Tíminn - 04.07.1968, Qupperneq 1

Tíminn - 04.07.1968, Qupperneq 1
Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið í síma 12323 ÁSÍLD Þegar Guðjón Einarsson, Ijós myndari Tímans, hélt niður á Grandagarð í gærdag, var verið að vinna af fullum krafti í síldveiðibátunum að gera þá klára fyrir síldveiðar. Myndin sýnir menn að vinnu í einum bátanna í gær. ÁSKORUN TIL BÆNDA FRÁ STJÓRN BÚNAÐARFÉLAGSINS: Nýtið allt það graslendi sem vaxtarskilyrði hefur SJÁ 3. SÍÐU Á SÍLD UPP Á LOFORÐ EJ—Reykjavík, þriðjudag. k Mikill grasbrestur er víða á Vesturlandi, Norðurlandi og Austur landi, og útlit fyrir vcrulegt heyleysi á þessum landsvæðum. Hefur þetta m. a. komið greinilega í ljós í frásögntim þeim sem birzt hafa í TÍMANUM undanfarna daga, en sú þriðja birtist í þessu blaði á baksíðu. ★ Stjórn Búnaðarfélags Tslands hefur nú sent frá sér áskorun til bænda landsins, þar sem skorað er á þá, að beita öllum hugsanlegum ráðum til þess að allt graslendi, sem vaxtarskilyrði hefur, verði varið, áborið og hagnýtt til slægna í sumar, og ekki í það horft þótt heyfóð- ur af slíkum löndum þurfi að flytja um langan veg ef nauðsyn krefur. Áskorun Búnaðarfélagsins felst í bókun, er gerð var á fundi stjórn- ar BÍ í gær, 2. júli. Fer hún hér á eftir: „MeS sérstöku tilliti til þeirra horfa, sem nú eru um grasvaxtarhorfur, einkum á Norður-, Vestur- og Austurlandi ber brýna nauðsyn til að taka til rækilegrar athugunar, hvað hægt er að gera til þess að draga úr verulegum afleiðingum af grasbresti á þessu sumri. Stjórn Búnaðarfélags íslands ákveður að koma á fram- færi í blöðum og útvarpi áskorun til bænda um að beita sér fyrir því með öllum hugsanlegum ráðum ,að allt graslendi, sem vaxtarskilyrði hefur, tún og engjalönd, verði varin, áborin og hagnýtt til slægna í sumar og svo til verks gengið í þessu efni, að eigi sé í það horft, þótt heyfóður af slíkum löndum þurfi að flytja um langan veg ef nauðsyn krefur". Tíminn ræöir viö bændur í Borgarfirði og a Sudurlandi:1 ílestir telja sig varla haf a hey tií sölu í haust OÓ-Reykjavík, miðvikudag. Biinaðarfélag íslands hefur skorað á bændur á þeim Iands hlutum, sem kalskemmda gætir lítið eða ekki, að bera á öll tún og grasvelli, sem ella eru . ekki nýtt, og afla eins mikils heyfengs í sumar og mögulegt er. Eins er skorað á þá sem búa á kalsvæðunum að leita eftir slægjum á eyðibýlum og jafnvel fá leigðar slægjur í fjarlæguni héruðum til að afla heyja fyrir búpe-ning sinn til að ekki þurfi að koma til stór fellds niðurskurðar í haust. Tíminn hafði í dag tal af bænd um í Borgarfirði, Hraungerðis lireppi og undir Eyjafjöllum, til að fá upplýsingar um hvort líkur eru til að bændur í þess um héruðum yrðu aflögufærir með hey í haust. En ástandið í þessum efnum er ekki betra en svo, að ekki er að vænta um frambirgða af heyi nema uiulan Eyjafjöllum. Annars staðar cr spretta ekki skárri en svo að menn gera vart betur en heyja fyrir eigin búpening. Sturla Jóhannsson, bóndi á Sturlu-Reykjum í Reykholtsdal sagði, að þar Iiti skár út með heyfcng en víða annars staðar. Þó væru tún í Borgarfirði sums staðar kalin og víðast hvar er sprettan sein. Er sprettan nú mun minni en á sama tíma i fyrra. En geri vætutíð bráð- lega má búast við að bændur í Borgarfirði fari almennt að slá um iniðjan iúlimáiiuð.Bænn ur að norðan hafa leitað fyrir sér með slægjur en úllitið er ekki gott og þykjast Borgfirð ingar tæpast ná meira heyi en þeir þurfa sjálfir á að halda. Helzt *) von til að Norðlending ar fái að heyja á flæðiengjum á Hvítárvöllum og þar í grennd. Stefán Guðmundsson Túni i Hraungerðishreppi sagði, að þar um slóðir væri sláttur rétt að byrja og hefði hann fyrst hafizt í Ölfusholti s. 1. mánu dag. En almennt hefst sláttur þó ekki fyrr en síðar. Tún eru víða meira og wina kalin, þó Iivergi i svo stórum mæli og fyrir norðan. Á nokkrum bæj um eru tún leigð, en þar eru eingöngu bændur úr sveitinni sem nýta þau. Við reynum auð- vitað að heyja eins og hægt er, sagði Stefán, en varla get ég ímyndað mér að menn verði Framhaia a t>is lö. SÉRSTÆTT BRÚÐKAUP NTB-Sydney, miðvikudag. ★ Mjög svo einkennileg bjóna- vígsla fór fram i Ástralíu f dag, nánar tiltekið í litlum kofa rétt fyrir utan Sydneyborg. ■k Ungur maður að nafni Wallace Mellish, sem oft hefur komizt í kast við lögin og er nú eftirlýst- ur fyrir meinta bílastuldi, gekk þar að eiga unnustu sína vopnað- ur haglabyssu, en allt í kringum kofann stóðu 30 lögreglumenn, gráir fyrir járnum með táragas- sprengjur og hríðskotabyssur. Áður en giftingin fór fram, hafði Mellish hafzt við í kiofanum Framhald á bls 15. íslendingaþættir Þriðja tölublað „Islendinga- þátta“ kemur út með blaðinu á morgun, föstudag.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.