Tíminn - 04.07.1968, Blaðsíða 16
UMFERÐANEFND REYKJAVÍKURBORGAR
VILL AUKA HRAÐANN
KJ-Reykjavík, miðvikudag. I máuudaginn, taldi nefndin tíma-1 í þau mörk, sem gildandi voru
bært að reglum um hámarkshraða fyrir H-dag.
Á fundi umferðamefudar í borginni verði breytt, þannig að Hér cr um að ræða götur, þai
Reykjavíkur, sem haldin var á I liámarkshraði verði færður upp | Framhald a bls. 14
!
Á myndlnni sést barnaskólinn á Elðum og hluti mótssvæðisins
(Tímamynd—KJ)
13. LANDSMOT UMF| HALDIÐ AÐ EIÐUM 13—14. JULI:
• •
BUIZT ER VIÐ FJOLMENNI
JK-Egilsstöðum, miðvikudag.
Eips og kunnugt er, verður
13. landsmót UMFÍ haldið á
Eiðum 13. og 14. júlí n. k.
Unnið er nú af kappi að und-
irbúningi mótsins, og í dag
sagði Björn Magnússon, for-
qtaður landsmótsnefndar, blað
inn frá tilhögun þess í stórum
dráttum.
Síótið hefst föstudaginn 12.
júlí, klukkan átta síðdegis. Þá
verður keppt í tíu greinum
starfsíþrótta, og einnig heldur
mótsstjórn fund með flokks-
stjórum hinna ýmsu héraðssam
banda. Keppnisgreinar á mót-
inu verða, auk starfsíþróttanria
frjálsar íþróttir karla og
kvenna, sund karla og kvenna.
Þá keppa þrjú lið til úrslita
í knattspyrnu, handknattleik
karla og kvenna, og körfuknatt
lcik. Þá verður og keppt í
glímu. Á laugardagskvöld,
verður stutt kvöldvaka, og
koma þar m.a. fram hljómsveit
in Ómar frá Reyðarfirði, aust-
firzkt þjóðlagalríó auk þess,
sem ávörp verða fluttl Áð lok-
inni kvöldvökunni verða dans-
leikir. Á sunnudaginn verður
hátíðardagskrá, sem hefst
klukkan 13.30 Efni hennar
verður þannig í stórum drátt-
um: Messa, hátíðarræða,
Bjarni M. Gíslason, söngur
Karlakórs Fljótsdalshéraðs og
blandaðs kórs frá Neskaupstað.
Fimleikasýning, eitt hundrað
piltar og stúlkur frá Neskaup-
stað og Seyðisfirði sýna únd-
ir stjörn Þorvaldar Jöhanns-
sonar íþróttakennara. SÖguleg
leiksýning, þættir úr sögu Una
danska, teknir saman af Kristj-
áni Ingólfssyni skólastjóra á
Eskifirði. Leikfélag Neskaup-
staðar sér um sýninguna. Þjóð
dansar barna og unglinga frá
, Eskifirði, undir stjórn Elínar
Óskarsdóttur. Glíma, piltar frá
Reyðarfirði sýna undir stjórn
Aðalsteins Eiríkssonar. Áuk
þess mun Lúðrasveit Neskaup-
staðar leika á mótinu.
Búizt er við miklum fjölda
keppenda og gesta á mótið ogi
berast þátttökutilkynningar nú
óðum, hvaðanæfa að af land-
inu.
Framkvæmdir við íþrótta
svæðið eru nú á lokastigi, og
einnig er unnið að ýmsum öðr-
Framhald á bls. 14.
HARÐIND Q Ástandiö í A-Hún. og Skagafiröi: |
Y Fl Rl .EIT T MIKI •• IÐ KA Lll )
NEMA I BLONDUHLIÐINNI
IGÞ-Akureyri, þriðjudag
AuSséð er á ástandinu á
þeim svæðum, sem TÍMINN
hefur þegar athugað, að
undirbúningur að björgun-
arstarfinu verður í tvennu
lagi. Annars vegar þarf að
taka skýrslu um kalið á
þeim svæðum, þar sem tún
eru svo að segja ónýt. Hins
vegar þarf að fylgjast með
þeim svæðum, þar sem
grasspretta nær sér ekki á
sfrik á næstu 2—3 vikum,
með það fyrir augum að
kanna, hver heyfengurinn
gæti orðið. Þegar upplýs-
ingar um þetta liggja fyrir,
má gera sér grein fyrir
fóðurvöntuninni í heild, og
hvað víðtækar ráðstafanir
þarf að gera til þess að
bæta bændum upp hið
gífurlega tjón vegna túna,
sem ónýt eru af kal-
skemmdum.
Strax og komið er austar í
Húnavatnssýslunum fer að bera
á því, að gróðurinn virðist hafa
tekið betur við sér, einkum í
úthaga. Þetta verður töluvert
áberandi þegar komið er í
Vatnsdalinn, og má segja, að
þar sé grasspretta, þótt hún sé
mjög seint á ferðinni, mjög
sæmileg, og kal mun minna en
annars staðar. Sama er að segja
í Langadal. Sem dæmi má
nefna, að túnið á Geitarskarði
er allt mjög vel og þétt sprott-
ið, en þess ber að gæta, að þótt
nú sé orðið þetta áliðiö sumars,
er varla hægt að tala um að
komin sé háarslægja á túnin.
En þessi tún geta að sjálfsögðu
brugðið skjótt við ef hlýnar á
næstu 2—3 vikum. En það þýð-
ir, að sláttur verður hálfum
mánuði eða þrcmur vikum síð-
ar á ferðinni en venjulega.
Tíminn hitti að, máli Jón
Tryggvason, bónda og oddvita i
Ártúni, Bólstaðarhlíðarhreppi,
og staðfesti hann, að á túnun
um þar í kring væri um að
ræða lélega háarsprettu miðað
við bezta líma Það hefði sprott
ið ótrúlega hægt i vor, og þó
komið ágætir tíðarfarskaflar.
Klakinn fór seint úr jörð. Jón
kvaðst hafa verið að setja nið-
ur girðingarstaura rétt áður en
blaðamaður Tímans hitti hann,
og þá hefði klakinn verið rúm-
lega fet í jörðu!
Jón benti á, að þctta væri
ekki fyrsta erfiðisár bænda nú,
heldur þriðja harðindaárið í
röð. Það hefði verið mjög erfitt
í fyrra, en þá var haldið áfram
að hvctja bændur til að stækka
búin, sem hcfði verið eðlileg
hvatning til þcss aö bæta af-
komuna. En nú væri útilokað
annað en framkvæma stórkost-
lega lækkun, bændur gætu ekki
annað vegna skulda, sem þeir
hafa safnað undanfarið, og kaup
félögin gætu ekki hjálpað frek
ar en þau hafa nú þegar gert í
því sambandi.
Hann sagði, að undanfwin ár
hefði ekki lánazt að slá nema
einu sinni á sumri vegna sprettu
leysis og kals. Eitthvað hefði
verið fækkað á fóðrum í fyrra
en Jón sagðist telja. að enn
kæmi fyrir að bændur settu of
djarft á í svona árferði, enda
hefðu þeir auðvitað áhuga á að
halda sínum bústofni. Aftur á
móti væri fyrirsjáanlegt, að í
haust þýddi ekki að vera með
slíkar ásetningar.
Jón sagði, að í Svartárdal i
Austur-Húnavatnssýslu i væru
bændur illa settir. einkum fram
arlega í dalnum, því að þar
hefði mikið kal verið í fyrra og
mikið kal núna. Einnig væri
Framhald á bls. 15.