar en gerist á öðrum vest- urlöndum. Þá kom fram að neysluvenjur landsmanna eru þannig, að þáttur fitu, mettaðrar fitu og sykurs er of riflegur, en hlutur bundinna kolvetna og trefjaefna aftur á móti of naumur. Um þetta liggur fyrir vit- neskja þegar litið er á þjóðina i heild. Hins vegar vantar veru- lega upplýsingar um neyslu- venjur hinna ýmsu þjóðfélags- hópa, sérstaklega aldraðs fólks og barna. Fólk er farið að halda að það megi ekkert borða, án þess að- stofna lifi sinu I hættu. Þessu töldu fundarmenn að væri alveg öfugt farið, þ.e. að fólk þyrfti einmitt að auka fjölbreytni i fæðuvali sinu og draga þar með úr neyslu á einhæfum og orku- rikum fæðutegundum, serátak- lega sykri og harðri fitu. Úrræði Með þvi að auka verulega framleiðslu og neyslu á garðávöxtum og öðrum fitu- snauðum afurðum, svo sem létt- mjólk, undanrennu og mysu töldu fundarmenn að mætti beina neyslu landsmanna inn á hófsamari brautir. Einnig þyrfti að breyta reglum um kjötmat á þann hátt, að tekið verði mið af hollustuháttum i mun rikara mæli en nú er. Breyta þurfi þeim tolla- og verðlagsákvæðum sem stuðla að óhollum venjum, m.a. þurfi að fella niður vörugjald á heilu korni til samræmis við aðrar kornafurðir. Þá þurfi að kanna hvort ákvæði um smásöluálagn- ingu og visitölufestingu, t.d. á sælgæti hafi stuðlað að ofneyslu á sælgæti. Efla þurfi fræðslustarfsemi heilbrigðisyfirvalda og breyta menntun heilbrigðisstétta, þannig að heilsuvernd sé gert hærra undir höfði. Jafnframt þurfi að styöja við þær heil- brigðisstofnanir sem fylgjast með heilbrigðisástandi og neyslu landsmanna, svo sem Hjartavernd, Krabbameins- félagiö og Manneldisráð. Kom fram að þar sem þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu sé ávallt meiri en unnt sé að veita, þurfi að beiná fjárveitingum tií heilbrigðismála i framtíðinni inn á þær brautir, sem gefa mesta möguleika á bættri heilsu fyrir landsmenn. Hér að neðan getur að lita álit Páls Sigurðs- sonar ráðuneytisstjóra i heil- brigðisráðuneytinu og Daviðs Gunnarssonar framkvæmda- stjóra rikisspitalanna á þessum þætti málsins. —SJ Prófessor Siguröur Samúelsson og dr. Jón Óttar Kagnarsson ásamt fleiri þátttakendum I ráöstefnunni. „Arðsemíssjónarmið- ið verður oð róða" - segir Davíð Á. Gunnarsson um ráðstöfun fjármuna til heilbrigðismála ,,Þaö cr augijóst aö viö getum ekki stefnt i þessa átt. Hér ger- ist þaö sama og i aliri stóriöju og orkuframkvæmd. Fyrstu fjárfestingar eru mjög arösam- ar. Meöallifslengd hækkar og barnadauði minnkar. Eftir visst mark hættirhins vegar fjárfest- ingin og reksturinn aö gefa eins mikinn arð. Það er margt sem bcndirtil þessað viö islendingar séum nú aö náigast eöa jafnvel komnir aö þvi marki nú þegar”. Þetta er álit Daviðs Gunnars- sonar framkvæmdastjóra rikis- spitalanna á þeirri þróun að á siðustu 25 árum hefur hlutdeild heilbrigðismála i þjóöarfram- leiðslu á tslandi vaxið úr um 3% i um 7% án þess að hafa áhrif á meðallifslengd, en Davið fjallaði um ráðstöfun fjármuna til heilbrigðismála á ráð- stefnunni. „Þaö er langt I það, aö okkur sem störfum að heilbrigðismál- um, finnist að nægjanlegu fjár- magni sé varið til þessara mála”, sagði Davið. „Enn vant- ar mikið á að sómasamlega sé staðið að t.d. málum vangefinna og ýmissa hópa geðveikra. Enn eru stór átök nauösynleg á sviði fyrirbyggjandi áðgerða. Þessir þættir verða hins vegar að keppa við aðra þætti þjóöfé- lagsins og sin á milli um fjár- veitingar. Arðsemissjónarmiöiö veröur að ráða. Ég vildi t.d. gjarnan sjá samanburð á læknisfræði- legri arðsemi hreinsibúnaðar i álverksmiðjunni eða væntan- legri járnblendiverksmiðju, og þvi að byggja 40 rúma bækl- unarlækningadeild, endurhæf- ingarsundlaug og nokkur heim- ili fyrir vangefin og fjölfötluð börn. Vitað er með vissu hvað búnaöurinn kostar og hægt er aö áætla hversu mikið hann bætir likamlega heilsu og eykur lif- likur starfsmanna og hollustu- hætti umhverfis.” Dauðsföllum fækkað með fræðslu. Davið sagði aö ef litið væri á yfirlity íir helstu dánarorsakir á tslandi kæmi i ljos að hjá strák- um 1-10 ára deyja flestir slys- faradauða. Daviö Gunnarsson telur aö meiri aröscmi geti veriö fóigin f þvi aö verja fé til fraiöslu cn fjölgunar á siysamóttökum, ef markmiöiö er aö fækka siysa- dauösföllum. Það væri ’auðvelt að setja markmið, t.d. aö fækka dauðs- föllum um helming. Vafalaust væri mun arðsamara að verja fjármunum i^þessu tilfelli til fræðslu en þvi að t.d. bæta og fjölga slysamóttökum. Hér eiga arðsemissjónarmiðin að ráða. Arðsemi áróðurs. „Það borgar sig að auka fyrirbyggjandi aðgeröir að þvi marki aö heildarkostnaður verði i lágmarki,” sagði hann. „A þessum grundvelli eru stofn- anir eins og Hjartavernd og Krabbameinsfélagið auk göngudeilda reknar. Hér er i islenska þjóðfélaginu mikill óplægður akur. An þess að geta sannað það, er ekki ótrúlegt að arðsemi siendurtek- innar fræðslu um reykingar, mataræði, hreyfingu og annað þess háttar i sjónvarpi, sé það mikil, að hagkvæmt gæti verið að loka heiiii spitaladeild og nota rekstrarféi sh'ka fræðslu.” —SJ ' :( „Aukin tœkni hef ur litlu breytt" segir Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri „Þegar málin eru rannsökuö niöur i kjölinn veröur niöur- staöan sú, aö aukin tækni á sviöi rannsókna og meöferöar hefur litlu breytt um raunverulega lækningagetu sjúkrastofnana og einkum er þetta áberandi hvaö snertir aöaldánarorsakirnar tvær, h jartas júkdóma og krabbamein.” Þetta sagði Páll Sigurösson ráðuneytisstjóri i heilbrigöis- málaráðuneytinu meðal annars I erindi sem hann flutti á ráð- stefnunni. Páll sagði aö siðustu 40 ár I læknisfræði hafi meira en nokkur önúur markast af tækni- þróun, tækni á sviði rannsókna, tækni á sviði skurölækninga, tækni á sviði lyfjaframleiöslu og lyfjageröar og tækni I þvi að viðhalda lifi sem kannski er ekki neitt lff, og lifga aö nýju þá sem aö hluta eru dauðir. „Til þessara þátta hefur fjár- magnið til heilbrigöisþjónustu fyrst og fremst farið og það er ekki fyrr en á þessum áratug að menn vakna upp við þann vonda draum að stefnubreytingar sé þörf, möguleikum tækninnar séu lltil takmörk sett, en hitt orki meira tvimælis aö hvaða gagni hún komi þegar til lengdar lætur.” Að fyrirbyggja og lækna Páll kvað okkur hér á landi hafa tekið þátt I þessu kapp- Páli Sigurðsson: „Orkar tvfmælis aö hvaöa gagni tæknin kemur þegar til lengdar lætur.” hlaupi um tækni i læknisfræöi. Þvi aukna fjármagni sem veitt hafi verið til heilbrigðismála hafi fyrst og fremst verið beint til reksturs sjúkrahúsa og rann- sóknastofnana. Hins vegar hafi mjög litill hluti þess fjármagns runnið til lækningastarfa utan sjúkrahúsa og gegni þar sama máli um almenn læknisstörf, sérfræöi- störf og heilsuverndarstarf og litið sem ekkert fjármagn hafi fariö til að upplýsa almenning um gildi hoilra lifshátta eða til enduruppeldis hvað snertir neysluvenjur og siöi. Læknar andvígir stefnubreytingu „Mjög víða hafa heilbrigðis- stjórnir nú uppi áætlanir um breytingar á þessum sviðum. Ráðgert er að minnka til muna það fjárstreymi sem farið hefur til læknisfræðilegrar tæknivæö- ingar, en beina I þess stað fjár- magni til bættrar almennrar og sérhæfðrar læknisþjónustu og heilsuverndar og sérstaklega aukinnar upplýsingastarfsemi I skólum og I fjölmiðlum. Þessi stefnubreyting hjá heil- brigöisyfírvöidum hefur mætt verulegri mótspyrnu, einkum læknasamtakanna, sem hafa getað sýnt fram á að bætt læknisfræðileg tækni getur skipt sköpum I sambandi við sjúk- dómsgreiningar og ákveöna læknismeðferð, einkum á sviöi skurölækninga, en einnig á mörgum sviðum lyflækninga.” Fræðslumiðstöð Páil sagðist ekki telja vafa á þvi að heilsugæslustöövar veröi I framtlöinni miöstöðvar heil- brigöisfræðslu fyrir almenning. Sé vlsir að sliku starfi þegar fyrir hendi. Hins vegar veröi upplýsinga- og fræðslustarf I framtiðinni á mun breiðari grundvelli en nú er og þurfi þvi aö stefna að þvl að á vegum heilbrigðisstjórnar komi upp sérstök upplýsinga- og fræðslu- miðstöð i þessu skyni. Slik miðstöð ætti einnig að miðla fjölbiðlum, bæði hljóö- varpi, sjónvarpi og dagblöðum réttum upplýsingum um hollustuhætti, heilsufar, lækningar og sjúkdóma.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.