Tíminn - 04.07.1968, Blaðsíða 13

Tíminn - 04.07.1968, Blaðsíða 13
TIMINN :-:i:’’ ísicnzlo og þýzka landsliðið fyrlr leikinn á mánudag, ásamt dómara eg tfnovörðum. ÍÞRÓTTIR Vekjaraklukka handa landsliðsmönnum var gjöf frá hinum erlendu gestum Eftir lefkinn viS V-Þýzikatoid, á þriðj ud aigskvöldið, var leikmönn- um og forráðamönnum íslenzku og þýzku landsliðarma, ásamt öðr- um sjátfsögðum gestum, boðið í samsœti, eius og vani hefur verið til þessa. Áður fyrr var sá háttur hafður á, að Menntamálaráðuneytið, bauð þeim leikmönnum, sem léku fýrir íslandis hönd, og mótherjum þeirra tii samsætis, að leik loknum. En nú eftir að ríkisstjórnin hóf „sparnaðaráætlun“ sína, voru þess um boðum, sem varla hafa kostað meir, en ein utanlandsferð ein- hvers ráðherrans, hætt. Knattspyrnusambandið, taldi sér efcki fært að haetta þessari sjálf- Sögðu gestrisni, að bjóða leik- mönnum uppá matarbita að leik lokum, þar sem m. a. skipzt er á igjöfum, haldnar ræður, og rætt er um leikinn, og buðu þvi þrátt fyrir féleysi sitt, sem er mikið, í samsæti eftir leikinn á mánudag. En ekki er annað hægt að segja að féleysi KSÍ hlýtur að vera mjög mikið, því lágkúrulegra boð var varla hægt að hafa, en þetta. í smá herbergi undir stúku Laug ardalsvallarins, sem með góðu móti rúmar 20 manns, voru sam- anboimnir 50—60 karlrnenn ís- lenzka liðið og það þýzka ásamt forráðamönnum, og starfsmönnum leifcsins. í þessu herbergi var boðið uppá gosdrykki, pilsner og snittur, en hivergi var hægt að láta frá sér snitturnar eða drykkinn, því ekk ert borð var til að setja matföng- in á, og var því hver maður, að troðast um með drykkinn í annari hendi, og snitturnar í hinni og drukkið var af „stút“ eða úr glös- um, sem nokkrir vom sivo heppn ir að ná í. í þessu herbergi, voru svo rœður haldnar, en aðeins þeir fremstu sáu hver var að tala: Fyrst talaði Björgvin Sehram og mælti skörulega að v’anda, afhenti hann eftir góða ræðu á þýzku, Knattspyrnusambandi Þýzka- landis, stóran keramik-vasa að gjöf og öilum leikmiönnum þýzka li'ðs ins keramik-öskuba.kka til minning- ar um leikinn. Þá afhenti hann sfcozka dómaranum, eftir smátölu á ensku, samskonar gjöf, og einnig landsliðsþjálfaranum Peiffher, eftir. áð: hafa talað á dönsku til hans. Loks þakkaði hann íslenzku leikmönnunum fyrir leikinn á „íslenzku“. Formaður þýzka áhugamanna | samhand'sins, mœlti á ensku, og færði KSÍ stóra gjöf, (en þeir öftustu sáu efcki hver hún var) einnig rétti hann öllum meðlim um KSÍ stóran pafcfca. Þá fengu íslenzku leifcmennimir, vefcjarakilukku með merki V-þýzka sambandsins að gjöf, og fannst mörgum sú gjöf táknræn, um að íslenzkum knattspjTnumönnum veitti efcki af að fara að vakna til dáða. Þá færði hann skozka dömaran um og íslenzku línuvörðunum seðlaveski að gjöf, hefur líkiega hu'ldið, eins og einhver sagði, að Unuyerðirnir fengju greitt fyxir leifcinn en svo er ekki þótt alstaðar erlendis, fái dómari og línuverðir j borgað fyrir hvern leifc, en skozfci I dómarinn fær greitt fyrir sín „Kom mest á óvart að hann bölvaði á þýzku“ Klp. — Reykjavúk. Það gekk erfiðleika að ræða við leifcimenn íslenzka og þýzka landsliðsins í hinni „stóru veizlu“ sem KSÍ bauð uppá, eftir lands leikinn á dögunum, þó tófcst okk ur að ná í Kára Árnason hinn marfcheppna leikmann ÍBA, inní geymslu og spurðum hann m. a. álits á undirbúningi og æfingum landsliðsins fyrir leikinn. Það fyrsta sem við spurðum um var: — Hyers vegna að hann næði engum árangri með úrvalsliðum, og væri aldrei svipur hjá sjón í þeim og leikjum með Akureyri? — Ég er líklega eins og Peiffher segir, meiri ,,klúhbspiller“en úrvals leikmaður. Ég þekki strákana hér ekfci eins vel og þá fyrir norð an, sem ég er alinn upp með og hef aldrei kunnað að nota þá rétt, og þeir ekki mig. í þetta sinn gekk það ekfci betur en fyrr, ég vona að það fari að koma. Svona ferðir eins og þessi á Laugarvatn eru sjálfsagðar og ættu að hafa komið fyrr, þá er ég viss um að, við hefðu lært vel hver á annan, og allt gengið betur. Þessi helgi á Laugarvatni, var mjög góð, hvað æfingar snertir, og einnig fyrir móralinn" sem er alveg stórkostlega góður. það eru marg ir sem halda að félagsrígur sé milli manna í svona hóp. þar sem leikmenn eru samankomnir ' úr öllum liðum, en það er langt því frá. Það er létt yfir hópnum, og þetta var ein skemmtun, mikið hlegið í hviHdartímum og mikið svitnað á aafingum. Um leikinn er það að segija, að úthaldiið brást, hann var erfiður, þeir voru líkamlega sterkari en við og léku fast.. Þorbergur Atlason sem léfc sinn fyrsta landsleik, sagði er við náð- um í hann í búningsfclefanum, þeg ar hann var að koma úr baði, með sár og rispur á mjöðm og hönd um, að hann vær efcki svo óánægður með leikinn í heild, en hann væri sár útaf 3. markinu. — Ég rann til í markinu, og þar mieð náði ég engri spyrnu, en hefði það ekki- skeð hefði ég náð boltanum því það var laust skot. í öðru markinu var ég óhepp inn, ég náði ekki boltanum alveg’ en gat slegið í hann en ekki nógu fast, því að hann fór í stöngina og í markið hefði ég verið sentimetra innar á honum, hefði ég haft að slá hann út fyrir stöngina. Fyrsta markið átti ég efcki neinn möguleika á að verja, ég var einn með þá tvp fría á markteig, og hefði ég hlaupið út, hefði hann bara gefið á hinn. „Taktikin" sem Peiffher lagði upp, var góð og viturieg og ágæt lega útfœrð af strákunum framan i af. Mér fannst Guðni og Eyleifur koma bezt frá leiknum af okkar mönnum. Við buðum Guðna Kjartanssyni heimkeyrslu, eftir leikinn, til að fá tóm til að ræða við hann. Við mundum að vísu ekki eftir því Hð hann býr í Keflavík fyrr en við vorum seztir inn í bilinn, en sem betur fór þurftum við ekki að keyra hann alla leið þangað. Hionum lá á að komast suður, því að íþróttaskóianum á Laugar vatni var slitið á föstudag, en þar hefur Guðni stundað nám í vetur, og ekki komið heim til sin, síðan í april. En hann fékk ekki að fara á föstudaginn, með sfcólafélögum sínum, því daginn eftir áttu félagar hans úr landsliðinu að koma austur, og vera um helgina. Guðni sagðist vera óánægður með að þeir skyldu ekki skora nema 1 mark i fyrri hálfleik. — Við áttum tækifæri til þess, en ekki í seinni háilfleik, þá voru þeir húnir að sjá, að úthaldið var að verða búið hjá okkur, og þeir bættu við sig. Miðjan hjá okkur slitnaði í sundur, og tengiliðir þeirra, léku af fullum krafti og komu yifirleilt tveir á móti og mynduðust við að fara í návigi, og ef maður bjó sig undir það, gáfu þe'ir boltann, og sá sem gaf. keyrði á fulilu í mann, þetta var erfitt en þeir eru sterkir. og fljót ir og geta þetta, en v" ekki. Um dvölina á Laugarvatni sagði hann, að hún hefði verið góð, og ætti að vera svona æfingatvúðir fyr ir íslenzka landsliðið fyrir hvern leik. Leikaðferð Peiffhers, var góð, því að hann fær 6 sóknarleiik m-enn, úr hinum ýmsu félögum, til að gera lið úr, á eimji helgi, og það tókst vel, í fyrri 'hálfleik, og á köflum í þeim síðari. Þýzku leikmennirnir, báðu þá j íslenzku strax eftir leikinn, að fara i með þá út, og sjá næturiífið hér : í Reykjavík. En varla hafa þeir i verið hrifnir af úrvalinu, því að i eiqi staðurinn, sem dansað var, j var Þórscaifé og þar náðum við í þá flesta. Þeir ísienzku sátu dauð þreyttir við borð, en þeir þýzku virtust enn hafa mikið úthald eftir því sem þeir dönsuðu, Twist og La postella, af mifcilli kunnáttu, við sti;ttk]æddur hnátur, sem voru eins og peð við hliðina á stæltum knattspyrnumönnum Þýzkalands. Ekkert áfengi var um hönd haft hjá hvorugu liðinu, en menn þömbuðu pilsner af mifcilli kunn áttu. Við hittum fyrst Rainer Zobel 19 ára leikmann, sem er með 12 1 landsieiki að bafcí eða fleiri en nokkur mótherji hans í leiknum, og er þó ári yngri en yngsti mað ur íslenzka liðsins. Zobel, var ekki á því að viður I Framhald á bls. 12 störf í þessum leifc eftir gjaldskrá FÍFA. I/>ks afhenti Björgvin Schram, Gísla Sigurbjörnssyni, forstjóra EMheimilisins silfurmerki KSÍ, því að í ár eru 33 ár liðin frá því að fyrsta þýzfca knattspyrnuliðið kom hingað til lands, og vann Gísli ötuilega að því að fá þetta lið hingað upp. Einibver í hópnum var þá svo_ vinigjarnlegur að benda stjóm KSÍ á, að Þorhergur Atia son hefði leikið sinn fyrsta landsleik í knattspyrnu og ætti þvtí að fá „máilmmerki“ KSÍ, sem ætáð eru afhent í slíkum samsæt um, og er það eina sem íslenzkur landsliðsmaður fær fyrir að leika fyrir þjöð sína, en svo ef hann nær 25 landsleikjum sem fæstir gera fær hann armibandsúr. En þvi miður hafði það litla atriði gleymzt, að koma með málm merfcið, og tóik því Björgvin gullmierki KSÍ úr harmi sínum, ag „ilánaði það til miorguus", eins og hann orðaði það. En nú komu önnur vandræði í 'ljós, Matthías Hallgrímisson, sem kom inná í siðari hálfleik lék einnig sinn fyrsta landsleik f þetta sinn. En nú hafði enginn merki til að láma. Fyrir nofckrum árum, Þegar Helgi Daníelsson lék sinn 25 landsleik, gleymdist »3 líafa armbandsúrið með handa Helga, og lánaði Björgvin' þá sitt úr, tii að Hel'gi fengi eittlhvað. Það má því segja, að það sé heppni að Bjiörgvin skuii ætíð hafa eitthivað á sér til að bjarga málunum. Fer nú að verða tíma bært fyrir stjórn KSÍ að fara að „hugsa“ fyrir hvern landisleik, því svona smá atriði (hjá þeim), eins og að láta mann fá merki fyrir sinn fynsta landsleik er stórt at- riði hjá þeim, sem það á að fá, og er leiðinlegt, að sýna það fyrir framan stóran hóp manna, að ekfcert er hugsað um þá litlu, sem þó standa í miðjum eldinum. KSÍ er nú búið að ráða fram- kvæmdastjóra til áð ,,vinna“ fyrir sig, og því mœtti ætla að tóm hafi gefizt í 7 manna stjórn til að „hugisa“. Það er að vísu ekki eftir nema einn i landsleikur í knattspyrnu hér á landi í ár, en góður tími er tii stefnu, og er vonandi að hann verði notaður vel, þá meðal ann ars, tit þess að hinum erlendu gestum sem hér koma, í boði KSÍ, sé í það minnsta boðið uppá hina heimsfrægu ísl. gestrisni, og her Menntamálaráðuneytinu, og Fjármáiaráðuneytinu skylda til, sóma síns, og þjóðarinnar vegna að bjóða erlendum landsliðum, sem hér leika uppá einhyern lítinn hluta hennar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.